Morgunblaðið - 22.03.1978, Blaðsíða 32
AlIíiLYSINfíASÍMINN ER:
22480
AL'íiLVSINíiASÍMINN ER:
22480
MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1978
HIP sektar félags-
menn sína fyrir að
yinna 1. og 2. marz
FYRSTI ÍSLANDSMEISTARINN
— Haukur Sifíurðsson frá Ólafsfirði
kemur í mark sem sigurvegari í 15
kílómetra göngu Skíðamóts Islands,
sem hófst í Hveradölum í, gær.
Haukur fékk 6 sekúndum betri tíma
en Halldór Matthíasson, sem sigraði
í þessari grein í fyrra. Sjá nánar á
íþróttasíðum bls. 30 og 31.
Ljósm. Mbl. Friðþjófur.
Páskamir:
1200 Islendingar
í hópferðum ytra
STJÓRN Hins íslenzka prentara-
félags hefur sektað nokkra prent-
ara á Akureyri. sem ekki virtu
hoðað verkfall félagsins. hinn 1.
og 2. marz siðastliðinn. IIÍP
boðaði þá til verkfalls eitt
þriggja félaga á landinu, en hin
voru Verkamannafélagið Dags-
brún og Verkalýðsfélagið á
Stokkseyri. Öll önnur félög að-
eins hvöttu félagsmenn sína til
þess að leggja niður vinnu þessa
tvo daga. Sektirnar, sem HÍP
hefur gert þessum félagsmönnum
sinum að greiða. cru á bilinu frá
5 og upp f 50 þúsund krónur.
Morgunblaðið ræddi í gær við
einn þeirra prentara, sem sektaður
hefur verið, Einar Árnason, sem
vinnur hjá Valprent á Akureyri.
Einar kvaðst hafa haldið í upp-
Stórsala 1 Hull:
Meðalverð
var 335 kr.
VÉLBÁTURINN Ólafur Jónsson
frá Sandgerði scldi í Hull í
gærdag hluta af afla sinum og
fékk þar hæsta meðalverð sem um
getur eða alls um 335 krónur
fyrir kílóið.
Afli bátsins var aðallega þorsk-
ur en einnig dálítið af ýsu og
öðrum tegundum. Alls tókst í gær
að landa úr bátnum 66 tonnum af
þeim 90 tonnum er báturinn var
með og þessi 66 tonn seldust á
44.727 sterlingspund eða á rétt um
22 milljonir króna. Fyrir hvert kíló
Framhald á bls. 18
hafi, að þetta verkfallsmál yrði
sem í öðrum félögum, að lagt yrði
að mönnum að hætta vinnu, en það
yrði mönnum þó í sjálfsvald sett.
„Okkur fannst þessi ákvörðun
félagsins algjörlega óþörf, vissum
að verkfallið var ólöglegt, svo að
við ákváðum hér þrír hreinlega að
vinna. Þessi ákvörðun félagsins að
skikka menn til þess að vinna ekki,
hleypti aðeins illu bióði í okkur."
Mbl. ræddi einnig við Ólaf Emils-
son, formann HIP.
„Þetta er löglega gerð samþykkt
í félaginu," sagði Ólafur Emilsson,
Framhald á bls. 15
Húsrannsókn
heimiluð vegna
verðútreikninga
SAKADÓMARI veitti í gær
úrskurð til húsrannsóknar að
skjölum, verðútreikningum og
sölunótum hjá matvörufyrir-
tæki í Reykjavík. Aðdragandi
málsins var sá, að verðlags-
stjóri taldi verðútreikninga á
sykri og hveiti hjá matvörufyr-
irtækinu of háa og fóru eftir-
litsmenn verðlagsstjóra því í
fyrirtækið til að láta lagfæra
útreikningana. Hins vegar
fengu þeir ekki verðútreikninga
og sölunótur til baka og urðu
frá að hverfa. Var þá leitað
eftir úrskurði og fóru tveir
rannsóknarlögreglumenn á
staðinn ásamt fulltrúum verð-
lagsstjóra, en ekki kom til
leitar þar sem skjölin voru
afhent þegar mennirnir komu á
staðinn.
LIÐLEGA 1200 íslendingar
halda um þessa páska til útlanda
og dveljast ytra þessa helgidaga
í skipulögðum hópferðum á veg-
um ferðaskrifstoíanna, aðallega á
sólarströndum Spánar, Kanarí-
eyjum, London, Írlandi og Grikk-
landi. Hópur íslendinga er einnig
í einstaklingsferðum vfða um
lönd um páskahelgina, en tala
þeirra lá ekki fyrir hjá ferða-
skrifstofunum. Þá eru skfðahótel-
in — bæði í Hlíðarfjalli við
Akureyri og á Húsavfk — full-
bókuð, og einnig má það til
tfðinda telja að hingað koma 100
(rar til landsins, m.a. til að fara
á skfði.
Á vegum Útsýnar verða 126
farþegar á Costa del Sol um
Páskahelgina í páskaferð ferða-
skrifstofunnar þangað, en einnig
um 80 manns á Kanaríeyjum
vegna ferða þangað 10. og 17. þ.m.
og í London verða um 50 manns
yfir páskana vegna brottfara
héðan 18. og 21. þ.m.
