Morgunblaðið - 03.12.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977
3
Breytingar á vöruaf-
greiðslu Flugleiða
UM ÞESSAR mundir standa .vfir
breytingar í afgreiðslu Flugleiða
vegna vöruflutninga til útlanda.
Vörumóttaka hefur fram að þessu
verið í vöruafgreiðslu innan-
landsflugs á Reykjavíkurflug-
velli en fl.vzt nú um helgina að
Bíldshöfða 20. þar sem vörumót-
taka opnar n.k. mánudag 5.
desember. I fréttatilk.vnningu frá
Flugleiðum segir, að hér sé um
eitt skref að ræða af hálfu Flug-
leiða til hagræðingar og einföld-
unar í vöruflutningum með flug-
vélum Flugfélags tslands og Loft-
leiða og munu auðvelda útflytj-
endum sambandið við afgreiðsl-
una, þar sem flest útflutnings-
fyrirtæki séu nú í austurhluta
borgarinnar.
Þá segir, að um þessar mundir
séu rúm tvö ár liðin síðan Frakt-
afgreiðsla Flugleiða fluttist að
Bíldshöfða 20, en hafði áður verið
á fjórum stöðum í borginni. Sú
breyting að sameina vöruaf-
greiðsluna og hafa hana á einum
stað í borginni hafi mælzt vel
fyrir og einfaldað alla afgreiðslu.
í sambandi við þær Jrreytingar
sem nú eru gerðar á vöru-
afgreiðslunni verður tekin í notk-
un tölva, sem á að flýta fyrir allri
afgreiðslu.
Vörumóttakan á Bíldshöfða 20
verður opin fimm daga vikunnar,
kl. 9—12 og 13—17.
„Alexander líttu þér nær”
Athugasemd frá fréttaritara
Morgunblaðsins í Ólafsvík
VEGNA ummæla Alexander'-
Stefánssonar oddvita í viðtaL
sem birtist í Morgunblaðinu 30
nóv. s.l. vil ég gera eftirfaranu.
athugasemd.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki borið fram lista í sínu nafni
við sveitarstjórnarkosningar i
Ólafsvík, a.m.k. ekki siðustu
15—20 árin. Við síðustu sveita-
stjórnarkosningar, komu fram
tveir listar hér í Ólafsvík. Voru
það D-listi, listi sjálfstæðismanna
og H-listi, listi almennra borgara,
en að honum stóðu menn úr öllum
stjórnmálaflokkum, öðrum en
Leiðrétting —
minningargjöf
í BLAÐINU í gær í frétt frá
vígslu hjónagarðanna við Suður-
götu voru rangar tölur birtar um
þá fjárhæð sem alls var gefin til
byggingar garðanna til minningar
um dr. Bjarna Benediktsson og
frú Sigríði Björnsdóttur konu
hans og dótturson þeirra Bene-
dikt Vilmundarson. Rétt tala er
krónur 67,9 milljónir. Blaðió biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
1. des.
fagnaður í
Luxemborg
ÍSLENDINGAR í Luxemborg
héldu árlegan 1. des. fagnað í
gærkvöldi og var gert ráð fyrir
fjölmenni að vanda. islenzkt
tízkusýningarfólk, sem nú er í
Luxemborg, átti að sýna íslenzk
föt og fleira átti að vera til
skemmtunar.
‘'jálfstæóisflokknum. Hlaut D-
jti. 159 atkvæði, en H-Iisti 371.
_>að er því skotið yfir markið hjá
Alexander, þegar hann heldur því
fram, að sjálfstæðismenn hafi
verið óánægðir með þátttökuna í
prófkjöri sínu á dögunum, en hjá
okkur kusu 156 manns. Ætti Alex-
ander að líta sér nær í leit að
þeim, sem hófu gagnrýni á fyrir-
komulag skoðanakönnunar fram-
sóknarmanna hér. Hitt er rétt hjá
Alexander, að hann hefði náð
sama sæti í skoðanakönnuninni,
þó að þátttakan hefði ekki verið
eins mikil í Ólafsvík og raun ber
vitni og er það glæsilegur árangur
hjá honum.
Varðandi kosningu í heimahús-
um, vil ég aðeins segja það, að það
er rétt hjá Alexander, að hér var
slæmt veður á föstudag og fram
eftir laugardegi. Hins vegar var
prýóisveður í Ólafsvik á sunnu-
deginum og raunar á fimmtudags-
kvöldið einnig.
