Morgunblaðið - 24.11.1977, Page 47

Morgunblaðið - 24.11.1977, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 1977 47 HEIMALIÐIN UNNU OLL í UEFA OG MARKATALAN VAR 20:1 í GÆRKVÖLDI FYRRI leikirnir í 16 liða úrslitum UEFA-keppninnar í knattspvrnu fóru fram í gærkvöldi og þau úrslit, sem mest komu á óvart var glæsilegur sigur Ipswich gegn Barcelona. Leikið var í Englandi og settu Englendingarnir 3 mörk hjá spánska stjörnuliðinu. Þá vekur athygli að Bayern Múnchen, það fræga lið, tapar 0:4 fyrir löndum sínum í Eintraeht Frankfurt. í gærkvöldi töpuðu öll liðin, sem léku á útivöllum, og var lið Ásgeirs Sigurvinssonar þar engin undantekning. Liðið lék í A- Þýzkalandi gegn Carl Zeiss Jena og fékk á sig tvö mörk, en tókst ekki að svara fyrir sig. Svissneska liðið Grasshoppers lék í Tiblisi á Móti Dynamo og tapaði aðeins 0:1 og er það minni munur en búast mátti við. Erfitt er að meta eftir leikina i gærkvöldi hvaða lið komast áfram i fjórðu umferð keppninnar, en ljóst má þó vera að stjörnulið Bay- ern og Barcelona eiga erfiða leiki fyrir höndum, jafnvel þó leikið sé á heimavelli. Auk þess að liðin sem léku á útivöllum náðu ekki stigi i leikjunum í gærkvöldi. Þá tókst engu þeirra heldur að skora mark. Urslitin í gærkvöldi urðu þessi: Víkingur AÐALFUNDI Knattspyrnudeild- ar Víkings hefur verið frestað um eina viku. Verður fundurinn næstkomandi miðvikudag og hefst klukkan 20.30 f Félagsheim- ili Vikings við Hæðargarð. Frankfurt, V-Þýzkalandi — Bayern Miinchen, V-Þýzkalandi 4:0 (2:0) Mörk Frankfurt: Grabowski, Holzenbein, Kraus, Skala. Áhorfendur: 23.000. — 0 — PSV Eindhoven, Hollandi — Eintracht Braunschweig, V-Þýzkalandi 2:0 (0:0) Mörk PSV: Lubse, Van der Kuylen Áhorfendur: 25.000 — 0 — Aston Villa, Englandi — Athletic Bilbao, Spáni 2:0 (1:0) Mörk Villa: Iribar (sjálfsmark), Deehan. Ahorfendur: 32.973 — 0 — Ipswich, Englandi — Barcelona, Spáni 3:0 (1:0) Mörk Ipswich: Gates, Whymark, Talbot Ahorfendur: 33.272 — 0 — FC Magdeburg, A-Þýzkalandi Lens, Frakklandi 4:0 (2:0) Mörk Magdeburg: Zapf, Pommerenke, Mewis, Steinbach. Áhorfendur: 25.000 — 0 — Carl Zeiss Jena, A-Þýzkalandi, Standard Leige, Belgfu 2:0 (1:0) Mörk Jena: Schnupass, Lindemann. Ahorfendur: 12.000 0 Dynamo Tiblisi, Sovétr. — Ggrasshoppers, Sviss 1:0 (1:0) Mark Dynamo: Shengeliva Ahorfendur: 80.000 — 0 — Bastia, Frakklandi — Torino, Italfu2:l (1:1) Mörk Bastia: Pai, Rep. Mark Torino: Pulici. Hreinn Halldórsson tekur Þórhalls Halldórssonar. við hinni rausnarlegu gjöf úr hendi Rausnarleg gjöf til Hreins HREINN HALLDÓRSSON var sérstaklega heiðraður á árshátið Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar 18. nóvember siðastliðinn. Afhenti Þórhallur Halldórsson, formaður félagsins, Hreini 250 þúsund krónur, en Hreinn starfar sem kunnugt er sem bílstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Á fundi stjórnar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var gerð svolátandi samþykkt: „Fundur haldinn i stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 18. nóvember 1977 ákveóur að heiðra einn félags- mann þess, Hrein Halldórsson, Evrópumeistara i kúluvarpi, með peningagjöf að upphæð 250 þúsund krónur. Stjórn félagsins vill með þessari ákvörðun veita viðurkenningu fyrir einstakt afrek og frábæra þrautseigju, um leió og hún óskar Hreini Halldórssyni góðs árangurs og alls hins bezta i framtíðinni." Svíar standa sig vel en erfitt hjá Dönum MARGIR landsleikir í