Morgunblaðið - 17.05.1977, Side 36
U <;iASIN(,ASIMINN KR:
22480
Blorövwblnöiti
Þarf aldrei að pressa
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1977
K j aradeilan á Loftleiðahótelinu:
Kemur sáttanefndin með
hugmyndir að sáttum í dag?
LÍKLEGT er talið, að sáttanefnd leggi í dag fram
hugm.vndir að sáttum í kjaradeilunni á Loftleiðahótel-
inu. Tillögur sáttanefndar munu verða mjög almennar
og settar fram til þess að koma viðræðunum af stað á ný.
Þó hlýtur tillagan — að því er Morgunblaðið komst næst
í gær — að varða deiluna í heild, en lítur ekki að
einstökum atriðum. Sáttanefndin mun eiga fund með
ríkisstjórninni í dag klukkan 10 og þegar að þeim fundi
loknum munu 5 fulltrúar ASÍ sitja fund ríkisstjórnar-
innar og þar á eftir fulltrúar vinnuveitenda. Nýr sátta-
fundur hefur svo verið boðaður í dag klukkan 16.
Fundurinn með fulltrúum Al-
þýðusambands Islands verður
klukkan 11. Þeir fulltrúar, sem
ræöa munu við ríkisstjórnina,
eru: Björn Jónssun, Snorri Jóns-
son, Björn Þórhallsson,
Guðmundur J. Guðmundsson,
Benedikt Davíðsson, en með þess-
um fimm fulltrúum mun einnig
sitja fundinn Ásmundur Stefáns-
son, hagfræðingur ASÍ.
Fundur vinnuveitenda með
ríkisstjórninni verður klukkan
11.30 eða þegar að loknum fundi
Alþýðusambandsmanna. Þeir
fulltrúar úr hópi vinnuveitenda,
sem sitja munu fundinn, eru: Jón
H. Bergs, Ólafur Jönsson, Barði
Friðriksson, Baldur Guðlaugsson,
Kristján Ragnarsson, Davíð
Scheving Thorsteinsson og Skúli
J. Pálmason.
Lítið geröist á sáttafundinum í
gær. Þeir Björn Jónsson og Snorri
Jónsson, forseti og varaforseti
ASÍ, sátu í gær alllangan fund
með sáttanefnd eða frá klukkan
16 til 17.15. Samninganefndar-
menn sögðust telja að verið væri
að ræða málin í heild og liklegast
hefði sáttanefnd verið að leita
hófanna i sambandi við þær hug-
myndir, sem búizt er við að hún
leggi fram í dag. Jón H. Bergs,
formaður VSÍ, kvaðst vonast til,
að sáttatillaga kæmi fram i dag og
Björn Jónsson, forseti ASÍ, kvað
ýmislegt hafa komið fram, sem
bent gæti til þess, að í smíðum hjá
sáttanefndinni væru einhverjar
hugmyndir.
Á sáttafundi síðastliðinn
laugardag áttu fulltrúar Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna fundi með sáttanefndinni.
Komst þá á kreik kvittur um að
sambandsmenn væru með á
prjónunum sérstakt tilboð.
Morgunblaðið bar þetta undir
Skúla J. Pálmason. Hann kvað
það rétt að hann hefði átt tal við
sáttanefndina á laugardag út af
þvi að þeir hefðu óskað eftir að
aðilar opnuðu sig i deilunni. „Á
þessum fundi gerðum við aðeins
grein fyrir viðhorfi okkar til deil-
unnar. Það gengur nú eins og
eldur í sinu,“ sagði Skúli, „að við
séum með eitthvert boð uppi í
erminni. Það er tóm vitleysa.“
Skúli Pálmason kvaðst telja
ósennilegt, að sáttatillaga kæmi í
dag, en hennar yrði hins vegar
ekki langt að biða að sinu mati.
