Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 23

Morgunblaðið - 03.12.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977 23 sendi ég samúðarkveöjur og þakk- ir. Ég er ekki ein um þetta, vegna þess að mörg börn hafa þau haft á sínum bæ á sumrunt og ég er viss um að þau hugsa eins. M.a. var einn sonur minn hjá þeirn nokkurn tíma. Utför hans fer fram frá Hruna, en þar var faðir Helga lengi prest- ur, en prestur var séra Kjartan áður á Hvammi í Dölum og þaðan er Hvammsnafnið í Hrunamanna- hreppi komið. Ég þakka þeim hjónum órofa tryggð, uppeldi og vináttu í næst- umhálfaöld. Edda Kvaran. Það þykja ekki mikil tíðindi á þessum tímum verðbólgu, hraða og velsældar, þótt heilsubilaður, gamall maður kveðji þennan heim fljótlega. AUur fjöldinn ypptir öxlum og segir, að þaó hafi Verið gott, að hann fékk að fara svo fljótt og mæla ef til vill nokk- ur samúðarorð. En svona andláts- fregn snertir okkur gamla fólkið dálítið á annan veg. Við getum að vísu vei unnt jafnöldrum og sam- fylgdarmönnum að hverfa fljót- lega af sviði lífsins, en — þegar um vini og nána frændur er að ræða, fer ekki hjá því að söknuð- ur geri vart við sig og í hugann komi hin alkunna líking sálma- skáldsins fræga: „Ég horfði yfir hafið um haust af auðri strönd." Sannarlega finnst okkur, að við stöndum á auðri strönd og horfum með trega yfir djúpið ókunna, hvað sem líður trú okkar á annað lif. Svo fór mér, að minnsta kosti, er ég frétti lát vin- ar míns og skólabróður Helga í Hvammi. Við höfðum þekkst sið- an veturinn 1912 — 1913, að við vorum saman í Hvanneyrarskóla, sinn i hvorri deild að visu. En Sigurður bröðir minn og Helgi voru i sömu deild og jafnaldrar. Má vera að kynni okkar hafi orðið nánari þess vegna. Síðan endurnýjuðust kynnin, þegar ég varð kennari á Eyrar- bakka 1920 og starfaði allmikið með ungmennafélögum á Suð- urlandi. En mest og best urðu kynni okkar árin 1929—37, þegar ég var skólastjóri í Flúðaskóla og sveitungi Helga. Þau ár naut ég vináttu hans og hjálpsemi meir en nokkru sinni fyrr. Faðir Helga, Sra Kjartan i Hruna, var þá formaður skóla- nefndar og hafði ég þvi mikil kynni af því ágæta fólki. Það er skemmst frá að segja. að hjálp- samari manni og tryggari, en Helga Kjartanssyni. hefi ég ekki kynnst. Hann hafði svo einstakt lag á þvi að gera öðrum greiða, að það var líkt því sem menn gerðu það fyrir hann að þiggja greið- ann. Og prúðmennsku hans og drenglyndi var við brugðið. Siðan ég fluttist úr hreppnum hefi ég og mitt fólk oft notið gest- risni og hjálpsemi Helga og hans fólks, siðast núna í október, þegar ég hitti hann glaðan og reifan, þrátt fyrir mikla sjóndepru og annan lasleika. Ég mun aldrei gleyma heimsókn okkar Ásthild- ar, tengdadóttur minnar, að Hvammi, 2. okt. sl. Þau Hvamms- hjónin, Elín og Helgi tóku á móti okkur glöð og reif, þrátt fyrir lasleika beggja. Gamanyrði og gamansögur flugu um borð og ég naut enn einu sinni frásagnar- gleði og góðlátlegrar kíntni vinar míns. Hann hafði næmt skopskyr. og kunni vel að segja frá, enda vel viti borinn, vel menntaður og uppalinn á einu hinu mesta menningarheimili íslands á fyrri hluta þessarar aldar, Hruna í Hrunamannahreppi, hjá sínum þjóðkunnu foreldrum Kjartani Helgasyni, prófasti og frú Sigríði Jóhannesdóttur. Eru ættir þeirra beggja svo kunnar, að óþarfi er að endurtaka það hér. En hitt vita færri