Morgunblaðið - 15.02.1977, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1977
27
Bent A. Koch skrifar
um kosningarnar í
Danmörku semfram
fara í dag
AHUGI manna á þingkosn-
ingum hefur sjaidan verið
minni í Danmörku en nú fyrir
kosningarnar á þriðjudag. Það
er engin furða, því að um árabil
hafa verið kosningar eða
þjóðaratkvæðagreiðslur í Dan-
mörku á hverju ári.
Hvers vegna efndi Anker
Jörgensen forsætisráðherra þá
til kosninga? Einfaldlega vegna
þess að minnihlutastjórn hans
var komin í ógöngur. Raunar
hafði hann svokallaða ágúst-
flokka á bak við sig og þar með
þingmeirihluta, að visu
nauman (90 þingsæti af 179).
En nauðsynlegt reyndist að fá
Vinstri flokkinn til þátttöku í
viðræðum um nýtt samkomulag
vinnuveitenda og launþega þar
sem það nær til samkomulags
um húsnæðismál, sem áður
hafði verið gert og Vinstri
flokkurinn var aðilí að. Og
Vinstri flokkurinn reis upp á
afturfæturna, stöðvaði hjólin
eins og Anker Jörgensen orðaði
það.
Um það er bollalagt í Vinstri
flokknum hvort sú afstaða er
rétt að hafna samvinnu við
sósíaldemókrata. Stór hluti
dönsku þjóðarinnar vill að þess-
ir tveir gömlu flokkar komist
að samkomulagi og tryggi
trausta stjórn, annað hvort með
samvinnu í ríkisstjórn eða með
skuldbindandi samstarfssamn-
ingi.
Staða Glistrups
Fyrir því eru trúlega ýmsar
ástæður að leiðtogar Vinstri
flokksins með Poul Hartling og
Anders Andersen fyrrverandi
fjármálaráðherra í fararbroddi
segja nei. Ef slík samvinna fer
út um þúfur kemst Mogens
Glistrup í mjög sterka aðstöðu.
Þá yrði hann eini aðilinn, sem
hægt væri að mynda stjórn
með. Einnig má vera að Vinstri
flokkurinn óttist, að hinn stóri
flokkur sósialdemókrata
„gleypi" hann, ef efnt yrði til
slíkrar samvinnu eins og
minnstu munaði að hann
gleypti Róttæka vinstriflokk-
inn.
En jafnframt hefur Vinstri
flokkurinn fylgzt af ugg um
með því að flokkar, sem að-
hyllast svipaðar hugmyndir og
hann — íhaldsflokkurinn og
Kristilegi þjóðarflokkurinn —
hafa neyðzt til að taka upp stöð-
ugt nánari samvinnu við Anker
Jörgensen. Litlu borgara-
flokkunum finnst að þeir sæti
illri meðferð frá hendi Vinstri
flokksins og vilja ekki stuðla að
því að Hartling komist aftur til
valda, að minnsta kosti ekki án
þess hann taki þá með í ríkis-
stjórn. Róttækir hafa sagt
hreinskilnislega að þeir vilji
undir engum kringumstæðum
að Hartling verði aftur for-
sætisráðherra.
Þar sem þannig var ástatt
ákvað Anker Jörgensen að leita
til kjósenda og biðja þá að stað-
festa umboð sitt og helzt efla
það. Að vissu leyti tekur hann
mikla áhættu. Samkvæmt síð-
ustu skoðanakönnun Gallups
tapa sósíaldemókratar og stuðn-
ingsflokkar þeirra — ágúst-
flokkkarnir — kosningunum ef
könnunin reynist rétt (sjá
töflu). Seinni skoðanakönnun,
sem önnur stofnun tók, bendir
til þess að ágústflokkarnir
eflist i kosningunum.
' •inrifiw
Tiv l'. <I .vot!>ri;t />!*! < - 1
Hvað gerist?
Og hér kemur að helztu
spurningu kosninganna: hvað
verður um ágúst-flokkana og
þar með ágúst-samkomulagið?
Spurningin er afgerandi
vegna þess að með ágúst-
samkomulaginu er reynt að
fylgja fram bíndingu kaup-
gjalds og verðlags. Samkomu-
lagið á að koma til fram-
kvæmda 1. marz og samkvæmt
því eiga tekjur aðeins að hækka
um tvo af hundraði á ársgrund-
velli á næstu tveimur árum að
viðbættum fjórum af hundraði
á ári í dýrtíð.
