Morgunblaðið - 23.08.1977, Page 37
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977
21
KEFLVlKINGUM hefur gengið
mjög illa upp á sfðkastið og engin
hreyting varð þar á þegar þeir
mættu Akurnesingum I 1. deild
uppi á Skaga á laugardaginn. Með
strekkingsvind í bakið gerðu
Skagamenn út um leikinn á
fyrstu 20 minútunum. Þeir skor-
uðu þá þrjú mörk og Keflvíkingar
áttu sér aldrei viðreisnar von. f
seinni hálfleik skoruðu Keflvfk-
ingar tvö mörk, reyndar sitt i
hvort marknetið og lokatölurnar
urðu 4:1 IA í vil. Hinn ungi mið-
herji Skagamanna Pétur Péturs-
son var atkvæðamikill í þessum
leik, skoraði þrjú mörk. Er hann
nú markahæstur leikmanna 1.
deildar með 1S mörk. Svo
skemmtilega vildi til, að tveir
leikhæstu menn Akranesliðsins
áttu afmælisleik, Björn Lárusson
lék sinn 300. leik fyrir IA og
fyrirliðinn Jðn Alfreðsson sinn
250 lcik. Blómaleikir hafa oft ver-
ið hálfmislukkaðir hjá mönnum
og var því ekkert tilkynnt um
þetta fyrirfram heldur afhenti
Þröstur Stefánsson formaður lA
þeim blómvendi við látlausa at-
höfn að leik loknum og áhorfend-
ur hylltu þá ákaft að vonum.
Þrátt fyrir þennan stóra sigur
var þetta ekki einn af betri leikj-
um Akranesliðsins. Baráttan hef-
ur oft verið meiri og samleikur-
inn betri. Það sem gerði gæfu-
muninn var að liðið nýtti tæki-
færin, sem fengust I byrjun leiks-
ins, tækifæri sem Árni Sveinsson
skapaði með stórgóðum sending-
um inn I vftateig IBK og hinn
markheppni Pétur Pétursson
nýtti.
Fyrsta markið kom strax á 3.
mínútu. Árni tók aukaspyrnu frá
vinstri nálægt miðju. Hann gaf
stórgóða sendingu inn í markteig
og þar stökk Pétur Pétursson
hærra en aðrir á móti knettinum
og skallaði hann glæsilega upp í
markhornið. Fallegt mark. Á 20.
mínútu tók Arni aftur á auka-
spyrnu frá vinstri og gaf inn i
vítateiginn. Jón Gunnlaugsson
skallaði knöttinn að markinu,
hann barst til Péturs, sem skaut í
þverslá, boltinn datt niður á
marklínuna og þar var Pétur
mættur á undan öllum öðrum og
skoraði léttilega. Ekki liðu nema
tvær mínútur þar til Kristinn
Björnsson hafði brotið sér leið
inn i vítateiginn. Þegar hann var
að komast í gott færi reyndi
Sigurður Björgvinsson að afstýra
hættunni en honum tókst ekki
betur upp en svo að Kristinn féll
kylliflatur og Eysteinn Guð-
mundsson dæmdi réttilega víta-
spyrnu. Pétur Pétursson tók
spyrnuna og skoraði örugglega
með skoti út við stöng.
Það sem eftir var hálfleiksins
fengu Skagamenn eitt gott mark-
tækifæri, Kristinn Björnsson
skallaði framhjá í dauðafæri eftir
að hafa fengið sendingu frá Arna
Sveinssyni. Reyndar átti Arni
hættulegt langskot, sem sleikti
slána ofanverða. Eitt tækifæri
fengu Keflvíkingar, Friðrik
Ragnarsson komst einn inn fyrir
en góður markvörður Skaga-
manna, Jón Þorbjörnsson, hirti
boltann af tám hans.
ÍA - ÍBK 4:1
Texti og mynd.
Sigtryggur Sigtryggsson.
