Alþýðublaðið - 26.10.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 26.10.1958, Blaðsíða 6
s A I þ ý 8 u b 1 a ð i 8 Sunnudagur 26. október 1958 lestur um íslenzka myndlist og sýna skuggamyndir. — 3vo er ráð fyrir gert, að sýningin í Vestmannaeyjum verði upphaf slíkra myndlistarsýninga víðs vegar um land. ÓPERU- OG TÓNLEIKA- FERÐ UM AUSTURLAND. „Lisf um landið'' hefur mörg verkefni í huga. MENNTAMÁLARÁÐ íslands og Ríkisútvarpið hafa sem kunnugt er ákveðið að reka í sameiningu starfsemi, sem hlotið hefur nafnið „List um landið“. Tilgangurinn er sá, að senda hvers konar lifandi list sem víðast út um bæi og sveitir, skáldlist, tónlist og myndlist. Hefur mennta- málaráðherra, Gylfi Þ. Gísla- son, sýnt mikinn áhuga á málum þessum og lagt þeim ómetanlegt lið. Starfsemin hófst með kirkju- tónleikum víðs vegar á Suð- Vesturlandi, þar sem fram. komu listamennirnir dr. Páll ísólfsson, Björn Ólafsson, fiðlu leikari og Guðmundur Jónsson óperusöngvari. Formaður Menntamálaráðs, Helgi Sæ- mundsson, og undirbúnings- nefnd „Listar um landið“, þeir Gils Guðmundsson, Kristján Benediktsson og Vilhjálmur Þ. Gíslason, ræddi við blaða- menn í fyrradag um starfsem- ina. NÝ VERKEFNI Á SVIÐI MENNIN GARMÁLA. Með löggjöf frá s. 1. ári um Menningarsjóð og Menntamála ráð voru tekjur þessara stofn- ana auknar og þeim fengin ýmis ný verkefni á sviði menn- ingarmála. Meðal þeirra verk- efna var stuðningur við flutn- ing góðrar listar víðs vegar um land. Nú hefur verið ákveðið, að Menningarsjóður verji ár- lega nokkru fé til stuðnings listflutningi í landinu og verð- ur tilhögun væntanlega með tvennu móti: J.) farnar verða ferðar um ýmsa landshluta að frumkvæði Menntamálaráðs og Ríkisútvarpsins, fluttir tónleik ar, lesið úr íslenzkum bók- menntum og málverkasýmng- ar haldnar. 2) Menningarsjóð- ur mun eftir föngum styrkja menningarfélög víðs vegar um land, er þau vilja efna til hljómleikahalds, bókmennta- eða myndlistarkynningar. Mun brátt gerð nánari grein fyrir reglum þeim, sem þar um verða látnar gilda. MYNDLISTARSÝNING í VESTMANNAEYJUM. Um þessa helgi verður opn- uð í Vestmannaeyjum mynd- listarsýning á vegum fyrr- greindra aðila. Verða þar sýnd 20 málverk úr Listasafni rík- isins eftir jafnmarga listamenn. Eru þar verk eftir ýmsa hina kunnustu málara okkar, allt frá Þórarni B. Þorlákssyni, Ás- grími,' Kjarval og Jóni Stefáns syni, til hinna yngri manna. Við opnun sýningarinnar í kvöld mun Björn Th. Björns- son, listfræðingur, flytja fyrir- Þá er að hefjast óperu- og tónlistarferð um Austurland, með viðkomu í Vestmannaeyj- um. Efnisskrá er á þessa leið: Kristinn Hallsson syngur ein- söng með undirleik Fritz Weisshappel. Strengjakvartett leikur „Lítið næturljóð“ eftir Mozart. Jakob Thorarensen les frumort ljóð. Flutt verður ó- peran „La serva padrona" (Ráðskonuríki) eftir Pergolesi. Flytjendur: Þuríður Pálsdótt- ir, Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Stjórnandi: Fritz Weisshappel. Fyrirhugaðir sýningarstaðir eru þessir; Vestmannaeyjar 27. og 