Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 2

Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977 Áætlun ísal: Hreinsitækin verði sett upp á 3% ári — 1 ÞEIRRI áætlun, sem vió höf- um lagt fyrir Islenzk stjórnvöld er ráö fyrir því gert að hreinsi- tækin verði sett upp I áföngum á þremur og hálfu ári, sagði Ragnar Halldórsson, forstjóri ísal, I sam- tali við Morgunbiaðið f gær. Ragnar kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um þessa áætlun, þar sem málið væri nú í höndum heil- brigðisráðherra. Ráðherra hefði fengið nákvæma skýrslu um áætl- unina og von væri á nákvæmri skýrslu um hreinsitækin og hvernig þau virkuðu, og m.vndi ráðherra fá þá skýrslu strax og hún væri tilbúin. — Við teljum að það sé heppilegast fyrir alla aðila að hreinsitækin verði sett upp i áföngum á þremur og hálfu ári þannig að 100% afköstum verði náð upp úr miðju ári 1980, sagði Ragnar Halldórsson. Sakkarín bannað í Kanada og Bandaríkjunum: „Langsóttur möguleiki að sakkarín valdi krabba” — segir Þorkell Jóhannesson læknir og formaður lyfjaskrárnefndar YFIRVÖLD I Kanada og Banda- ríkjunum hafa ákveðið að banna notkun á sakkaríni þar sem rann- sóknir á rottum sýna að efnið getur valdið krabbameini f þvag- blöðru. Verður sakkarín bannað í gosdrvkkjum í Kanada frá 1. júlí og til annarra nota frá 1. september. Bandaríska Ivfja- stjórnin (FDA) segir að sakkarín verði hannað í Bandaríkjunum frá I. júlí vegna kanadísku rann- sóknarinnar og ákvæða í banda- rískum lögum um að ekki megi selja efni, sem valdið geti krabbameini. ,,Ég álit að það sé heldur lang- sóttur möguleiki, að saccarin valdi krabbameini og þvi kannski ekki raunhæft að banna notkun þess," sagði Þorkell Jóhannesson læknir, formaður lyfjaskrár- nefndar, í samtali við Morgun- blaðið í gær, er blaðið bar undir hann bannið, sem hefði verið boð- að' á saccarínneyzlu. Þá sagði Þor- kell einnig að bandarísk stjórn- völd væru eitthvað að linast í af- stöðu sinni til syclamats, en sá gervisykur var bannaður þar fvr- ir nokkrum ástæðum og saccarin í Kanada nú. Þorkell sagði að í Bandarikjunum væru mjög ströng lög, sem kveða á um að ef eitthvert efni i ein- hverju magni, í einhverri tilraun í einhverju tilraunadýri, veldur krabbameini, þá má ekki nota það í mat sem ætlaður er mönnum. Þorkell sagði að ef farið væri að lita niður í saumana á þessum lögum, þá yrði fátt eftir, sem ekki gæti myndað krabbamein i ein- hverju tilraunadýri undir ein- hverjum kingumstæðum og Framhald á bls. 19 Bratteli gestur á Degi Norðurlanda” 9* Norðurlandaráð er 25 ára á þessu ári og í tilefni þess hefur ráðið lýst 23. marz Dag Norður- landa. Er það í fyrsta sinn, sem ákveðinn dagur er helgaður norrænni samvinnu, en ekki er ráðgert að það verði árlega. Norrænu félögin munu ann- ast hátíðarsamkomur víða um Norðurlönd þennan dag og auk þess verður dagsins minnzt með margvíslegum öðrum hætti. I Reykjavík verður hátíðar samkoma i Norræna húsinu ai kvöldi 23. marz og standa a< henni Norræna félagið oj Islandsdeild Norðurlandaráðs. I tilefni af Degi Norðurlandj hefur Tryggve Bratteli, fv. for sætisráðherra Norðmanna, ver ið boðið til tslands og mur hann halda ræðu á hátíðarsam komunni I Norræna húsinu Samkoman er öllum opin. I gær kom til Reykjavíkur í fyrsta skipti flutningaskipið