Morgunblaðið - 23.08.1977, Side 19

Morgunblaðið - 23.08.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977 27 DAGUR iönaðarins á Hellu og Hvolsvelli var haldinn hátíölegur s.l. föstudag. Þaö þótti tilvalið í sambandi við fimmtíu ára afmæli Hellu að fá Dag iðnaðarins þangað, en hreppsnefnd Rangárvallahrepps í sam- vinnu við Islenzka iðnkynningu hafa síðan unnið að undirbúningi að Degi iðnðarins þar. Það er viðtekin venja hjá Islenzkri iðnkvnningu að bjóða fjölmiðlum að senda sína fulltrúa á þær iðn- kynningar sem hafa farið um landið á hinu svo kallaða Iðnkynningarári sem nú er um það bil að ljúka, og svo var einnig nú. Einnig var boðið ýmsum frammámönn- um íslenzks iðnaðar. Páll G. Rjörnsson oddviti og framkvæmdastjóri Samverks kynnir starfsemi fyrirtækisins fyrir gestum. Dagur iðnaðarins á Hellu og Hvolsvelli taldi að honum hefði ekki verið veitt sú eftirtekt sem hann ætti skilið. í ræðu Davíðs Schev- ing Thorsteinssonar kom meðal annars fram, að hann telur aðalvandamál islenzks iðnaðar í dag einkum stafa af því hversu atvinnugreinin er ung hér á landi. Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra opnar hér iðnsýninguna. Þegar gestirnir komu austur var þeim boðið í kaffi í Hellubíói þar sem þeir voru boðnir vel- komnir af sveitarstjóra Hellu, Jóni Gauta Jóns- syni. Þar á eftir var hald- ið austur að Hvolsvelli þar sem tvö iðnfyrirtæki voru skoðuð, en það voru trésmiðja kaupfélagsins og lampaverksmiðja. Þá var haldið aftur að Hellu og nú skyldi skoða Glerverksmiðjuna Sam- verk sem er hlutafélag eingöngu í eigu Rangvell- inga. Þar tók á móti gest- um Páll G. Björnsson framkvæmdastjóri sem jafnframt er oddviti hreppsins. Að lokum var svo farið í verksmiðjuna Tjald- borg sem einkum fæst við tjaldgerð en einnig eitthvað við framleiðslu á tjalddýnum. Leiðsögu- maður gesta þar var Ein- ar Kristinsson, annar eig- andi verksmiðjunnar. Gestir voru þar kvaddir með nokkuð skemmti- legri gjöf, en það var fyrstadags umslag frá Tjaldborg stimplað með afmælispóststimpli Hellu. Hápunktur dagsins var opnun iðnsýningar sem sett var upp sameigin- lega af iðnfyrirtækjum á Hellu og Hvolsvelli. Iðn- aðarráðherra, Gunnar Thoroddsen, opnaði sýn- inguna formlega klukkan tvö og eftir það var gest- um boðið að skoða hana í fylgd fróðra manna. Þá vakti það nokkra athygli gesta hversu mörg iðn- fyrirtæki eru í raun og veru í þessum tveimur kauptúnum. Klukkan 3 e.h. var síð- an haldinn almennur fundur um iðnaðarmál í Hellubíói, þar sem fram- söguræður fluttu iðnaðarráðherra, Gunnar Thoroddsen, Ingólfur Jónsson þingmaður og Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri á Hellu. Auk þeirra tóku nokkrir aðrir fundarmenn til máls þar á meðal Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags ís- lenzkra iðnrekenda. t ræðu iðnaðarráð- herra kom meðal annars fram að hann telur aðal verkefni rikisvaldsins gagnvart iðnaði vera að veita iðnaðinum viðun- andi starfsskilyrði m.a. í sambandi við lánafyrir- greiðslur og menntun starfsfólks. í ræðu Jóns Gauta Jónssonar kom það m.a. fram, að hann ásamt flestum Rangvellingum vonaði að þessi iðnkynn- ing yrði iðnaði þar í sveit til framdráttar en hann Lokaatriði dags iðnaðarins á Hellu og Hvolsvelli var svo boð sem iðnaðarráðherra hélt fyrir alla velunnara ís- lenzks iðnaðar á staðn- um. Þar voru einnig mættilr fulltrúar frá ýmsum stéttarsamtökum til að heiðra starfsmenn þá sem starfað hafa að iðnaöi tuttugu og fimm ár eða lengur. Þá má einnig geta þess, að þeir menn sem unnu að undirbúningi að degi iðnaðarins fengu gull- merki íslenzkrar iðn- kynningar sem þakk- lætisvott fyrir vel unnin störf í þágu iðnaðar í landinu. Ingólfur Jónsson alþingismaður flytur framsöguræðu sína á hinum almenna fundi um iðnaðarmál á Hellu. Almennur fundur um iðnarmál í Hellubíói.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.