Morgunblaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978 Vt£ó ÆjV. KAFFINU -\ * GRANI göslari Hann spurAi um skemmstu leið til sjávar? Ilver hann er? — Ér veit bara að þeir kalla hann Grana KÖslara. IIvisss—hvisss Opnunartími verzlana Opnunartími verzlana í Reykja- vík hefur orðið tilefni eftirfarandi bréfs, en það ritar húsmóðir nokkur, sem segist oft þurfa að fara í búðir t.d. á laugardögum, en þá sé erfitt að vita hverjir hafi opið og hverjir ekki. „Eins og sjálfsagt mjög margir vita eru reglu um opnunartíma verzlana nokkuð sveigjanlegar, a.m.k. hér í Reykjavík. Nýlega var t.d. auglýst, að kaupmönnum væri heimilt að hafa opið til kl. 22 daginn fyrir skírdag, sem hlýtur að þýða að ekki hafa allir kaup- menn opið. Er það svipað og með föstudaga, sumir hafa opið til 22, aðrir til kl. 20 og enn aðrir til 19 og e.t.v. bara 18. Þannig er ómögulegt að vita hverjir hafa opið og hverjir ekki, nema að setjast við símann og hringja út um ailar jarðir til að fá upplýsing- ar um það. Mér finnst að vísu gott að samkeppni skuli vera í verzlunar- háttum, en er þetta ekki of mikið hringl með opnunartímann? (Eða lokunartíma eða verzlanatíma, hvað á eíginlega að nota?) Oft kemur það fyrir að eitthvað vanti til heimilisins um helgar, sem gleymzt hefur að káupa á föstu- degi og þá er farið af stað á laugardagsmorgni og málið kann- að. Og hvað gerist? A Laugavegin- um, svo dæmi sé nefnt, er fjöldi fólks á ferð, en aðeins helmingur búðanna opinn. Víða mátti sjá fólk ganga að búðardyrunum og taka í hurðarhúninn, en þá var lokað. Sumir munu hafa haft opið á laugardögum t.d. fyrir jólin en hætt því eftir jól, er salan minnkaði og ekki var eins mikil þörf á þessu. Einstaka menn eru síðan byrjaðir að hafa opið aftur og þannig gengur þetta fram og til baka. Þetta atriði finnst mér að kaupmannasamtök og slík, jafnvel neytendasamtök, mættu athuga. Ef reglurnar eiga að vera svona BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í úrspilsæfingu vikunnar þarf að gefa sér forsendur til vinnings. Sem sé ákveða leguna fyrirfram og síðan spila samkvæmt þeirri ákvörðun. Suður gefur, allir á hættu. Norður S. 73 H. 8 T. K8642 L. 107532 Suður S. ÁK H. ÁK4 T. G93 I, . ÁG864 Vestur spilar út spaðadrottn- ingu gegn þremur gröndum suðurs. Hvernig meðhöndla les- endur spilið? Með góðri legu lauflitarins fást þar fjórir slagir og þá átta í allt. En þar með er seinna spaðastoppið farið og þá er of seint að ná í níunda slaginn á tígul. Við verðum því að líta á tígulinn en hann getur gefið fjóra slagi og þá yrði laufásinn sá níundi. COSPER Ilann nálgast að vera jaínþungur henni Böllu! MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaga eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaði En hvernig þarf tígullinn að skiptast á höndum A—V til að hann gefi 4 slagi? Þetta er einn af möguleikunum. Vestur Austur T. Á1075 T. D Taki vestur á ásinn þegar við spilum gosa eða níu getum við hæglega náð fjórum slögum á litinn. En þarf vestur að taka strax á ásinn? Já, annars verður kóngurinn slagur og við snúum okkur að laufinu. En er sama hvort við spilum tígulgosa eða níu? Nei, ekki aldeilis. Við megum ekki gleyma, að tígullinn getur einnig skipst þannig. Vestur Austur . T. ÁD7 T. 105 Þessi lega getur einnig gefið vinning. En nú verðum við að spila níunni strax í 2. slag. Vestur tekur auðvitað á ásinn og tekur af okkur seinna spaðastoppið. Þá spilum við tígulgosanum og „pinnum" þar með tíuna á hendi austurs. 