Hvalvik, en það mun vera stærsta skip, sem siglir undir islenzkum fána um þessar mundir. Hvalvik, sem er eign Víkur h.f., er 4410 dwt. að stærð og er lestarrými skipsins 211 þúsund rúmfet í venjuleg- um flutningum, en 217 þús, ef t.d. korn er flutt. Finnbogi Kjeld aðaleigandi Víkur h.f. sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að skipið hefði verið kevpt frá Noregi f.vrir tveimur árum, en það var b.vggt árið 1970. Þann tíma, sem Hvalvík, hefur verið i eigu hlutafélagsins Víkur hefur skipið verið í leiguflutningum og m.a. siglt mikið til Banda- ríkjanna, Kanada, Afriku og Miðjarðarhafslanda. Hvalvik á nú að taka um 3500 lestir af loðnumjöli, sem farið verður með til Póllands. Fjórtán manna áhöfn er á skipinu, allt islendingar. Skip- stjóri er Guðmundur Arason, en 1. vélstjóri Sigfús Tómasson. Víkur h.f. eiga eitt skip fyrir, Eldvík, en það skip er kæliskip og hefur verið mikið í saltfisk- flutningum. Mvnd þessi sýnir hluta þeirra skemmda, sem urðu á gríska skipinu er það sigldi hvað eftir annað á brvggj- una á Revðarfirði. (Ljósm. Hreggviður Guðgeirsson) Reyðarfirði, 10. marz. EKKI liggur enn fvrir mat á skemmdum á hafnarmann- virkjum og gríska skipinu Alikanon Progress. Lokið er við að styrkja lestarþil í skipinu og búið er að skipa út 900 tonnum af loðnu- mjöli, en skipið tekur 1700 tonn af mjöli hér og siglir með það beint út. Mjög erfitt er að lesta skipió þar sem mikill burður er. Norska skipið Bowsailor tók hér á mánudaginn 1600 tonn af lýsi. Eftir er að bræða hér 3000 tonn af loðnu. Þróar- rými er fyrir um 2000 tonn, en ekki er von á loðnu hing- að. Nú er að hyrja að rigna hér og getur orðið að stöðva lestun á griska skipínu á meðan. — Gréta Kosningar í háskólanum: Stærsta skip- ið í heimahöf n 900 t af loðnu- mjöli komin í gríska skipið Vaka fékk 41% vinstrimenn 55% Hvalvfk við Grandagarð I gær. Fyrir framan skipið liggja loðnu- bátarnir Hákon og örn og sést stærðarmunur skipanna greinilega, en báðir bátarnir, sem þykja nokkuð stórir, eru álfka breiðir og flutningaskipið. Ljósm. Mbl.: Friðþjófur í GÆR var kosið í Háskóla Is- lands til Stúdentaráðs og háskóla- ráðs. i kosningunum til stúdenta- ráðs hlaut A-listi, listi Vöku, fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta 633 atkvæði og fimm menn kjörna en B-listi listi vinstri- manna hlaut 852 atkvæði og átta menn kjörna. 1562 greiddu at- kvæði, en 77 seðlar voru auðir eða ógildir. Af greiddum atkva'ðum fékk Vaka þvl 41% en vinstri- menn 55%. Tapaöi Vaka einum manni til vinstrimanna, og fékk fimm fulltrúa af 13, sem kjörnir voru. I kosningunum 1976 hlaut Vaka 45% atkvæða en vinstrimenn 55%. 1975 fékk Vaka 44% en vinstrimenn 56% og 1974 fékk Vaka 45% en vinstrimenn 55%. I kosningunum til háskólaráðs hlaut A-listi listi vöku 640 at- kvæði en B-listi, listi vinstri- manna 871 atkvæði. Vaka fékk einn mann kjörinn en vinstri- menn tvo. 1564 greiddu atkvæði en auðir og ógildir seðlar voru53. Vaka hlaut þvi 4Í% greiddra at- kvæða en vinstrimenn 56% Fram til þessa hefur ekki verið kosiö sérstaklega til háskólaráðs heldur kosið sömu kosningum og til stúdentaráðs, og því sýna töl- Framhald á bls. 19 Skjálftum fjölgar enn við Kröflu 10. marz. Frá Árna Johnsen blaðamanni Mbl. við Kröflu. 