Morgunblaðið - 03.12.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1977
7
Stjórnarand-
staðan hefur
brugðizt
Stjórnarandstaóa í
lýðræóis- or þinKræðis-
þjóðfélaKÍ gesnir mikil-
vægu hlutverki. Hún á
ekki einvörðungu að
halda uppi gagnrýni á
st jórnargjörðir, þó að
slfkt aðhald sé þýðing-
armikið. Höfuðskylda
hennar er að setja fram
marktæka stefnu í öll-
um vandamálum lið-
andi stundar, þann veg
að þegnarnir hafi nauð-
synlegan samanhurð
valkosta og úrlausna í
viðfangsefnum þjóðfé-
lagsins. Álmenningur
þarf annars vegar að
geta vegið og metið þær
leiðir, sem ríkjandi
stjórnvöld fara, hins
vegar þau úrræði, er
stjórnarandstaða hefur
upp á að bjóða. Þessari
höfuðskyldu sinni hef-
ur stjórnarandstaðan
gjörsamlega brugðizt.
Neikvætt nöldur eru ær
hennar og kýr. Annað
hefur hún ekki haft
fram að færa.
Valkostir
stjórnarand-
stöðu og fjár-
lagadæmið
Þjóðhagsstofnun hef-
ur gert því skóna, að
kaupgjald hækki um
60% í krónum talið á
árinu 1977, þegar allt er
talið, umsamdar taxta-
hækkanir og hækkanir,
sem rætur eiga í vísi-
tölu kaupgjalds. Kaup-
gjaldsliðir fjárlaga rík-
isins hækka þó verulega
meira milli áranna 1977
og 1978. Hvern veg viil
stjórnarandstaðan
mæta þessum útgjalda-
auka, sem nemur mörg-
um milljörðum króna?
IVIeð hækkun skatt-
heimtu — og þá hverri?
Með niðurskurði rfkis-
framkvæmda — og þá
hverra? IVIeð niður-
skurði samfélagslegrar
þjónustu — og þá
hverrar? Eða vill
stjórnarandstaðan
stefna á ný í botnlausa
skuldasöfnun rfkis-
búskaparins? Þessum
spurningum almenn-
ings svarar stjórnarand-
staðan eins og véfréttin
í Delfí — út í hött. Hún
lætur við það sitja, svo
afkáralegt sem það þó
er, að heimta í senn
hækkuð fjárframlög
ríkisins til svo að segja
allra þátta fjárlaga —
og lækkun rfkistekna
(skattheimtu), sem rísa
eiga undir útgjöldun-
um. Svo gegnsæ „af-
staða" gengur þó naum-
ast í hugsandi fólk.
Heimili sem sífellt eyk-
ur útgjöld sín án tekju-
öflunar, lendir fyrr en
sfðar á vonarvöl. Það er
léleg stefnumörkun í
ríkisbúskapnum.
Átök og
eyðimörk
Stjórnarandstaðan er
ekki einvörðungu skoð-
analeg eyðimörk í
vandamálum líðandi
stundar í þjóðfélaginu.
Hún er innbyrðis sund-
urþvkk í þeirn mæli. að
á þeim vettvangi má
naumast betur gera. Al-
þýðubandalagið segir
Alþýðuflokkinn vera að
deyja og ætlar að „fylla
það tómarúm, sem hann
skilur eftir sig“ að sögn
I
f
Kagnars Arnalds. frá-
farandi formanns
„bandalagsins". Sjálft
er Alþýðubandalagið
klofið ofan frá og niður
úr, eins og síðasti lands-
fundur þess bar gleggst-
an vottinn um. Það seg-
ir sína sögu að menn
eins og Hannibal Yaldi-
marsson og Björn Jóns-
son. fyrrverandi og nú-
verandi forseti ASl,
skyldu hrökklast úr
þeim flokki. Ekki sfður
að „forystumönnum
verkalýðshreyfingar-
innar er rutt úr mið-
stjórn" Alþýðubanda-
lagsins, eins og Björn
Bjarnason, formaður
Landssambands iðn-
verkafólks, segir í Þjóð-
viljanum á fullveldis-
daginn 1. desember sl.
Samtökin, sem áttu að
„sameina alla vinstri
menn" hafa verið að
klofna frá stofnun.
