Morgunblaðið - 15.03.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979
31
Fréttabréf frá Hvammstanga
Vedursæld og vertíð góð
Hvammstanga, 12. mars.
UM þessar mundir stendur yfir
mikil endurbót á sóknarkirkjunni
hér. Veðursæld hér í sýslu hefir
verið sérstök í vetur, ef undan eru
skilin smáhret um mánaðamótin
nóvember—desember, snjór um
áramót og kuldarnir í seinni hluta
janúar og fram í febrúar, auk
hrets á fimmtudaginn var. Þá
hefir sjávarafli einnig verið mjög
góður og mikil atvinna við hann,
og saumastofan Drífa gengið
blómlega, auk þess sem byggingar-
vinna hefir aldrei verið meiri.
Utgerð og
fiskvinnsla
Rækjuveiðinni hér á Hvamms-
tanga er að ljúka þessa dagana, en
nú mega þeir fjórir bátar, sem
héðan eru gerðir út ekki veiða
nema 318 tonn, í stað 442 tonna í
fyrra. Þykir mönnum fljótt að
muna um 124 tonn fyrir þessa
báta, sem því verða að leita verk-
efna annars staðar. Það eru bát-
arnir Glaður, Aðalbjörg, Heppinn
og Gerpir, sem hafa veitt rækjuna
í vetur. Hafa þeir lagt afla sinn
upp hjá Meleyri h/f. í næst síðustu
viku var farið í róðra fyrir ýmis
góðgerðarfélög, svo og sóknar-
kirkjuna, sem nú fer fram mikil
viðgerð á. Þegar rækjuvertíðinni
lýkur, fara Aðalbjörg og Gerpir á
veiðar fyrir Suðurlandi, en Glaður
heldur til skelfiskveiða hér í
Húnaflóa. Mun skelin verða unnin
hér hjá Meleyri h/f. Þá hefir
vélbáturinn Sif verið gerður út á
línuveiðar hér í flóanum í vetur og
er vægast sagt orðið langt síðan
báti hefir verið haldið til línuveiða
heila vertíð hér í Húnaflóa, en
fiskgengd er að verða þó nokkur í
flóanum, sem marka má af því að
meðalafli í róðri fyrir áramót var
um 6 tonn, en hefir að vísu aðeins
minnkað eftir áramótin. Öll þessi
fiskvinnsla er hjá Meleyri h/f, en
bolfiskurinn er aðallega saltaður
og lítið eitt hert.
Um 40 manns vinna þannig hér
við útgerð og fiskvinnslu eða um
9% hreppsbúa á þessum vetri.
Leggst nú mikið af þessari vinnu
af, þó nokkrir haldi áfram vinnu
Félagsheimilið á Hvammstanga.
bænadögum.
við skelfiskinn og saltfiskinn, þá
er einum bát, Heppni, lagt núna en
tveir fara annað til veiða, eins og
áður segir.
100 millj.
söluverðmæti
Annar stór atvinnurekandi á
staðnum er saumastofan Drífa, en
þar vinna 20 konur í 15 heilsdags-
störfum, auk framkvæmdastjóra.
Vinna þar því rúm 3% staðarbúa.
Þessi ríflega 3% færa hins vegar
ekki svo litlar tekjur í þjóðarbúið,
en söluverðmæti ársframleiðslu
saumastofunnar er yfir
100.000.000,- króna. Er þá miðað
við söluverð til dreifingaraðilans á
markaðina í Bandaríkjunum,
Kanada og Evrópu, sem er Hilda
h/f. Miklar pantanir liggja fyrir
en þar fer Vorvaka fram á
og eru forystumenn bjartsýnir á
framtíð fyrirtækisins.
Heilsugæzla
Sjúkrahúsið er þó víst ennþá
stærsti atvinnuveitandinn hér, en
af störfum þar hafa um 40 manns
sína atvinnu, eða jafnmargir og af
fiskvinnslu og útgerð. Heilsu-
gæslulæknar eru 2, Haraldur
Tómasson og nýlega er kominn
hingað Magnús Ólafsson. í haust
var hafist handa um byggingu
íbúða fyrir aldraða. Kom sér þá
vel, að ýmis félagasamtök lögðu
fram um eina milljón króna hvert,
eins og ýmis kvenfélög og Lions-
klúbbur sýslunnar. Þá er einnig að
hefjast bygging Heilsugæslustöðv-
ar á þessu ári.
