Morgunblaðið - 03.12.1977, Qupperneq 1
32 SlÐUR
260. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977 Prentsmiója Morgunblaðsins.
Björgunarsveitarmönnum tókst fyrst í gær að koma þungavinnuvélum á hættusvæðið í Tuve
til að aðstoða þar við uppgröftin. Simamynd
Dómstóll í Suður-Afríku
hreinsar öryggislögregl-
una af sök á dauða Bikos
Pretoríu, 2 desember
— Reuter
DÓMSTÓLL hér hreinsaði i
dag öryggislögregluna i S-
Afriku af allri sök á láti
blökkumannaleiðtogans
Steve Bikos, en hann andað-
ist i fangaklefa og reyndist
vera með heilaskemmd.
Þegar tilkynnt hafði verið um úr-
skúrðinn, hófu mótmælendur sem
safnazt höfðu saman fyrir utan dóm-
húsið, að hrópa „Synd okkar er að við
erum svartir," og fréttir bárust um
handtökur fólks úr fjölskyldu Bikos.
Ekkja Bikos sagði frá þvi að bróðir
hans, Kaya. og frændi, Solomon Biko,
hefði verið meðal allmargra svertingja
er handteknir hefðu verið af lögregl-
unni í Soweto fyrr um daginn
Það tók aðeins þrjár minútur að lesa
upp niðurstöður dómsrannsóknarinn-
ar, sem staðið hafði yfir sl þrjár vikur
Þar kom fram að Steve Biko hafði látizt
12 september af völdum höfuð-
meiðsla, en engar sannanir bentu til að
Biko hefði látizt fyrir tilverknað annars
manns eða manna
Ekkja Bikos vildi ekkert láta hafa eftir
sér þegar niðurstöður dómsrannsókn-
arinnar lágu fyrir, en hún sat i réttinum
allan timann meðan á rannsókninni
stóð
Talsmaður Bandarikjastjórnar for-
dæmdi i gær niðurstöður dómsrann-
sóknarinnar harðlega og taldi úrskurð-
inn illa rökstuddan ? alla staði
Óeirðir í
Portúgal
Lissabon, 2 desember Reuter
TIL ÓEIRÐA kom á götum úti
og sprengjur sprungu í kjölfar
yfirlýsingar Mario Soares.
forsætisráðherra Protúgals,
um að hann myndi leggja líf
stjórnar sinnar að veði með
því að krefjast traustyfirlýs-
ingar portúgalska þingsins.
*
Ottazt
rasks
• •
Oryggisgæzla
á svæðinu hert
Gautaborg 2 desember — NTB —
TT
NÚ ER Ijóst að fimm manns fórust i
jarðraskinu mikla i Tuve, úthverfi
Gautaborgar, en i gær var haldið að
dánartalan væri sex. Hins vegar er
enn þriggja saknað, og vist mun
þykja að tveir þeirra hafi grafizt und-
ir i rústum húss sem lenti i landsig
inu. Óttinn við frekara jarðsig hefur
valdið þvi að oll öryggisgæzla á
hættusvæðinu hefur verið hert til
muna. Lögregla og hermenn hafa
einnig fært út hættusvæðið af þess-
um sökum um leið og almenningi
hefur verið fyrirskipað að halda sig
frá Tuve nú um helgina Óttast lög-
reglan að forvitnin muni reka marg-
að til
komi
an inn á svæðið og hefur af þeim
sökum komið upp farartálmum á
nokkrum leiðum tilTuve.
Á fimmtudag og föstudag
mynduðust nýja sprungur i leirkennd-
um jarðveginum í Tuve og jarð-
fræðingar halda því fram að hættan á
nýju jarðskriði eða jarðraski sé ennþá
yfirvofandi, þvi að sprungur af þessu
tagi séu oft fyrsta visbendingin um að
skrið sé ? vændum Hins vegar sé það
ekki óvanalegt að það geti liðið heil
vika milli sprungumyndananna og
skriðsins sjálfs Þess vegna hefur öll-
um íbúum Tuve verið fyrirskipað að
yfirgefa hverfið i öryggisskyni
Að sögn Sven Hansbos, prófessors,
má ætla að slysið þarna hefði orðið
enn meira ef landskriðið hefði átt sér
stað að næturlagi og miðað við það
hversu margir búi á þessu svæði eða á
3ja hundrað manns megi það teljast
undravert að manntjón skyldi ekki
Begin heimsækir Bretland:
Hvetur tíl endumýjunar
gamallar yfirlýsingar
milli Breta
London, 2 desember— Reuter
FORSÆTISRÁÐHERRA ísraels.