28. október, Fáskrúðsfjörð- ur 30. október, Reyðarfjörður 31. október, Eskifjörður 1. nóv., Norðfjörður 2. nóv., Seyðis- fjörður 3. nóvember, Eiðar 4. nóv. og Hornafjörður 6. nóv- ember. BÓKMENNTA- OG TÓN- LEIKAKYNNING Á NORÐURLANDI. Um 10. nóvember er ráðgert að hefja ferð um Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur, þar sem einkum verða kynntar bók- menntir, en jafnframt flutt tónlist. Munu skáld og rithöf- undar lesa úr verkum sínum og söngvari syngja einsöng. Verður nánar skýrt frá þess- ari för síðar hér í blaðinu. Þótt fleiri ferðir hafi ekki verið ákveðnar enn, hafa þeir aðilar, sem að listkynningunni standa, fullan hug á að halda STJÖR.NÚBÍÓ hefur undan- farið sýnt myndina ,,Gervaise“ með Maríu Schell í aðalhlut- verki. Þetta er frönsk mynd og næg ir það eitt að geta þess, að Rene Clement er leikstjóri til að sann færa um að hún sé góð. Um leik í myndinni er það svo að segja, að María Schell er áfram því starfi, sem nú er haf ið. Munu þeir landshluar, sem ekki gefst tóm til að sækja heim að þessu sinni, verða látnir sitja fyrir, þegar framhald verður á listkynningunni, en það verðu.r væntanlega síðar í vetur eða vor. löngu þekkt fyrir ágætan leik. Fyrstu reynslu sína sem leik kona öðlaðist hún í leikhúsi Al- bert Basserlann, en það var kvikmynd Helmut Kántners „Síðasta brúin“ (sem sýnd var í Stjörnubíó), sem gerði hana fræga. Á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1954 var hún valin „bezta leikkona ársins“ fyrir leik sinn í þeirri mynd. Fyrir leik sinn í ,,Gervaise“ fékk hún „Volpi-verðlaunin'1 í Feneyjum árið 1956 sem bezta leikkonan, og stuðlaði þar með að því, að ,,Gervaise“ var eina myndin, sem fékk tvær viður- kenningar, þar sem myndin sjálf fékk „Hin alþjóðlegu blaða manna verðlaun“. Auk Máríu leika í myndinni Framhald á 11. síðu 102 BARNAGAMAN BARNAGAMAN 103 Gættu þess, að litli bróðír fari sér ekki að voða. Rafmagn getur verið hættulegt. var kennt að vefa rósa- skreytt stráteppi af ýms um litum og gerðum. Að þrem dögum liðn- um hafði hann lokið við að vefa fallegt stráteppi og sendiboðinn fór aftur til dóttur hjarðmanns- ins og sagði: „Þetta strá teppi hefur konungsson. urinn ofið.“ Og stúlkan fór með sendiboðanum tll kon- u'ngshallarinnar og varð kona konungssonarins. Dag nokkurn,11 sagði amma, „var konungsson urinn á gangi um götur Bagdadborgar, og kom hann þar auga á mat- söluhús, sem var svo hreinlegt og svalandi, að hann fór inn Og sett- ist við eitt borð.ð. Þessi staður,“ hélt amma mín áfram, „var aðsetursstaður þjófa og morðingja, og þeir tóku konungssoninn og vörp- uðu honúm í dýflissu, þar sem mætustu menn borgarinnar voru í haldi. Og þjófarnir og morð- ingjarnir drápu þá feit- ustu meðal þeirra og matreiddu fyrir þá mögr ustu, og höfðu mikið yndi af þessu. Konungs- sonurinn var einn af þeim mögru. Enginn v.ssi að hann var sonur konungsins í Persíu, og líf hans var treint. Og hann sagði við þjófana og morðingjana: „Ég get ofið stráteppi og þessi teppi eru mikils virði.