Seinni hálfleikur var mjög
daufur og knattspyrnan, sem liðin
sýndu var lítið fyrir augað. Fljót-
iega í hálfleiknum komst Pétur i
dauðafæri eftir að hafa fengið
góðan bolta frá Jóni Alfreðssyni
en laust skot hans fór naumlega
framhjá. Á 23. mínútu seinni hálf-
leiks fengu Skagamenn horn-
spyrnu frá hægri, sem Karl Þórð-
arson tók. Hann gaf boltann vel
fyrir markið til Jóns Alfreðsson-
ar, sem stökk upp og skallaði að
marki. Rúnar Georgsson ætlaði að
bjarga i horn en það mistókst og
hann skallaði boltann í eigið
mark. Heldur dapur dagur hjá
Rúnari, en hann hafði það hlut-
verk að gæta Péturs i leiknum. En
sjö mínútum síðar skoruðu Kefl-
víkingar í rétt mark. Þórður
Karlsson gaf mjög góða sendingu
út til vipnstri á varamanninn Óm-
ar Ingvarsson. Ómar lék laglega á
þrjá varnarmenn ÍA og lét siðan
þrumuskot riða af frá vítateign-
um og boltinn hafnaði í horninu
fjær án þess Jón ætti minnstu
möguleika á þvi að verja. Fallegt
mark.
Undir lok leiksins vöknuðu
Skagamenn aðeins til lifsins og
varði Þorsteinn markvörður IBK
í nokkur skipti vel og þá sérstak-
lega skot frá Herði Jóhannssyni
innan vítateigs, en Hörður hafði
leikið sig í gott færi á mjög nettan
og skemmtilegan hátt.
I þessum leik voru tveir menn i
Akranesliðinu i nokkrum sér-
flokki, Arni Sveinsson og Pétur
Pétursson. George Kirby þjálfari
hefur fært Árna aftur i stöðu
vinstri bakvarðar og virðist hún
henta Árna einkar vel. Um hæfi-
leika Arna til sóknarleiks vita all-
ir en i leiknum gegn Víkingi á
dögunum var varnarleikurinn
slakur. I þessum leik sýndi Arni
að hann getur varizt vel auk þess
sem hann skapaði flest hættuleg-
ustu tækifæri Skagamanna í
leiknum. Pétur er hæstur á
markaskráarlistanum með 15
mörk. Þetta er há tala en undir-
ritaður telur sig samt hafa í sum-
ar séð Pétur misnota fieiri en 15
dauðafæri. Þetta þarf ekki að
vera veikleikamerki, þvert á móti.
Pétur er þótt ungur sé að árum
orðinn fremstur íslenzkra fram-
herja i þeirri list að skapa sér
marktækifæri. Hann skorar nú
þegar mikið af mörkum en þau
eiga eftir að verða fleiri þegar
nýtingin verður betri, en sá dagur
kemur vafalaust. Landsliðið getur
vart verið án þessa mikla marka-
skorara þótt leiðindaatvik hafi átt
sér stað varðandi þátttöku Péturs
í unglingamóti í Belgíu s.I. vor.
Nokkur forföll voru í liði Kefla-
víkur t.d. vantaði Gisla Torfason,
sem er frá vegna meiðla og munar
um minna. Þrátt fyrir tap í
undanförnum leikjum mega Kefl-
vfkingar vel við una, þeirra unga
lið hefur komið mest á óvart i
deildarkeppninni i ár ásamt liði
Vestmannaeyinga.
Eysteinn Guðmundsson annað-
ist dómgæzluna og var engin feil-
nóta slegin þar i auðdæmdum
leik.
Akranesvöllur 20. ágúst,
1. deild, ÍA-lBK 4:1 (3:0).
Mörk IA: Pétur Pétursson á 3., 20.
og 22 mínútu (víti), Rúnar
Georgsson (sjálfsmark) á 68. mín-
útu.
Mark IBK: Ómar Ingvarsson á 75
mínútu.
Áminning: Kristinn Björnsson,
lA, bókaður.