Helgi Kristjánsson.
Fundur í Mynt-
safnarafélaginu
FUNDUR verður í Myntsafnara-
félaginu í dag klukkan hálf þrjú.
Á uppboðsskránni eru 56 númer.
Þar á meðal eru margir kórónu-
peningar t.d. 10 aurar frá 1925
sem seldust á nóvemberupp-
boðinu á 5700 krónur. Þykki
túkallinn frá 1966 verður einnig
boðinn upp og er lágmarksboð i
hann 12.000 krónur. Nokkrir
seðlar verða einnig boðnir upp,
norskir, finnskir, íslenzkir og að
auki 6 seðlar sem gefnir voru út í
Slésvik/Holstein 1919 til 1921. Er
ékki að efa að vel verður mætt og
hátt boðið á þessum seinasta
fundi félagsins fyrir jól.
sem náóst hefur i hafréttarmál-
um Norðmanna?
— Ég er talsvert ánægður
með þann árangur, sem náðst
hefur með 200 mílna útfærsl-
unni án þess að veruleg vanda-
mál kæmu upp. Samkomulag
okkar við Sovétríkin um Bar-
entshaf er bráðabirgðasam-
komulag, en er hluti af stærri
heild og sem slíkt tel ég að það
sé í lagi. Nú er næsta verkefm
að halda lengra á braut alþjóð-
legrar samvinnu í hafréttarmál-
um og þá einkum í sambandi
við vinnslu náttúruauðæfa á
hafsbotni.
íslendingar og Norðmenn
eiga við sameiginlegt vandamál
að glíma í sambandi við skreið-
Möguleikar Noregs aldrei
meiri í sögu þjóðarinnar
— sagði Oddvar Nordli forsætisráðherra í samtali við Mbl.
Frá blaóamanni Mbl.
Ingva H. Jónssyni í Ösló.
— LANGSTÆRSTA og mikil-
vægasta verkefni ríkisstjórnar
minnar er að takast á við efna-
hagsvandamálin og reyna að
tryggja fólkinu í landinu at-
vinnu, að halda atvinnuleysi ut-
an við okkar landsteina á þess-
um erfiðu tímum í efnahags-
málum í heiminum, sagði
Oddvar Nordli forsætisráð-
herra Noregs í stuttu samtali
við Morgunblaðið á skrifstofu
sinni í Ósló.
Forsætisráðherrann var að
því spurður hvort erfitt væri að
stjórna minnihlutastjórn eftir
hinar tvísýnu kosningar á sl.
hausti.
— Ríkisstjórn okkar er hrein
minnihlutastjórn og við höfum
ekki boðið öðrum flokkum til
samstarfs við okkur, við höfum
hins vegar boðið Stórþinginu til
samstarfs um lausn þeirra
vandamála sem við eigum við
að glíma. Það er óhætt að segja
að við höfum ekki átt við mikla
erfiðleika að etja í þingstörf-
um.
— Er við mikinn efnahags-
vanda að glíma í Noregi?
— Það þarf mikið átak til að
halda atvinnuleysi í skefjum.
Aðstaða okkar á útflutnings-
mörkuðum er erfið og það hef-
ur eðlilega áhrif á hið opna
efnahagskerfi okkar. Einnig
virðist þróunin vera sú að vand-
inn í útflutningnum haldi
áfram að þyngjast að það verð-
ur að nýta alla hugsaniega
möguleika til að forðast at-
vinnuleysi. Vöruskiptajöfnuð-
urinn er mjög óhagstæður og
lítið útlit fyrir að úr því rætist á
næsta ári. Við reynum að leggja
áherzlu á aukin viðskipti við
þær þjóðir, sem eru svo vel
settar að búa við hagstæðan
greiðslujöfnuð.
— Er ríkisstjórnin lagði
fram fjárlagafrumvarp sitt
fyrir skömmu sagði fjármála-
ráðherra í ræðu sinni að Norð-
menn yrðu að herða beltið, lífs-
kjör myndu ekki batna á næsta
ári og ekki væri svigrúm til
launahækkana fyrir meðal- og
hátekjufólk. Sættir norska
þjóðin sig við slíkan boðskap án
þess að grípa til aðgerða á
vinnumarkaðnum?