Ásgeir Bjarnason var fyrst
kjörinn til þings áriö 1949 og
hefur átt sæti á Alþingi stöðugt
síðan. Samhliða þingstörfum
hefur Ásgeir verið bóndi í Ás-
garði í Dölum og gegnt fjölda
mikilvægra trúnaðarstarfa
fyrir bændastéttina. Hann er
nú formaður Búnaðarfélags
íslands og hann hefur verið for-
seti sameinaðs Alþingis frá því
að núverandi stjórnarsamstarf
tókst.
„Það er langt siðan ég tók þá
ákvörðun að gefa ekki kost á
mér á nýjan leik,“ sagði Ásgeir
1 samtali við Morgunblaðið 1
Asgeir Bjarnason
ekki íframboð aftur
ÁSGEIR Bjarnason, forseti
sameinaðs þings og 1. þing-
maður Vesturlandskjördæmis,
hefur ákveðið að gefa ekki kost
á sér til endurkjörs við næstu
alþingiskosningar. Staðfesti
Ásgeir þetta i samtali við
Morgunblaðið í gær og kvaðst
hann láta af þingmennsku fyrir
aldurs sakir.
gær og er hann var spurður um
ástæðuna svaraði hann: „Ellin
— ég er að verða gamall og mér
finnst að menn eigi ekki að
vera að stússast i þessu fram á
gamals aldur. Það eru mikil og
oft vandasöm störf samfara
þingmennskunni og Alþingi
krefst ungra og sprækra manna
Auglýsendur athugiö
Vegna yfirvinnubanns þurfa
allar auglýsingar sem birtast
eiga í laugardags- og sunnu-
dagsblaði, að hafa borist aug-
lýsingadeildinni fyrir kl. 18 á
morgun, miðvikudag.
Afmælis- og
minningargreinar
Afmælis- og minningargrein-
ar, sem eiga að birtast 1
Morgunblaðinu n.k. sunnudag,
verða að berast eigi síðan en í
kvöld, þriðjudagskvöld.
Vegna yfirvinnubannsins er
einnig óhjákvæmilegt að tafir
verði á birtíngu á ýmsu efni,
greinum o.fl.
Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu á laugardag standa nú yfir athuganir hjá Flugleiðum um kaup á
farþegaflugvélum til að leysa af hólmi DC— 8 þoturnar, sem nú eru f notkun á flugleiðum Loftleiða.
Beinast athuganir einkum að McDonnell Douglas DC—10, sem er fjær á myndinni og Boeing 747.
Báðar flugvélarnar eru svo kallaðar breiðþotur en áætlað er að Loftleiðir taki slfkar þotur f notkun
vorið 1979.
Skyndiverkfallið við Reykjavíkurhöfn:
Heklan tefst fram yfir helgi
— Afla hætt við skemmdum
VERKAMEN'N' við Reykjavíkur-
höfn, sem þar stunda uppskipun,
felldu fyrirvaralaust niður vinnu
eftir hádegi í gær. N'ær þetta
verkfall til nær 400 manna, en
ekki var gert ráð fyrir að það
stæði fram á daginn f dag. Einn
verkamannanna sagði f viðtali við
rfkisútvarpið f gær, að verkfallið
hefði verið skipulagt af Verka-
mannafélaginu Dagsbrún og ann-
ar sagði, að samhugur hefði verið
meðal verkamannanna um það.
Er einn þeirra var spurður að þvf,
hvernig skipulagið hefði verið,
svaraði hann: „Okkur var til-
kynnt, að við ættum að hætta.“
Hann kvað verkamennina ekki
hafa tekið það upp hjá sjálfum
sér að efna til skyndiverkfallsins.