Áhorfendur: 900.
Isianasmðlið 1. Hallil
......................../
Pétur Pétursson skorar örugglega úr vftaspyrnunni sitt 15. mark I 1. deild. Hann hefur tveggja marka
forskot á Inga Björn og þriggja marka forskot á Sigurlás Þorleifsson.
Ingi Bjöm stekkur I loft upp og fagnar jöfnunarmarkinu 3:3. ASrir á myndinni eru Atli ESvaldsson, bezti maSur Vals ásamt Inga, og GuSmundur Porbjörnsson. sem var
liSinu styrkur eftir aS hann kom inná sem varamaSur. Framararnir eru Rúnar Glslason og Kristinn Atlason.
KR í 2. deild
Báðir markverðirnir bornir af velli
KR fékk sannkallaða óskabyrjun
gegn FH I leik liðanna á laugardag-
inn á Laugardalsvellinum, því vart
voru liðnar nema 2 mín. þegar knött-
urinn lá í marki FH. Ætlar þeim að
takast að bjarga sér frá falli á elleftu
stundu? spurðu menn, Ifkt og gerðist
árið 1967, eða bíður KR nú I fyrsta
skipti I sögu félagsins, að leika I 2.
deild?
Ekkert nema sigur I þessum leik
dugði KR til að eiga einhverja von um
áframhaldandi dvöl í 1. deild. Þeir
byrjuðu leikinn því af miklum krafti og
eins og áður er sagt voru vart liðnar
nema 2 min., er Sverrir Herbertsson
skoraði fyrir KR með skalla eftir horn-
spyrnu.
Og á 35. min. bættu þeir enn við
öðru marki og var þar að verki hinn
ungi og efnilegi unglingalandsliðsmað-
ur Börkur Ingvarsson.
Dæmd var aukaspyrna á Pálma
Jónsson, auk þess sem hann fékk gult
spjald. Haukur Ottesen spyrnti að
marki KR og náði Þorvaldur markvörð-
ur að verja. en hann hélt ekki knettin-
um og fylgdi Börkur vel á eftir og
skoraði örugglega af stuttu færi.
fremur lausu skoti af um 25 m. færi að
marki KR, sem öllum til undrunar
hafnaði i markinu.
Það þurfti aftur á sjúkrabörum að
halda í leiknum, þvi á 74 mín. sóttu
KR-ingar að marki FH, en Þorvaldur
bjargaði vel með úthlaupi. Við það fékk
hann högg á höfuðið og skurð við
augabrún og borinn óvígur af velli í
sjúkrabörum, en stöðu hans i markinu
tók Friðrik Jónsson
Undir lokin gerðu KR-ingar örvænt-
ingarfulla tilraun til að ná forystunni
aftur og knýja fram sigur og munaði
KR - FH 22
Texti:
Helgi Daníelsson
Myndir:
Steinn Helgason
minnstu að þeim tækist það, en þeir
höfðu ekki heppnina með sér.
Skömmu fyrir leikslok bjargaði Ás-
geir Arnbjörnsson á linu og spyrnti
fram á völlinn og aftur sóttu KR-ingar,
en þá fór knötturinn yfir markið.
Liðin
Það verður að teljast til meiriháttar
tíðinda, að KR skuli falla í 2. deild, því
félagið hefur, ásamt Val, alla tíð leikið í
1 deild. Því verður ekki neitað, að
deildin verður svipminni án KR og
vonandi verður dvöl þeirra í 2 deild
ekki löng.
Stefán Örn, Börkur Ingvarsson og
Sverrir Herbertsson voru beztu menn
KR í þessum leik, sem annars er skipað
jöfnum leikmönnum sem eiga framtíð-
i,na fyrir sér.
FH átti slakan leik, að þessu sinni,
en liðið hefur komið hvað mest á óvart
af liðum i 1. deild á þessu keppnis-
tímabili Janus var bezti maður liðsins,
einnig áttu þeir Þorvaldur markvörður.
