Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 3

Morgunblaðið - 11.03.1977, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MARZ 1977 3 Verkalýðsf élögin: verinu þó þar blandist fleira inn í. Vilja bráðabirgða- úrbætur í álverinu — Fleiri vinnustaðir á landinu svipaðir og álverið „STARFSFÓLK álversins var heppið að þau hreinsitæki sem upphaflega átti að setja upp í álverinu í Straumsvfk, voru aldrei sett upp. Þau tæki hefðu aðeins hreinsað útblástur frá verksmiðjunni, en ekki loftið inni f skálunum, og því hefði mengun þar aukist, ef tækin hefðu verið sett upp,“ sagði Hermann Gumundsson fvrr- verandi formaður Verkalýðs- félagsins Illífar í Ilafnarfirði á fundi með blaðamönnum í gær, en þá boðuðu formenn og trúnaðarmcn verkalýðsfélaga sem samningsaðild eiga við ÍSAL til fundar með blaða- mönnum, vegna þeirra um- ræðna sem orðið hafa að undan- förnu um heilsufar og hollustu- hadti f álverinu. Það kom fram á fundinum, að þótt fulltrúar verkalýðs- félaganna teldu hörmungar- ástand vera ríkjandi í Straums- vik hvað viðvíkur hollustu- háttum á vinnustað, þá væri það einnig hjá mörgum öðrum fyrirtækjum á íslandi, þar sem ástandið væri sist betra. Sagði Guðjón Jónsson formaður Félags járniðnaðarmanna, að það væru fleiri vinnustaðir til en álverið í Straumsvík og benti hann á að járniðnaðar- menn ynnu sífellt í hávaða og rafsuðureyk, og ennfremur mætti benda á áburðarverk- smiðjuna, kfsiliðjuna og sementsverksmiðjuna. Á þessum stöðum væri alltaf mikið ryk, ekki betra en það sem væri í álverinu. Á fundinum i gær kom það fram, að stjórnendur álversins hafa tilkynnt að 3‘A til 4 ár taki að setja upp fullkominn hreinsibúnað i álverið í Straumsvík og því þætti full- trúum starfsfólks og verkalýðs- félaganna rétt að gera grein fyrir gengi þessara mála og við- horfum til þeirra. í greinargerð sem afhent var á blm. fundinum kemur fram, að á árinu 1971 fóru fram við- ræður um nauðs.vn á upp- setningu hreinsitækja við álverksmiðjuna til að fyrir- byggja flúormengun gróðurs. Þá hefðu trúnaðarmenn í •^umsvik óskað eftir þvi við heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið að rannsókn færi fram á andrúmslofti í kerskála, þar sem talið var að vinnuskilyrði mvndu versna ef sett vrðu upp sérstök hreinsitæki af þeirri gerð, sem þá var þekkt. í ársbyrjun 1972 var rætt um nokkur veikindatilfelli þar sem grunur lék á að um atvinnu- sjúkdóma væri að ræða. Verka- lýðsfélögin óskuðu þá eftir því að heilbrigðisráðune.vtið gengist fyrir rannsókn á þeim veikindatilfellum sem fram hefðu komið. Eftir nokkurn aðdraganda framkvæmdi Baldur Johnsen þáverandi for- stöðumaður heilbrigðiseftirlits- ins þessa rannsókn og i greinar- gerð verkalýðsfélaganna segir að þessar niðurstöður hafi verið helztar. 