Morgunblaðið - 03.12.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977
Átta jámiðnaðarmenn
fóru í setuverkfall
Síldarvinnslan h.f. í Neskaupstað:
Kvarta undan aðbúnaði
Neskaupstað 2. desember
ATTA járniðnaðarmenn, sem
vinna á verkstæði Sildarvinnsl-
unnar h.f. i Neskaupstað, fóru í
setuverkfall í dag til að leggja
áherzlu á bættan aðbúnað á
vinnustað. Starfsmennirnir gripu
til þessara ráða eftir að hafa
kvartað lengi yfir aðbúnaðinum
án þess að hlustað hafi verið á þá.
Er það einkum hávaði á vinnu-
stað, þ.e. á verkstæðinu, sem þeir
kvarta undan, en enginn veggur
er á milli verkstæðisins og aðal-
vinnslusalar verksmiðjunnar.
Stjórn verksmiðjunnar hélt fund
með starfsmönnunum síðdegis í
dag og náðist þá samkomulag
milli starfsmannanna og stjórnar
verksmiðjunnar, og ætla járn-
iðnaðarmennirnir að hefja vinnu
á ný á mánudag. Einnig mun
ætlunin að reisa vegg milli verk-
stæði og vinnslusalar -á næstu
dögum.
1 febrúar s.l. fóru bæði fram
heyrnar- og hávaðamælingar í
Síldarvinnslunni og annaðist þær
Birgir Ás. Guðmundsson. Kom þá
í Ijós að margir starfsmannanna
voru með skerta heyrn. Mældist
hávaðinn í sildarverksmiðjunni
90—117 desibel. Af 38 starfs-
mönnum verksmiðjunnar, sem
voru heyrnarmældir, kom í ljós,
að 37 voru með heyrn innan
eðlilegra marka, 47% voru með
væga heyrnarskerðingu og 21%
voru með verulega skerta heyrn.
Þessar mælingar voru gerðar á
v 'tum Verkalýðsfélags Norð-
íirðinga og Málm- og skipasmíða-
félagsins í Neskaupstað.
Þá má geta þess að blað Alþýðu-
bandalagsins í Neskaupstað,
Austurland, hefur fjallað um
þessar heyrnarmælingar, en þær
voru gerðar á fleiri vinnustöðum
en i síldarbræðslunni.
Asgeir
Skoðanakönnun Framsóknarflokksins 1 Norðurlandi vestra:
r
Olafur Jóhannesson
hlaut 94,4% atkvæða
TALNINGU í skoðanakönnun
Framsóknarflokksins á Norður-
landi vestra lauk á S:uðárkróki
um kl. 10 í gærmorgun, en þá
hafði kjörstjórn setið að störfum
í 20 klukkustundir. Alls 2313
manns tóku þátt í skoðanakönn-
uninni, sem ekki er bindandi. Til
samanburðar má geta þess, að við
síðustu alþingiskosningar hlaut
Framsóknarflokkurinn 2012 at-
kvæði í Norðurlandskjördæmi
vestra. Ólafur Jóhannesson,
dóms- og kirkjumálaráðherra,
fékk samtals 2136 atkvæði í skoð-
anakönnuninni eða 94.24%
greiddra atkvæða og var hann
langefstur þeirra er þátt töku í
könnuninni.
Eins og fyrr segir, þá fékk Ólaf-
ur Jóhannesson 2136 atkvæði.
Hann fékk 1869 atkvæði í 1. sætið,
MMSfWK = = -
165 í 2. sæti, 61 í 3. sæti, 19 i 4.
sæti og 22 atkvæði í 5. sæti.
Páll Pétursson alþingismaður
fékk alls 1864 atkvæði. 137 í 1.
sæti, 1271 í 2. sæti, 266 i 3. sæti,
105 í 4. sæti og 85 í 5. sæti.
Stefán Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri á Sauðárkróki,
fékk 1672 atkvæði. 74 atkvæði í 1.
Jón Hermannson
opnar málverka-
sýningu á Isafirði
Isafirði 2. desember.
A MORGUN, laugardag, opnar
Jón Hermannsson, loftskeytamað-
ur, málverkasýningu á Isafirði.
Sýningin er I kjallara Alþýðu-
hússins og verður opnuð kl. 14. A
sýningunni eru 46 olíumálverk.
flest máluð nýlega.
