Morgunblaðið - 22.03.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
31
Ólafsfirðingar tóku bæði gullin fyrsta dag Skíðamóts Islands:
HAUKUR VANN HALL-
DÓR MEÐ 6 SEKÚNDUM
Guðmundur Garðarsson byrjaði þar sem hann hætti á síðasta landsmóti
ÓLAFSFIRÐINGAR gerðu sér lítið fyrir og hirtu bæði gullin, sem keppt var um í gær á fyrsta degi
Skíðamóts íslands. Guðmundur Garðarsson hélt áfram þar sem hann hætti á landsmótinu á Siglufirði
í fyrra. er hann vann 5 gullverðlaun, og sigraði í 10 kflómetra göngu 17—19 ára. Haukur Sigurðsson
sigraði síðan í 15 km göngu fullorðinna, en hann kom í mark á sex sekúndum betri tíma en Ilalldór
Matthíasson og segir það allt um hve baráttan var hörð hjá þcim tveimur. Reyndar leit lengi vel út
fyrir sigur Halldórs, sem hafði eftir fyrsta 5 km hringinn náð mínútu af Hauki og jók þann mun á
öðrum hringnum. En Ilaukur hafði greinilega sparað sig framan af. í síðasta hringnum gekk hann
mjög vel og tryggði sér nokkuð óvæntan sigur með því að hlaupa hreinlega síðustu metrana.
Veðurguðirnir léku ekki við
skíðamennina í gær og varð að
flytja mótið úr Bláfjöllum í
Hveradali vegna veðurs, en skaf-
renningur var í Bláfjöllum og
dimmt yfir. ís Hveradölum var
veður mun skárra fram eftir degi
og fjöldi fólks á skíðum. Er leið á
daginn fór veður versnandi, en
keppni í yngri flokknum hófst ekki
fyrr en um klukkan 15.30. Skóf þá
orðið mjög í sporið og er þeir eldri
fóru af stað um klukkustund síðar
var orðið kalt, ofankoma, aukinn
skafrenningur og faérið versnaði
eftir því sem á daginn leið.
í flokki 17—19 ára mættu 5
keppendur til leiks og luku allir
keppni, en í eldri flokknum mættu
17 keppendur til leiks og 13 þeirra
luku hinni erfiðu göngu. Tveir
norskir keppendur voru með í
göngunni í gær og höfðu þeir
talsverða yfirburði fram yfir
íslenzku keppendurna. Pal Mikkel-
Plass fékk 3 mínútum betri tíma
en Guðmundur sigurvegari í yngri
flokknum og Martin Hole kom í
mark á tæpum þremur mínútum
betri tíma en Haukur Sigurðsson.
Er Hole kominn í röð fremstu
Hauki Sigurðssyni var vel fagnað að lokinni keppninni í 15 km
göngunni í gær og þrátt fyrir erfitt færi virtist Haukur ekki ýkja
þreyttur. Ilaukur vann þarna sinn fyrsta meistaratitil í flokki
fullorðinna og það verður spennandi að sjá viðureign hans og Halldórs
í 30 km göngunni á laugardaginn. (ljósm. Friðþjófur.
göngumanna í Noregi og segir það
allt um snilli þessa 18 ára gamla
skíðamanns.
Búist hafði verið við að Jón
Konráðsson sigraði í 10 kílómetra
göngunni, en þeir Guðmundur
Garðarsson og Jón Björnsson frá
ísafirði berðust um silfur-
verðlaunin. í fyrra var ekki heldur
búist við sigri Guðmundar á
mótinu á Siglufirði í þessum
flokki, en hann lét allar spár sem
vind um eyru þjóta bæði í fyrra og
í ár. Guðmundur sigraði nokkuð
örugglega í 10 km göngunni og
fékk hálfri mínútu betri tíma en
Isfirðingurinn Jón Björnsson. Jón
Konráðsson fann sig ekki í
göngunni að þessu sinni, erfitt
ferðalag í bíl frá Ólafsfirði í
fyrradag hefur e.t.v. setið í honum.
Eftir að yngri mennirnir höfðu
gengið 5 kílómetra var munurinn
mjög lítill á þeim. Guðmundur var
með 20.10 mín. Jón Konráðsson
20.16 og Jón Björnsson 20.20 mín.
Mjórri gat munurinn ekki verið
hjá þeim þá.
Margir göngumannanna í eldri
flokknum voru á því að hætta við
þátttöku í 15 km göngunni og
þeirra á meðal var Halldór
Matthíasson, sem fannst aðstæður
ekki nægilega góðar, Halldór hóf
þó keppnina og gekk rösklega
framan af, en á síðasta hringnum
vann Haukur Sigurðsson jafnt og
þétt á hann og kom í mark sem
sigurvegari, en ekki munaði nema
6 sekúndum á þeim köppunum.
