Morgunblaðið - 21.09.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1977
5
Þakkir
til Atla Heimis Sveinssonar
TILEFNI þess að ég drep niður
penna að þessu sinni, er að bera
fram innilegar þakkir til tón-
skáldsins Atla Heimis Sveins-
sonar fyrir þann óvænta heiður
er hann sýnir mér með því að
tileinka mér nýjasta verk sitt
„Fitl og dútl“ samið 18. sept. sl.
Ég hygg það sé fremur óvana-
legt að heldur meinleysisleg
blaðagrein verði til þess að
hræra svo rækilega í einu virt-
asta tónskáldi þjóðarinnar, að
úr penna þess hrjóti samdæg-
urs fullmótað listaverk, og eins-
dæmi að slíkt verk birtist í dag-
blaði við fyrsta tækifæri. Ég
hef reynt að bregðast jafn
skjótt við og vil geta þess, að
æfingar eru þegar hafnar á
verkinu. Mun ég að sjálfsögðu
leitast við að koma því á fram-
færi, svo þjóðin fái notið þcssa
nýjasta snilldarverks verð-
launatónskáldsins. Það er rétt
að taka fram að viða bregður
fyrir í verkinu leiftrandi hugar-
flugi ásamt glæsilegri úr-
vinnslu efniviðs, sem ber vott
um andlega reisn og göfugt
hugarfar tónskáldsins. Vil ég í
þvi sambandi t.d. benda á þann
stað í verkinu, þar sem orð-
skripið ullabjakk er endurtekið
50 sinnum.
Um leið og ég itreka þakklæti
mitt óska ég tónskáldinu vel-
farnaðar.
Ritað i Hafnarfirði 20. sept.
1977.
Egill Friðleifsson.
Flugvél rakst
á fuglahóp
FLUGVÉL frá gríska flugfclag-
inu Olympfe, Boing 720, sem var í
flugtaki frá veilinum í Tel Aviv á
mánudag með 91 farþega innan-
borðs, rakst á fuglahóp og urðu
verulegar skemmdir á vélinni.
Flugstjórinn sneri samstundis
vélinni aftur til Ben Gurion vallar
og lenti þar áfallalaust. Viðgerð á
vélinni og gler í flugstjórnar-
klefaglugga kostaði um fimmtán
þúsund dollara.
Formaður sendinefndarinnar, frú Ting Sjö-sung
Kínverskt
mennta- og lista-
fólk hér á landi
SENDINEFNI) frá vináttusam-
tökum kfnversku þjóðarinnar
við erlend ríki kom hingað til
lands 17. sept. sl. f boði Kín-
versk-íslenzka menningar-
félagsins.
Formaður sendinefndarinnar
er frú Ting sjö-sung, varafor-
maður Vináttusamtakanna og
fulltrúi á fjórða þjóðþingi Al-
þýðulýðveldisins Kina. Aðrir
nefndarmenn eru Li Tsú-ven,
forustumaður i Shanghai-deild
Vináttusamtakanna, ’Feng Shi,
prófessor i erlendum bók-
menntum, forstöðumaður rann-
sóknastofnunar i erlendum
bókmenntum við Kinversku fé-
lagsvísindaakademíuna, þekkt
ljóðskáld og greinarhöfundur
um bókmenntir i hcimalandi
manna, Búrfellsvirkjun, Sögu-
aldarbæinn, Gulifoss og Geysi
o.fl.
Miðvikudagínn 21. sept. kl.
20.30 munu Liu Teh-hai, lútu-
leikari, Reibya Mohammet,
sópransöngkona, og Li Ming-
tsjang, píanóleikari, halda al-
menna tónleika í samkomusal
Menntaskólans við Hamrahlíð,
þar sem flutt verða verk eftir
kinverska og norræna höfunda.
Öllum er heimill aðgangur.
Á mánudagskvöld var hald-
inn fundur i Kínversk-íslenzka
menningarfélaginu og þar hélt
frú Ting Sjö-sing ræðu og sagði
m.a. eftirfarandi:
„Kínversk-islenzka menn-
ingarfélagið er nú orðið 24 ára
Sópransöngkonan
Reib.via Mohammet
Lútuleikarinn Liu
Teh Ilai
Li Ming-tsjang
píanóleikari.
sínu, Reibiya Mohammet,
sópransöngkona frá Sinkiang
Uighur sjálfsstjórnarsvæðinu,
aðstoðarforstöðumaður menn-
ingarmálaskrifstofu Sinkiang-
fylkis og varaþingmaður, Li
Ming-tsjang, pianóleikari, hlaut
m.a. fyrstu verðlaun f Enescú-
alþjóðapianóleikarakeppninni i
Rúmeníu árið 1958, Liu Teh-
hai, einleikari á pipa, en það er
kínversk lúta, Fan Jú-guang,
stjórnarmaður Vináttusamtak-
anna, og Vang Tsen-sing, starfs-
maður samtakanna.
Nefndin mun dvelja hér á
landi til 25. september, og hittir
að máli m.a. forseta íslands og
ráðherra, borgarstjóra og for-
ystumenn verkalýðsmála. BZinn-
ig mun nefndin fara til Vest-
mannaeyja og haida þar tón-
leika, halda austur fyrir Fjall
og skoða Mjólkurbú Flóa-
gamalt. Þetta félag hefur unnið
mikil afrek við að efla vináttu
og gagnkvæman skilning milli
landanna tveggja, og árangur-
inn hefur jafnvel aukist á sið-
ustu árum. Eg vil ieyfa mér að
þakka hjartanlega vinum okkar
i Kínversk-islenzka menningar-
félaginu og vinum úr öllum
starfsgreinum fyrir samstöðu
slna með landi okkar. Við erum
viss um að eftir þvi sem sam-
handið milli landanna þróast,
og með óeigingjörnu starfi vina
okkar í félaginu, mun það svo
sannarlcga halda áfram að
blómstra, og vináttan milli
þjóðanna tveggja mun bera
jafnvel enn rikulegri ávöxt...
Þött langt sé milli Kína og Is-
lands og úthöf liggi milli land-
anna, hafa viðskipti þeirra allt-
af verið vinsamleg. Við erum
Framhald á bls. 18
Torgið efst a blaöi
þegar fariö er í bæinn til fatakaupai
AUGLV»NGAOEa.OIN/LJOSM STUDtO 28
Haustpeysur!
Fy rir dömur, herra og börn
Heilar, hnepptar
og með rennilás.
sími: 27211
Austurstracti 10