Morgunblaðið - 23.08.1977, Page 28

Morgunblaðið - 23.08.1977, Page 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. AGUST 1977 — Þó ég tali <>k tali hlustar tlóttir mfn ekki ð mig, maðurinn minn hlustar ekki á mig og sonur minn hlustar ekki á mig — ha, læknir, ertu að hlusta eða ekki? — Þegar ég fór að ræða við hann um samskipti karls og konu og spyrja hann, hvernig þeim væri háttað, leit hann á mig undrandi og sagði: A ég að trúa þvl, pabbi, að þú vitir ekk- ert um kynferðismál, maður á þfnum aldri. 12 ára drengur lagðist fram á fsbrúnina og hélt uppi jafn- aldra sínum, sem faliið hafði niður um vök. Fullorðinn maður, sem kom þar að og dró drenginn upp, sagði við þann, sem á fsbrún- inni lá: — Þú ert sannkölluð hetja, að bjarga félaga þfnum. — Hetja og hetja, sagði stráksi. Ekki gat ég fátið hann sökkva, hann var á skautunum mfnum. BRIDGE Umsjón: Pill Bergsson Frá Evrópumeistaramótinu f Helsingör. I dag og næstu daga verða sýnd i þætti þessum spil frá leik Englands við Austurriki. Mikinn þátt í sigri Englending- anna átti Rodrique, einn af reynd- ustu spilurum þeirra. Hann sat i vestur í lokaða herberginu. Vestur gaf, austur-vestur á hættu. Norður S. G 109754 H. AD T. 1083 L. A9 Vestur Austur S. AD83 S. K2 H. G75 H. 9842 T. A6 T. K75 L. K532 L. DG104 Suður S. 6 H. K1063 T. DG942 L. 876 COSPER — Ég myndi nú vera rólegri, ef það væri þjófabjalla f fbúðinni. Nauðsyn á stuðningi við afreksíþróttamenn Velvakandi góður. I síðustu viku fórstu nokkrum orðum um hinn ágæta árangur sem frjálsíþróttamaðurinn Hreinn Halldórsson hefur náð f sumar og biður menn um að segja álit sitt á hvernig búið skildi að afreksfþróttamönnum f íþróttum. 1 fyrsta lagi verðum við að gera okkur grein fyrir að afreksíþrótt- ir skiptast i tvennt. Annars vegar er að ræða um góða einstaklinga einstaklingsfþróttaanna, og hins vegar beztu lið og flokka hóp- fþróttanna. Ætti það að vera til- tölulega auðveldara að styðja við bakið á afreksmönnum ein- staklingsfþróttanna til að það komi að beinum notum og skapi tilætlaðan árangur. Málefni hóp- fþróttanna, eins og knattspyrnu og handknattleiks, er örlítið flóknara, þar sem lftt stoðar að styðja við bakið á einum og einum góðum leikmanni. Þar verður hreint og beint að efla allt liðið og koma á því sem nefnt er hálf- atvinnumennska, eða jafnvel sjá svo til að menn geti helgað sig fþróttinni algerlega á mikilvæg- ustu mánuðum æfinga og keppnistfmabils. Skoðun mfn er sú að mjög illa sé búið að þeim sem skara fram úr íþróttum, og það er sorgleg staðreynd að íþróttaforystan sjálf er algerlega náttúrulaus í þessum efnum og úr þeirri átt segja menn ekkert frumkvæði koma. Það er einnig skoðun mín að það sé nauð- syn að búa vel að þeim íþrótta- mönnum sem skara fram úr og ná árangri sem boðlegur er hvar sem er í heiminum. Og ekki er aðeins nauðsyn að styðja vel við bakið á þeim allra beztu heldur er nauð- synlegt að hver íþróttagrein hafi mjög skipulegt kerfi þar sem hlúð er vel að þeim sem skara fram úr, alveg frá þvf að menn eru kepp- endur f yngstu aldursflokkunum. Skoðun mfn er nefnilega sú að íslendingar standi svo aftarlega í íþróttum sem raun ber vitni vegna þess að á íslandi skortir næstum algerlega allt skipulag á starfið. Hlutirnir eru mikið til látnir reka á reiðanum, og það því fyrir einurð og ásetning ein- staklingsins sjálfs að sæmilegur árangur næst. önnur hlið þessara mála er svo að aðstaða til iðkana er mjög misjöfn. Eg hef ekki ákveðna skoðun á hvort það ætti að vera hlutur hins opinbera eða annarra aðila að RETTU MER HOND ÞINA 23 Framhaldssaga eftir GUNNAR HELANDER Benedikt Arnkelsson þýddi I opna herberginu spilaði Englendingurinn f norður 2 spaða, fékk sex slagi, 100 til Austurríkis. En í' lokaða herberginu opnaði vestur á einu grandi. Norður sagði tvo spaða, austur tvö grönd og vestur þrjú grönd. Harður lokasamningur. Norður spilaði út spaðagosa, sem tekinn var i blindum og laufadrottningu spilað. Norður tók strax á ásinn og spilaði spaða- tíu, trúr sinni köllun. Véstur tók slaginn, fór inn á blindan á lauf og spilaði síðan lágu hjarta! Það er ekki óvenjulegt að leyna veikleika með þvf að spila litnum en i þessu