“ Og þeir færðu honum tágar og báðu hann vefa og á þrem dögum óf hann þrjú teppi. Hann sagði: „Farið með þessi teppi til konungsins í Persíu, og fyrir hvert teppi. mun hann greiða hundrað gullpeninga.“ Þetta gerðu þeir, og þeear konungurinn sá teppin, þekkti hann handbragð sonar síns á Þeim, og hann fór með teppin til dóttur hjarð- mannsins og sagði: „Það var komið með þessi teppi tii hallarinnar. Sonur minn, sem er týndur, hefur ofið þau.“ Og dóttir hjarðmanns ins tók hvert teppi fyrir sig, rakti í sundur og rannsakaði gaumgæfi. lega, og í rósum hvers teppis fann hún boð frá manni sínum, skrifuð á persneskri tungu, og hún sendi þau til kon- ungsins Og konungur- inn,“ sagði amma mín, „sendi marga hermenn þangað, sem morðignj- arnir og þjófarnir höfðu aðsetur sitt. Hermennimir frels- uðu alla bandingjana og drápu þjófana og morð- ingjana, og konungsson. urinn komst heilu og höldnu til hallar föður síns og konu sinnar, hinnar litlu hjarðmanns dóttur. Og þegar er konungs- sonurinn kom til hallar- innar og sá konu sína aftur, féll hann fram. fyr ir henni, faðmaði að sér fætur hennar og sagði: „Elskan mín, það er þér að þakka, að ég er á lífi.“ Og konungurinn var mjög ánægður með dóttur hjarðmannsins. Jæja,“ sagði amma mín, „geturðu nú séð, hvers vegna hver ein- asti maður ætti að kunna einhverja heiðar- lega iðn?“ „Ég skil það mjög vel,“ sagði ég, „og strax og ég eignast nógu mik]a peninga til þess að kaupa fyrir sög, harn ar og við, skal ég gera mitt bezta, búa til ein- faldan stól eða bóka. hillu.“ Hér sjáið þið sirkus-sel-: inn leika listir sínar. | Þegar honum tekst bezt; upp skiptir hann boltum | sínum upp í sex flokka ; (með tvo í hverjum) j þannig, að útkoma sam-; anlagðra tveggja talna j er ávallt hin sama, og; það er númer hans í l sirkus-selahópnum. — ■ Hvert er númer hans?. Hulda Runólfsdóttir þýddi. Leikrit í 2 þáííurn. (Niðurlag.) Smali: Já, fyrst þið hafið alltaf verlð góðir við stúlkuna, skal ég náða ykkur alla. En með einu skilyrði: Þið megið ekki vera ræningjar lengur. Ekki einu sinni góðir ræningjar. í stað þess skuluð þið vinna heiðarlega vinnu. — Það verð-ð að finna öldung- inn, sem fór hérna fram hjá áðan, Og þið verðið að sjá svo um, að hann fái aftur alít, sem hann átti. 5. ræningi: Það skul- um við gera. Hjartans þakkir, yðar hátign. Allir ræningjarnir: — Hjartan-s þakkir, yðar hátign! Smali: (Tekur um. hönd stúlkunnar). Og ég yrði mjög hamingjusam ur, ef þú vildir koma með mér til hallarinnar og verða dottningin míii, því að ég hef aldrei hitt stúlku, sem er eins fal- leg og góð og þú. Stúlkan (hneigir sig): Já, hjartans Þakkir, yð- hátign. Smali: Og nú skulum sleppa grimmu „ræn sex“, því að eru þeir ekki grimm. ir ræningjar lengur. — (Dregur borðið frá veggnum). Ræningjanir (slá hring í kringum smalann og stúlkuna). Ræningjahöfðingi: — Lengi lifi vor hrausti konungur og vor fagra drottning! Allir ræningjarnir: — Húrra húrra, húrra! Tjaldið. Hulda Runólfsdóttir endursagði.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.