Morgunblaðið - 31.01.1979, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979
Nixon
í H víta
húsinu
Washington, 30. jan. — AP.
RICHARD M. Nixon fyrrum
forseti snæddi kvöidverð í Hvíta
húsinu í Washington á mánu-
dagskvöld, og var það fyrsta
heimsókn Nixons þangað frá
því hann sagði af sér embætti 9.
ágúst 1974. Nixon var gestur
Carters forseta í kvöldverðar-
veizlu, sem haldin var til heið-
urs Teng Hsiao-ping fyrsta
vara-forsætisráðherra Kína,
sem hóf niu daga opinbera heim-
sókn sína til Bandaríkjanna á
mánudag. Veizlugestir voru alls
140, þeirra á meðal 24 fuiltrúar
kínversku stjórnarinnar, sex
bandarískir ráðherrar og 21
þingmaður úr báðum deildum
bandaríska þingsins.
Fréttamenn segja að Nixon
hafi brosað breitt er hann kom
til veizlunnar og tók f hönd
Carters forseta. Aðspurður
hvað Nixon hefði sagt við kom-
una, svaraði Carter: „Iiann er
ánægður með að vera hér.“
Fréttamenn vildu ræða við
Nixon, en hann var fámáll. Benti
hann á að hann væri kominn sem
gestur Cartershjónanna og vildi
því ekkert láta hafa eftir sér. Þó
gat Nixon þess að hann og Teng
hefðu ákveðið að ræðast við
einslega á miðvikudag.
Nokkrir þingmenn hafa gagn-
rýnt Carter forseta fyrir að
bjóða Nixon til veizlunnar, en
forsetinn hefur látið þá gagnrýni
sem vind um eyru þjóta og bent á
að það hafi verið heimsókn Nix-
ons þáverandi forseta til Kína
árið 1972 sem opnaði leiðina til
bættrar sambúðar ríkjanna. Nix-
on heimsótti einnig Kína í einka-
erindum árið 1976, en í hvorugt
skiptið hitti hann Teng, sem þá
var í ónáð.
1971 — Þrír geimfarar fara til
tunglisins í Apollo 14.
1968 Herlög í Suður-Víetnam.
1967 — Vestur-Þjóðverjar taka
upp stjórnmálasamband við
Rúmena.
1%2 — Utanríkisráðherra OAS
útiloka Kúbu frá þátttöku í
málum Vesturheims.
1958 — Fyrsta bandariska
gervihnettinum, Explorer I,
skotið.
1950 — Truman forseti fyrir-
skipar smíðí vetnissprengju.
1943 — Þjóðverjar gefast upp
við Stalíngrad.
1928 — Leon Trotsky vísað úr
landi í Rússlandi.
1917 — Þjóðverjar taka upp
ótakmarkaðan sjóhernað.
1891 — Borgarastríð hefst í
Chile.
1876 — Tyrkjasoldán fellst á að
hafja umbætur.
1858 — „Great Eastern“ hleypt
af stokkunum.
1790 — Prússar hætta íhlutun í
stríði Rússa og Tyrkja.
1606 — Guy Fawkes tekinn af
lífi.
1578 — Orrustan um Gembloux:
Ósigur Hoilendinga.
1504 — Samningurinn í Lyons:
Frakkar láta Napoli af hendi við
Spánverja.
Afmæli: Franz Schubert,
austurriskt tónskáld
(1797—1828) = Norman Mailer,
bandarískur rithöfundur (1923
—) = Anna Pavolva, rússnesk
dansmær (1885—1931).
Andlát: John Galsworthy, rit-
höfundur, 1933.
Innlent: Fyrsta útvarpssending-
in 1926 = Fyrsta íslenzka svif-
flugan reynd 1937 = „Glitfaxi"
ferst 1951 = Fundur forsætisráð-
herra Norðurlanda í Reykjavík
1973 = Eignatjón í fárvirðir um
allt land 1966 = Póstskipið
„Phönix" ferst í ofsaveðri við
Snæfellsnes 1881 = d. Guðbrand-
ur Vigfússon prófessor í Oxford
1889 = Þorlákur bp Runólfsson
1133 = Sveinsstaðarfundur 1522
= Mjólkurverkfall 1935 = f. Elín
Pálmadóttir 1927.
Orð dagsins: Menn verða að
klífa fjallið ef þeir vilja sjá
sléttuna — Kínverskur máls-
háttur.
Versnandi viðskiptajöfnuður
Waxhingrton. 30. janúar — AP
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR Bandaríkjanna við út-
lönd var óhagstæður um 28.450 milljónir dollara á
árinu 1978, eða nærri tveimur milljörðum dollara
óhagstæðari en á árinu 1977, sem þó var metár, að því
er segir í opinberri skýrslu sem birt var í Washing-
ton í dag. Er þetta ein helzta ástæðan fyrir
óstöðugleika dollarans á erlendum ghaldeyris-
mörkuðum.
Verstur er viðskiptajöfnuðurinn við Japan, en þar er
hann óhagstæðum um 11.600 milljónir dollara. Ein
ljósasti punkturinn í skýrslunni er að olíuinnflutning-
ur til Bandaríkjanna minnkaði á árinu um 6.8% miðað
við árið á undan, og nam 39.500 milljónum dollarar
miðað við 42,400 milljónir 1977.
þig inn í dæinið
Sparilán Landsbankans eru í
reynd einfalt dæmi. Þú safnar
sparifé með mánaðarlegum
greiðslum í ákveóinn tíma, t.d. 24
mánuði og færð síðan sparilán til
vióbótar við sparnaðinn. Lánið
verður 100% hærra en sparnaðar-
upphæðin, — og þú endurgreióir
lánið á allt að 4 árum.
Engin fasteignatrygging, aðeins
undirskrift þín, og maka þíns.
Landsbankinn greiðir þér al-
menna sparisjóðsvexti af sparn-
aðinum og reiknar sér hóflega
vexti af láninu . Sparilánið
er helmingi hærra en sparnaðar-
upphæðin, en þú greiðir lánið til
baka á helmingi lengri tíma en það
tók þig að spara tilskylda upphæð.
Biðjið Landsbankann um
bæklinginn um sparilánakerfið.
Sparifjársöfnun tengd réttí tíl lári
• *i
i íij
Sparnaður þinn eftir Mánaðarleg innborgun hámarksupphæö Sparnaður í lok tímabils Landsbankinn lánar þér Ráðstöfunarfé þittl) Mánaðarleg endurgreiösla Þú endurgreiðir Landsbankanum
12 mánuði 25.000 300.000 300.000 627.876 28.368 á 12 mánuðum
18 mánuði 25.000 450.000 675.000 1.188.871 32.598 á 27 mánuðum
24 mánuði 25.000 600.000 1.200.000 1.912.618 39.122 á 48 mánuðum
l) í tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaðí vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytst miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka Islands á hverjum tíma.
Sparilán-ttygging í framtíð
*