Morgunblaðið - 31.01.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1979
19
Samræmdum prófum 4500 grunn-
skólanemenda lokid:
Hófleg og gallalaus
segja skólastjórar
SAMRÆMDUM próíum í 9. bekk
grunnskóla lauk í síðustu viku,
en alls gengust um 4500 ung-
menni undir prófin að þessu
sinni. Prófin voru fjögur þ.e. í
íslenzku, stærðfræði, erlendu
tungumáli (ensku, dönsku,
norsku eða sænsku) og raun-
greinum (líffræði og eðlisfræði)
eða samfélagsfræðum (sögu og
landafræði). Að sögn tveggja
skólastjóra, sem Morgunblaðið
hafði samband við í gær, þóttu
prófin hófleg, skynsamlega gerð
og gallalaus eins og það var
orðað.
Björn Jónsson skólastjóri í
Hagaskóla í Reykjavík sagði að sér
hefði virzt prófin hófleg og alls
ekki væri ástæða til að kvarta yfir
þeim. — Hver skóli sér síðan í
Hús brann
í Sandgerði
Sandgerði 30. jan.
ÍBÚÐARHUSIÐ Bursthús í
Miðneshreppi brann nær til
grunna í dag. Það var klukkan
rúmlega 8 í morgun að slökkvilið-
ið í Sandgerði var kallað út og er
það kom að Bursthúsum var
húsið nær alelda. Einnig komu
tveir slökkvibflar frá Keflavík til
aðstoðar. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins en þá var
húsið mjög mikið brunnið, t.d.
allt brunnið innan úr því og það
fallið niður að mestum hluta. Það
er nú talið gjörónýtt.
Húsið í Bursthúsum var gamalt
bárujárnsklætt timburhús og
hafði fjölskylda úr Reykjavík það
á leigu en notaði það aðeins fyrir
sumarhús og dvaldi þar einnig oft
um helgar. Enginn var í húsinu er
eldurinn kom upp. Ekki er kunn-
ugt um eldsupptök en talið er að
þau stafi út frá olíukyndingu.
Innbúið mun hafa verið óvátryggt.
— Jón.
Prófprédik-
anir í dag
í DAG flytja þeir prófprédikanir
sínar í kapeilu Iláskólans Jón
Valur Jensson og Valdimar
Hreiðarsson. Hefst athöfnin
klukkan 5 síðdegis. Öllum er
heimili aðgangur að kapellunni.
Rædir aukin
samskipti Is-
lendinga og
Grænlendinga
PÉTUR Thorsteinsson sendi-
herra hélt í gær til Godthaab í
Grænlandi þar sem hann ræðir
við áhrifamenn á ýmsum sviðum.
Ferð þessi var ákveðin í tilefni af
því að Grænlendingar hafa með
þjóðaratkvæði hlotið heimastjórn
og kjósa í vor þing til að stýra
eigin málum.
Utanríkisráðherra fól Pétri
Thorsteinssyni að fara þessa
kynnisferð til að athuga á hvern
hátt samskipti íslendinga og
Grænlendinga verði bezt aukin.
Leiðrétting
PRENTVILLA varð í minningar-
grein Axels Thorsteinssonar um
frú Svövu Þórhallsdóttur sem
birtist hér í blaðinu í gær: „hress
og hreifur" stóð, en átti auðvitað
að vera „hress og reifur".
marzlok hvernig hann stendur
miðað við landið í heild og það er
tvímælalaust þörf og góð ábending
fyrir hvern skóla, sagði Björn.
— Eftir því sem ég veit til voru
þessi próf skynsamlega gerð og
gallalaus, var svar Sverris Páls-
sonar skólastjóra Gagnfræðaskóla
Akureyrar er Mbl. spurði hann
álits á prófunum í gær. — Prófin
komu ^kki á óvart og voru í góðu
samræmi við það, sem sagt hafði
verið fyrirfram um uppbyggingu
verkefnanna og það efni, sem
tilkynnt var að tekið yrði til
prófsins. Hins vegar finnst mér
próftíminn ekki vera nógu vel
valinn, prófin þyrftu að vera síðar
á vetrinum, t.d. í marzmánuði. Þá
held ég að þau væru marktækari
því þá hefði verið farið yfir meira
námsefni og nemendum kennd
þessi fræði betur, sagði Sverrir.
Þeir unglingar, sem gengust
undir þessi próf eru flestir fæddir
árið 1963 og prófin voru tekin um
allt land á sínum tíma. Einkunnir
fá nemendur og kennarar síðan að
sjá í lok marz. Gefið er fyrir
úrlausnir í bókstöfum og fær
ákveðið hlutfall nemenda hvern
bókstaf, en um svokallað raðkerfi
er að ræða. Nemendur halda
áfram að læra fyrrnefndar náms-
greinar fram á vorið, en fá þá
einkunnir frá skólum sínum og er
það í valdi skólanna hvernig
einkunnirnar verða upp byggðar. I
báðum einkunnakerfunum eru
ákveðin lágmörk, sem þarf að
standast til að fá inngöngu í
framhaldsskóla.
Nefnd til að
athuga mengun
á varnarsvæðum
Utanríkisráðherra skipaði
þann 22. þ.m. þriggja manna
nefnd til athugunar á ráðstöfun-
um gegn mengun á varnar-
svæðunum á Suðurnesjum.
Þóroddur Th. Sigurðsson
vatnsveitustjóri er formaður
nefndarinnar og með honum skipa
nefndina þeir Eyjólfur Sæmunds-
son, deildarverkfræðingur hjá
Heilbrigðiseftirliti ríkisins, og
Jóhann Sveinsson, heilbrigðisfull-
trúi Suðurnesja.
Af hálfu varnarliðsins hafa
verið tilnefndir fjórir fulltrúar til
samvinnu um nauðsynlegar
aðgerðir, en nefndin mun annast
eftirlit með framkvæmd þeirra.
Leiðrétting
SÚ PRENTVILLA var í frétt Mbl.
í gær um verðlaunaafhendingu
Smjörlíkis h.f. fyrir „Jólaleik"
fyrirtækisins að eitt núll féll aftan
af tölu svara þeirra sem bárust.
Rétt er að um 1000 svör bárust við
„Jólaleiknum".
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Hólir
vegir
hœtta
áferð
BESTU KAUPIN í LITSJÓNVARPSTÆKJUM
BYLTING I GERÐ
LITSJÓNVARPSTÆKJA
Fyrstir á íslandi meö eftirtaldar nýjungar:
O OBC In Line myndlampinn frá Hitachi er nýjung sem
gefur bjartari og skarpari mynd.
G Sjálfvirkur stöðvaleitari, með minni fyrir 16 rásir.
H Straumtaka í lágmarki, 75, wött á 20 tommur, 95 wött
á 22 og 26 tommur, sem gerir FINLUX kerfið það
kaldasta á markaðnum.
H Samskonar einingarverk er í öllum stærðum, sem
auðveldar alla þjónustu.
D Hægt er að fá þráðlausa (Infra Red) fjarstýringu fyrir
allar gerðir (einnig eftir á).
Öll FINLUX litsjónvarpstækin hafa verið reynd í 24 tíma í verksm,
og eru eingöngu í viðarkassa (Palisander, Hnotu eða hvítu).
20“ kr. 415.000.-
22“ kr. 476.000.-
26“ kr. 525.000.-
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI 27099