1 ÞEIRRI jarðskjálftahrinu sem nú gengur vfir hafa ekki mælzt fleiri jarðskjálftar en síðastliðinn sólarhring, en þá voru þeir alls 127. Tvo síðustu sólarhringa hafa þeir ma-lzt 121 og 123. Stórum skjálftum I Kröfluöskjunni hefur ennig fjölgað sfðastliðinn sólarhring og alls mældust 22 skjálftar af stærðargráðunni 2—3 stig á Richter. 1 gær mældust þeir 16. Landris og ris stöðvarhússins hefur haldið áfram með jöfnum hraða, en jarðskjálftavirknin er á sama svæði og undanfarna sólar- hringa. Miðað við þróun mála er siðasta landris og sig varð 20. janúar telja jarðvísindamenn Iik- legt að kvikuhlaup verði á næstu sólarhringum, en eins og f.vrr hefur verið getið um telja þeir óvíst hvort það veróur neðan- jarðar norður í Gjástykki, eins og í sióasta kvikuhlaupi. eða eitthvað annað. Búnaðarþing: Brot á hlut- leysisreglum útvarpsins ad birta ekki leiðréttingar við leiðara „Búnaðarþing lætur I Ijós undrun sfna á þvf, að rfkisútvarpið skuli útvarpa leiðurum úr dag- blöðunum, þar sem ráðizt er að einstaklingum, stofnunum og heilum atvinnustéttum með rógi og staðlausum fullyrðingum in þess að viðkomandi aðilum gefist færi á að koma á framfæri leiðréttingum eða athugasemd- um,“ Þannig er meðal annars komist að orði f ályktun, sem Búnaðarþing samþykkti á fundi slnum I gær. Þá segir í ályktuninni að búnaðarþing telji þessa fram- kvæmd útvarpsins brjóta í bága við hlutleysisreglur þess og vera alvarlegt brot á rétti hvers ein- staklings til að koma fram Framhald á bls. 19 Lagarfoss á að sigla í dag - Hefur bedid í einn mánuð NU MUN gert ráð fvrir að Lagar- foss leggi af stað I sfna marg- nefndu Nígeríuför í dag, en sem kunnugt er átti skipið að leggja af stað til Nígerfu hinn 5. febrúar s.l. með um það bil 20 þúsund balla af skreið. Þegar skipið átti að leggja af stað, voru nauðsyn- legar bankaábvrgðir ekki komnar frá Nígeríu og það er fvrst núna sfðustu daga, sem þær hafa verið að koma og eftir því sem Morgun- blaðinu var tjáð f gærkvöldi gilda þær fvrir alla þá skreið, sem ís- lendingar hafa selt Nígcríumönn- um á þessu ári, þannig að óhætt mun að halda áfram að skipa út skreið til Nfgerfu um leið og skip fást til þeirra flutninga. I.agar- foss er fvrsta skipið, sem siglir beina leið frá tslandi til Nfgeríu með flutning. Ef Lagarfoss hefði farið, eins og ráðgert hafði verið, 5. febrúar og ferð skipsins og losun í Nígeríu gengið vel, þá væri ekki óliklegt að skipið væri nú að koma heim. Um 14 daga tekur að sigla til Nígeríu. 30 manna áhöfn er á Lagarfossi og hefur mannskapur- inn dyttað að skipinu þennan tima, skrapað og málað eins og það er kallað. Einhverjir hafa tek- ið fridaga þennan tíma, en engar breytingar eða tilfærslur hafa verið gerðar með mannskapinn. Skreiðarframleiðendur hafa þurft að borga ákveðin daggjöld f.vrir leiguna á skipinu, en einnig mun Eimskipafélagið bera ein- hvern skaða af þessari miklu töf, sem orðið hefur á ferðinni til Nfgeriu. Einn af útflutningsaðilum skreiðarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þrátl f.vrir þessa miklu töf mundi flutningur- inn á skreiðinni ekki kosta eins mikið og þegar skreiðinni væri umskipað í erlendri höfn á leið til Nígeríu. Oftast hefur skreiðinni verið umskipað í Hamborg og mun kostnaður við það vera óhemjumikill. Tryggve Bratteli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.