Jón Hermannsson loftskeyta-
maður, nú símritari á Isafirði,
hefur fengizt við málaralist í
fjölda mörg ár. Er kunnugum
löngu ljóst, að þar er á ferðinni
fjölhæfur og vandaður myndlist-
armaður. Þetta er fyrsta opinbera
sýning Jóns. Vekur hún vonir um
fleiri síðar. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 17—22 en
laugardaga og sunnudaga frá kl.
15—22. Henni lýkur sunnudaginn
11. desember.
Ulfar.
Basar í
Grindavík
Gindavík 2. desember
ÁRLEGUR basar Kvenfélags
Grindavíkur verður í félagsheim-
ilinu Festi á morgun, sunnudag,
kl. 14. Á boðstólum verður fjöl-
breytt val muna.
Guðfinnur.
sæti, 193 í 2. sæti, 955 í 3. sæti, 266
14. sæti og 274 atkvæði í 5. sæti.
Guðrún Benediktsdóttir á
Hvammstanga fékk alls 1554 at-
kvæði. Hún fékk 36 atkvæði í 1.
sæti, 72 í 2. sæti, 354 í 3. sæti, 587 í
4. sæti og 501 í 5. sæti.
Bogi Sigurbjörnsson á Siglu-
firði fékk 1524 atkvæði, 30 í 1.
sæti, 68 í 2. sæti, 317 í 3. sæti, 579 í
4. sæti og 512 í 5. sæti.
Magnús Ólafsson bóndi á
Sveinsstöðum fékk 1009 atkvæði,
74 í 1. sæti, 375 í 2. sæti, 135 í 3.
sæti, 203 í 4. sæti og 225 í 5. sæti.
Brynjólfur Sveinbergsson á
Hvammstanga hlaut 998 atkvæði,
24 í 1. sæti, 72 í 2. sæti, 260 í 3.
sæti, 281 í 4. sæti og 361 f 5. sæti.
Sleppt
úr gæzlu
BANDARIKJAMANNI einum
var í gær sleppt úr gæzluvarð-
haldi, sem hann hafði verið í um
tíma vegna rannsóknar fíkniefna-
máls. Mál þetta var af minni gerð-
inni og var manninum sleppt þeg-
ar það hafði upplýstst. Einn
maður situr nú í gæzluvarðhaldi
vegna fíkniefnamáls. Það er
Reykvíkingur á þrítugsaldri.
Saknar einhver
segulbands?
NOKKUR innbrot voru framin í
hús í Vesturbænum um síðustu
helgi. Þjófurinn náðist og er allt
þýfið komið til skila nema segul-
bandstæki, sem þjófurinn man
ekki hvar hann stal. Eru það til-
mæli Rannsóknarlögreglunnar að
ef einhver Vesturbæingur saknar
segulbands hafi hann samband
við lögregluna hið fyrsta.
Athugasemd frá
fjármálaráðherra
VEGNA fréttar i Morgunblaðinu í
gær af ummælum fjármálaráð-
herra um tillögur aukafundar
Stéttarsambands bænda hefur
Matthías Á. Mathiesen, fjármála-
ráðherra, óskað að taka fram
eftirfarandi: „Er blaðamaður
Morgunblaðsins átti viðtal við
mig varðandi tillögur aukafundar
Stéttarsambands bænda tjáði ég
honum að ég hefði ekki séð sam-
þykkt bænda, enda þótt ég hefði
heyrt um hana. Ég gæti því ekk-
ert um hana sagt.
11 mánuði ársins en allt árið i
fyrra.
Vegna þessarar ískyggilegu
þróunar ræddi Mbl. í gær við
Óskar Ólason, yfirlögregluþjón
umferðarmála. Hann sagði:
„Samkvæmt þessum tölum
hafa þrír ökumenn verið teknir
fyrir meinta ölvun hvern ein-
asta dag ársins. Margir halda
því fram og eflaust með réttu,
að ekki náist til nema hluta
þeirra, sem aka ölvaðir. Það er
staðreynd, að allt of margir
fremja þetta brot. Almenning-
ur ætti að aðstoða lögregluna
við að ná til þeirra, sem fremja
þetta afbrot. Fólk á við nægan
vanda að etja í umferðinni all's-
Reykjavíkurlögreglan:
Búið að taka 1031
ökumann vegna
ölvunar við akstur
Allt árið í fyrra voru
FYRSTU 11 mánuði þessa árs
hefur lögreglan í Reykjavík
fært 921 ökumenn til blóðtöku
vegna gruns um ölvun við akst-
ur. Auk þess hafa reykvískir
lögreglumenn tekið 110 öku-
menn grunaða um ölvun við
akstur. AIls hefur því verið
færður til blóðtöku 1031 öku-
maður í Reykjavík 11 fyrstu
mánuði ársins en í fyrra voru
þessar tölur yfir allt árið 918,
teknir I borginni, og 94 utan
hennar eða 1012 ökumenn allt
árið í fyrra. Það hafa því verið
teknir 19 fleiri ökumenn fyrstu
teknir 1012 ökumenn
gáð og það er ógnvekjandi til-
hugsun að geta búizt við því að
ökumaðurinn, sem við erum að
mæta, sé ölvaóur.
