Morgunblaðið - 23.08.1977, Blaðsíða 20
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGÚST 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Kennarar
Kennara vantar að Grunnskóla Tálkna-
fjarðar. Æskileg kennslugrein tungumál.
Frítt húsnæði. Upplýsingar hjá skólastjóra
í síma 94-2538, eða hjá Magnúsi Guð-
mundssyni Kvíindisfelli Tálknafirði í síma
94-251 1.
Framtíðarvinna
Þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða dug-
legan, reglusaman og stundvísan mann-.
Nauðsynlegt að maðurinn sé heilsu-
hraustur. Upplýsingar sendist Mbl. merkt:
„Gott kaup—4003", fyrir n.k. laugardag.
Vinna —
varahlutir
Traustur og röskur starfskraftur óskast til
afgreiðslu á varahlutum. Tilboð sendist
Morgunblaðinu merkt. ,,V — 6826".
Oska eftir
afgreiðslustarfi
Er 22 ára, vön afgreiðslu. Hef meðal
annars starfað sem aðstoðar deildarstjóri
og verzlunarstjóri. Tilboð sendist af-
greiðslu blaðsins merkt ,,A:682 1"
Húsmæður
Óskum að ráða konu til frágangs á skyrt-
um o.fl. hálfs eða heils dags vinna. Upp-
lýsingar hjá verkstjóra.
Fönn h. f.
Langho/tsvegi 113.
Tízkuverzlun
óskar eftir starfskrafti allan daginn í 3
mánuði frá 1. september. Síðan áfram-
haldandi hálfsdags starf. Uppl. um aldur
og starfsreynslu sendist Mbl. fyrir 25.
ágúst merkt: „Tízkuverzlun — 2606".
Starfskraftur
— karl eða kona — óskast til starfa á
skrifstofu hjá bókaforlagi. Starfssvið er
fjölbreytt, æskilegt að viðkomandi geti
unnið sjálfstætt, hafi vélritunarkunnáttu
og almenna reynzlu í skrifstofustörfum,
sem óskast tilgreind í umsókn. Sendist
afgr. Mbl. merkt: „Áhugavert starf"
6819 hið fyrsta.
Bílstjóri óskast
sem fyrst til starfa. Upplýsinqar qefnar í
síma 20680.
Landssmiðjan
Kennara vantar
Kennara vantar við 7. — 9. bekk Grunn-
skólans á Akranesi. Aðalkennslugreinar:
eðlis- og efnafræði og stærðfræði.
Góð aðstaða til eðlisfræðikennslu.
Umsóknarfrestur til 25. ágúst.
Umsóknir sendist til skólanefndar Akra-
neskaupstaðar.
Bakarar athugið
Bakarí í fullum rekstri fyrir utan Reykjavík
óskar eftir að komast í samband við 2
fagmenn með samrekstur í huga.
Listhafendur leggi nafn og aðrar upplýs-
ingar fyrir 30. þ.m. merkt: „Traust —
4252".
Víkurbær Keflavík
auglýsir eftir starfsfólki í verzlunina:
1. Verzlunarstjóra í Vörumarkaðinn. Þarf
að hafa reynslu.
2. Mann í kjötvinnu, sögun o.fl.
3. Vana manneskju í blómadeild, af-
greiðslu og skreytingastörf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax
eða sem fyrst.
Uppl. í símum 92-2042 og 2044. Einnig
á skrifstofunni kl. 1 0— 1 2 og 1 —5.
Víkurbær Keftavík.
Hellissandur
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 6741 og
afgreiðslumanni í Reykjavík, sími 10100.
Laghentur
maður óskast
strax við offset fjölritun. Þarf helst að vera
vanur. Vinnutími eftir aðstæðum. Tilboð
merkt „0:4251" leggist inn á Mbl. fyrir
26. ágúst.
Skólalæknir
Starf skólalæknis við heilsugæslustöð
Hafnarfjarðar (hlutastarf) er laust til um-
sóknar. Upplýsingar um starfið veitir
héraðslæknir Grímur Jónsson í síma
53722.
Bæjarstjóri
Mötuneyti — strax
Maður eða kona óskast nú þegar í starf
skólabryta, við Laugaskóla í Dalasýslu.
Nýlegt ódýrt húsnæði fylgir. Upplýsingar
hjá skólastjóra Val Óskarssyni sími um
Ásgarð.
Laugaskóli Dalasýs/u
HÓTEL BORG
Ræstingar
Okkur vantar nú þegar duglegan starfs-
mann (konu eða karl) til almennra ræst-
inga.
