Morgunblaðið - 17.05.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.05.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1977 tffgtmlhfafetfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10100. Aðalstræti 6, sfmi 22480 Áskriftargjald 1300.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70.00 kr. eintakið. í slenzkt lóð á vogarskál f riðar og mannréttinda Nýlokið er leiðtoga fundi og utanríkisráðherrafundi aðildar- rlkja Atlantshafsbandalagsins. Þessi fundur var haldinn við nokkuð sérstakar aðstæður, þrátt fyrir það, að nokkur árangur hafi náðst I samskiptum austurs og vestur hin slðari árin og viðleitni til friðsamlegrar sambúðar I heiminum. í fyrsta lagi var hann haldinn I skugga misheppnaðrar ferðar Cyrus Vance, utanríkisráðherra Bandarlkjanna, til Moskvu fyrr á þessu ári, þar sem Sovétstjórnin vísaði algjörlega á bug tillögum Bandaríkjastjórnar að nýju SALT-samkomulagi. í öðru lagi er hann haidinn I skugga alvarlegrar og örrar þróunar I uppbyggingu hernaðarstyrks Varsjárbandalagsþjóð- anna, með Sovétríkin I fararbroddi, sem kemur ekki hvað slzt fram I flotauppbyggingu og flotaumsvifum á norðanverðu Atlantshafi. í þriðja lagi var fundurinn haldinn undir áhrifum nokkurrar spennu, sem gætt hefur I Austur-Evrópu I kjölfar Helsingforssáttmálans og starfsemi mannréttindahópa þar, sem krefjast hliðstæðra þegnréttinda og á Vesturlöndum, en hafa mætt hörðum viðbrögðum hins austræna stjórnkerfis. Munu þau mál sennilega koma til frekari umræðu á fram- haldsfundi öryggisráðstefnu Evrópu, sem ráðgert er að halda I Belgrad I sumar, þar sem Helsingforsyfirlýsingin verður væntanlega rædd I heild. í fjórða lagi einkenndist fundurinn af nýjum viðhorfum Carters, Bandarlkjaforseta, sem lagði m.a. rlka áherzlu á að styrkja samband og samstarf ríkja V-Evrópu og Bandaríkjanna. Niðurstöður þessara funda leiddu að vlsu ekkert nýtt I Ijós, sem straumhvörfum veldur í sambúð þjóða heims. Hins vegar styrktu þeir tvimælalaust samheldni og samhug NATO- ríkjanna. Viljayfirlýsing fundanna var tvíþætt: 1) að hvetja Sovétríkin og fylgirfki þeirra til að draga úr vfgbúnaði og þar með spennu á alþjóðavettvangi og f 2) að styrkja innri byggingu NATO til tryggingar þvf valdajafnvægi, sem varðveitt hefur frið á vesturhveli jarðar allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Enar Ágústsson, utanríkisráðherra, sagði í blaðaviðtali eftir fundinn: „Það er ekki nokkur vafi á þvf að á þessum NATO-fundi varð mjög vart aukinnar samstöðu og eindrægni hvað snerti sameiginleg hagsmunamál bandalagsríkjanna. — Þetta er þréttándi NATO-fundurinn, er ég sit, og ég man til dæmis ekki til þess að áður hafi gengið jafn greiðlega að ganga frá lokayfirlýsingu sem jafnan er birt að loknum slfkum fundi." Atlantshafsbandalagið og það samstarf lýðræðisþjóða heims. er það spannar, var og er söguleg nauðsyn eins og mál stóðu eftir sfðari heimsstyrjöldina og hafa þróazt sfðan f sambúð austurs og vesturs. Það hefur tryggt frið f okkar heimshluta í rúma þrjá áratugi. Jafnvel kommúnistaflokkar á Vesturlöndum. sem ekki vilja teljast beinir taglhnýtingar Moskvuvaldsins, lýsa yfir stuðningi sínum viðaðild að NATO, og telja jafnvel „frjálsan sósfalisma " — eins og þeir orða það — framkvæmanlegri innan þess en utan. Fremstir f þeirri fylkingu eru ftalskir, franskir og spánsir kommúnistar. Menn skyldu gæta þess, að með stuðningi við aðild