Haukur gekk á 63,09, en Halldór á
63,15. í þriðja sæti varð síðan
Ingólfur Jónsson á 66.19 og fjórði
varð Björn Þór Ólafsson á 68.02.
Þessir fjórir keppendur höfðu
nokkra yfirburði, en í 5. sæti kom
Páll Guðbjörnsson, sem orðinn er
49 ára gamall. Hermann bróðir
hans var einnig meðal keppenda,
en hann er orðinn fimmtugur.
Gunnar Pétursson var meðal
keppenda að þessu sinni eins og á
29 síðustu skíðalandsmótum og
stóð fyrir sínu að vanda. Göngu-
stjóri var Jónas Asgeirsson, en
hann var meðal keppenda er
Skíðamót Islands fór í fyrsta sinn
fram fyrir 40 árum og hefur Jónas
verið viðloðandi skíðalandsmótin
allar götur síðan. Brautarstjóri
var Haraldur Pálsson og mark-
stjóri Helgi Hallgrímsson,
- aij
10 km ganga 17—19 ára.
Guðmundur Garðarsson, Ó 41,35
Jón Björnsson, í 42,04
Jón Konráðsson, Ó 42,31
Kristinn Hrafnsson, Ó 46,44
Valur Hilmarsson, Ó 46,48
Pal Mikkel -Plass, Noregi 38,29
15 km ganga fullorðinna.
Haukur Sigurðsson, Ó
63,09 (20.11-41.42)
Halldór Matthíasson, R
63.15 (19.36-40.37)
Ingólfur Jónsson, R
66.18 (21.17-43.17)
Björn Þór Ólafsson, Ó
68.02 (21.22-43.47)
Páll Guðbjörnsson, R
70.34 (22.16-45.38)
Bragi Jónsson, R
71.59 ( 22.54 - 46.32)
Óskar Kárason, I
74.32 (22.53-47.53)
Matthías Sveinsson, R
74.59
Valur Valdimarsson, R 75.27
Hermann Guðbjörnsson, R 75.51
Martin Hole, Noregi 60.31
Islandsmeistarar
fjarri góðu gamni
ÞRJÚ þeirra sem urðu íslandsmeistarar á landsmótinu í Siglufirði í fyrra eru illa fjarri góðu gamni.
Þau Jórunn Viggósdóttir, sem sigraði í alpatvikeppni, Matthías Kristjánsson, sem vann stökkið, og
Magnús Eiríksson sigurvegari í 30 kflómetra göngu verða ekki meðal keppcnda á mótinu í skíðalöndum
Reykvíkinga um páskana.
Magnús Eiríksson fótbrotnaði náð sér fyllilega þannig að hann verið að sjá hann, Hauk Sigurðs-
síðastliðið haust og hefur enn ekki gat ekki verið með, en gaman hefði son og Halldór Matthíasson í
Guðmundur Garðarsson varð fimmfaldur meistari á síðasta landsmóti.
Ilér leggur hann af stað í 10 km gönguna í gær og tókst að verja
titil sinn. Að ári verður hann í þriðja sinn meðal keppenda í flokki
17-19 ára.
UMFN láfyrir
ÍSí bikarnum
ÞAÐ er skammt stórra högga
á milli hjá stúdentum í körfu-
knattlciknum. Á laugardaginn
sigruðu þeir KR f íslandsmót-
inu með hálfvængbrotið lið og
í gærkvöldi gerðu þcir sér lítið
fyrir og slógu Njarðvíkinga út
úr hikarkeppninni, er þeir
sigruðu þá með 90 stigum gegn
82, eftir að hafa haft 17 stiga
forystu í leikhléi, 48i31.
Stúdentar léku nú með full-
skipað lið, bæði Jón Héðinsson
og Kolbeinn Kristinsson voru
með. IS var betra liðið alveg frá
upphafi og náði strax forystu,
sem aukin var jafnt og þétt
allan fyrri hálfleikinn. Njarð-
víkingar byrjuðu síðari hálfleik-
inn með miklum látum og á 8.
mínútu höfðu þeir minnkað
muninn í 1 stig, 57:58, og var þá
farið að fara um stuðningsmenn
ÍS. Stúdentar létu þó ekki
hugfallast og Njarðvíkingar
virtust hafa eytt mesta púðrinu
í fyrstu mínútur hálfleiksins.
Bilið breikkaði aftur og stúdent-
ar voru öruggir sigurvegarar og
mæta annaðhvort Val eða KR í
úrslitum en úrslitaleikurinn fer
fram fimmtudaginn 30. marz í
Laugardalshöll.