tilfelli var það nauð- synlegt. Norður tók slaginn með drottn- ingunni og spilaði tígli til baka eftir dálitla umhugsun. Vestur lét lágt frá báðum höndum og suður fékk slaginn en var ekki með á nótunum. Spili hann hjarta í þess- ari stöðu tapast spilið. En hann sá það ekki. ■ Vestur tók tigulbakaspilið, fór inn á blindan á lauf en tók ekki fjorða laufaslaginn til að norður léti þá ekki hjartaásinn í. Sjálfur lét hann hjarta í tígulkónginn og þá var allt tilbúið. Norður átti eftir hjartaásinn og 975 í spaða. Hann fékk næsta slag á ásinn og varð að spila spaðanum upp í ás og áttu vesturs. Níu slagir og ellefu impar til Englands. um á St. Helenu. Skipið var komið inn f höfnina við James- town fyrir nokkrum klukku- stundum. Þau höfðu gengið upp að minnismerkjum Napóleons og /úlúkóngsins Cetshwayo. Samræður þeirra snerust um Búana. sem Eng- lendingar höfðu kyrrsett þar eftir Búastrfðið. Mary mælti: — Erik, þú veist væntanlega, að Potgier er Búi? iiún bar nafn Eriks fram á enska vfsu, alveg eins og Muilah hafði gert. — Já, hann minntist á það við mig, að foreldrar hans hefðu komið frá Hollandi. Hann er ofboðslega ógeðfelldur maður, finnst mér. Þú hefur Ifklega heyrt um árekstur okk- ar? — Já, já, hann sagði okkur frá öllu, rétt áður en þú komst inn í vínkjallarann á Madeira. Erik andvarpaði. Nú hafði hann þá vikið að þessu ofurvið- kvæma máli. Það var ekki unnt að fresta lengur uppgjörinu. — Nú, og hvað finnst þér þá um allt þetta mál? Ert þú sam- mála Potgieter? — Þú heldur þó ekki, að ég st.vðji þessa gömlu skrafskjóðu og sé á móti þér, ástin mfn? Reyndar held ég, að þú sért óttalegur kjáni og að þú þekkir Suður-Afrfku ekki enn þá. — Það er sjálfsag! rétt. En ég þekki tvo Suður-Afrfkubúa mjög vel. Mér þvkir vænt um annan þeirra. Það ert þú. Hinn er hezti vinur minn. Hann er Indverji og er frá Ladysmith. Hann fann, að hún stirðnaði svolftið. Hún left yfir sjóinn án þess að svara. — May, elskan mfn, seztu nú niður stundarkorn og hlustaðu hljóð á mig I nokkrar mfnútur, ef þú getur. Þau settust út á brún bjargs- ins. Langt, langt fyrir neðan þau hrotnuðu iildurnar á svört- um, þverhnfptum hamrinum. Himinninn var Öskugrár, og einn og einn regndropi kom þjótandi gegnum loftið. Erik sagði frá Mullah, frá þvf, sem Mullah hafði sagt um kynþáttakúgunina í Suður- Afríku, um hjónaband Mullah og Önnu Giintl, um ferð hans suður á bóginn og örvæntingar- full bréfin frá Ladysmith. Mary hlustaði hljóð á frásögn hans. Erik heið þess fullur eftirvæntingar, hvernig hún tæki orðum hans. Að lokum sneri hún sér að honum og horfði beint í augu hans. — Þú skilur vonandi, að ég vorkenni þessum Mullah og konu hans. Ég hef heyrt marg- ar svipaðar sögur áður. En þetta er aðeins örlftill hluti sannleikans. Þú, sem hefur ver- ið námsmaður. ættir að þekkja orðtakið: Audiatur et altera pars (hlusta skal einnig á hinn máisaðilann). Þeim geiri beindum við stúdentarnir sffellt hver að öðrum. þegar við vorum að kappræða f Oxford. Þú hefur ekki enn hlustað á hinn málsaðilann. að þvf er virðist. Nú skalt þú vera hljóð- ur í tfu mfnútur. þá skal ég halda fyrirlestur fyrir þér. Þægileg kennd gleði og full- nægju fór um Erfk. Stúlkan var greind og skynsöm. Þetta var sannarlega betra en hann hafði þorað að vona fram að þessu. Hann horfði á hana frá hlið og dáðist að mynd hennar, er hún talaði og beindi sjónum sfnum yfir hafið. Vissi Erik, að nftfu af hundr- aði þeldökkra manna f landinu væru menningarsnauðir og lifðu f fáfræði og sóðaskap? Að næstum allir Indverjar færu með konur sínar, eins og þær væru óæðri verur, sem ættu að vera f eldhúsinu og ekki sýna sig í návist karlmanna? Vildi hann, að slíkir menn va*ru f meirihluta á þingi og réðu rfkj- um í landinu? Vissi hann, að f húsum margra Indverja væri óþolandi fnykur óþefur vegna óhreininda og trassaskapar? Að innbornir menn færu illa með allt jarðnæði, sem þeir fengju, svo að land væri óðum að eyðast á þeim svæðum, sem þeim va*ri ætlað? Vissi hann, að fhúunum hafði fjölgað mjög, síðan hvftir menn tóku við völdum. og að gróðurmoldin gæfi ekki af sér næga fæðu, ef farið væri með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.