Jafnvel 2ja manna
þingflokkur þeirra hef-
ur náð þeirn árangrj að
halda í gagnstæðar átt-
ir. Það er því ekki
björgulegt um að litast
á vinstri væng íslenzkra
stjórnmála. Þangað
verður naumast sótt sú
stefnufesta, samstaða
né kjölfesta f þjóðar-
skútuna, sem fslending-
ar þurfa mest á að halda
á komandi misserum.
jHeööur
á morguti
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11 árd
;Séra Hjalti Guðmundsson. Messa
kl 2 siðd Séra Þórir Stephensen
NESKIRKJA. Barnasamkoma kl
10 30 árd Guðsþjónusta kl 2
síðd Séra Frank M Halldórsson
Bænaguðsþjónusta kl 5 síðd Séra
Guðmundur Óskar Ólafsson
FELLA- OG HÓLASÓKN. Barna
samkoma i Fellaskóla kl 1 1 árd
Guðsþjónusta í skólanum kl 2
síðd Séra Hreinn Hjartarson
K.F.U.M. Amtmannsstig 2 b
Sunnudagaskóli fyrir öll börn kl
10.30 árd
FÍLADELFÍ UKIRKJAN Safnaða r-
guðsþjónusta kl 2 síðd Orgeltón-
leikar Árna Arinbjarnarsonar kl 5
síðd Almenn guðsþjónusta kl 8
síðd Einar J Gíslason
ÁRBÆJARPRESTAKALL. K»rkju
dagur Árbæjarsafnaðar Barnasam-
koma i Árbæjarskóla kl 1 0 30 árd
Guðsþjónusta í skólanum kl 2
síðd Trompettleikur, frú Elisabet
Erlmgsdóttir syngur einsöng
Kirkjukór Árbæjarsafnaðar syngur
undir stjórn Geirlaugs Árnasonar
orgelleikara — Kaffisala Kvtenfél
Árbæjarsóknar Skyndihappdrætti
eftir messu, tizkusýning kl 4 siðd i
Árbæjarskóla Séra Guðmundur
Þorsteinsson
BÚSTAÐAKIRKJA. Barnasam-
koma kl 1 1 árd Guðsþjónusta kl
2 síðd Orgelleikari Guðni Þ Guð-
mundsson Barnagæzla Séra Ólaf-
ur Skúlason
HALLGRÍMSKIRKJA. M essa kl
1 1 árd Lesmessa n.k þriðjudag
Beðið fyrir sjúkum Séra Ragnar
Fjalar Lárusson
landspítalinn. Messa kl 10
árd Séra Ragnar Fjalar Lárusson
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti Lágmessa kl 8 30 árd
Hámessa kl 10.30 árd Lágmessa
kl 2 síðd Alla virka daga er lág-
messa kl 6 siðd , nema á laugar-
dögum, þá kl 2 siðd
KAÞÓLSK MESSA verður flutt i
Fellahelli kl 10.30 árd.
FRÍKIRKJAN Reykjavík Barna-
samkoma kl 10 30 árd Guðni
Gunnarsson Jólavaka kl 5 siðd
Safnaðarprestur
HÁTEIGSKIRKJA. Barnaguðs
þjónusta kl 1 1 árd Séra Arngrim-
ur Jónsson Guðsþjónusta kl 2
síðd Séra Tómas Sveinsson Síð-
degisguðsþjónusta kl 5 Séra Arn-
grimur Jónsson
GRENSÁSKIRKJA. Barnasam-
koma kl 1 1 árd Messa kl 2 síðd
Jón G Þórarinsson örganisti Séra
HalldórS Gröndal
ELLI- og hjúkrunarheimilið
Grund. Guðsþjónusta kl 10 árd
Séra Lárus Halldórsson
ÁSPRESTAKALL. Messa kl 2
siðd að Norðurbrún 1 Jólafundur
Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir
messu Kaffi Séra Grímur Grims-
son
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Sunnudagaskóli kl 1 1 00 árd i
Breiðholtsskóla Messa kl 2 siðd i
Breiðholtsskóla Klukkan 3 siðd
hefst kirkjubasar Kvenfélagsins i
anddyri skólans Séra Lárus Hall-
dórsson
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl 10 30 árd
Guðsþjónusta kl 2 síðd Séra Áre-
lius Níelsson
LAUGARNESKIRKJA Barnaguðs-
þjónusta kl 11 Messa kl 2 síð-
degis Sóknarprestur
HJÁLPRÆÐISHERINN Helgunar-
samkoma kl 1 1 árd Sunnudaga-
skóli kl 2 síðd og helgunarsam-
koma kl 8 30 siðd Lautinant Evju
DIGRANESPRESTAKALL. Barna-
samkoma í félagsheimilinu við
Bjarnhólastig kl 1 1 árd Guðsþjón-
usta i Kópavogskirkju kl 1 1 árd
Séra Þorbergur Kristjánsson
KÁRSNESPRESTAKALL. Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl 1 1
GUÐSPJALL DAGSINS
Lúkas 21:
Teikn á sólu og tungli.
