Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.01.1979, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979 Dýr, sem safna vatni utan á sig Sandar Namibíu, nefnist fræðslumynd um dýralíf í Namib-eyðimörkinni í Suð- vestur-Afríku, sem hefst í sjónvarpi í kvöld kl. 22.05. Namib-eyðimörkin, sem er elzta eyðimörk í heimi, liggur að sjó á stóru svæði og er þar óvenju fjölskrúðugt dýralíf, alls konar dýrategundir, sem hafa aðlagast eyðimörkinni. Sérstaklega er mikið af eðlum og öðrum skriðdýrum, svo sem slöngum, gekkóum og kamelljónum, einnig lægri dýr, köngulær o.fl. Lifnaðar- hættir þessara dýra eru nokkuð furðulegir, en þau grafa sig niður í sandinn. Orsjaldan rignir á þessum stað. Á nokkur skiptir eyði- mörkinni í tvennt og er yfir- leitt uppþornuð, en hins veg- ar verður flóð ef rignir og allt lifnar við. Sagt er frá sér- kennilegum fuglum, sem ná í vatn handa ungum sínum og bera það langar leiðir í brjóstfjöðrunum. Þá er einn- ig lýst skrýtnum aðferðum sem sum dýr nota til að ná sér í vatn, en sum dýr safna til að mynda utan á sig vatni, þ.e. í húðina og sleikja sig síðan ef þau eru þyrst. Myndin er að sögn þýð- ands, Óskars Ingimarssonar, mjög skemmtileg og mjög nákvæmlega tekin, einkum og sér í lagi, þegar dýrin eru að éta, og má vera að ein- hverjúm finnist það dálítið óhugnanlegt eins og þegar slanga étur bráð sína. Sjónvarp í kvöld kl. 21.15: Kúnta strýkur aftur FIMMTI þátturinn um Kúnta Kinte hefst í sjón- varpi í kvöld kl. 21.15. Kúnta er settur undir umsjá Ames þrælapískara eftir strokið og sætir harðri meðferð. Senn líður að tóbaksuppskeru, og reynist hún góð og negrarnir halda uppskeru- hátíð. Þá notar Kúnta tækifærið og strýkur aftur. Hann finnur Föntu, sem nú heitir Maggie, og vill fá hana til að strjúka með sér norður, en hún vill það ekki og hefur sætt sig við hlut- skipti sitt. Þrælaveiðarar ná Kúnta aftur og refsa honum þannig, að hann getur ekki strokið aftur. LeVar Burton í hlutverki Kúnta Kinte og höfundur bókarinnar „Roots“ Alex Haley. Útvarp í kvöld kl. 20.00: Myndlista- og handíðaskólinn Þátturinn úr skólalífinu f um- sjón Kristjáns E. Guömundsson- ar hefst f útvarpi f kvöld kl. 20.00 Að þessu sinni verður tekinn fyrir Myndlista- og handíðaskóli Islands. Skólinn sjálfur verður kynntur, forskóli hans, nám og námstilhögun. Nokkrir nemendur skólans koma í þáttinn og spjallað verður um framtíðarhorfur og möguleika þeirra, sem útskrifast frá skólanum. Rætt verður um deildaskiptinguna, en skólanum er skipt í 8 deildir, og rætt við tvo nemendur úr þeim deildum skól- ans, sem gefa ákveðin starfsrétt- indi, þ.e. myndlistarkennaradeild fyrir grunnskóla og auglýsinga- teiknaradeild. Allar aðrar deildir, textil- og keramikdeildir, nýlista- deild, málara- og grafíkdeildir, taka mið af því að útskrifa sjálf- stæða listamenn. Einnig verður allnýstárleg tón- list flutt í þættinum, en átta nemendur skólans flytja lag, sem þeir hafa samið undir handleiðslu Atla Heimis Sveinssonar. Felld eru saman í eitt uppáhaldslög nemenda ásamt ýmsum hljóðum, sem menn taka ef til vill lítt eftir dags daglega og hætt við að einhverjum bregði í brún við að heyra þetta framúrstefnulag. Þáturinn stendur í hálfa klukkustund. Utvarp Reykjavík >MIÐMIKUDKGUR 31. janúar MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. Um- sjónarmenni Páll Heiðar Jónsson og Sigmar B. Ilauksson. (8.00 Fréttir). 8.15 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin vali. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnannai Geirlaug Þorvaldsdóttir heldur áfram að lesa „Skápalinga“, sögu eftir Michael Bond (7). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög frh. 11.00 Ilorft til höfuðátta. Séra Helgi Tryggvason flytur annað erindi sitt um upp eldismál og þjóðmál frá sjónarmiði kristins siðar. 