Pálmi Jónsson og Ásgeir Arnbjörnsson
góðan leik.
Dómari var Arnar Einarsson Hafði
hann góð tök á leiknum í fyrri hálfleik.
en slakaði verulega á í þeim siðari
í STUTTU MÁLI
íslandsmót 1 deild. 20. ágúst 1977
— Laugardalsvöllur KR — FH 2 — 2
(2—0)
Aftur slapp Valur
naumlega fyrir horn
FRAMARAR sáu til þess með þvl aS ni
jöfnu viS Val aS geysileg spenna er
skyndilega komin i íslandsmótiS I knatt-
spyrnu nú þegar einni umferS er ólokiS.
Lokatölurnar urSu 3:3 á Laugardals-
vellinum á sunnudagskvöldiS I hörkuleik.
Sérstaklega verSur hans minnzt vegna
seinni hálfleiksins, sem hafSi allt þaS
upp á aS bjóSa sem einn knattspyrnu
leikur getur boSiS uppá, góSa knatt-
spyrnu, mikla baráttu. spennandi augna
blik og fimm góð mörk. Valur og Akranes
standa jafnt aS vigi fyrir siSustu umferS-
ina og svo getur fariS aS aukaleik þurfi
milli liSanna til þess aS skera úr um
hvort þeirra skuli hreppa meistaratitilinn
en slikur leikur hlýtur aS vera efstur á
óskalista allra knattspyrnuunnenda.
Framarar komu til leiksins I þeirri ein-
kennilegu stöðu að geta aukið mjög vonir
slnar um sæti í Evrópukeppni bikarhafa
næsta ár með þvl að tapa leiknum. En
greinilegt var að slikt var ekki i huga þeirra,
þeir börðust af miklum krafti, greinilega
staðráðnir að vinna. Og i slökum fyrri
hálfleik höfðu þeir yfirhöndina Oft á tiðum
léku þeir ágætlega saman úti á vellinum og
hins vegar tókst þeim ekki að skapa sér
verulega hættulegt tækifæri. Valsmenn
náðu sér alls ekki á strik í fyrri hálfleik og
reyndin varð sú Ágúst Guðmundsson, bak-
vörður Fram, komst næst þvi að skora
mark fyrir Val þegar hann hugðist gefa
aftur til Árna en sendingin var of föst og
Árni gat með naumindum bjargað i horn.
Löglegt mark eSa ekki?
Á siðustu minútu fyrri hálfleiks skoraði
Fram mark og var það í meira lagi umdeilt.
Simon Kristjánsson bakvörður sendi háan
bolta. sem stefndi á markið Sigurður
markvörður og Kristinn Jörundsson stukku
upp með boltanum, hann fór i höfuðið á
Kristni i hendurnar á Sigurði og inn i
markið Eftir leikínn sagði Sigurður að
Kristinn hefði stokkið upp með sér og hrint
sér og hefði þvi átt að dæma aukaspyrnu á
Fram og undir það tóku fleiri leikmenn
Vals Kristinn mótmæltí þessu, kvaðst ekki
hafa snert Sigurð og sama sögðu dómari
og línuvörður og kvaðst linuvörðurinn hafa
séð gott bil á milli Kristíns og Sigurðar
þegar þetta gerðist. En hvað um það,
markið stóð og um það verður vafalaust
deild enn um hríð
Seinni hálfleikurinn var mjög liflegur og
skemmtilegur Framarar voru ivið sterkari i
byrjun og það var eins og Valsmenn þyldu
illa spennuna og þeir náðu sér ekki strax á
strik En á 11. minútu jöfnuðu þeir metin
með marki, sem Jón Einarsson átti heiður-
inn af. Jón lék laglega upp vinstra megin
og gaf vel fyrir markið til Inga Bjarnar, sem
kom á fullri ferð og negldi boltann i netið af
markteig Árni kom engum vörnum við
enda þurfti hann lika að gæta þess að Jón
skoraði ekki sjálfur.