LITUR DAGSINS
Fjólublár. — Litur
undirbúnings og iðrunar.
árd Aðventukvöld í Kópavogs-
kirkju kl 8 30 Andrés Kristjáns-
son fyrrv fræðslustjóri flytgr hug-
vekju Matthías Johannessen skáld
flytur frumort Ijóð Séra Árni Páls-
son
BESSASTAÐAKIRKJA. Guðsþjón-
usta kl 2 síðd Hannes Örn Bland-
on stúd theol prédikar Séra
Bjarni Sigurðsson þjónar fyrir altari
og guðfræðinemar syngja undir
stjórn Jóns Stefánssonar organista
Séra Bragi Friðriksson
GARÐASÓKN Barnasamkoma i
skólasalnum kl 1 1 árd
KAPELLA St Jósefssystra i Garða-
bæ Hámessa kl 2 síðdegis
MOSFELLSPRESTAKALL. Lága-
fellskirkja Aðventukvöld kl 8 30
Séra Birgir Ásgeirsson
HAFNARFJARÐARKIRKJA.
Barnasamkoma kl 1 1 árd Messa
kl 2 síðd Altarisganga Aðventu-
kvöld kl 8 30 Séra Gunnþór Inga-
son
VÍÐISTAÐASÓKN Barnasam-
koma i Hrafnistu kl 1 1 árd Séra
Sigurður H Guðmundsson
KEFLAVÍKURKIRKJA. Fjölskyldu-
messa kl 11 árd Sunnudagaskóla-
börn og fermingarbörn eru hvött il
á mæta ásamt foreldrum Aðventu-
kvöld kl 5 siðd Sóknarprestur
ÚTSKÁLAKIRKJA Messa kl 2
siðd Aðalsafnaðarfundur að lokinni
messu Sóknarprestur
GRINDAVÍKURKIRKJA. M essa kl
2 síðd Sóknarprestur
EYRARBAKKAKIRKJA. Barna-
guðsþjónusta kl 10,30 árd
Sóknarprestur
GAULVERJABÆJARKIRKJA Al-
menn guðsþjónusta kl 2 siðd
Barnaguðsþjónusta að lokinni
messu Sóknarprestur
AKRANESKIRKJA. Barnasam-
koma kl 1 0 30 árd og messa kl 2
siðd Séra Björn Jónsson
STEIKT
EGG
TILSÖLU
EGG DISHES
Egg jaréttir
EGGJAKAKA með ristuðu brauði og smjöri 490
(Omelet plaln w/toast)
EGGJAKÖKUFYLLING eftir vali: sveppir,
skinka, ostur, bacon, rækjur, spergill . 190
(Omelette choice of fillings: mushrooms. ham, cheese,
bacon, shrimp, asparagus)
SKINKA með 2 eggjum, ristuðu brauði og
smjöri ................................ 940
(Ham w/2 eggs, toast and butter)
BACON með 2 eggjum, ristuðu brauði og
smjöri ................................ «)40
(Bacon w/2 eggs. toast and butter)
V ^ við Óðinstorg bitingah — Símar 25090 — ÚS - 20490
Effect Ijósmyndir auglýsa
Andlitsljósmyndun — Barna- og fjölskyldumyndatökur.
Komum heim ef óskað er. Tökum aðeins gæðamyndir.
Effect Ijósmyndir —
Klapparstig 16, sími 14044.
Hestaalmanakið 1978
I annað sinn, stórglæsilegt, litprentað
almanak með myndum af íslenzka hestinum
í faðmi náttúrunnar, — á öllum árstíðum.
Stærsta almanakið, sem hér er á boðstólum
(42 X 56 cm) — og þar njóta hestamyndirnar
sín vel. Myndir, sem skreyta munu heimili
og skrifstofur löngu eftir að 1978 er liðið.
Ekki aðeins fyrir hestamenn, heldur líka alla
hina. Kostar kr. 2.640 (með sölusk.) i þykk-
um pappahólki. Sendum gegn póstkröfu um
allt land.
Undirritaður óskar að kaupa . . . eintak/eintök af
Hestaalmanaki 1978 á kr. 2,640 eintakið.
| | Greiðsla er hjálögð, Q Óskast sent gegn póst-
kröfu.
Nafn_______________________________________
Heimili____________________Sími____________
Sendist lcelandReview
Stóragerði 27, Reykjavik
Almanakið er lika til afgreiðslu á skrifstofunni.