að NATO leggja ftalskir kommúnistar blessun sína yfir bandarfskar herstöðvar á ítalfu. Svokallað Alþýðubandalag er nær eini kommúnista- flokkur V-Evrópu, sem enn er taglhnýttur afstöðu sovézkra kommúnista til vestræns varnarsamstarfs og aðildar að Atlantshafsbandalaginu. Auk þess að vera hornsteinn friðar f okkar heimshluta, er vestrænt varnarsamstarf í raun skjaldborg um lýðræði, þing- ræði og borgaraleg þegnréttindi í heiminum. Það er þvf ekki einvörðungu hnattstaða íslands, miðsvæðis á hernaðarlega mikilvægu hafsvæði. sem tengir saman hinn gamla og nýja heim, sem réttlætir aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu, þó það út af fyrir sig væri ærin ástæða til hennar. Þar kemur jafnframt til að þjóðfélagsbygging okkar, Iffsviðhorf og menning skipar okkur þar í sveit, sem við erum Við viljum gjarnan leggja okkar litla lóð á vogarskál friðar. lýðræðis, þingræðis og mannréttinda f veröldinni. Við viljum gjarnan eiga áframhaldandi félagsskap með þeim þjóðum, sem okkur eru skyldastar og við eigum menningarlega og hagsmunalega samleið með. Það er ótvíræður vilji mikils meirihluta þjóðar- innar. Stjórn Sorsa tók við í dag Helsingfors, 16. maí — Heuter NÝ samsteypustjórn undir for- sæti Kalevi Sorsa tók vió völdum í Finnlandi I dag. Nýja stjórnin kom í stað minnihlutastjórnar Marti Miettunen og miðflokk- anna, sem sagði af sér á miðviku- dag. í nýju stjórninni eru jafnaðar- menn, Miðflokkurinn, frjálslynd- ir, Sænski þjóðarflokkurinn og kommúnistar, og hefur stjórnin mikinn meirihluta á þingi. Afsögn stjórnar Miettunens, sem aðeins hafði 58 af 200 þingsætum, varð til að koma á meirihluta- stjórn áður en Uhro Kekkonen, Kalevi Sorsa Idi Amin sovézkri Nairobi 16. maí —AP. HEIMILDIR nátengdar stjórn Uganda reyndu að draga úr frétt- um um að Sovétríkin hefðu fallizt á að láta Idi Amin hafa kjarnaofn og ætluðu að setja upp stóra her- stöð I einhverju landi Austur- Afríku. Ugandaútvarpið hafði það eftir Amin á fimmtudag, að hann myndi brátt undirrita samning við Sovétrfkin um kjarnorkuver og stærstu herstöð Sovétríkjanna á meginlandi Afrfku. Heimildirnar í Kampala sögðu, að opinberir fjölmiðlar í Uganda segðu aðeins, að „samningur geti verið undirritaður“, og bættu þær því við, að „það sé líklega það síðasta sem heyrist um málið“. Amin gaf út yfirlýsingar sinar eftir fund með sovézka sendiherr- anum Yevgeny Musiyoko. Engin ummæli komu hins vegar frá sendiherranum í Ugandaútvarp- ið, sem bendir til þess að hann hafi ekki skuldbundið sig fyrir hönd stjórnar sinnar. Á fundinum með Musiyoko minntist Amin einnig á erfiðleika á að fá varahluti í sovézk hergögn forseti, fer í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna á þriðjudag. Auk þess að styrkja stöðu Kekkonens gagnvart sovézkum leiðtogum, var meirihlutastjórn nauðsynleg til að tryggja fram- gang þýðingarmikilla lagafrum- varpa. Jafnaðarmenn eiga fjóra ráðherra í nýju stjórninni, þar á meðal forsætisráðherrann og fjár- málaráðherrann. Fimm ráðherra- embætti ganga til Miðflokksins, þar á meðal landbúnaðarmál og utanríkismál. Kommúnistar fá þrjú ráðuneytí þar á meðal hið mikilvæga atvinnuráðuneyti. Sænski þjóðarflokkurinn og frjálslyndir fá sitt hvort ráðu- neytið. Kekkonen féllst formlega á afsögn Miettunens i dag og skip- aði Sorsa eftirmann hans, Nýja stjórnin ræður yfir 150 þingsæt- um og eru íhaldsmenn helzta afl stjórnarandstöðunnar. Hins