Morgunblaðið - 15.02.1977, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1977
SVAR M/TT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég hef nýlega lesið Passover Plol (Páskasamsærið), og ég verð
að segja, að þar eru mjög sannfærandi rök gegn upprisu
Jesú. Þekkið þér nokkurn raunverulegan vísindamann, sem
hefur kynnt sér vel staðre.vndir um upprisu Jesú og hefur
sannfa rzl um, að hún hafi átt sér stað?
Tveir víðkunnir Englendingar gerðu slíka athugun.
Annar var Gilbert West, þekktur rithöfundur og
uppeldisfrömuður. Hinn hét Edward Littleton,
lávarður. Hann var lögfræðingur og skært ljós í hópi
menntamanna. Það var viðurkennt, að þeir væru
báðir efahyggjumenn varðandi sannleiksgildi
kristindómsins. Þeir hugðust eyöileggja kristna trú
og töldu sig þá þurfa að afsanna upprisuna og
útskýra afturhvarf Páls postula á annan hátt en
Biblían gerir. Þeir byrjuðu rannsókn sína. West átti
að taj<a að sér að afsanna upprisuna, en Littleton
vildi sýna fram á, að Páll hefði ekki snúizt til Krists á
veginum til Damaskus. Eftir árs athuganir hittust
þeir til þess að bera saman bækur sínar. Þá voru
báðir orðnir sannfærðir, kristnir menn, og báðir
játuðu, að þeir hefðu ekki komizt undan því að taka
trúna á Krist, þegar þeir skoðuðu niðurstöðurnar af
rannsóknum sínum.
Höfundur bókarinnar Passover Plot er efamaður,
sem neitaði að taka til greina sannanir heiðarlegra
rannsókna. Allir menn eru frjálsir að þvi að taka
slíka afstöðu. Kristinni trú er veitt viðtaka eða henni
er hafnað, og staðreyndir hafa engin áhrif á þá, sem
hafa þegar sett sig í andlegar skorður.
Hershöfðinginn Lew Wallace hugðist afsanna frá-
sögn guðspjallanna. Meðan hann vann að könnun
sinni, öðlaðist hann trúna á Krist og samdi hina
þekktu skáldsögu, Ben Húr, sögu um Krist. Já,
margir hafa reynt að hnekkja frásögn guóspjall-
anna, og fjölmargir þeirra hafa að lokum orðið
kristnir. En jafnvel Guð sjálfur kemst ekki inn i
lokað hjarta.
— Tvö núll
Framhald af bls. 2
hægt, Unnt væri að gefa út 5
króna seðil, 10 króna seðil, 50
króna seðil og 100 króna seðil, en
hann jafngilti 10.000 krónum.
Lárus ræðir fyrri athuganir á
gjaldmiðilsbreytingu, sem fram
hafi farið og segir að flestar tillög-
urnar hafi verið um tíföldun verð-
mætisins, en þá telur hann dýrari
og reikningslega erfiðari í fram-
kvæmd. I greinargerðinni segir:
„ Arið 1962 starfaði nefnd á
vegum þáverandi fjármálaráð-
herra, Gunnars Thoroddsens, að
þvi að athuga hvaða breytingar
væri heppilegt að gera á mynt-
kerfinu. I nefndinni voru Sig-
tryggur Klemenzson, og var hann
jafnframt formaður hennar, en
auk hans Jóhannes Nordal og Kle-
mens Tryggvason. Nefndin gerði
tillögur um að verðmæti gjald-
miðilsins yrði tífaldað, og rök-
studdi hún tillögur sfnar með já-
kvæðum sálrænum áhrifum
breytingarinnar og hagkvæmni
þess að losna við smámyntir undir
10 aurum að þágildandi verð-
mæti. Tillögur þessar hlutu þó
ekki hljómgrunn stjórnvalda,
einkum vegna kostnaðar, sem
þær hefðu i för með sér.
Árið 1972 var samþykkt þings-
ályktunartillaga á Alþingi frá
Birni Pálssyni. Meginefni hennar
var að fela ríkisstjórninni að láta
athuga hvort tímabært þætti og
hagkvæmt að auka verðgildi ís-
lenzkrar krónu þannig að 10 krón-
ur yróu að einni.