11.25 Kirkjutónlist eftir Bachi Michel Cahapuis lcikur á orgel Prelúdíu og fúgu í h moll/ Agnes Giebel söng- kona Gewandhaushljóm- sveitin í Leipzig flytja „Lof- i ið Drottin lýðir allir“. kant- ötu nr. 51( Kurt Thomas stj. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Vcðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Litli barnatíminn. Sig- ríður Eyþórsdóttir stjórnar. SIÐDEGIÐ 13.40 Við vinnunai Tónleikar. 14.30 Miðdegissagani „Húsið og hafið“ eftir Johan Bojer. Jóhannes Guðmundsson fs- lenzkaði. Gísli Ágúst Gunn- laugsson les (8). 15.00 Miðdegistónleikari André Saint-Clivier og kammersveit leika Mandólfnkonsert í G-dúr eftir Johann Nepomuk Hummeh Jean-Francois Pallard stj./ Felicja Blumen- tal og Sinfóníuhljómsveit Lundúna leika Fantasíupólonesu fyrir píanó og hljómsveit op. 19 eftir Ignaz Paderewskii Ana- tole Fistoulari stj. 15.40 íslenzkt mál. Endurt. þáttur Ásgeirs Bl. Magnús- sonar frá 27. þ.m. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. (18.15 Veðurfregnir). 18.20 Popphorni Halldór Gunnarsson kynnir. 17.20 Útvarpssaga barnannai „Saga úr Sandhólabyggð- inni“ eftir H.C. Andersen. Steingrímur Thorsteinsson þýddi. Axel Thorsteinsson byrjar lesturinn. 17.40 Á hvítum reitum og svörtum. Guðmundur Arn- laugsson flytur skákþátt. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Einsöngur í útvarpssah Sigurlaug Rósinkranz syng- ur lög eftir Mozart, Brahms, Sigvalda Kaldalóns og Tosti. Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. 20.00 Úr skólalífinu. Kristján E. Guðmundsson stjórnar þættinum. 20.30 „Síðasta gjálífisævintýr- ið“, glettin smásaga en siðsam- leg eftir Pedro Antonio de Alarcon. Sveinbjörn Sigur- jónsson þýddi. Steindór Hjörleifsson leikari les. 21.00 Svört tónlist Umsjónarmaðuri Gerard Chinotti. Kynniri Jórunn Tómasdóttir. 21.45 íþróttir Ilermann Gunnarsson segir frá. 22.00 Norðan heiða. Magnús ólafsson á Sveinsstöðum í Þingi ræðir við mcnn, sem skemmta á þorrablótum og árshátíðum. Einnig fluttir1 stuttir skemmtiþættir. 22.30 Veðuríregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Úr tónlistarlífinu. Knút- ur R. Magnússon sér um þáttinn. 23.05 „Fiðrið úr sæng Dala- drottningar“. Ingibjörg Þ. Stepheiisen les úr síðustu ljóðabók Þprsteins frá Ilamri. 23.20 Hljómskálamúsik. Guð- mundur Gilsson kynnir. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR - 31. janúar 18.00 Rauður og blár ítalskir leirkarlar. 18.05 Börnin teikna Bréf og teikningar frá börnum til Sjónvarpsins. Kynnir Sigrfður Ragna Sig- urðardóttir. 18.15 Gullgrafaramir Sjöundi þáttur. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.40 Heimur dýranna Fræðslumyndaflokkur um dýralff vfða um heim. Þessi þáttur er um dýrin í Klettafjöllum. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 19.05 Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20Í0 Vaka Fjallað verður um opinber minnismerki og Iistaverk í Reykjavík og rætt um ís- lenska myndlistarsýningu f Konsthallen í Málmey. Dagskrárgerð Þráinn Bert- elsson. 21.15 Rætur Fimmti þáttur. í fjórða þætti var því lýst, cr Kúnta Kinte kemur heim á búgarð nýja eigandans. Fiðlaranum er falið að kenna honum ensku og gera góðan verkmann úr honum. Það gengur ekki mjög vel vegna mótþróa Kúnta. Hann kemst að því, hvar Fanta býr. Kúnta reynir að flýja, en hann næst og er refsað harðlega. Þýðandi Jón O. Edwald. 22.05 Sandar Namibíu Fraíðslumynd um dýralff f Namibíu-eyðimörk í Suð- vesturAfríku, en hún er elsta eyðimörk í heimi. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 22.55 Dagskrárlok

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.