vegar verður meirihluti stjórnarinnar í reynd ekki svo sterkur sem þing- sætatölurnar gefa til kynna, því sterkur minnihluti stjórnarinnar var mótfallinn því að kommúnistar tækju sæti í stjórn- inni. lofadi herstöd Ugandahers þar á meðal Mig 17 og Mig 21 orrustuþotur, brynvörð farartæki og fallbyssur, að sögn útvarpsins. Hvatti Amin sovézku stjórnina til að senda varahluti með flugi vegna erfiðleika við að fá þá eftir eðlilegum leiðum. Sovétríkin hafa haldið vinsam- legum tengslum við Uganda, en sambúðin hefur þó verið misjöfn eftir því hvernig staðið hefur í bólið hans Amins. Idi Amin Young aftur til Afríku Lissahon 16. maf — AP. ANDREW Young hélt á mánudagsmorgun áfram ferðalagi sínu um Afríku, auðsjáanlega viss um að honum yrði leyft að fara til Suður- Afríku. Young, sem er þeldökkur, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam- einuðu þjóðunum, gerði hlé á ferð sinni til að ráðgast við Walter Mondale, varaforseta Bandaríkjanna, sem er á leið til Vínar til að ræða við John Vorster, for- sætisráðherra Suður- Afríku. Á leið til Mosambique hafði hann tveggja klukkustunda viðdvöl í Gabon til að skýra Omar Bongo, forseta, eins og forsetum Fílabeins- strandarinnar, Ghana og Líberíu, frá því að hin nýja ríkisstjórn Jimmy Carters hefði ekki í hyggju að vanrækja vini sína í Afríku. í Maputo, höfuðborg Mosambique, mun Young sitja sex daga alþjóðlega ráðstefnu til stuðnings þjóðum Zimbawe (Ródesíu) og Namibiu. Sam- einuðu þjóðirnar gangast fyrir ráðstefnunni, sem hófst í dag, og meðal þeirra sem ávarpa hana eru Samora Machel, for- seti Mosambique, og Kurt Waldheim, aðalritari Samein- uðu þjóðanna. N ixon r éttlætir meinta misnotkun forsetavalds New York 16. maf AP. í þriðja sjónvarpsviðtali sínu við David Frost, rétt- lætir Nixon meinta mis- notkun á valdi forsetans sem nauðsyn til að styrkja stöðu hans gagnvart erlendum stjórnmálaleið- togum, að sögn tímaritsins Newsweek. Segir blaðið að Nixon hafi talið að leynilegar aðgerðir Hvíta hússins og athafnir eins og gerð „óvinalista“ Hvíta hússins hafi verið nauðsynlegar tilraunum hans til að binda endi á stríðið í Vietnam. „Ég vissi að til að fá óvininn erlendis til að taka mig alvarlega þá varð ég að hafa nægan stuðning heima fyrir“, sagði Nixon í viðtalinu, sem sýnt verður í Bandaríkjunum á fimmtudag. „Þeir máttu ekki finna að þeir gætu unnið í Washington það sem þeir töpuðu á vígvellinum." „Ef ég hefði ekki haft nægan stuðning heima fyrir hefðum við að mínum dómi aldrei getað farið út í samninga,“ sagði hann. Newsweek segir að þriðja viðtalið sé sláandi ólíkt tveim fyrri viðtölunum, en i þeim ræddi hann utanríkismál og stefnu sína í utanríkj^málum. Segir blaðið að í þriðja viðtalinu sé Nixon aftur kominn i varnarstöðu og lýsi því áliti Nixons að engin takmörk skuli vera á völdum forsetans ef það þjónar hagsmunum þjóðar- innar. Moraji Desai, forsætisráðherra Indlands, vísaði í dag á bug fullyrðingum Nixons um að Ind- verjar hafi ætlað að leggja Vestur-Pakistan undir sig i stríði landanna 1971 Desai svaraði blaðamanni, sem bað hann um umsögn um fullyrðingu Nixons, sem hann setti fram i öðru viðtalinu við Frost, og sagði: „Trúir þú honum? Er hann nú orðinn trúverðugur?“ „í sannleika sagt, þá held ég að frú Gandhi hafi aldrei ætlað sér að ráðast inn í Pakistan." sagði hinn 81 árs gamli Desai.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.