Um þetta snúast viðræður
aðila vinnumarkaðarins í Dan-
mörku þessa dagana, um lög frá
þjóðþinginu er eiginlega ekki
að ræða. Þessar viðræður hafa
siglt í strand þar sem báðir
aðilar vilja biða og sjá hvað
gerist í kosningunum. Ef ágúst-
flokkarnir fá ekki meirihluta í
kosningunum er ágúst-
samkomulagið brostið og
rammi launahækkana á næsta
tveggja ára samningstima þar
með úr sögunni. Það gæti hæg-
lega haft í för með sér öng-
þveiti á vinnumarkaðnum.
Með hliðsjón af þessu verður
að skoða athugasemd Per
Hækkerups efnahagsráðherra í
sjónvarpi sama dag og kosning-
ar voru boðaðar: Ef menn geta
ekki kosið sósíaldemókrata af
einhverri ástæðu verða þeir að
kjósa hina flokkana (ágúst-
flokkana) ,sem hafa sýnt að
þeir eru fúsir að bera ábyrgð.
Svo erfitt er orðið að mynda
traustan meirihluta i danska
þjóðþingiru, að einn helzti leið-
togi sósíaldemókrata segir við
kjósendur: Ef þið getið ekki
kosið okkur, kjósið íhaldsmenn
eða einhvern hinna borgara-
flokkanna!
Flókið ástand
Margir útlendingar eiga sjálf-
sagt erfitt með að skilja flókið
ástand danskra stjórnmála (sjá
töflu). Eiginlega eru borgara-
flokkarnir í meirihluta: 102
þingsæti af 179 og þeir fengu
58,8 af hundraði greiddra at-
kvæða i þingkosningunum
1975. En þessi meirihluti er
óstarfhæfur af því hinir borg-
araflokkarnir telja sig ekki
geta unnið með Glistrup og
flokki hans — vegna persónu
mannsins og stefnu flokksins.
Anker Jörgensen og minni-
hlutastjórn hans komu því til
valda og smátt og smátt hefur
hann komið til leiðar býsna
fastmótuðu samstarfi við borg-
araflokkana.
Samstarfinu verður haldið
áfram ef flokkarnir eflast i
kosningunum. Anker Jörgen-
sen vill hvorki vinna með flokk-
um lengst til vinstri né hægri.
Og hann getur tæplega efnt til
samvinnu með Vinstri flokkn-
um. Raunar hefur stjórn Anker
Jörgensens ekki beðizt lausnar.
Ef fylgi sósíaldemókrata eykst
eða þeir standa sig sæmilega
verður Anker Jörgensen áfram
við stjórn — og ekkert bendir
til þess að hann verði íelldur
við atkvæðagreiðslu á þjóðþing-
inu. Við það geysierfiða ástand,
sem ríkir á vinnumarkaðnum,
vill varla nokkur annar stjórn-
málamaður setjast í forsætis-
ráðherrastólinn.
Anker sterkur
En tekst honum að treysta sig
í sessi? Allar skoðanakánnanir
benda til þess. Staða Ankers
Jörgensens hefur stöðugt
styrkzt á undanförnum tveimur
árum, ekki aðeins i flokki hans
sjálfs, heldur - einnig meðal
borgaraflokkanna.
Anker Jörgensen og Mogens
Glistrup verða sennilega sigur-
vegarar kosninganna. Frani-
faraflokkurinn hefui- að vísu
haft aðeins takmörkuð áhrif
síðan hann kom mönnum á
þing, en þessi sérdanski mót-
mælaflokkur hefur fengið vind
í seglin vegna óánægju með
„gömlu flokkana", atvinnu-
leysi, skriffinnzku, verðhækk-
anir og almenna óvissu um
framtíðina. Kennilega bæta
smáflokkarnir til vinstri einnig
við sig nokkru fylgi. Minni-
hlutastjórn sósíaldemókrata
hefur reynzt erfitt að varðveita
pólitískt sjálfstæði sitt. Hún
hefur að mörgu leyti orðið að
fara eftir vilja þingmeirihlut-
ans og það hefur auðvitað orðið
vatn á nxyllu sósialistaflokk-
anna til vinstri. Þegar öllu er á
Framhald á bls. 28
Jörgensen
og Glistrup
spáð sigri
í *)7 i>7!
m
Sjá töflu á
hls. 28
Poul Hartling og Anker Jörgensen við samningaborð
Anders Andersen fv.
fjármálaráðherra
Skoðun norsks skop-
teiknara, Finn Graff
við Arbeiderbladet, á
stjórnmálaástandinu I
Danmörku: Anker
Jörgensen með Poul
Hartling og Mogens
Glistrup i eftirdragi