Upplýsingar hjá skrifstofustjóra.
Hótel Borg.
— Leiknir stiga-
hæsti hesturinn
Framhald af bls. 7
úr íslenzku sveitinni kepptu í
fimmgangskeppninni, sem fer
eins fram og fjórgangskeppnin að
viðbættri keppni í skeiði, en alls
kepptu i þessari grein 17 hestar
og sigraði Eldjárn, annar varð
Vind-Skjóni frá Álfsnesi, eigandi
Jens Iversen, Danmörku, en í
þriðja sæti varð Sigurboði frá
Reykjum eigandi Heinz Kettler. t
fjórða sæti varð Stokkhólma-
Blesi, Hrafn varð í fimmta sæti,
Gýmir i sjöunda sæti og Leiknir í
áttunda sæti.
Áður hefur verið greint frá úr-
slitum í hlýðniæfingum A, en þar
varð Sigurður Sæmundsson á
Leikni þriðji. Enginn úr íslenzku
sveitinni keppti í hlýðniæfingum
B, en í hlýðniæfingum C keppti
meðal annars Reynir Aðalsteins-
son á Stokkhólma-Blesa og varð í
sjötta sæti af 12 keppendum. Þar
sigraði hins vegar Walter Feld-
man yngri á Eldjárni. í viðavangs-
og hindrunarhlaupi kepptu engir
Islendingar, en þar sigraði Martin
Bifchinde á Kóp frá Velli og
Benedikt Þorbjörnsson á Val tók
þátt í parreiðinni ásamt hollenzk-
um knapi og hafnaði í þriðja sæti.
í íslenzku tvíkeppninni, sem er
samanlagður árangur i tölti og
skeiði, sigraði Walter Feldman á
Eldjárni, annar varð Aðalsteinn
Aðalsteinsson á Hrafni og þriðji
varð Berred Vith, Þýzkalandi, á
Fagra-Blakk, og fjórði varð Reyn-
ir Aðalsteinsson á Stokkhólma-
Blesa.
— Hátíðarræða
Ingólfs Jónssonar
Framhald af bls. 23
vettvangi. En félagðist efldist og stækk-
aði. Það byrjaði á ýmiss konar starfsemi,
sem vantaði hér í héraðinu, og fólkinu
fjölgaði hægt en eðlilega. Og byggðin
hefur aukizt eins og sjá má. enda eru 50
ár síðan fyrstu sporin voru stigin með
nýrri byggð á þessum stað Og þess
vegna gæti maður sagt: það er ekki nema
eðlilegt að eitthvað gerist á 50 árum Og
káuptúnið gæti gjarnan verið stærra og
það gæti verið umfangsmeiri starfsemi
heldur en nú er, ef betur hefði verið á
málum haldið Þetta geta menn hugsað
og þetta geta menn sagt En við skulum
samt sem áður vera ánægð með það, sem
gert hefur verið Okkar sýsla er betur á
vegi stödd að hafa þessa byggð hér
heldur en ef hún væri ekki. Og ég held,
að það gæti verið hollt, að eitt byggðarlag
vaxi mátulega hratt Það sem lengi á að
standa skal vel til vandað og það hefur
verið sagt, að grasið og plönturnar þær
vaxi á vorin en deyi á haustin. En styrkir
stofnar eru áratugi og jafnvel árhundruð
að vaxa og þeir stofnar eiga langt lif fyrir
hendi Við vonum, að þessi byggð haldi
áfram að þróast og vaxa, jafnvel þótt
hægt fari.
Verkefnin eru ótal mörg og þjóðfélagið
hefur breytzt á 40—50 árum. Fyrir
40—50 árum var ekkert rafmagn hér i
sveitinni, fyrir 30—40 árum var vega-
samband mjög slæmt um okkar hérað.
ekki akvegur heim á marga bæi og það
þótti gott, ef það var simi á einum,
tveimur eða þremur bæjum í hverjum
hreppi Þá átti ekki hvert býli og hvert
heimili bifreið eins og nú gerist. Þá var
ekki sjónvarp, þá voru ekki heimilistæki
innanhúss Þá áttu bændurnir ekki
dráttarvélar, tæki til hvers sem géra
skyldi f sambandi við landbúnaðinn.