Ohætt er að segja að
stúdentar hafi allir átt góðan
dag að þessu sinni. Stigahæstir
voru Dunbar með 33 stig, Bjarni
Gunnar, með 22 stig og Steinn
Sveinsson með 10 stig.
Brynjar Sigmundsson og Þor-
steinn Bjarnason voru beztir
Njarðvíkinga, Brynjar skoraði
24 stig og Þorsteinn 19. Þá áttu
Kári Marísson og Stefán
Bjarkason ágætan leik.
ÁG
Ólafsfirðingar
stigahæstir
Unglingameistaramóti íslands á skíðum lauk f Hlíðarfjalli í gærdag
og var þá keppt í flokkasvigi. Veður var frekar slæmt til keppni, en
ungmennin létu það ekki á sig fá. í hinni óopinberu stigakeppni
sigraði ólafsfjörður. hlaut 113 stig, Akureyri var í öðru sæti og
ísafjörður í þriðja.
Úrslit í flokkasvigi urðu sem hér segiri
FLOKKASVIG STÚLKNA m “witir urðu úr leik.
13—15 ÁRAi Bestl hrautartími. íyrri ferð, Olgeir
Reykjavík 367.46 Sigurðsson II. 42.86.
Sveitina skipuðu Inga H. Traustadóttir.
Ásdís AHreðsdóttir. Bryndís Pétursdéttir.
Ása Hrönn Sæmundsdóttir.
Akureyri 369.87
ísafjörður 395,13
Besti brautartímii Ásdís Aifreðsdóttir R.
fyrri ferð 42.53 og seinni ferð 42.77.
FLOKKASVIG DRENGJA
15-16 ÁRA.
Reykjavík 338,29
(Sveitina skipuðu Trausti Sigurðsson.
Rfkharður Sigurðsson, Einar Úlfsson og
Árni Árnason.)
Akureyri 381.66
ísafjörður og Siglufjörður úr leik.
Bestan hrautartíma. Árni Árnason R,
fyrri ferð 8.95, og seinni ferð Valdimar
Birgisson í. 38,06.
FLOKKASVIG DRENGJA
13—14 ÁRA.
Ilúsavik 366.19
Sveitina skipuðu Ólafur Sigurðsson.
Olgeir Sigurðsson, Bjarni Bjarnason og
Sveinn Aðalgeir,sson.
Ólafsfjiirður 423,46
BOÐGANGA
15-16 ÁRA 3x5 KM.
Isafjörður 57.14,3
lngvar Ágústsson, Einar Ólafsson, Hjörtur
Hjartarson.
A-sveit Ólafsfjarðar 58.48,5
B-sveit Ólafsfjarðar 63,07,5
Besti hrautartími Gottlieb Konráðsson Ó.
18.03,6.
BOÐGANGA
13-14 ÁRA. 3x3 KM.
Ólafsfjörður 34,55,1
Þorvaldur Jónsson. Haukur Hilmarsson og
Finnur V. Gunnarsson.
Siglufjörður 35,26.6
STIGAKEPPNI
MILLI HÉRAÐA.
Ólafsfjörður
Akureyri
ísafjörður
Reykjavík
Húsavík
Siglufjörður
Dalvík
stjg
113
82
57
53
49
29
5
göngukeppninni í ár. Marteinn
Kristjánsson tók sér mánaðarfrí
til æfinga fyrir þetta mót, eins og
hann gerði í fyrra, og ætlaði sér
að verja titil sinn. Á æfingu á •
Akureyri fyrir nokkrum dögum
varð hann fyr.ir því óhappi að
detta illa í stökki, braut rifbein og
getur því ekki keppt að þessu
sinni.
Hins vegar var ekki reiknað með
að Sigurður Jónsson frá Isafirði
yrði meðal keppenda að þessu
sinni á landsmótinu og hafði hann
verið skráður á mót erlendis
keppnisdagana. Breyting varð á
því og Sigurður hefur nú bætzt við
hópinn í svigi og stórsvigi. Til-
kynning um þátttöku hans kom
það seint að búið var að draga um
rásröð í fyrsta hópi, en til að
Sigurður fengi þó sæmilegt rás-
númer fer hann af stað númer 11,
þ.e. á eftir fyrsta ráshóp.
í dag verður keppt í stökki á
Skíðamóti Islands og fer það að
líkindum fram við Kolviðarhól, en
það gæti þó breytzt ef veður
verður slæmt. Stökkkeppnin hefst
klukkan 14 samkvæmt mótsskrá.
- áij
I>lovi\unWníiií>
[ ípróllir 1