Við markið lifnaði yfir Valsmönnum og
þeir fóru að sækja. En við það slakaði á
vörninni og á 16. mlnútu seinni hálfleiks
fékk Gunnar Guðmundsson knöttinn á
miðjunni og sendi hann laglega út til
Rúnars Glslasonar, sem var óvaldaður
hægra megin Rúnar lék upp að endamörk-
um og gaf boltann fyrir til Péturs Ormslev,
sem var fyrir miðju markinu og Pétur
skallaði boltann laglega i netið Skallabolt-
inn var laus og einhvernveginn fannst
manni að Sigurður hefði átt að geta varið,
en engu að síður var vel að verki staðið hjá
Frömurum. Þeir fögnuðu markinu svo inni-
lega og lengi að þeir uggðu ekki að sér.
Valsmenn voru nefnilega fljótir að hefja
leikinn að nýju og brunuðu upp á meðan
Framarar voru enn að fagna markinu! Mun-
Fram - Valur 3:3
Texti: Sigtryggur Sigtryggsson.
Mynd: Ragnar Axelsson
aði litlu að Ingi Björn kæmíst i færi en
Framarar náðu að stöðva hann á siðustu
stundu
Skömmu eftir markið komst Atlí i mjög
gott færi en Árni bjargaði með úthlaupi og
Pétur Ormslev komst einnig í mjög gott
færi en skaut framhjá. Var vörn Vals gal-
opin þvi varnarmennirnir virtust með allan
hugann við sóknirta Á 31. minútu var
dæmd aukaspyrna á Fram á miðjum vallar-
helmingi liðsins Oýri tók spyrnuna snöggt
og sendi boltann inn i vitateiginn, þar sem
Ingi Björn var vel staðsettur og vippaði
knettinum yfir Árna og i markið Falleg
samvinna Inga og Dýra. En ekki var allt
búið enn. Varla var liðin minúta frá marki
Inga þegar Ásgeir Elisson var kominn með
boltann vinstra megin og sendi hann vel
fyrir markið til Péturs, sem stóð einn og
gjörsamlega óvaldaður á markteigslinunni
og Sigurður átti enga möguleika að verja
skalla Péturs.
Vlti eða ekki?
Nú þurftu Valsmenn að sækja á brattann
á ný til að halda i vonina um meistaratitil-
inn og sóttu þeir nú ákaft. Guðmundur
horbjörnsson, sem kom inná sem vara-
maður, átti hörkuskot að marki en Árni
varði Á 40 mlnútu áttí Hörður þrumuskot
á markið, boltinn fór I Framara og út i
teiginn, Valsmenn lyftu höndum og heimt-
uðu viti og sú varð niðurstaða Grétars
dómara Úr vitaspyrnunni skoraði Ingi
Björn örugglega sitt þriðja mark Jafnt 3:3
og þannig endaði leikurinn Ekki voru allir
á eitt sáttir um þennan vitaspyrnudóm.
Grétar dómari kvað það engan efa, að
boltinn hefði stöðvast á hendi Framara og
Hörður Hilmarsson kvaðst ekki hafa séð
betur en boltinn hefði farið I hendi Framar-
ans, þótt færið hefði verið stutt. Framarinn,
sem i hlut átti, Kristinn Atlason, sagði aftur
á móti að boltinn hefði farið i eyrað á sér og
sagðist hann enn vera með suð I eyranu
eftir þrumuskot Harðar. Én hvað um það,
dómurinn stendur og menn geta nú skegg-
rætt þetta atvik næstu daga
Valsmenn sluppu þarna svo sannarlega
fyrir horn alveg eins og á móti FH og virðist
ekki sama öryggið yfir þeim og áður. Sam-
leikurinn gekk ekki eins vel og i fyrri
leikjum ef undanskildir eru kaflar i seinni
hálfleik og vörnin venju framur óörugg.