Lögreglan gerir sitt til þéss
að ná til ölvaðra ökumanna en
hér þarf meira til. Það verða
allir vegfarendur að leggjast á
eitt til þess að hægt sé að ná til
þeirra, sem aka öivaðir, áður en
þeir valda sjálfum sér og öðrum
tjóni. Oft er það svo að hinn
ölvaði verður valdur að stór-
kostlegri röskun á högum sinna
nánustu. Um þetta eru mörg
sorgleg dæmi.“
Almenna bókafélagið:
íslenzk úrvals-
ljóð frá 20. öld
Kristján Karlsson hefur annazt útgáfuna
ÚT er komið hjá Bókaklúbbi
Almenna bókafélagsins (BAB)
Islenzkt ljóðasafn, IV bindi A —
20. öld — í úrvah og umsjá
Kristjáns Karlssonar. I þessu
safni eru ljóð eftir 31 skáld og
hefst á Sigurði Nordal (f. 1886)
og endar á Páli H. Jónssyni (f.
1908). Höfundum er raðað eftir
fæðingarárum, eins pg í fyrri
bindum safnsins, og á þessu 22
ára tímabili (milli 1886—1908'
eru fædd flest þau skáld sem
dáðust hafa verið á þessari öld,
svo sem Stefán frá Hvítadal,
Davíð Stefánsson, Tómas
Guðmundsson, Jóhannes úr Kötl-
um, Snorri Hjartarson o.s.frv.
Kristján Karlsson fjallar i for-
mála fyrir bókinni m.a. um svo
nefnda formbyltingu í ljóðagerð,
sem orðið hefur á öldinni, og
kemst ma. svo að orði:
„Margt ófróðlegt hefur verið
ritað um formbyltingu í ljóðagerð
á þessari öld, frá báðum hliðum.
Var hún nauðsynleg, var hið fasta
form orðið skáldskapnum fjötur
um fót? Sú spurning er fyrir
löngu orðin fánýt. Hér gerðist
formbylting og í plógfar hennar
spratt upp skáldskapur, sem er að
mörgu leyti nýr þáttur í íslenzkri
ljöðagerð. Hann var vafalaust
eins óhjákvæmilegur og margar
þær breytingar, sem gerzt hafa i
þjóðfélaginu, bæði andlegar og
veraldlegar. En þótt breytingar í
ljóðagerð séu greinilega hlið-
stæðar þjóðfélagsbreytingum
samtímans, skyldum vér varast
skynseminnar vegna að álíta ný
ljóðform afleiðingu þeirra og enn
síður skyldum vér gleypa við
þeirri auðfengnu hugmynd, að
skáldskapurinn hafi stuðlað að
breytingum þjóðfélagsins. Skáld-
skapur þarf engrar réttlætingar
við. Og skáld eru yfirleitt ekki á
undan sínum tima, nema í bók-
menntasögunni, þ.e.a.s. miðað við
önnur skáld. Miklu nær er að
skilja hina nýju hefð, sem er
kennd við formbyltingu, sem
uppreist gegn ofríki bókmennta-
sögunnar eins og hún er túlkuð í
gervi þjóðarsögu."
Með þessari nýju bók, sem
merkt er IV bindi A, eru komin út
5 bindi í ljóðasafninu. Urval
þýðinga sem kom út snemma á
þessu ári er merkt 5. bindi. Þá er
aðeins óútkomið IV bindi B og
mun það hefjast á Steini Steinarr
og ná fram til um 1970. — Verða
því alls 6 bindi í safninu, 4. bindið
— 20. öldin —tvískipt.
Þetta nýja bindi ljóðasafnsins
er 352 + XV bls. að stærð og er að
öllu leyti unnið i Prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
(Fréttatilkynning).