1. Rekja megi flest sjúkdóms- tilfellin til starfsins i áliðju- Frá fundi formanna og trúnaðarmanna verkalýðsfélaga sem samningsaðild eiga við ISAL með blaðamönnum f gær. Ljósm. Mbl. RAX. 2. Veikindatilfellin í Straumsvík koma undir at- vinnusjúkdóma í samræmi við reglur um skráningu og tilkynningu atvinnusjúkdóma. en þar segir i 1. gr. Atvinnusjúkdómar eru sjúk- dómar sem eiga beint eða óbeint rætur að rekja til óhollustu í sambandi við at- vinnu manna, hvort heldur er vegna eðlis atvinnunnar, tilhög- unar vinnu eða aðbúnaðar á vinnustað. Einkum koma hér til greina bæklunar-, bilunar-, eitrunar og ofnæmiskvillar. . í undanförnum samningum hafa verkalýðsfélögin látið mjög til sin taka aðbúnaðarmál. Segir í greinargerð félaganna að ástæðan fyrir því sé, að lag- færingar hafi oft ekki fengist nema undir þeim þrýstingi, sem lausir samningar skapi. Sem dænti um samningsatriði megi nefna afdrep fyrir menn í kerskáluni og viðar þar sem þeir gætu í stutta stund leitað i betra loft en er á vinnu- stöðunum. Kröfur hafa verið um betri loftræstingu á flest öllum vinnustöðum og bættan aðbúnað að öðru levti, þær hafa þó ekki allar náðst fram. í greinargerðinni segir. að rétt sé að geta þess, að samningar sem gerðir hafa verió við fyrirtækið um að- búnaðarmál, hafi yfirleitt staðið, hvort sem þeir hafi verið skriflegir eða munniegir, en hins vegar oft dregist að fram- kvæmdar væru nauðsynlegar lagfæringar. Síðan segir: ,,Þar sem ljóst er að hreinsitækjum verður ekki komið upp nema á alllöngum tíma þótt fullur hraði verði á, er nauðsynlegt að gerðar verði ýmsar ráðstafanir, bæði í ker- skálum og öðrum vinnustöðum. Sem dæmi má nefna: 1. Kerskáli. Hætt verði að setja á ker gamalt efni úr ker- skálakjallara sem veldur miklu ólofti þegar brotið er niður í kerin. Kerskálakjallari verði þrifinn reglulega því rvk á gólfi hans blæs upp meó lofthreins- uninni sem fram á að fara í kerskálum. Kerskálagólf verði hreinsuð á hverri vakt. Framhald á bls. 19 5 iðnfyr- irtæki fá lóðir í Borgarmýri LOÐNEFND Reykjavlkurborgar hefur lagt til að fimm iðnfyrir- tækjum verði gefinn kostur á byggingarétti fyrir starfsemi sfna f Borgarmýri og eru hússtærðir er kom f hlut þessara fyrir tækja samtals um 6.900 fermetrar. Fyrirtæki þessi eru Henson, Sólvallagötu 9 og þar gert ráð fyrir 500 fermetra stærð húss, Is- spor hf. Dugguvogi 2 með 400 ferm. húsn, Kjörsmiði hf. Auð- brekku 41 með 500 ferm. hús, Plasttækni hf. Goðatúni 2 með 500 ferm. hús, Runtal-Ofnar hf. Síðumúla 27 með 1000 fm. hús, Stálhúsgangagerð Steinars hf,. Steifunni 8 2000 ferm. hús og Sæplast hf. Laugavegi 168 með 2000 fm. hús. Borgarráð hefur samþykkt til- lögur lóðanefndar, svo og þá skil- mála sem þeim fylgja. Leiðrétting SU misritun varð í fyrirsögn á frétt i blaðinu í gær, þar sem greint var frá nefndaráliti fóður- iðnaðarnefndar að sagt var að innlend fóðurframleiðsia ætti að fimmfaldast fyrir 1980 en í stað 1980.átti að standa 1990 eins og kom skýrt fram í fréttinni. Er hér með beðist velvirðingar á þessari misritun. SIVALD MEKKA Allt undir einu þaki - JL-husió byöur einstætt urval af husbúnaði - allt undir einu þaki ■ Vegghúsgögn í tíu gerðum og við allra hæfi. ■ íslenskur iðnaður í fyrirrúmi: nær allar bestu gerðir af íslenskum vegghúsgögnum. Vönduð vara frá völdum framleiöendum. Húsgagnadeild A A Á Á A A húsiö h6s9M->''tW9j^iö«'«sla Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 2 86 01

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.