Vinnuveitendasamband Islands
sendi í gær Verkamannafélaginu
Dagsbrún skeyti vegna þessa
skyndiverkfalls. Skeytið var svo-
hljóðandi: „Verkamannafélagið
Dagsbrún, Lindargötu 9, Reykja-
vík: Vér viljum hér með mótmæla
sem algjörlega ólöglegu verkfalli
því, er þér hafið fyrirskipað félgs-
Framhald á bls. 22
Sigurjón Stefánsson:
Kannast ekki við smáfiskadrápið
í Morgunblaðinu sl. laugardag
voru viðtöl við þrjá sjómenn
um smáfiskadráp á skuttogur-
um og m.a. kom það fram í
viðtölunum að brögð væru að
ólöglegum veiðarfæraútbúnaði
sumra skuttogara. Morgun-
blaðið náði ekki tali fyrir
helgina af skipstjórum þeirra
Snorri Friðriksson’.
fjögurra togara sem nefndir
voru af sjómönnunum, Ingólfi
Arnarsyni, Snorra Sturlusyni,
Vigra og Ilarðbak, en í gær
ræddi blaðið við tvo skip-
stjóranna, Sigurjón Stefánsson,
sem var með Ingólf Arnarson í
umræddum túr, og Snorra
Friðriksson skipstjóra á Snorra
Sturlusyni. Leitaði blaðið um-
sagnar þeirra um þær
fullyrðingar, sem fram komu f
viðtölum við sjómennina.
„Ég er alveg undrandi yfir
þessu," sagði Sigurjón" og
kannast ekki við umrætt smá-
fiskadráp úr þessum túr. „Ég
hef ekki tekið þátt í svona
smáfiskadrápi eins og um er
rætt síðan fyrir 25 árum við
Vestur-Grænland og kannast
ekki við þetta á heimamiðum.
Ég vissi, að það var blandaður
fiskur í þessum umrædda túr,
en að það væri svona
smáfiskur, hef ég ekki heyrt.
Framhald á bls. 22
„Við erum með lögleg veiðarfæri
Snörp
hrina á
Reykja-
nesinu
„Það er nú á takmörkun-
um, aö ég geti talað viö þig
núna. Þaö skelfur svo hjá
mér kofinn,“ sagöi Björn
Kári Björnsson, vitavörður
á Reykjanesi, er Mbl.
ræddi við hann um hálfsex-
leytiö í gærkvöldi, en í
gærdag gekk jarðskjálfta-
hrina yfir Reykjanes.
Að sögn Þórunnar Skaftadótt-
ur, jarðfræðings, mældist sterk-
asti kippurinn klukkan 16:50 í
gær og var hann 4,2 stig á Richter,
eri þó nokkuð margir kippir voru
á bilinu 3,5— 4 stig. Um
kvöldmatarleytið í gærkvöldi var
farið að draga úr skjálftavirkn-
inni, en að sögn Þórunnar voru
upptök hennar áReykjanesi.
Björn Kári sagði, að fyrstu
kippirnir hefðu komið um klukk-
an hálf fimm í fyrrinótt og hefðu
þó komið tveir sterkir kippir.
„Síðan var allt í logni fram til
klukkan eitt í dag,“ sagði Björn,
„en þá fór allt af stað og siðan
hefur þetta verið meira og minna
frameftir deginum."
Björn sagði, að allt hefði dottið
úr hillum hjá honum „nema það,
sem mér tókst að taka niður sjálf-
um,“ en ekki gæti hann séð, að
neitt tjón hefði orðið af völdum
jarðskjálftanna. Hins vegar
kvaðst hann hafa spurnir af þvi,
að grjót hefði hrunið ofan á veg-
inn. „Þetta er svona með snarpari
hrinum," sagði Björn.
Ekki kvaðst hann þó óttasleg-
inn yfir umbrotunum. „Ég var í
mánuð í Eyjum í gosinu þar. Svo
ég er svolítið skóladur i þessu,“
sagði Björn vitavörður að lokum.
Piltur slasast
PILTUR á reiðhjóli slasaðist tölu-
vert mikið á höfði siðdegis í gær,
þegar hann varð fyrir langferða-
bifreið á mótum Hringbrautar og
Njarðargötu. Pilturinn, sem er 15
ára, hjólaði út á gatnamótin á
rauðu ljósi.