Morgunblaðið - 03.12.1977, Page 10

Morgunblaðið - 03.12.1977, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977 LITIR: HVÍTUR, GULUR, GRÆNN, LJÓSBLAR. VERÐ: (Reginadine sjálfhreinsandi) Hvít 60 cm breið kr 107.200 — Hvít 70 cm breið kr 1 1 3.800. — í lit 60 cm breið kr. 1 1 0.600. — í lit 70 cm breið kr. 1 1 6.950. — Regina venjuleg hvít 50 cm kr 85.800 60 cm kr. 100.100. \unnai SUzávMn h.f. sími 35200 Suðurlandsbraut 16. Ný Pólsk grafík að Kjarvalsstöóum til 11. des. Hvað segja gagnrýnendur um sýninguna? ..meðal ágætustu sýninga sem hingað hafa borist” ..mikill listviðburður sem seint mun úr minni líða" (Valtýr Pétursson, MorgunblaSið) „Pólverjar (eru) á þessu sviði i allra fremstu röð hvergi á allri sýningunni er veikan hlekk að finna". (Ingiberg Magnússon, Þjóðviljinn) „Gagnvönduð sýning" „Einstakur listviðburður" (Hrafnhildur Schram, Dagblaðið) ER EKKI TÍMI TIL KOMIIMN AÐ ÞÚ SJÁIR ÞESSA SÝNINGU? Opið 1 6—22 virka daga. 14—22 um helgar. Úra og skartgripavorzlun Magnúaar Guðlaugssonar, Úr — Val, Strandgötu 19, Hafnarfirði, aimi 50590 OPIÐ TIL KL 6 í DAG sérverslun konunnar Kirkjudag- ur í Ar- bæjarskóla Kirkjudagur Árbæjarsafnaðar verður að þessu sinni hátíðlpgur haldinn sunnudaginn 4. desember i hátíðasal Árbæjarskóla. Frá þeim tima er sérstakt prestakall var stofnað i Reykjavíkurprófast- dæmi ofan Elliðaánna hefur kirkjudagur verið árvis viðburður í safnaðarstarfinu og hafa dag- skrárliðir hans ævinlega verið mjög fjölsóttir, enda efnisskrá fjölbreytt og til hennar vandað eftir föngum. Þá hefur kirkju- dagurinn jafnframt verið einn stærsti fjáröflunardagur safnaðarins sem að líkum lætur, þar sem fjárfrekar byggingar- framkvæmdir hafa staðið yfir sókninni frá árinu 1974. En þörfin á slíkum fjáröflunardegi hefur þó aldrei verió brýnni en nú, þegar aðeins vantar herslu- muninn að lokið sé við að full- gjöra fyrsta áfanga kirkjubygg- ingarinnar sem tekinn verður í notkun innan skamms. Er skemmst frá því að segja, að ennþá vantar nokkurt fjármagn til þess að unnt verði að festa kaup á húsbúnaði svo að safnaðar- heimilið verði starfhæft. Von mín er sú, að kirkjudagurinn á morgun muni þar leysa úr nokkr- um vanda. Heitið er því ó alla safnaðarmenn yngri sem eldri að fjölmenna á dagskrárliði kirkju- dagsins og rétta þannig fram örvandi hjálparhönd á lokastigi mikilvægs byggingaráfanga. Dagskrá kirkjudagsins verður sem hér greinir: Kl. 10.30 árdegis verður barna- samkoma í Árbæjarskóla og eru foreldrar boðnir velkomnir með börnum sínum. Guðsþjónusta hefst síöan í skólanum kl. 2. 1 guðsþjónustunni syngur frú Elísabet Erlingsdóttir einsöng. Leikið verður á trompet og kirkjukór safnaðarins syngur undir stjórn Geirlaugs Árnasonar organleikara. f messunni verður vígður nýr hökull og kyrtlar fyrir söngkór sem listamaðurinn Katrín Ágústs- dóttir hefur unnið. Að lokinni guðsþjónustu hefst kaffisala Kvenfélags Árbæjarsóknar. Munu borð þá svigna undan góm- sætum veislukökum því að bakstur safnaðarkvenna er rómaður mjög fyrir gæöi og er margur minnugur þess frá fyrri kirkjudögum safnaðarins. Þá verður um leið efni til skyndi- happdrættis með mörgum glæsi- legum vinningum. Þar á meðal má nefna tvö listaverk eftir Katrínu Ágústsdóttur og Jóhannes Geir. Meðan á kaffisölu kvenfélags- kvenna stendur fer fram tisku- sýning á vegum kvenna úr sókn- inni og mun þær sýna nýjustu kvenfatatisku frá versluninni Jósefínu og e.t.v. fleiri fyrirtækj- um. Arbæingar. Tökum höndum saman og gjörum þennan dag að sönnum hátíðisdegi með þvi að fjölmenna í Arbæjarskóla á morgun. Látum sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar i andlegt hús og leggjum um leið steina i grunn þeirrar byggingar sem síðar mun varpa birtu og ljóma aðventu- konungsins út yfir byggðir Árbæjar- og Seláshverfa um ókomin ár. Veriö öll hjartanlega velkomin. G uð m u nd u r Þorst e i n sso n.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.