Menachem Begin, kom til Englands í
fimm daga opinbera heimsókn og
hvatti við komuna til þess að endur-
nýjuð yrði brezk yfirlýsing frá þvi
fyrir 60 árum, sem leiddi til stofnun-
ar ísraelsrikis. Þetta er fyrsta ferð
Begins til útlanda frá þvi að hann var
sjálfur sóttur heim fyrir hálfum
mánuði af Anwar Sadat. Egypta-
landsforseta.
Við komuna á Heathrow-flugvelli
sagði israelski forsætisráðherrann enn-
fremur, að meiríháttar ákvarðana
mætti vænta i kjölfar þessa fyrsta fund-
og Gyðinga
ar milli þjóðarleiðtoga Arabarikis og
ísraels ,.Ég kem með frá Jerúsalem
uppástungu um að gerð verði sams
konar yfirlýsing og undirrituð var af,
brezku þjóðinni og Gyðingum fyrir 60
árum á þeim ógleymanlega degi 2
nóvember 191 7."
Heimsókn Begins hefur tvivegis
verið frestað vegna óvæntra stjórn-
málaviðburða í Miðausturlöndum, en
upphaflega var þó einna helzt litið á
þessa heimsókn Begins sem uppreisn
æru hans i landi því þar sem i
Palesinustríðinu 194 7 var heitið 10
þúsund pundum fyrir framsal hans en
Begin var þá foringi hermdarverka-
flokks
frekara jarð-
í Gautaborg
verða meira en raun ber vitni eða slys
ekki fleiri
Sænski húsnæðismálaráðherrann.
Johann Antonsson, og fleiri stjórn-
málamenn fóru eftirlitsferð um svæðið
Framhald á bls. 31
Sprengingin særði alvarlega vegfar-
anda sem var að virða fyrir sér mót-
mælagöngu um 40 þúsund hægri
sinna niður aðalstræti Lissabon sem
hélt i átt að höfuðstöðvum kommún-
ista
Lögregla með skildi og kylfur að
vopni hélt í skefjum hópi kommúnista
sem stóðu vörð um byggingu sina
meðan mótmælagangan ögraði þeim
með fasistakveðjum og hrópum á borð
við — ..Portúgal fyrir þjóðina. ekki
fyrir Moskvu, niður með kommúnista
Um 14 manns voru fluttir i sjúkra-
hús eftir þessi átök
Vesturveldin hefja sókn á
ný á Belgraðráðstefnunni
Hvergi hvikað frá mannréttindaþættinum
Belgrað 2 des — Reuter
VESTURLÖND hófu i dag nýja sókn
á öryggismálaráðstefnu Evrópu hér i
þvi skyni að tryggja að Austurblokk
inn standi við ýmis grundvallaratriði
almennra mannréttinda
Bandarikin með stuðningi hinna
| 14 bandalagsrikja sinna innan NATO
og fjögurra annarra rikja komu fram
með tillögu sem skyldar öll 35 rikin
sem aðild eiga að ráðstefnunni til að
virða meginmannréttindaákvæði
Helsinkiyfirlýsingarinnar frá 1975.
Aðalfulltrúi Bandaríkjanna. Arthur
Goldberg, sagði að það væri óhugs-
andi að Belgraðráðstefnunni. sem skal
fara yfir hvernig staðið hefur verið við
skuldbindingar frá Helsinki, yrði slitið
án þess að vikið væri að mannréttind-
um
Soézki aðalfulltrúinn, Yuli
Vorontsov, taldi tillöguna einskorðast
um of v.ð einn þátt mála og hélt til
streitu ásökunum kommúnistarikja um
brot vesturveldanna á þessum ákvæð-
um og sagði fréttamönnum „Mann-
réttindi. likt og kærleikurinn. byrjar
heima fyrir Við skulum ræðast við án
skirskotana i áróðursskyni og koma
okkur að verki með þvi að fara bem
ustu leið
Ráðstefnan hefur nú staðið i nær niu
vikur og gert er ráð fyrir að henm Ijúki
ekki fyrr en i febrúar Fyrir ráðstefn
unni liggja um 90 tillögur og venð er
að byrja að semja fyrstu drög að
skýrslu um mðurstöðu Þar hefur kom
ið fram tillaga af hálfu vesturveldanna
um eitt ákvæðið, þar sem þvi er haldið
Franihald á hls. 31
Spassky
fékk frestun
Belgrad 2 des Reuter
Sjöttu einvígisskák þeirra Borris
Spasskys og Viktors Korchojs,
sem tefla átti í dag, var frestað að
beiðni Spasskys. Óskaði hann
eftir því að skákin yrði flutt aftur
til mánudags, þar sem hann þjáð-
ist af minniháttar kvefi.
Simamynd
Begin, forsætisráðherra ísraels, við komuna til London og sést hér heilsa
dóttur ísraelsks sendiráðsstarfsmanns David Owen, utanrlkisráðherra Breta,
tók á móti Begin. en þetta erfyrsta heimsókn ísraelsks leiðtoga til Bretlands.