6 gamalt. heldur vegna þess að efniviður virtist ekki traustur. Yfirleitt virtist húsið ekki tiltakanlega vandað. Mennirnir tveir horfðust í augu meðan þeir stóðu í stof- unni og heyrðu fótatak hennar uppi. Þeir þóttust vissir um að hún vseri að hafa kjólaskipti, kannski hún væri að klæða sig f svartan kjól og greiða hárið á sér upp. Þegar hún kom niður skiptust þeir aftur á augnatillitum. því að hugboð þeirra hafði verið rétt. hún var sorgarklædd og angaði aí kölnarvatni. — Ég verð að slökkvaog loka frammi. Kannski þið vilduð bara bíða eftir mér úti... Hún hikaði augnablik þegar hún sá bílinn eins og hún vissi ekki allskostar hvernig hún ætti að bera sig að. Einhvor nágranni ga'gðist út um giugga í næsta húsi. — Systir mín býr rétt hjá. Við beygjum til hagri og þá er það önnur gata til vinstri. Húsin tvö voru nákvæmlega eins og virtist hafa verið kappkostað að gera þau sem slík. — Ég kem eftir augnablik. Þó leið stundarfjórðungur unz hún kom aftur. Ilún kom með konu sem var einnig mjög lík henni og var einnig svart- klædd. — Systur mína langar til að koma með. Ég hélt kannski við gætum reynt að troða okkur saman. Mágur minn fer og bíður eftir dóttur minni. Hann á frí í dag. Hann vinnur hjá járnhrautunum. Maigret settist við hliðina á bflstjóranum. Konurnar tvær í aftursætinu tóku svo drjúgt pláss að Santoni virtist næstum því hverfa. Stöku sinnum heyrði hann þær pískra saman iágum rómi. Þegar þau komu til Krufn- ingarstofnunarinnar var lík Louis Thoret ekið inn á vagni. Það var Maigret sem lyfti lakinu af manninum og horfði á konurnar tvær sem hann hafði nú í íyrsta sinn tækifæri til að virða fyrir sér. Hann hafði haldið þær væru tvíburar. En hann gat sér þess til að systirin væri fáeinum árum yngri. — Það er hann. Frú Thouret stóð með vasa- klút í höndinni en hún grét ekki. Systir hennar hélt undir handlegg hennar eins og til að styðja hana. — Já. þetta er Louis. Þetta cr hann veslings Louis minn. I morgun. þegar hann kvaddi mig... hvernig hefði mann getað grunað. Svo sagði hún stundarhátt. — Á ekki að ioka augurium á honum? — Jú. yður er velkomið að gera það. Hún leit eins og spyrjandi á systur sína eins og hún væri á báðum áttum. En loks rétti hún fram höndina og gerði það með hátíðlegri hreyfingu um leið og hún hvíslaði. — Vesling Louis! Að beiðni Maigrets hafði líkið ekki verið afklætt og nú rak hún augun í skóna sem stóðu framundan iakinu og hún hrukkaði ennið. — Ilvað á nú þetta að þýða? Maigrct skildi hana ekki strax. — Hver hefur eiginlega klætt hann í þessa skó? — Hann var í þeim þegar við fundum hann. — Það er óhugsandi! Louis hefur aldrei átt svona skó. að minnsta kosti ekki í þau tuttugu og sex ár sem við höfum verið gift. Ég hefði aldrei Hðið honum að ganga í svona skóm. Ilefurðu séð annað eins. Jeanne? Jeanne kinkaði kolli. — Það er kannski bezt að þér athugið hvort íötin sem hann er í eru áreiðanlega hans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.