Beztu menn liðsins i þessum leik voru Atli
Eðvaldsson. sem virðist vaxa með hverjum
leik, og Ingi Björn, sem ætið er á réttum
stað fyrir framan markið og i þvi hlutverki
er hann liðinu gífurlega mikilvægur.
Framararnir sýndu það i þessum leik að
þeir eiga alls ekki heima nálægt botninum.
Þeir börðust mjög kröftuglega og úti á
vellinum léku þeir vel saman. Er ekkert
efamál að seinni hálfleikurinn er það bezta.
sem liðið hefur sýnt I sumar Margir leik-
menn áttu góðan dag en beztir voru þeir
Ásgeir Elisson og Pétur Ormslev Mikil-
vægastur fyrir Framara hlýtur leikurinn að
vera fyrir þá sök, að nú þurfa þeir ekki að
bera kviðboga fyrir bikarútslitaleiknum
gegn Val. Hann er ekki jafn tapaður fyrir-
fram og sumir hafa látið i veðri vaka.
Grétar Norðfjörð slapp vel frá mjög erfið-
um leik.
ágúst, 1. deild.
45.
77
í STUTTU MÁLI:
Laugardalsvöllur 21
Fram—Valur 3:3 (1:0).
Mörk Fram: Kristinn Jörundsson á
minútu og Pétur Ormslev á 61 og
minútu.
Mörk Vals: Ingi Björn Albertsson á 56
76. og 85 minútu (viti).
Áminning: Kristinn Atlason, Fram, bókað
ur.
Áhorfendur 2118.
Fátt markvert gerðist annað i fyrri
hálfleik og var litið um upplögð tæki-
færi. KR hafði heldur undirtökin í
leiknum, enda léku þeir undan strekk-
ings golu og voru mun ákveðnari.
Siðari hálfleikur
Slðari hálfleikur var mun skemmti-
legri og viðburðarikari en sá fyrri. Ólaf-
ur Danivalsson, sem litið hafði sézt i
leiknum. enda vel gætt, lék skemmti-
lega upp völlinn á 56 min og skaut
siðan að markinu Magnúsi markverði
mistókst að handsama knöttinn, en
varnarmenn björguðu i horn Magnús
átti misheppnað úthlaup og tókst ekki
að ná knettinum eftir hornspyrnuna, en
Janus náði að skalla og fór knötturinn i
þverslá og hrökk þaðan út i vitateiginn
til Ásgeirs Arnbjörnssonar, sem skor-
aði með föstu skoti og óverjandi fyrir
Magnús markvörð Meðan á öllu þessu
gekk fékk Magnús markvörður. að þvi
er virtist, spark i lærið og lá óvígur á
vellinum og var síðan borinn af velli i
sjúkrabörum, en Halldór Pálsson tók
stöðu hans i markinu.
Janus Guðlaugsson, besti maður FH
i þessum leik, átti litlu siðar ágætt
tækifæri til að jafna, sem mistókst og
litlu siðar var hann aftur með knöttinn,
en átti I höggi við varnarmenn KR, sem
vörðust grimmilega En hann kom
knettinum fyrir markið, þar sem Gunn-
ar Bjarnason kom aðvifandi og skaut
Bezta tækifærið fékk þó Örn Óskars-
sori á lokaminútu leiksins, en hann
•fékk sendingu frá Birni Péturssyni inn-
fyrir vörnina og var alveg frír fyrir
framan markið, átti aðeins Friðrik
markvörð eftir, sem kom út úr markinu
og tókst honum að góma knöttinn.
Þarna fór bezta marktækifærið i leikn-
um og síðasta von KR um áframhald-
andi dvöl i 1 deild.
Mörkin:
Sverrir Herbertsson, KR á 2. min.
Börkur Ingvarsson, KR á 35. min.
Ásgeír Arnbjörnsson, FH á 56. mín.
Gunnar Bjarnason. FH á 66 min.
Gul spjöld:
Pálmi Jónsson, FH
Helgi Ragnarsson, FH
Haukur Ottesen, KR
Áhorfendur: 543.