handknattleik hafa farið fram að undanförnu og eiga þá yfirleitt I hlut þjóðir, sem taka þátt í úrslitum HM I Danmörku í janúar og febrúar á næsta ári. Undirbúa þjóðirnar lið sín af kappi þessa dagana. Högni bætti metið í maraþon HÖGNI Óskarsson langhlaupar- inn sem stundar framhaldsnám og störf I læknisfræði við sjúkra- hús Cornell-háskólans f Banda- rfkjunum bætti eigið lslandsmet i maraþonhlaupi um nokkrar mfnútur er hann hljóp á 2:49,43 klst., f New York maraþonhlaup- inu sem haldið var í lok október. Varð Högni númer 314 af um 5000 hlaupurum í þessu mikla hlaupi sem þræðir 5 borgarhverfi New York borgar, og er það vissu- lega góður árangur hjá Högna. Með árangri sfnum í hlaupinu í New York bætti Högni eigið Is- landsmet um þrjár mfnútur. Fyrra met hans var um 2:52 klst., sett í fyrra. Hefur Högni bætt árangur sinn jafnt og þétt en frá þvf hann hélt til Bandarfkjanna til framhaldsnáms í læknisfræði hefur hann hlaupið hina rúmlega 42 kílómetra vegalengd um 5 sinnum. Ekki er okkur kunnugt um æfingar Högna né hvort hann reikni með að reyna að bæta þennan árangur mjög. Þó er ljóst að ekki þarf hann að auka mikið við æfingar sfnar til að fara lang- leiðina að 2:30 klst. í greininni sem er mjög þokkalegur árangur, en árangur Högna f New York hlaupinu er hinn athyglisverð- asti. — ágás. Svíar léku tvo leiki gegn Norð- mönnum um síðustu helgi og unnu sigur í báðum leikjunum, en munurinn varð mun minni en búist hafði verið við. Fyrri leik- inn unnu Svíar 18:17 (13:10) og seinni leikinn 19:18 (10:6). í fyrri leiknum skoraði Björn Anderson flest mörk Svfa, sex talsins. í seinni leiknum lék hann ekki með liðinu og tók Bengt Hákansson þá við hlutverki hans. Sviar voru ánægðir með sigrana í leikjunum og bentu á aó það væri allt annað en auðvelt að leika fjóra lands- leiki á 5 dögum og sigra í þeim öllum, en dagana fyrir Noregs- leikina unnu þeir islands i tvi- gang. Undanfarna daga hefur staðið yfir i Baie Mare svonefnd Karpaterkeppni og voru Danir þar meðal þátttakenda ásamt Spánverjum og nokkrum liðum frá A-Evrópu. Meðal úrslita þar má nefna að Danir töpuóu fyrir Ungverjum 28:24 (14:14). Mark- hæstir i liói Dana var Anders Dahl Nielsen með 10 mörk, en Ungverjinn Kovacs, sem kemur hingað með Hoved, bætti um bet- ur og gerði 12 mörk. Danir töpuðu einnig fyrir Rúmenum 23:20 (11:5). Michael Berg gerði sex af mörkum Dana, en markhæstir i liði Rúmena var Mironiuc með sjö mörk. Það vakti athygli að stjór- stjarnan Birtalan gerði ekki mark i leiknum og hafði sig litt i frammi i keppninni. Búlgarar unnu A-Þýzkaland i keppninni 26:22 (16:16), Abadjov og Asparuhov gerðu 5 mörk Búlgara, Dreibrodt 7 mörk fyrir Þjóðverja. B-lið Rúmena gérði jafntefli við Spánverja, 19:19 (9:7), og var Alonson með 6 af mörkum Spánverja, en Lopez 3. Nánar verður reynt að greina frá keppninni siðar. Knattspyrnuþjálfari óskast ~ - Ungmennafélagið Einherji Vopnafirði auglýsir eftir þjálfara sumarið '78. Upplýsingar milli kl. 1 9 og 20 næstu daga í síma 247 52 Reykjavík. Í ■a Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik mmaw Dómarar eru frá Noregi, þeir Antonsen og Huslby. w lil I I handknattleiksunnendum tækifæri IM U til að sjá eitt besta félagslið í heimi. Ummæli þjálfara Vals: M/ETUM ÖLL í HÖLLINA .OG STYÐJUM VAL. Handknattleikslið Vals Þeir eru snillingar með knöttinn og myndu sæma sér vel í hvaða sirkus sem er.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.