Á vegum Sunnu verða um 250
„IIVERT og eitt tilvik verður
athugað. Ef það liggur þá fyrir
að mönnum hefur verið ógjörn-
ingur að ná netunum í tæka tíð,
þá verðum við mildir, en ef í ljós
kemur að menn hafa notfært sér
aðstæður til þorskveiða, þá kær-
manns á Kanaríeyjum yfir pásk-
ana, um 50 manns á Mallorca,
milli 40 og 50 manns í London og
milli 30 og 40 í Grikklandi.
Framhald á bls. 18
um við“, sagði Jón L. Arnalds,
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, í samtali við Mbl. í
gær, er blaðið spurði hann, hvað
gert yrði vegna tilkynninga
Landhelgisgæzlunnar um þorsk-
veiðar netabáta, eftir að þorsk-
veiðibannið gekk í gildi á hádcgi
í Kær.
Hjá Landhelgisgæzlunni fékk
Mbl. upplýst í gærkvöldi að þá
hefði Landhelgisgæzlan upplýs-
ingar um 44 netabáta, sem voru að
veiðum eftir að þorskveiðibannið
gekk í gildi. Þröstur Sigtryggsson
hjá Landhelgisgæzlunni sagði að
svo virtist sem talsverðum hluta
netabáta á svæðinu sunnan Snæ-
fellsness og suður og austur um
hefði ekki tekizt að ná öllum
netum úr sjó í tæka tíð, en einnig
hefði Landhelgisgæzlan komið að
tveimur línubátum frá Vest-
mannaeyjum að veiðum eftir að
þorskveiðibannið gekk í gildi. „Við
látum sjávarútvegsráðuneytinu í
té upplýsingar um þá báta, sem
eru að veiðum á þorskaslóðum
eftir að þorskveiðibannið tók
gildi," sagði Þröstur, er Mbl.
spurði um aðgerðir Landhelgis-
gæzlunnar.
Þröstur sagði að ekki hefði orðið
vart við aðra báta á þorskaslóðum
við landið.
Sem kunnugt er má þorskafli
vera allt að 15% í afla skipa
meðan þorskveiðibannið gildir.
Mokafli af stórufsa
hjá hluta Eyjaflotans
EYJAFLOTINN komst fyrst á
sjó í gær eftir tveggja daga
landlegu, en feykilegur mokafli
af ufsa var hjá sumum bátunum
og fengu þeir allt upp í 20 tonn
af stórufsa ■ trossu. Einn
Eyjabáturinn, Dala-Rafn, var á
landleið í gærkvöldi með full-
fermi, 65 tonn af ufsa í 4 trossur,
og annar, Kópavíkin, var komin
mcð 40 tonn í 6 trossur þegar
Murgunblaðið hafði samband um
talstöð á miðin. Net bátanna sem
fengu þennan rokafla voru ónýt
samkvæmt upplýsingum skip-
Framhald á bls. 18
Það var ekki nema ein hugs-
un — að komast út úr bílnum
segir Magnús Kr. Guðnason á Tálknafirði, sem tókst
úr bíl sínum áður en hann steyptist ofan í 30 metra
„ÞETTA gerðist allt á svo
stuttum tima, en það var ekki
nema cin hugsun> að komast út
úr hilnum.
Það var ekkcrt um
það að ræða að færa sig, heldur
náði ég hendi á grjót og dró
mig út úr bilnum. sem fór veltu
um leið og ég var laus við hann
og svo stakkst hann ofan í
gilið.“ sagði Magnús Kr.
Guðmundsson. skipstjóri á
Tálknafirði. í samtali við Mbl.
í gær, én Magnús missti bíl
sinn út af Mikladalsvegi ofan
við Patreksfjörð og slapp út úr
honum á síðustu stundu áður
en híllinn steyptist ofan í
rösklega 30 metra djúpt gil.
„Auðvitað var tilhugsunin um
þessa heppni öllu öðru yfir-
sterkari fyrst,“ sagði Magnús.
„En eftir á sé ég, að þctta var
ekkert venjulegt og reyndar
með ólikindum að ég skyldi
sleppa.“ Magnús sagði að
bíllinn væri gjörónýtur.
Magnús var á leið frá Tálkna-
firði til Patreksfjarðar, þegar
óhappið varð um klukkan tvö í
gær. „Þarna hafði skafið upp á
veginn og talsverður snjór
safnazt saman. Stórir bílar
höfðu farið þarna á undan mér,
en hjólförin voru of breið fyrir
fólksbílinn, þannig að allt í einu
missti ég stjórn á honum og
hann stakkst út af veginum.
Frá vegarbrún og niður í botn
gilsins eru um 50 metrar og ætli
hallinn frá veginum og fram á
klettinn sé ekki um einn þriðji
þeirra. Af hjólförunum að
dæma virðist bíllinn hafa farið
þetta á lofti öðrum megin, því
við gátum aðeins fundið för eftir
að komast út
djúpt gil
hjólin öðrum megin, mín megin.
Bíllinn fór svo veltu um leið og
ég var kominn út og hentist svo
fram af klettinum ofan í gilið,
sem er grjóturð.
Eins og ég sagði áðan skóf upp
á veginn, en utan hans var varla
meira en snjóföl, þannig að
urðin stóð upp úr og því hefur
mér tekizt að ná handfestu á
grjótinu um leið og ég stakkst
á höfuðið út úr bílnum."
Magnús sagðist hafa sloppið
ómeiddur frá þessu. „Það eru
smáeymsl í olnboga, en það sér
ekki á mér, nema á nöglunum."
„Hafi menn notfært sér
aðstæður til þorskveiða
mun ráðuneytið kæra”