Morgunblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977 Hér fer á eftir sjöunda vidtal Morgunblaðsins við borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Spjallað er við Pál Gíslason yfirlækni, borgarfulltrúa og formann heil- brigðismálaráðs Reykjavíkur, um þrískiptingu heil- brigðisþjónustunnar, öldrunarþjónustu, heilsugæzlu- stöðvar, almenna heilsuvernd, nýja skipan skolpræsa- , mála og frjálst æskulýðsstarf. 6200 Reykvikingar 70 ára og eldri — Þriðjungur íbúðaaukningar frá 1965 á því aldursskeiði Nýja þjónustuálman við Borgarspítaann fremst á myndinni. Heilbrigðismál í höfuðborg Þrískipting heilbrigðismála Sp.: Hverjir eru helztir þættir í heilbrigðisþjónustu höfuðhornar- innar? Sv.: Heilbrigðisþjónusta í land- inu er þvíþætt: 1) Almenn heilsu- vernd, s.s. fyrirbyggjandi aðgerð- ir eða sjúkdómavarnir; 3) heilsu- gæzla, þ.e. þeir þættir heilbrigðis- þjónustunnar sem fram fara utan sjúkrahúsa og 3) rekstur sjúkra- húsa. Þriðji þátturinn, rekstur sjúkrastofnana, hefur vaxið mest og örast siðustu árin, enda var þörfin þar brýnust og tilfinnan- legust. Hann er jafnframt kostn- aðarsamastur og þar af leiðandi erfiðastur viðfangs fyrir sam- félagið. Milli 80—90% af þvf fé, sem varið er til heilbrigðisþjón- ustu í landinu, fer til þessa þáttar. Heilbrigðisstofnanir í borginni þjóna nágranna- sveitarfélögum og landinu í heild Sp.: Hver er kostnaðarþáttur borgarsjóðs í stofnkostnaði og rekstri borgarstofnana í heil- brigðismálum — og hvert starfs- svið þeirra. með hliðsjón af skipt- ingu landsins í sveitarfélög? Sv.: Ríkissjóður greiðir 85% af stofnkostnaði sjúkrahúsa, við- komandi sveitarfélög 15%. Dag- gjöld sjúkrahúsa, er sjúkrasamlög greiða, bera meiginþunga rekstr- arkostnaðar. Daggjöld eru hins- vegar ákveðin með hliðsjón af rekstrarkostnaði á undangengn- um mánuðum. I verðbólguþjóðfé- lagi nást því endar sjáldnast sam- an. Rekstrarhalli er að vísu hafð- ur til hliðsjónar við ákvörðun dag- gjalda. Þetta þýðir þó að borgin verður að leggja fram verulegt fé á hverjum tima til að rekstur sjúkrastofnana geti gengið eðli- lega. Þessi háttur bindur að sjálf- sögðu mikið fé fyrir borginni. Af sjúkrastofnunum, sem borg- in ber ábyrgð á, má nefna: Borg- arspítalann ásamt Grensásdeild (endurhæfingardeild), Hvíta- bandsdeild (geðsjúkdómar) með útibúi að Arnarholti; Heilsu- verndarstöðína og loks Hafnar- búðir, sem nýttar verða á þessum véttvangí. Þessar stofnanir nýtast hins- vegar í þágu fleiri en Reykvik- inga. Þannig voru 56,6% eða rúm- lega helmingur legudaga á Borg- arspítalanum nýttir af Reykvík- ingum en 43,4% af öðrum. Kópa- vogur var með 5,4%, nýtingu legu- daga, Hafnarfjörður 3,3%, Sel- tjarnar'nes 1% og Garðabær 0,8% svo litið sé til nágrannakaupstaða. Arnessýsla var með 2,4% svo dæmi sé tekíð úr strjálli byggð. Slysavarðstofan á Borgarspítal- anum gegnir mjög mikilvægu þjónustuhlutverki í þágu alls ná- grennis höfuðborgarinnar. Þang- að komu 30.000 einstaklingar á sl. ári, þar af 20.000 úr Reykjavik, 3000 úr Kópavogi, 2500 úr Hafnarfirði, 900 úr Garðabæ og 600 af Seltjarnarnesi, svo nokkrar tölur séu nefndar. Starfsemi þess- arar deildar hefur aukizt um 50%, á 10 árum, sem bezt sýnir, hve starfsþunginn er míkill og vax- andi. Þrengsli í slýsavarðstofunni er óverjandi orðinn sem og starfs- skylirði á mestu álagstímunum. Hafin var bygging nýrrar þjón- ustuálmu við Borgarspitalann á sl. ári, þá reist fokheld. Nú er unnið að innréttingum. Gert er ráð fyrir að ný slysavarðstofa geti tekið þar til starfa fljótlega upp úr komandi áramótum. Þar verða ennfremur göngudeildir, sem ekki var reiknað með í upphaf- legri hönnun spítalans. Ennfrem- ur heilsugæzlustöð, er þjóna á um 12.000 Reykvíkingum — í Foss- vogi og nágrenni. Aðstaða fyrir göngudeildir og heilsugæzlustöð verður tiltæk ári siðar en nýja slysavarðstofan. 