Morgunblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 r i r þykki fjarveitingarvald- hafa. Því skorar 24. þing SUS á rikisstjómina að gera opinberlega grein fyrir þeirri úttekt, sem kunnugt er að fram fór á húsinu, þannig að tæki- færi gefist til þess að meta réttmæti þessara húsakaupa." Spilin verði Slysaalda lögð á borðið Morgunblaðinu þykir ástæða til að vekja athygli stjórnvalda á sam- þykkt SUS-þings um kaup á húsi Trésmiðjunnar Við- is við Laugaveg, þar sem full ástæða er til að verða við þeim óskum, sem fram koma í samþykkt- inni. Samþykktin er svohljóðandi: „Þar sem ýmislegt bendir til að kaup ríkisins á húsi Trésmiðjunnar Við- is i Reykjavík verði að teljast í meira lagi vafa- söm ráðstöfun auk þess sem það er i ósamræmi við reglur stjórnarfars i landinu, að ríkisstjómin taki ákvörðun um stór- felld útgjöld ríkissjóðs án þess að fyrir liggi sam- Þau hörmulegu slys, sem orðið hafa að undan- förnu, eru þyngri en orð fá lýst. Sum slysanna eru þess eðlis að ekki verður við þeim séð, en önnur má rekjá beint til vita- verðs kæruleysis eða gá- leysis Timinn ræðir um þau slys s.l. sunnudag og nefnir þau réttilega þjóð- arböl. — Þar segir m.a.: „Haustið er mesti slysatími ársins. Það hef- ur verið svo undanfarin ár að eftir því sem dagana styttir og veður gerast harðari, fjölgar fómar- lömbum umferðarinnar. Það er því sérstök ástæða til að vara alla vegfarend- ur við og hvetja þá til aukinnar varúðar og að- gæzlu. Við það að skólar hefja störf fjölgar á fáum dög- um vegfarendum i þétt- býlinu að miklum mun. Á leiðinni til og frá skóla má segja að sjálft fjöregg þjóðarinnar, börnin sé á götunni tvisvar á dag alla virka daga. Vitanlega skiptir það megin máli að foreldrar búi böm sin sem bezt undir þessar ferðir og fylgist vel með þeim. Skólarnir veita nokkra umferðarfræðslu, en hitt stendur eftir sem áður að ökumenn verða að taka alveg sérstakt tillit tif barnanna. Það sannast óvíða hörmulegar en i umferðar- slysunum að það veldur alltaf hver á heldur. Það kemur fyrir litið að auka umferðaröryggi með opin- berum aðgerðum, um- ferðafræðslu i skólum og handleiðslu foreldra og annarra, ef tillitssemi og varúð skortir í umferðinni. Slysið verður á auga- bragði og það ryður brott öllum þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið, og til þess þarf ekki annað en andartaksgáleysi eða at- hugaleysi á örskotsstund. Nútimasamgöngur fela i sér þá áhættu að um- ferðin taki til sin sinn ár- lega toll. Það verður að berjast fyrir því ár eftir ár og sífelldlega að lækka þann toll eins og framast er unnt. Þegar litið er hins vegar yfir helztu ástæður og tildrög umferðarslysa á íslandi fellur mönnum satt að segja allur ketill í eld. Yfirlit yfir ástæður um- ferðarslysanna sýnir að helmingur þeirra verður vegna þess að menn „svína", eins og það er réttilega nefnt. virða ekki aðalbrautar- eða umferð- arrétt, og þröngva hver að öðrum í akstri. Tæplega tíunda hvert umferðarslys verður við það að menn virða ekki réttarreglur um beygjur, og tæplega tutt- ugu prósent slysanna þessu til viðbótar verða vegna þess að ógætilega er ekið fram úr, aftur á bak, frá gangstétt eða fyr- ir það að bifreiðinni er ekið á röngum kanti og ranglega lagt. Hátt í t(- unda hvert umferðarslys þessu til viðbótar verður vegna þess að reglur um hámarkshraða í akstri eru ekki virtar. í þessari óglæsilegu upptalningu hefur ekki verið getið þeirra um- ferðarslysa sem verða vegna þess glæps sem ölvun við akstur er." NYKOMINN BORÐBÚNAÐUR í fjölbreyttu úrvali. Ný munstur. Ascot, Rauhreif, Sir Christopher. Pantanir ósk- ast sóttar. G.B. Silfurbúðin Laugavegi 55. Sími 11066. ROYAL SKYNDIBÚÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUÐA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK o 9 Þl AUGLYSIR l M ALLT LAND ÞEGAR Þl AL'G- LÝSIR I MORGl'NBLADINL Dömur athugið Músík — leikfimi Byrja aftur með hressandi og styrkjandi 6 vikna námskeið í leikfimi fyrir dömur á öllum aldri, þann 3. okt. n.k. Kennt verður á mánudags- og fimmtudags- kvöldum í íþróttahúsinu á Seltjarnanesi. Leikfimi — vigtun — mæling — mataræði — sturtur. Innritun og upplýsingar í síma 75622 eftir kl. 1 alla virka daga. Audur Valgeirsdóttir. innritunardagur Kvöldnámskeið fyrir fullorðna — síðdegisnámskeið: Tungumálanámskeiðin — Skrifstofuþjálfunin Enskuskóli Barnanna — Einkaritaraskólinn Mímir, Sími 10004 og Brautarholt4 h 4 rtrt lll Uy (kl. 1 — 7e.h.) Nú erþaö Otsölumark^unnn á 2. haeö i Laugaveg'^ ^-----4cT5o% s Hljóðkútarnir , komnir ý \ Höggdeyfar í úrvali J. Sveinsson & Co. Hverfisgötu 116 Sími 15171 > i. Allt nýlegar vörur Látið ekki happ úr hendi sleppa. afsláttur Þetta er til (og mikið meira) N| Tereline buxur dömu og herra Dömu og herra peysur 0 Herra skyrtur stutterma og langerma 0 Bolir i ofsa úrvali 0| Dömuföt 0 Herraföt 0 Kápur — Kjólar — Pils 0 Gallabuxur denim, kakhi 0 Stuttjakkar 0 Stakir jakkar herra og dömu 0 Mussur — Blússur 0 Denim vesti og stuttjakkar o.fl. ÓTRÚLEGA GÓÐ VERÐ A II. HÆÐ LAUGAVEGI 66 sími frá skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.