Breytingarnar hafa orðið gffurlegar og
þær hafa áreiðanlega orðið til batnaðar
Eigí að síður er engin vissa fyrir þvf, að
fólkið sé ánægðara nú heldur en þá var
En breytingarnar voru samt sem áður
nauðsynlegar og sjálfsagðar. þvf að þv!
ber að stefna að gera vinnuna auðveldari,
að taka tæknina i þjónustu samfélagsins
og auka afköstin og það er vitanlega rétt
að auka fritfma. en þá er lika nauðsynlegt
að fólkið læri að nta fritimann til gagns
fyrir sig og samfélagið Nota fritimann
vel. en nú er stundum sagt, að þessi
löngu fri séu óholl, sérstaklega fyrir unga
fólkið En út í það ætla ég ekki að fara
f gær var opnuð iðnsýning hér á Hellu,
sem er sýníshorn af þeim iðnaði, sem er i
þessu kauptúni, Hvolsvelli og víðar Þessi
iðnsýning er mjög myndarleg. Og hún er
ágæt að þvi leyti, að ég held að hún hafi
góð og hvetjandi áhrif á ibúa þessa
héraðs að halda áfram og auka við þá
byrjun, sem nú er hafin.
Ég held að þetta hérað hafi mikla
möguleika til þess að bæta við iðnaðar-
framleiðsluna og koma á nýjum iðngrein-
um. Og það er vitanlega skilyrði til þess
að fólkinu fjölgi hér í kauptúninu, hér i
héraðinu. Það er ekki að búast við þvi, að
fólki fjölgi við landbúnaðinn. þvi að aukin
ræktun og aukin tækni eykur framleiðsl-
una, þótt fólkinu fækki, sem að fram-
leiðslunni vinnur. Við höfum góða að-
stöðu til þess að auka iðnaðinn. Vega-
samband er batnandi hingað austur og
þegar góður vegur er kominn alla leið er
hægt að nota stóra tengivagna til flutn-
ings til þess að gera flutningana ódýrari á
þvt sem hefur verið framleitt og á þvi efni,
sem þarf að flytja til framleiðslunnar
Þess vegna skulum við vona það og
teljum það mjög liklegt. að byggðin haldi
áfram að aukast. Rangæingar munu sam-
einast til átaka þegar þörf er á til þess að
koma þörfum verkefnum i framkvæmd
Þegar kaupfélagið á Hellu var stosnað
var sagt, að það pæri pólitiskt og vissu-
lega stóðu ekki allir sýslubúar að þessari
stofnun Eigi að síður er enginn vafi á þvi
að sýslan sem heild hefur grætt á þvi, að
þetta félag var stofnað hér og byggðin
hefur aukizt hér. Sýslan hefur einnig
hagnazt á þvi, að það var an að félag hér
austar sem hefur starfað og byggð hefur
komið i kringum það. Það var hér áður
sagt, að það væri kurr á milli þessara
staða. En ég held, að sá timi sé nú
kominn, að menn sjá að það væri barna-
skapur að haldsliku áfram hafi það þá
nokkurn tima verið Staðreyndin er. að
hér á Hellu eru um 500 manns og hér er
etarfandi þróttmikið kaupfélag. Það er
einnig staðreynd, að hér fyrir austan
okkur er álika kauptún og þar er einnig
þróttmikið kaupfélag Þetta verður áram
þannig. Og þess vegna er nauðsynlegt,
að menn skiljí að það er gott á stundum
þegar á reynir að sameinast til átaa.
Iðnsýningin, sem opnuð var í gær,
sýnir þa. að sýslan stendur sameinu að
þvt að sýna hvaðidaðurinn hér i héraðinu
getur framleitt Og listaverkin sem sýnd
eru eftir marga menn, þau eru frá ýmsum
stöðum I héraðinu. Ég held eigi að siður,
þótt ég segi þetta, að það geti verið gott
eftirleiðis að hafa hæfilega samkeppni á
milli staða i verzlun, framleiðslu og iðn-
aði. Kannski getur það orðið til þess að
ýta á og til þess að menn vinni betur
heldur en ef einn gæti öllu ráðið.
Ég ætla nú ekki að hafa þessi orð öllu
fleiri ekki sizt fyrir það að við erum hér úti
og fólkið standandi, og kannski sumum
farið að verða allkalt En ég vil taka undir
þær óskir, sem voru bornar fram hér
áðan. Taka undir þær óskir, að byggðin
megi eflast og dafna og það megi verða
okkar héraði og þjóðinni i h'eild til gagns
og farsældar Megi byggðin hér á Hellu
eflast og aukast og fólkinu, sem hér á
heiha og hér vinnur, ávallt vel farnast.