nútímamenn, hvílíkt af- bragðsheimili þau hjón áttu yfir Magnús Garðars- son — Minning Fæddur 10. júlí 1963 Dáinn 24- nóvember 1977 Við kveðjum í dag Magnús Garðarsson aðeins 14 ára gamlan. Magnús var sonur hjónanna Sig- ríðar Benediktsdóttur og Garðars Magnússonar. Faxabraut 11. Keflavík. Magnúsi kynntist ég fyrst er ég hóf að kenna honum 10 ára göml- um. Hann var góður nemandi. kátur, samviskusamur og vel greindur. Hann var einn þeirra, sem vekja eítirtekt f.vrir prúða framkomu og háttvísi. Við vissum það öll að Magnús gekk ekki heill til skógar. Hann var oft fjarver- andi vegna erfiðra veikinda, en aldrei var hægt að merkja sjálfs- meðaumkvun eða það að hann hlífði sér í leik eða starfi. Þrátt fyrir veikindin fylgdist hann vel með og sýndi góðan námsárangur f lok hvers skölaárs. Hugarfari Magnúsar verður bezt lýst með því að minnast þess. að síóustu dagana, sent hann lifði voru áhyggjur af eigin veikindum ekki í fyrirrúmi. Hann óttaðist hinsvegar að sjúkrahúsvistin ylli nákomnum ættingjum hugar- angri. Það er sárt að sjá á bak svo göðu mannsefni, sem Magnús var. Erf- itt aó trúa því hve sumir deyja ungir, — deyja frá glæslri fram- tíð, en enginn má sköpum renna. Nú þegar Magnús er farinn skjóta margar minningar upp kollinum. Þær eru allar á einn veg hugljúfar og hreinar. Að leið- arlokum þakka ég stutta en ánægjulega samfylgd. Ég veit að skólafélagarnir og aðrir kunn- ingjar eiga nú urn sárt að binda. Dauði Magnúsar minnir á, að það eru ekki allir hlutir sjálfsagðir. Það veit enginn hver er næstur. hvenær kallið kemur. Harmur hjónanna Sigrfðar og Garðars og dætra þeirra, er þö auðvitað mestur. En minningin um góðan dreng hjálpar og styrk- ir. Eg vo'tta þeim innilega samúð ntína. Karl Steinar Guðnason. Allir vita hvað það er mikils virði að eiga vini og félaga. Lifið, bæði leikur og starf, væri fátæk- legt án þeirra. Glaðværðin og ánægjustundirnar, einu orði lífs- gleðin, fengi á sig annan svip án þeirra. Þú sem lest þessar fátæklegu línur skilur þess vegna hug skóla- systkina, þegar einn félaginn hverfur úr höpnum. — Það er eins og að rnissa eitthvað af sjálf- um sér. — En eftir stendur það sem miklu skiptir: Minningin urn góðan dreng. Það er svo niargt sem skóla- systkin vildu sagt hafa, en minningarnar um æskuárin yerða ekki varðveittar í orðum. Þær eru frentur eins og myndir af leik og skólastarfi sent líða hjá. Samt sem áður langar okkur til að segja þér frá hæglátum en glaðværum dreng, sem nú er lát- inn. Hann lést úr krabbameini á barnaspítala Hringsins. Magnús Garðarsson var okkur kær og á sinn hljóðláta hátt yar hann eftirminnilegur félagi og vinur. Sem námsmaður var hann i fremstu röð. Það er sárt að sjá af honuni nú. En við sjáum betur hve dýrmætt er brotgjarnt lífið er og viljurn treysta þvi að látinn lifi. 1 sálnti, sem sunginn var við ferntingu okkar í fyrra. segir á þessa leið: ..Knjfimi vt*it i' undan a*vi sinnar kjcir. Samt vór örtiKK synKjum. sórtu. <iuc). í för.** Við vottum foreldrum og systr- um Magnúsar innilega santúð og biðjurn Guð að styrkja þau. Skólasystkin í Keflavlk. Magnús Gárðarsson fæddist i Keflavík 10. 7. 1963. Hann lést eftir erfið og langvinn veikindí 24. nóv. s.l. Magnús var sonur hjónanna Sigríðar Benediktsdóttir og Garðars Magnússonar en þau búa að Faxabraut 11 í Keflavik. 