— Ekki veit ég hvort sú verð-
ur raunin. Það er rétt að það
kom fram í ræðu fjármálaráð-
herrans að ekkert svigrúm væri
til iaunahækkana, nema helzt
fyrir þá lægst launuðu ef takast
ætti að hamla gegn atvinnu-
leysi. Ég veit ekki hvort Norð-
menn eru ábyrgðarfyllri en aðr-
ar þjóðir, en það er staðreynd
að verkalýðsfélögin í landinu
hafa sýnt skilning og samstarfs-
vilja í tilraunum til að bæta úr
efnahgasástandinu. Staðreynd-
in er sú, að hærri laun og betri
lifskjör eru ekki valkostur í
dag, það er aðeins hægt að velja
á milli atvinnu eða atvinnuleys-
is.
— Nú var það helzta slagorð
yðar og verkamannaflokksiris í
síðustu kosningum, að með því
að kjósa Nordli aftur til valda
tryggði fólk sér áframhadlandi
atvinnuöryggi. Er útlit fyrir að
stjórn yðar takist að standa við
það heit á þeim erfióleikatim-
um, sem þér talið um?
— Ef okkur tekst að standa
af okkur þann storm efnahags-
kreppu sem nú geisar í heimin-
um, tel ég að Noregur eigi
meiri möguleika en nokkru
sinni áður í sögu þjóðarinnar.
— Er forsætisráðherrann
ánægður með þann árangur
arsölu til Nigeríu, hefur nokk-
uö miðaö hjá Norðmönnum ið
því sambandi?
— Nei, þvi miður. Við lítum i
sjálfu sér ekki svo aivarlega á
málið þótt sölutregða sé í eitt
ár, því að við hugsum um fram-
tíðarmöguleika, en höfum ekk-
ert í höndunum, sem bendir til
að betri timar séu framundan í
skreiðarsölumálum.
— Nú hafið þér fjallað mikið
um efnahagserfiðleika Noregs.
A sama tíma liggur það fyrir að
innan fárra ára verður Noregur
kominn í hóp stærstu olíufram-
leiðsluþjóða heims. Hver er yð-
ar framtíðarsýn á stöðu Noregs
í hinu alþjóðlega samfélagi?
— Eins og ég sagði áðan tel
ég að möguleikar okkar í fram-
tíðinni verói meiri en nokkru
sinni í sögu þjóðarinnar, ef úr
rætist i efnahagsmálum. En það
má ekki aðeins lita á ntöguleik-
ana heldur verðum við einnig
að líta á þá ábyrgð sem er á
herðar okkar lögð i sambandi
við þróun samfélags okkar.
Noregur er lítill hluti af stórri
heildarmynd, en við búum við
ein beztu lífskjör í heimi og
okkur ber skylda til að reyna að
miðla þeim. Ég vil í þessu sam-
bandi leggja áherzlu á mikil-
vægi norrænnar samvinnu og
Norðmenn eru ákveðnir í að
fylgja eftir áætlunum um gagn-
kvæmt samstarf þjóðanna á
sviði orku- og iðnaðármála.
Olíu- og gasbirgðir okkar geta
verið hornsteinn slíkrar sam-
vinnu. Við viljum einnig auka
tengsl okkar við iðnaðarríki V-
Evrópu og taka upp aukið sam-
starf. Þá hlýtur Noregur einnig
að auka aðstoð sina við þróun-
arrikin, sem eitt af auðugustu
ríkjum veraldar. Þetta er i
stuttu máli mín framtíðarsýn.
Harðír ihomað taka!
Nýju, lofttæmdu kaffipakkarnir frá Ó. Johnson & Kaaber eru
sannarlega harðir í horn að taka. Öllu lofti hefur verið dælt úr
þeim, en við það falla þeir svo þétt að kaffinu, að þeir verða
glerharðir.
Geymsluþolið er nær ótakmarkað, og kaffið er alltaf sem nýtt,
þegar pakkinn er opnaður.
Við bjóðum aðeins nýtt kaffi og erum harðir á því!
Ríó, Mokka, Java og Santos.
Ilmandi, úrvals kaffi — í nýjumjlofttæmdum umbúðum.
0. JOHNSON & KAABER H.F.