MagnúsTeitsson á skot að marki KR. Til varnar er SigurSur Indriðason.
Yf irburöir IBV en
nýting tækifæra slök
ÞÓRSARAR frá Akureyri voru þegar
fallnir I 2. deild er þeir mættu ÍBV
fyrir norðan á laugardaginn og leik-
menn liðsins hafa gefið allt upp á
bátinn. engin barátta. enginn áhugi
lengur, og Vestmannaeyingar unnu
léttan sigur. skoruðu fjögur mörk en
Þór ekkert. Og satt að segja hefði
markaskor ÍBV I þessum leik hæg-
le a getað orðið helmingi meira, lið-
ið hafði fádæma yf irburði yfir áhuga-
lausa Þórsara og með góðri knatt-
spyrnu, léttum og skemmtilegum
leik skapaði ÍBV liðið sér hvert mark-
tækifærið á fætur öðru. Nýting þess-
ara tækifæra var ekki sérlega góð og
þvi mörkin „aðeins" fjögur.
Þórsarar náðu upp ágætri sóknarlotu
á fyrstu minútum leiksins sem lauk
með þvi að Sigþór Ómarsson skaut yfir
úr ágætu færi. En þetta var aðeins
annað tveggja tækifæra Þórs i hálf-
leiknum, það siðara kom i lok f.h er
Árni Gunnarsson komst einn inn fyrir
vörn IBV en Sigurður Haraldsson kom
út úr markinu og gómaði boltann af
tám Árna. Þessi voru einu raunveru-
legu tækifæri Þórs i f.h en ÍBV hélt
uppi þungri sókn og skoraði þrjú mörk
i hálfleiknum.
Strax á 5. min. átti Valþór Sigþórs-
son snögga stungusendingu innfyrir
vörn Þórs og þar geystist Tómas Páls-
son á eftir boltanum náði honum og
lék síðan á markvörð Þórs og renndi
boltanum I netið, 1—0. Ekki liðu
nema tvær mln. og aftur skoraði Tóm-
as. Dæmd var hornspyrna á Þór sem
Einar Friðþjófsson framkvæmdi vel,
boltinn barst til Tómasar Pálssonar á
markteignum og hann var ekki seinn á
sér að þrykkja honum i netið, 2—0.
Sókn ÍBV var látlaus á þessum tima og
hún var skemmtilega uppbyggð, leikið
Wr - IBV 0:4
Texti: Hermann Kr. Jónsson.
upp kantana, vörn Þórs teigð og síðan
stungusendingar inn á hina fótfráu
sóknarmenn IBV Og á 23, min skorar
IBV enn og enn var það Tómas Pálsson
sem þar var á ferðinni. Karl Sveinsson
lék laglega i gegn hægra megin og
skaut siðan hörkuskoti af vltateigshorn-
inu. Ragnar Þorvaldsson náði að
slæma hendi i boltann sem skoppaði
út i teiginn þar sem Tómas Pálsson
kom að á fullri ferð og negldi i netið
3—0 og „þrenna" hjá Tómasi.
IBV hafði sömu yfirburðina í s.h. og
sama deyfðin einkenndi leik Þórs,
sannkölluð leikleysa hjá norðanmönn-
um. Eyjamenn gerðu sitt fjórða mark
strax á 51. min. Enn var Tómas Páls-
son vörn Þórs erfiður viðureignar, lék
skemmtilega i gegn en gaf siðan bolt-
ann snaggaralega út i teiginn til Karls
Sveinssonar sem átti glæsilegt skot i
stöng og inn, 4—0.
Tækifæri Þórs í s.h. voru sárafá en
næst þvi að skora var Árni Gunnarsson
á 62. mín. er hann átti hörkugott skot
á markið en Sigurður Haraldsson varði
glæsilega Eyjamenn léku mjög góða
knattspyrnu, hratt og skemmtilegt spil
með skiptingum kantanna á milli.