40 ár, fyrst i Dölum vestur i 14 ár og síðar í Hruna. Þar var mjög fjölmennt heimili og búið stórt, mikill fjöldi búfjár, m.a. 100 ær á fóðrum lengi vel, uli unnin í föt og mjólk í mat. — Ég sagði við einhvern fréttamann nýlega, að þeir hefðu sannarlega átt erindi til Helga i Hvamrni að spyrja frétta um þetta menningarheim- ili, þar sem nú virðist i tísku. að tala og skrifa um liðna tímann og jafnvel sýna í m.vndum. En nú er það of seint. — En hér vil ég rifja upp helstu æviþætti vinar míns. Helga. í stuttu máli. Fæddur var Heigi að Hvammi í Dölum, en flutti með foreldrum sínum að Hruna 1905, þegar sra Kjartani var veitt Hrunapresta- kall. 10 voru börn þeirra hjóna, en 3 dóu í bernsku. Þessi systkini Helga komust upp: Unnur, kenn- ari Elín, húsfrú í Reykjavík, Jó- hannes, verkfræðingur, Guðrún, húsfreyja í Skipholti, Ragnheið- ur, kennari, og Guðmundur, jarð- fræðingur og kennari. ÖU eru systkinin nú dáin og sum þeirra fyrir löngu og um aldur fram. Auk þess voru- tvö fósturbörn í Hruna: Maren, bróðurdóttir frú Sigríðar, sem dó innan við tvítugt, og Emil Ásgeirsson, nú bóndi í Gröf, ólst þar upp frá 7 ára aldri. Mörg fleiri börn nutu ástríkis og umhyggju á heimili þeirra hjóna, þótt hér séu ekki nefnd. Öll voru þessi systkini merkismenn, vel metin og vinsæl af samtíð sinni og eiga merka afkomer.dur, Eins og fyrr segir var Helgi 2 ár við nám í bændaskólanum á Hvanneyri og auk þess eitt ár við jarðræktarnám í Noregi, bæði á Jaðrinum og í Þrændalögum. Helgi var mesti dugnaðarmaður til vinnu og ntjög fjölhæfur. Best munu honum hafa látið allskonar jarðræktarstörf, hvort sem var grasrækt, garðrækt eða trjárækt. Hann vann mikið að jarðræktar- Framhald á bls. 30. Eins og áður er getið átti Magnús við erfiðan sjúkdóm að striða. Hann mun fyrst hafa þurft að gangast undir aðgerð vegna þessa er hann var aðeins 12 ára. Magnús Garðarsson kom i skól- ann tíl okkar aftur eftir sumar- leyfi nú á þessu hausti. En vera hans í 8. bekk varð ekki löng — aðeins 1 — 2 dagar, en þá þurfti hann enn að fara á sjúkrahús og var þar uns yfir lauk. Við kennarar við Gagnfræða- skólann i Keflavik, munum Magnús vel frá því hánn var hjá okkur i 7. bekk. enda átti hann mjög auðvelt með nám og var um flest einstakur nemandi. Ljúfur var hann og elskulegur i öllu við- móti. Hann var rólegur og prúður en átti rikulega gamanseir. og kimni til að bera. Magnús Garðarsson var svo sannarlega fyrirmynd í allri um- gengni, nánti og starfi. Það er gott að hafa slíkan nentanda og ánægjulegt að hafa kynnst svo góðunt dreng. Þau hjónin Sigríður og Garðar áttu 4 börn, þrjár stúlkur og svo Magnús sem nú er allur. Það er sárt að missa svo góðan dreng. Við kennarar við skólann flytjum foreldrum, systrum og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Við gleymunt ekki Magnúsi Garðarssyni. Það gerir enginn sem kynntist honum. Kennarar \ ið Gagnfra'ðaskólann í Keflavlk. K0KUBASAR Viðeyingafélagið verður að Hallveigarstöðum, sunnudaginn 4. desember og hefst kl. 2 eftir hádegi. Viðeyingafélagið. í DAG KJÓLAR FRÁ LAPIDUS OG SWEDEN Rauðarárstíg 1 Sírni 15077 fluttur... LITLI BANGSI ER ORÐINN STÓR Opnuð í dag nýja verzlun í næstu dyr- um (þar sem Rakara- stofan var á Klappar- stig). Vönduð sænsk barnaföt i mjög miklu úrvali. KOMDU OG SKOÐAÐU í KISTURNAR OKKAR. . . BANCSI Laugavegi 20 - sími 28310

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.