Allsherjarnefnd SÞ. fékk itar-
lega umsögn frá Seðlabankanum
um þessa tillögu. Þar kom fram að
bankastjórnin taldi ekki tima-
bært að tifalda verðgildi krón-
unnar, en aðkallandi væri að gera
tilteknar breytingar á myntkerf-
inu. 1 greinargerð bankans segir á
hinn bóginn svo i niðurstöðum:
„Loks telur bankastjórnin æski-
legt, að kannað verði með almenn-
um umræðum innan Alþingis og
utan, hvort menn telja upptöku
stærri gjaldmiðilseiningar gagn-
lega ráðstöfun og líklega til þess
að auka virðingu og traust manna
á gjaldmiðli þjóðarinnar. Fái
þessi hugmynd nægilega jákvæð-
ar undirtektir, mætti hugsanlega
stefna að því að tekin yrði upp ný
gjaldmiðilseining, er væri jafn-
gildi 100 króna. Verður það varla
fyrr en eftir nokkur ár...“
— Tel líklegt
Framhald af bls. 44
mikinn árangur — en þá urðum
við sammála um þó nokkra
punkta, sem við ræddum síðan við
ríkisstjórnina." Björn sagði að
hugsanlega gætu aðilar vinnu-
markaðarins rætt skattamál við
rikisvaldið. „Við höfum áhuga á
því, eftir þvi sem hægt er, að
ríkisstjórnin auki svigrúm
atvinnurekstursins og þar koma
til álita ýmis gjöld, ef einhver
flötur fæst til þess að dregið væri
úr þeim. og siðan beint til kaup-
hækkunar. „Björn kvað launa-
skatt t.d. hugsanlegan í þvi sam-
bandi, gjöld af aðföngum o.fl.
„Get ég lítið um þetta sagt, á
meðan þetta hefur ekki verið
kannað, en ég tel líkleg aó þessum
tilmælum verði tekið jákvætt,"
sagði Björn Jónsson.
Tilraun
til
flugráns
Ismir — 14. febrúar — Reuter.
17 ára lærlingur i lögreglunni
gerði um helgina tilraun til flug-
ráns. Flugvélin var á leið frá
Izmir til Istanbul með 52 farþega
þegar pilturinn ruddist inn í flug-
stjðrnarklefann með flugfreyju
sem gfsl. Hann skipaði flug-
stjóranum að hækka flugið og
taka stefnu á Belgrad, en þegar
skipun hans var ekki hlýtt hleypti
hann af fjórum skotum, og særði
flugstjórann og flugfreyjuna.
Flugvélin nauðlenti á herflug-
velli í nágrenninu. Þar hélt
pilturinn áfram að skjóta, en
hæfði engan. Hann var handtek-
inn þegar hann var orðinn uppi-
skroppa með skotfæri.
Meiðsli flugfreyjurinar og flug-
stjórans eru smávægileg, og eng-
an farþega sakaði. Herlögreglan á
flugvellinum segir, að pilturinn
sé geðsjúkur.
— Byggingavörur
Framhald af bls. 44
góða veðrátta undanfarið skipti
miklu í þvi sambandi, en eins
væri ekki að finna neitt hik á
húsbyggjendum, sem benti til
þess að menn væru ekki mjög
þjakaðir af peningaleysi. „Við
framleiðum hér bæði útveggs-
steina og milliveggjasteina, og
erum algjörlega uppiskroppa með
hvort tveggja og minnist ég þess
ekki, að við höfum verið svo illa
staddir á þessum árstima þau 17
ár sem ég hef verið við þetta,"
sagði verzlunarstjórinn þar.
Hjá verzlun J. Þorlákssonar &
Norðmann á Skúlagötu var okkur
tjáð, að salan hefði verið mjög
lífleg allan janúarmánuð og meiri
en menn ættu að venjast á þess-
um árstima, en verzlunarstjórinn
kvaðst verða þess var að dregið
hefði úr sölunni þegar kom fram í
febrúar. Hann taldi að hina góðu
sölu i janúar mætti að nokkru
leyti rekja til tíðarfarsins og eins
hitt að þeir, sem hefðu fjárráðin,
hefðu talið vissara að festa sem
fyrst kaup á byggingarefni vegna
ótta við hækkanir sem framundan
væru. Hann sagði hins vegar að
lítil sala hefði verið i bygginga-
vörum til útivinnu.
— Fasteigna-
markaður
Framhald af bls. 2
á þvi að fólk vill kaupa sér íbúðir
nú áður en hækkun verður. Tals-
vert framboð er nú af íbúðarhús-
næði, en um leið og eftirspurnin
eykst, fylgir verðið í kjölfarið og
hækkar.