Mörg tækifæri sköpuðust og ég er ekki
frá þvi að slakur dómari þessa leiks.
Magnús Pétursson, hafi haft tvær vita-
spyrnur af Eyjamönnum i s.h. Fyrst var
Tómasi brugðið gróflega og síðar
Sigurlási inni i vitateignum á ágætum
færum, en i hvorugt skiptið sá Magnús
ástæðu til þess að dæma viti.
Þannig lauk þvi leiknum, öruggur og
átakalitill sígur ÍBV, 4—0
Leikur Þórsliðsins var ákaflega
dapurlegur að þessu sinrii. Vissulega
var liðið þegar fallið i 2. deildina en þvi
ekki að falla með sæmd og berjast til
siðustu stundar? Þór hafði ekki mann-
Tómas, langbezti maður vallarins I
leik Þórs og ÍBV.
skap til þess að standast hina hörðu og
óvægnu keppni i 1. deild. Mikil
meiðsli hafa leikið liðið grátt i sumar
og margir leikmenn orðið að leika leiki
sem þeir alls ekki hefðu átt að geta
vegna meiðsla Þá hafa leikmenn liðs-
ins, sumir hverjir, farið ákaflega flatt á
skapsmunum sinum Gulu og rauðu
spjöldin hafa of oft verið á lofti i
leikjum Þórs. Sennilega hefur Þór
komið of fljótt upp i 1. deildina — i
einu stökki úr 3 deild — leikmenn
liðsins ekki verið nægilega vel undir
það búnir að taka þátt i baráttunni við
þá beztu. En Þór kemur aftur.
í leiknum við ÍBV á laugardaginn var
það raunverulega aðeins einn leikmað-
ur sem sýndi þá getu sem búast mátti
við. Sigurður Lárusson Sigurður er
ákaflega sterkur og ákveðinn varnar-
spilari sem aldrei gefur eftir fyrr en i
fulla hnefana. Aðrir leikmenn liðsins
voru slappir og áhugalausir.
Eyjamenn léku þennan leik mjög vel,
knattspyrna frá fyrstu til síðustu mín.
Mótstaðan var lika engin og liðið gat
bókstaflega gert það sem þvi sýndist.
Liðið er öruggt með þriðja sætið i
deildinni (aðeins Vikingur getur náð
sama stigafjölda og ÍBV hefur nú þegar
fengið og er það betri árangur en flestir
bjuggust við i upphafi mótsins eftir
þau áföll sem yfir liðið dundu: Örn
Óskarsson til KR. Viðar Eliasson til
Vikings, Ársæll Sveinsson, til Dan-
merkur, Þórður Hallgrimsson frá
keppni fyrstu 5 leikina vegna meiðsla
og siðan Sigurlás Þorleifsson frá i 4
leikjum i upphafi mótsins vegna
slæmra meiðsla. En ÍBV liðið náði sér á
strik og hefur jafnt og þétt sótt i sig
veðrið Þegar liðinu tekst vel upp leikur
það knattspyrnu á við þá beztu hér á
landi Á laugardaginn átti Tómas Páls-
son enn einn stórleikinn og fróðlegt
verður að sjá hvort þessi stórskemmti-
legi knattspyrnumaður fær nú náð fyrir
augum landsliðsnefndarinnar. Einnig
áttu góðan leik þeir Ólafur Sigurvins-
son, Óskar Valtýsson og Karl Sveins-
son.
I STUTTU MÁLI:
Akureyrarvöllur 20. ágúst
Þór — ÍBV 0—4 (0—3).
MÖRK ÍBV: Tómas Pálsson á 5.
min., 7. mín. og 23. min. Karl
Sveinsson á 51. mln.
ÁMINNINGAR: Oddur Óskarsson
Þór, Nói Björ.isson Þór, Tómas Páls-
son ÍBV, Sigurlás Þorleifsson ÍBV
fengu allir að lita gula spjald dómar-
ans fyrir litlar sakir nema Sigurlás
sem braut gróflega af sér.