Húsbyggingar
um vetur
Húsbyggingar hafa staðið hér
með miklum blóma. Hefir ekki
áður verið hafin bygging íbúðar-
húsa undir veturinn, en 5 húsa
raðbygging var hafin í haust og
Kirkjan á Hvammstanga.
hefir víst ekki fyrr verið haldið svo
veglegt reisugildi hér á miðjum
vetri, eins og eftir að þau höfðu
verið reist. Það að vetrarveðrin
hafa ekki verið svo slæm, á vitan-
lega sinn þátt í því, að hægt hefir
verið að vinna sleitulaust að bygg-
ingunni. Þessi hús eiga að afhend-
ast fullbúin næsta haust. Hér eru í
byggingu norðan ár 25 hús, en
bygging 13 annarra er að hefjast
nú og með vorinu. Er því ekkert lát
á byggingarstarfsemi hér í pláss-
inu. Auk heilsugæslustöðvarinnar
og íbúðanna fyrir aldraða, eril svo
aðrar 3 stórbyggingar í gangi, en
það eru sláturhús Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga, Mjólkursam-
lagsviðbyggingin og bygging á
húsi fyrir búningsaðstöðu við
sundlaug og íþróttahús, sem
byggja á á næstu árum.
Hrepps-
reikningar
Hreppsreikningar liggja ekki
fyrir ennþá að fullu, en samkvæmt
upplýsingum Þórðar Skúlasonar
sveitarstjóra eru niðurstöðutölur
þeirra um lt)2 milljónir á rekstrar-
reikningi, en um 165 milljónir hins
vegar á efnahagsreikningi. Eru
þetta allhressilegar tölur fyrir
pláss með 500 íbúa við síðasta
manntal, hinn 1. desember í vetur.
Blómlegt
félagslíf
Ekki eru menningarviðburðir
heldur neitt fátíðari hér en ann-
arsstaðar, því að í haust var haldið
hér leiklistarnámskeið á vegum
leikflokksins og grunnskólans.
Annaðist Inga Bjarnason þetta
námskeið, sem lauk með flutningi
úr verkum og kynningu á Davíð
Stefánssyni frá Fagraskógi. Var
þetta um mánaðamótin nóvem-
ber—desember. Þá var dansnám-
skeið á vegum grunnskólans í
febrúar.
Leikflokkurinn á Hvammstanga
frumsýndi svo 10. verk sitt í
föstudaginn 2. þ.m. en það ei
„Höfuðbólið og hjáleigan" eftii
Sigurð Róbertsson. Eru 11 leikend
ur í verkinu. Brynja Bjarnadóttii
og Marteinn Reimarsson leikí
foreldra mannkyns og hlaut leikui
Brynju einróma lof leikhúsgesta
Frú Jónína Kristjánsdóttir leik
stýrir verkinu.
Svo hafa verið haldin hér hii
hefðbundnu þorrablót, jafnve
góugleðir og nú stendur yfi
spurningakeppni á vegum kven
félaganna. Þá fór fram sýslumót
skák á vegum grunnskóla beggj:
sýslna á laugardaginn var. Va.
mótið haldið í skólanum að Lauga
bakka. Sýslumeistari í skák nem
enda í 7.-9. bekk varð Birgir L
Ingþórsson í Húnavallaskóla, er
sýslumeistari í yngri hópnum
1:—6. bekk, varð hins vegar Arna
Árnason úr grunnskóla Blönduóss
Alþýðuleikhúsið, sunnandeild
hefir boðað komu sína um næsti
mánaðamót, með leikritið „Vatns
berarnir“, sem sýnt verður víða
sýslunni.
Þá er einnig unnið af fullun
krafti að undirbúningi „Vorvöki
Vestur-Húnvetninga", sem ai
vanda verður haldin hér ;
Hvammstanga um bænadagana
Þar munu sýna 5 myndlistarmenn
þau Gunnar Hjaltason frá Hafn
arfirði, Benedikt Gunnarsson ú:
Kópavogi, Ingibergur Magnússoi
grafíklistamaður, Marinó Björns
son úr Miðfirði og Torfhildui
Steingrímsdóttir, skólastjórafrú :
Hvammstanga. Verður þetta þv
hin myndarlegasta samsýning
Félagsheimili plássins. Auk þess;
verða svo þrjár vökur með upp
lestri ljóða, lauss máls og flutning
söngs og leikþátta. Verða vökurn
ar við opnunina á miðvikudags
kvöld fyrir skírdag, á skírdags
kvöld og síðdegis á laugardagim
helga. Er þetta í þriðja sinn, sen
þessi vorvaka er haldin hér í sýsli
og er hún því að verða fastui
menningarviðburður.
S.H.Þ.
Adam og Eva frammi fyrir Drottni ailsherjar. Sbr. leikritið
Höfuðbólið og hjáleigan.