Tiltölulega meiri stigandi hefur
verið i verði lítilla Ibúða en stórra
að undanförnu. Þriggja herbergja
ibúðir eru nú seldar yfir leitt á
bilinu frá 7,5 til 9 milljóna króna
eftir stærð og gæðum. 1 Árbæjar-
hverfi er t.d. algengt verð um 8
milljónir króna. Erfiðara er að
segja um verð á 4ra herbergja
íbúðum, þar sem miklu meiri
breytileiki er í stærð þeirra. Verð
á þeim er þó á bilinu 9,5 til 10
milljóna króna yfirleitt og verð á
5 herbergja góðri íbúð er á bilinu
10 til 12 milljónir króna. Allar
þessar viðmiðanir í verði eru um
íbúðir i fjölbýlishúsum.
— Loðnan
Framhald af bls. 2
Þórkatla II GK 240, Óskar Hall-
dórsson RE 400, Loftur Baldvins-
son EA 400, Sigurberg ÓF 260,
Ársæll Sigurðsson GK 200, Skóg-
ey SF 230, Geir goði GK 160,
Skarðsvik SH 370, Magnús NK
260, Arni Sigurður AK 400, Kap
II VE 560, Keflvikingur KE 240,
Suðurey VE 120, Bergur VE 160,
Rauðsey AK 420, Sæbjörg VE 300,
ísleifur VE 430, Súlan EA 650,
Ásberg RE 380, Grindvíkingur
GK 430, Helga Guðmundsdóttir
BA 460, Pétur Jónsson RE 660,
Sæberg SU 260, Álsey VE 160,
Húnaröst ÁR 250, Guðmundur RE
800, Flosi IS 280, Dagfari ÞH 250,
Þórður Jónasson EA 380, Örn KE
530, Víkurberg GK 260.
Frá miðnáetti s.l. til klukkan 22
í gærkvöldi tilkynntu eftirtalin
skip loðnuafla: Hákon ÞH 450,
Vonin KE 190, Reykjanes GK 230,
Stapavík SI 500, Gullberg VE 580,
Helga II RE 350, Guðmundur
Jónsson GK 620, Gunnar Jónsson
VE 300, Gisli Árni RE 540, And-
vari VE 220, Jón Finnsson GK 560
og Eldborg GK 510.
— Palestínu-
málið
Framhald af bls. 1.
andi aðilum. Það var Henry
Kissinger, fyrirrennari Vance,
sem lagði tij að hann færi i þessa
ferð, sem verður undanfari heim-
sókna leiðtoga ísraels og Araba-
ríkjanna til Bandarikjanna i vor.
Ekki er talið að stjórnin muni
ákveða fyrr en í sumar hvernig
staðið verður að samningaviðræð-
um um Miðausturlandamálið, en
talið er að þær muni byrja með
óformlegum fundi leiðtoga Mið-
austurlandarikjanna til að undir-
búa nýja Genfarráðstefnu.
Vance mun ekki hitta Yasser
Arafat eða aðra af leiðtogum
PLO, en reyna að kynna sér vand-
lega afstöðu þeirra. Vance sagði
nýlega í viðtali við New York
Times, að ef Palestinumenn
hefðu í raun tekið upp hógværari
afstöðu myndi slikt að sjálfsögðu
hjálpa. Vance og aðrir bandarisk-
ir ráðamenn hafa ekki tekið beina
afstöðu með eða á móti Palestinu-
ríki, en vitað er að þeir telja 3
aðalforsendurnar fyrir lausn Mið-
austurlandadeilunnar frið, brott-
flutning Israelsmanna frá her-
teknu svæðunum og að fundin sé
leið tii að tryggja löglega hags-
muni Palestínumanna. Vance
verður í dag og á morgun i Israel,
flýgur til Kaíró á fimmtudag,
verður í Beirút og Amman á
föstudag, á laugardag I Riyadh og
til Damaskus á sunnudag áður en
hann heldur heim á leið.
Stjórn Israels hefur haft
mikinn undirbúning undir komu
Vance og stjórnin setið á stöðug-
um fundum undanfarna daga.
Israelsmenn telja heimsóknina
mjög mikilvæga þar sem nú gefist
þeim fyrsta tækifærið til að koma
hugmyndum sinum beint á fram-
færi við stjórn Carters forseta.
