Alþýðublaðið - 22.11.1958, Síða 9

Alþýðublaðið - 22.11.1958, Síða 9
 Iðnó Iðnö ármann og ¥M eiga merkisafmæii bráðiega. TVÖ af stóru félögunum hér í Reykjavík, Glímufélagið Ár- mann og Knattspyrnufélag Reykjavíkur eiga merkisaf- mæli á næstunni. Ármann verð ur 70 ára 15. desember n.k., en KR 60 ára í marzmánuði. Eftir því sem íþróttasíðan hefur kynnt sér, munu bæði félögin h-alda afmælin hátíðleg með miklum íþróttasýningum og keppni. Aðalhátíðahöid Ár- manns fara fram í febrúar, en KR-inga í marz. í sambandi við afmælin munu bæði félögin efna til hátíðarmóta í frjálsum íþróttum næsta sumar. KEPPA FRÆGIR 'ÍÞRÓTTAMENN? íþróttasíðan spurðist fyrir um. það hjá forystumönnum beggja félaganna, hvort. til greina komi, að bjóða erlend- um íþróttamönnum til frjáls- íþróttamótanna. — Ármenn- ingar svöruðu því til, að sent hefði verið boð til Finnlands og væri þjálfarinn Yrjö Nora, sem var hjá félaginu um skeið, milligöngumaður í því máli. Ekki væri hægt að segja neitt frekar um þetta mál að svo stöddu, svo sem hverjir koma og hvað margir, en nokkurn veginn öruggt má telja að ein- hverjir komi, Gaman væri t.d. að fá að sjá hinn þekkta hlaup- ara Voitto Hellsten gegn okk- ar ágæta Hilmari. GEDERQUIST KEPPIR Á KR-MÓTINU. KR-ingar eru heldur lengra komnir, þ.e. þeir hafa gengið frá boði til eins íþróttamanns, sem margir hér kannast við, en það er danski sleggjukastarinn Poul Cederquist, fyrirliði danska landsliðsins. Um aðra hefur ekkert verið ákveðið, en öruggt má telja að um fleiri íþróttamenn verði að ræða. SIDLO, WASNY, SCMIDT? Íþróttasíðan hefur einnig frétt, að ÍR hafi nú þegar boðið Hinn snjalli pólski þrístökkv- ari Josef Scmidt í sigur- stökkinu á EM. erl. íþróttamönnum til ÍR- mótsins og það eru engir smá- karlar, éða Pólverjarnir Janus Sidio, Zenon Wasny og Josef Scmidt. Sá fyrstnefndi er -Evrópumeistari í spjótkasti og hefur verið einn öruggasti spjótkastari heimsins undan- farin ár, Wasny er pólskur met hafi í stangarstökki og náði bezt 4,53 m. í sumar, en Scmidt er Evrópumeistari í þrístökki og auk þess pólskur methafi með 16,43 m. Hann er af mörg- um álitinn mesti þrístökkvari, sem nú er uppi og líklegur til að bæta hið nýsetta heimsmet Rússans Rajhovsky, 16,59 m. ÍR-ingar hafa ekki enn fengið svör frá Póllandi um þessa menn. BÆJARKEPPNI Auk þessara væntanlegu heimsókna, sem vonandi verð- ur úr, eru miklar líkur til þess, að Osló og Reykjavík þreyti bæjarkeppni í frjálsíþróttum á Laugardalsleikvanginum í sumar, í sambandi við vígslu hans. Það er greinilegt, að mikið verður um að vera næsta sum- ar hjá frjálsíþróttamönnum okkar, og ekki er að efa, að þeir búa sig vel undir hin stóru og mörgu átök. Áhuginn á þessari íþrótt fer nú stöðugt vaxandi og hafa t. d. æfingar Reykjavíkurfélaganna sjaldan eða aldrei verið eins vel sótt- ar og einmitt nú, sérstaklega er mikið um unglinga, sem ekki hafa sézt á æfingum áður. Handknatíleikurinn um helgina MEISTARAMÓT Reykja- víkur í handknattleik heldur áfram um helgina og fara þá fram 9; og 10. keppniskvöld mótsins. Línurnar eru nú tölu- vert farnár að skýrast í mót- inu. Möguleikar KR-inga í meistaraflokki karla eru mjög miklir og flestir reikna með nokkuð öruggum sigri þeirra, jafnvel þó að þeir töpuðu fyr- ir ÍR, markahlutfall þeirra er nefnilega mjög gott. í 1. flokki karla berjast senni lega Fram og Ármann um sig- urinn, en Þróttur er líklegast- ur sigurvegari í 2. flokki. karla. Þróttur og Fram hafa unnið sína riðla, en ÍR—Fram leik- urinn hefur verið kærður og það getur breytt úrslitunum í þeim riðli. í meistaraflokki karla berj- ast KR og Ármann til úrslita og ekki er gott að -spá um úr- slit þess leiks. Þessir leikir fara fram í kvöld: 2. fl. kvenna A: Víkingur — KR Ármann — Þróttur Fram — Valur Fram — KR 2. flokki karla A: Ármann — ÍR Þróttur — KR 1. fl. karla: Fram — KR Ármann — Víkingur Annað kvöld fara eftirtaldir leikir fram: . 2. fl. kvenna B: Víkingur — Ármann Meistarafl. kvenna: Fram — KR Meistaraflokkur karla: Fram Víkingur Þróttur — ÍR Fran’jhald á 10. síöu. Iðnó DAJS SLEIKUR í kvöld klukkan 9. * ÓSKALÖG * ELLY VILHJÁLMS * RAGNAR BJARNASON og * K.K, sextettinn leikur nýjustu calypsó, rock og dægurlögin. AðgöngumiSasala frá kl. 4—6. Komið tímanlega og tryggið ykkur miða og borð. Fimm heimsálfur fimm vörumerki PETROF & FÖSLER ?? WEINBACH SCHOLZE FIBICH • 'fe • & o < Uessi n’vnd er tckin rr Pólverjar og Bandaríkjamenn háðu iandskeppni .í frjálsum íþróttum í Varsjá í suinar. Hér sest Polverjinn sigra Cortney í 800 m. hlaupinu á 1:46,7 mín. og vot'u það óvsentustu úrslit Keppninnar. Cortney varð Olympíu- meistari í 800 m. hlaupi í Melbourne. Spartak sigraði bæði í deild- ar- og bikarkeppninni í Ráð- stjórnarríkjunum í ár. Dyna- mo Kiev var í úrslitum deild- arkeppninnar gegn Spartak, en leiknum lauk með 3:2. Einn frægasti knattspyrnumaður Sovétríkjanna, Netto, er í Spartak. Það hefur ekki skeð síðan 1938, að sama liðið hefur sigrað, bæði í bikar og deild- arkeppni sama árið. Einkaumboð: Mars Trading Company SímÍ 1-7373 Reykjavík. ‘f Alþýðublaðið — 22. nóv, 1958

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.