Frá Stórmóti BR í fyrra. Gísli Torfason og Karl Hermannsson frá Bridgefélagi Suðurnesja spila gegn
erlendu gestunum, Hans Göthe og Anders Morath í fyrstu umferðinni.
Brldge
Stórmót
Bridgefélags
Reykjavíkur
Listi yfir þátttakendur á
Stórmóti Bridgefélags Reykja-
víkur sem verður haldið um
næstu helgi á Hótel Loftleiðum,
er nú tilbúinn. Flestir reyndari
spilarar landsins taka þátt eins
og sjá má á þessari
upptalningu:
Guðmundur Pétursson —
Karl Sigurhjartarson
Einar Jónsson —
Gísli Torfason
Páll Valdimarsson —
Steinberg Ríkharðsson
Guðmundur Pálsson —
Sigmundur Stefánsson
Jón Baldursson —
Sverrir Ármannsson
Sigfús Árnason —
Sverrir Kristipsson
Sigurður Sverrisson —
Valur Sigurðsson
Jón Ásbjörnsson —
Símon Símonarson
Einar Þorfinnsson —
Páll Bergsson
Skúli Einarsson —
Þorlákur Jónsson
Bjarni Sveinsson —
Jón Gunnar Pálsson
Guðmundur Hermannsson —
Sævar Þorbjörnsson
Ólafur Valgeirsson —
Þorsteinn Þorsteinsson
Hörður Arnþórsson —
Stefán Guðjohnsen
Jakob R. Möller —
Jón Hjaltason
Ásmundur Pálsson —
Hjalti Elíasson
Óli Már Guðmundsson —
Þórarinn Sigþórsson
Skafti Jónsson —
Viðar Jónsson
Gísli Hafliðason —
Sigurður B. Þorsteinsson
Steingrímur Þórisson —
Þórir Leifsson
Gestur Jónsson —
Guðmundur P. Arnarson
Guðbrandur Sigurbergsson —
Isak Ólafsson
Hermann Lárusson —
Ólafur Lárusson
Sigurjón Tryggvason —
Sigtryggur Sigurðsson
Guðlaugur R. Jóhannsson —
Örn Arnþórsson
Bragi Erlendsson —
Ríkarður Steinbergsson
Helgi Jónsson —
Helgi Sigurðsson
Per Breck —
Reidar Lien.
Gestir mótsins, Norðmennirn-
ir Per Breck og Reidar Lien,
hafa hæsta sætistölu og er það
gert til að þeir sitji kyrrir svo
áhorfendur geti fylgst sem best
með spilamennsku þeirra úr
sérstökum upphækkuðum
sætum. Keppendum er bent á að
mæta kl. 12.30 á laugardag til að
kynna sér vel reglugerð mótsins
og að ganga frá kerfiskortum en
allt slíkt verður að vera í lagi
þegar há peningaverðlaun eru í
húfi. En efsta par í mótslok mun
hljóta kr. 150.000 að launum.
Keppnisstjóri verður Vilhjálm-
ur Sigurðsson.
Mótið verður síðan sett kl.
13.00 af borgarstjóranum í
Reykjavík, hr. Agli Skúla Ingi-
bergssyni.
í tengslum við Stórmótið
verður efnt til sérstakrar keppni
úrvalssveita, sem hefst kl. 16.30
í Leifsbúð Hótels Loftleiða á
föstudag. Þremur sveitum var
sérstaklega boðið til keppni
þessarar en þær eru:
Sveit Hjalta Elíassonar,
Islandsmelstara 1978,
Sveit Þórarins Sigþórssonar,
Bikarmeistarar 1978, og sveit
Sævars Þorbjörnssonar, sem
líkt skipuð varð í 2. sæti á eftir
áðurnefndum sveitum í þessum
tveimur aðalmótum síðasta árs
og nú nýverið vann undankeppni
Reykjavíkursvæðisins til
Islandsmóts. En í sveit með
Norðmönnunum, Per Breck og
Reidar Lien, munu spila Þórir
Sigurðsson og Páll Bergsson.
Spilaðir verða þrír 16 spila
leikir og munu áhorfendur mega
fara á milli borðanna fjögurra
en auðvitað bundnir þagnar-
skyldu. Strax að loknum
hverjum 8 spilum munu liggja
frammi úrslit og afrit af spilun-
um fyrir þá, sem áhuga hafa.
Ekki verða veitt sérstök
verðlaun fyrir keppni þessa og
því aðeins heiðurinn í húfi en
keppnisstjóri verður Skafti
Jónsson.