Austurriska dagblaðið Zeitung,
sem gefið er út í Vín, birti I gær
skjal frá PLO, sem það segir að
einn af leiðtogum samtakanna,
Isam Sartawi, hafi afhent
Kreisky, kanslara Austurríkis,
sem formanni nefndar alþjóða-
samtaka jafnaðarmanna um
upplýsingaöflun um Miðaustur-
landamálin. í skjalinu segir, að
Palestinumenn í smáríki gætu
lifað í sátt og samlyndi við Israela
og að PLO sé tilbúið til að sam-
þykkja smáríki á vesturbakka
Jórdanár, Gaza og tveimur smá-
svæðum, Himma og Auja. Helsti
boðskapur skjalsins var, að nú
væri heppilegasti timinn til að
setja niður deilur i Miðaustur-
löndum, og tækifærið gæti glatazt
ef ekkert yrði gert á næstu
mánuðum. Mikilvægasta atriðið
væri viðurkenning á rétti allra
Palestínumanna til að snúa heim
og bætur til handa þeim, sem af
frjálsum vilja tækju ákvörðun um
að snúa ekki aftur.
Stjórn ísraels hefur látið i ljós
svartsýni á að hugur fylgi hér
máli hjá Palestínumönnum, hug-
myndunum hafi jafnan verið
vísað á bug af einhverjum PLO-
leiðtoga eftir að þær höfðu verið
birtar opinberlega. Talsmaður
ísraelsstjórnar sagði i dag, að hún
liti á þessar hugmyndir sem leiðir
Palestinumanna til að reyna að
hafa áhrif á almenningsálit í
heiminum utan Arabalandanna.
— Jörgensen og Glistrup Óbreytt? varla samþykkja samkomulag sem yrði innan ramma ágúst-
Hvað gerist eftir kosningarn- samkomulagsins. Því má búast
ar? Sennilega verður stjórn An- við ókyrrð á i/innumarkaðnum
ker Jörgensens áfram við völd í — ókyrrð sem mun verða til
Framhald af bls. 27 nokkuð breyttri mynd, en sem þess að þjóðþingið skerst í leik-
fyrr hrein minnihlutastjórn inn.
botninn hvolft verður líklega sósíaldemókrata. Þvi næst Þótt kaít sé i veðri i Dan-
um nokkra vinstrisveiflu að munu viðræðurnar á vinnu- mörku þessa dagána má því bú-
ræða í kosningunum á þriðju- markaðnum hefjast fyrir al- ast við „heitu vori“ í dönskum
dag. vöru, en verkamenn munu stjórnmálum.
1971 1973 1975 Gallup 1971 1973 1975 Gallup
Mið-vinstri Jan 77 Jan 77
Sósfaldemókratar 37.3 25.6 29.9 31.3 70 46 53 56(+3)
Sós.þjóðarfl. 9.1 6.0 5.0 4.2 17 11 9 8<-l)
Kommúnistar 1.4 3.6 4.2 5.2 0 6 7 9 (+2)
Vinstrisósfalistar 1.6 1.5 2.1 3.4 0 0 4 6(+2)
Mið- hægri 49.4 36.7 41.2 44.1 87 63 73 79 (+6)
Vinstri 15.6 12.3 23.3 21.1 30 22 42 38(—4)
Róttækir 14.4 11.2 7.1 4.3 27 20 13 8 (—5)
thaldsmenn 16.7 9.2 5.5 5.2 31 16 10 9 < — 1)
Miðdemókratar — 7.8 2.2 3.4 — 14 4 6(—2)
Kristilegir 2.0 4.0 5.3 4.7 0 7 9 8 (— 1)
Réttarsamband 1.7 2.9 1.8 — 0 5 0 — <- )
Glistrup-hreyfingin Framfaraflokkur 50.4 47.4 45.2 38.7 88 84 78 69 (—9)
— 15.9 13.6 15.3 — 28 24 27 (+3)
Borgaralegir og Gilstrup 50.4 63.3 58.8 54.0 88 112 102 96 (—6)
Þingsæti i Danmörku 175 175 175 175
+ Grænland 2, Færeyjar 2 4 4 4 4
179 179 179 179
Kosningaþátttaka 87.2 88.7 88.2
Ágústflokkar nú: Sósialdemókratar 54 (þar af 1 frá Færeyjum), Róttækir 13, íhaldsmenn 10,
miðdemókratar 4, kristilegir 9. alls: 90.
Ágústflokkar skv. Gallup jan. 77 Sósialdemókratar 56, róttækir 8, fhaldsmenn 9, miðdemókratar
6, kristilegir 8, alls:87. „Töfratalan“: 90 þingsæti af 179.