6200 Reykvíkingar 70 ára og eldri Sp.: Hvern veg spilar öldrunar- þjónustan inn I nýtingu sjúkra- stofnana i horginni? Sv.: Húsnæði eða húsnæðisleysi aldraðra er stórt vandamál varð- andi nýtingu á tiltæku sjúkra- rými í borginni. Æskilegt er að veita öldruðum nauðsynlega þjón- ustu sem lengst á eigin heimilum eða utan sjúkrahúsa, er þá nýtt- ust betur til ætlunarverks síns: lækningar sjúkra. Þetta var m.a. orsök þess að borgarstjórn sam- þykkti fyrir 3 árum að verja 7Vi% af álögðum útsvörum til öldrunar- þjónustu m.a. til stofnana fyrir aldraða. Nefna má byggingu íbúða fyrir aldraða við Lönguhlíð, Dalbraut og Furugerði, sem til- búnar verða í vetur og á næsta ári. Heimilið við Daibraut á að veita meiri öldrunarþjónustu fyrir þá, sem ekki eru heilir heilsu, en eiga þó ekki samleið með sjúklingum á sjúkrahúsum. Enn vantar þó aðstöðu fyrir þa öldnu, sem verst eru settir eða mest þurfandi sjúkrameðferðar. Þar á að koma til svokölluð B- álma Borgarspítalans. Áætlar.ir og teikningar eru löngu tiltækar. Og nú er verið að bjóða verkið út. Ég geri ráð fyrir að sökklar og botnplala verði steypt i haust. Húsið verður síðan steypt upp, 4 hæðir, 1978. 1979 hefst vinna við innréttingar. 1980 verður síðan ein hæð tekin i notkun og síðan ein hæð á ári, unz verki er fulllok- ið. B-álman er sem fyrr segir ein- göngu ætluð fyrir aldraða og lang- legusjúklinga. Á hverri hæð VIÐ STJÓRN- VÖL BORGAR verða 30 sjúkrarúm en hæðirnar verða alls 7. Minar hugmyndir eru þær að þarna verði rekin öldrunarlækn- ingadeild með u.þ.b. 60 rúmum, þar sem sérhæft fólk annast end- urhæfingu sjúklinga tiltekinn tíma, unz vissum bata er náð. Þá er og mjög brýn þörf fyrir um 30 rúma sérdeild fyrir háaldrað fólk eða öldrunarsjúklinga, sem ekki eiga samleið með öðrum sjúkling- um. Þörfin fyrir margháttaða þjón- ustu við aldraða fer sívaxandi. Fólki yfir 70 ára hefur fjölgað úr 4281 manni árið 1965 f 6224 tíu árum siðar, 1975, eða um 45%. Á þessu timabili fjölgar Reykvík- ingum úr 77.998 í 84.423 íbúa. Nánast einn þriðji af aukning- unni er fólk 70 ára og eldra. Þetta talar sinu máli, en talið er að um 15%, af fólki yfir sjötugt þurfi hjúkrunar við i einni eða annarri mynd. Það er því mikil nauðsyn að koma á samhæfingu á nýtingu þeirrar aðstöðu, sem i borginni er fyrir þá öldnu, svo á hverjum tíma sé hægt að veita þá þjónustu, sem þarf, og gefa fólki öryggi um að slíkt verði veitt fullnægjandi, þegar á þarf að halda. Hefur því in frá 1973 gerir ráð fyrir því að strjálbýli gangi fyrir um upp- byggingu heilsugæzlustöðva. Erfitt hefur því reynzt að sækja fjármuni til þessara framkvæmda í Rvík en ríkinu ber að greiða 85% af stofnkostnaði heilsu- gæzlustöðva, greiða laun lækna og hjúkrunarfræðinga en sveitarfé- lög annast annan rekstrarkostn- að. Stefnt hefur verið að því að hefja byggingu heilsugæzlustöðv- ar í Breiðholti I en ekki fengizt ríkisfjárveiting til framkvæmda. Þá var ákveðið að brjóta ísinn í Arbæ en þar reyndist unnt að fá hentugt húsnæði til kaups. Tók þar til starfa heislugæzlustöð sl. vetur, er þjóna á um 6000 manns. Jafnframt var ákveðið að taka á leigu húsnæði í Asparfelli í Breið- holti III en þar hefur borgin rekið barnadeild frá heilsuverndarstöð og útibú frá félagsmálastofnun. Páll Gíslason. Nýbygging við Árnarholt á Kjalarnesi. verið rætt um að vistunarstofnun Reykjavíkurborgar ynni að þess- um málum, þar sem félagslegir og heilbrygðislegir þættir koma saman. Heilsugæzlustöðvar Sp.: Hvað um heilsugæziustöðv- ar I borginni? Sv.: Heilsugæzla, þ.e. heilsu- vernd og læknismeðferð utan sjúkrahúsa, hefur átt á brattann að sækja vegna skorts á heimilis- læknurn. Ungir læknar hafa lítt laðazt að þeint störfum eins og háttar um starfsaðstöðu og nýlið- un orðið sntá i starfinu. Borgar- stjórn hefur gert ákveðnar tillög- ur um úrbætur, m.a. með tilkomu heilsugæzlustöðva fyrir einstök borgarhverfi. Ríkisvaldið hefur hinsvegar andæft, vegna þarfa annars staðar. Heilbrigðislöggjöf- Vonast er til að þar taki heilsu- gæzlustöð til starfa um nk. áramót er þjóni um 8000 manns. Aætlað er að borginni verði skipt í 9 heilsugæzluumdæmi með heilsugæzlustöð í hverju um- dæmi. Enn er stefnt að heilsugæzlu- stöð í Breiðholti I og vonazt er til að fjárveiting fáist á næstu fjár- lögum. Þá stendur til að heilsu- gæzlustöð taki til starfa á Sel- tjarnarnesi. Fram fara viðræður um, hvort heppilegt sé að hafa þá stöð það stóra að hún geti veitt fullkomna þjónustu hluta af Vest- urbæ, næst Nesinu. Frá sjónar- hóli þjónustu og hagkvæms rekstrar virðist 12.000 manna stöð heppileg. Myndu þvi bæöi sveitar- félögin geta notið góðs af sam- starfi á þessum vettvangi. Enn er þetta mál þó á umræðustigi. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.