Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979 3
„Samráð 1 orði,
en ekki á bor ði’ *
Sjómannasambandið óánægt með að vera ekki haft meira með í
ráðum við undirbúning reglugerðar um takmörkun þorskveiða
FUNDUR var haldinn í fram-
kvæmdastjórn Sjómannasam-
bands íslands í >?ær og komu
þar fram margvíslegar skoðan-
ir á þeim aðgerðum. sem sjáv-
arútvegsráðuneytið hefur boð-
að með setningu reglugerðar
til takmörkunar á þorskveiðum
í ár. Telja sjómenn. að þeir hafi
ekki setið við sama borð og
aðrir við undirbúning þessarar
reglugerðar og samráð hafi
ekki verið sem skyldi. 1 fram-
kvæmdastjórninni. sem fjallaði
um málið í gær. sitja 5 manns,
en í sambandsstjórn SSÍ eiga
13 manns sæti og hefur hún
verið boðuð til fundar fi. apríl.
þar sem frekar verður rætt um
þessi mál.
— Til marks um vinnubrögð-
in má nefna að Sjómannasam-
bandinu barst reglugerð Sjávar-
útvegsráðuneytisins 5 mínútum
áður en fundur okkar hófst í
dag, sagði Óskar Vigfússon for-
maður Sjómannasambandsins í
gær. — Að vísu hafði verið
greint frá innihaldi hennar í
útvarpi og blöðum, en það eru
varla heppileg vinnubrögð af
hálfu ráðuneytisins til kynning-
ar á svo viðamiklu máli. Vegna
þess hve við höfðum knappan
tíma til að kynna okkur reglu-
gerðina'taldi fundurinn sig ekki
getað tekið endanlega afstöðu
um hana. Því hefur verið boðað
til sambandsstjórnarfundar 6.
apríl.
— í þessu máli hefur verið
rætt um að hafa samráð við
hagsmunaaðila í sjávarútvegi,
en gagnvart okkur hefur það
verið í orði, en ekki á borði. Við
getum barið bumbur og básúnað
óánægju okkar eins og gjarnan
er gert, en þessari reglugerð
verður varia hnikað næstu vik-
urnar. En síðar á árinu kallar
hún á aðrar ráðstafanir og
aðgerðir, ef þetta verður þá ekki
ailt komið í einn hnút. Eins og
staðan er í dag er langt í frá að
endanleg lausn sé fundin á
þessum málum og vandamálin
ekki færri en áður þó að þau séu
e.t.v. önnur.
— Það er rétt að undanfarna
daga hef ég heyrt mörg og
misjöfn sjónarmið frá sjómönn-
um og fara skoðanirnar t.d. efti.r
landshlutum og veiðigreinum. I
þessu má segja að enginn sé
annars bróðir þegar kemur að
umræðu og aðgerðum varðandi
það að hafa í sig og á, sagði
Oskar Vigfússon að lokum.
Efni til drykkjar-
vöruframleiðslu:
Meint röng
skráning
tollskrár-
númera í
rannsókn
RANNSÓKNARLÖGREGLA rík-
isins og Tollgæzian vinna nú
sameiginlega að rannsókn að
meintri rangri skráningu toll-
skrárnúmera yfir innflutning á
efni til drykkjuvöruframleiðslu.
Ríkisendurskoðun vakti athygli
Tollgæzlunnar á því að hugsalega
væri tollskrárnúmer ranglega
skráð í þessu tilfelli þannig að
innflytjandinn greiddi engan toll
af vörunni en ætti að greiða 90%
toll. Ef þetta reyndist rétt er um
að ræða verulegar fjárupphæðir.
Innflytjandinn hefur verið yfir-
heyrður en enginn er í haldi vegna
rannsóknar málsins.
Kókaínmálið:
Gæzluvarð-
f
hald Islend-
inganna rennur
út á morgun
Á morgun rennur út gæzlu-
varðhaldsvist íslendinganna
fjögurra, sem setið hafa í
Vester-fangelsinu í Kaupmanna-
höfn síðan í byrjun marz vegna
rannsóknar kókaínmálsins svo-
nefnda. Munu Islendingarnir
koma fyrir dómara fyrir hádegi.
Þá mun skýrast hvort Is-
lendingarnir verða áfram hafðir í
haldi eða vist þeirra í fangelsinu
framlengd.
„Bráðum er
ekkert orð-
ið rautt... ”
Á ÞINGFLOKKSFUNDI Al-
þýðubandalagsins síðastliðinn
þriðjudag, þegar verið var að
ræða efnahagsvandamálin og
stjórnarkreppuna, sat Jónas
Árnason þögull langa stund og
horfði í gaupnir sér. Er hann
hafði hlustað á umræður um
hríð mælti hann af munni fram
þessa vísu:
ídeologiskt er það dautt:
Aldrei að hífa — bara slaka.
Bráðum er ekkert orðið rautt,
annað en nefið á Gvendi jaka.
(rlandsdagar
íÞórscafé
fimmtudagur
opið til 01
skem
Viö hefjum írlandshátiöina meö hörkudansleik i Þórscafé á fimmtudags-
kvöld. Lúdó og Stefán leika fyrir dansi og hin frábæra irska þjoölaga-
hljómsveit. DE DANANN kemur i heimsókn og leikur nokkur lög.
Fyrstu hundraö matargestunum sem mæta er boöiö upp a osvikiö
IRISH COFFEE fyrir. meö eöa eftir mat. - þeim aö kostnaöarlausu.
Öllum gestum i Þórscafé er boöiö án endurgjalds aö bragöa á irsku brauöi
frá Nyja Kökuhúsinu, sérbökuö samkvæmt ströngustu kröfum irskra
bakara. og allir fá bolla af irsku ERIN súpunum til hressingar er liöa
tekur á kvöldiö.
Aóalréttur: LambasteikSt. Kevin
m/írsku ERIN grænmeti
Eftirréttur: Irish Mocca fromage
Veró aóeins kr 4.500
Dagskrá kvöldsins:
ÍRLANDSKYNNING:
Hlaupiö i gegnum helstu
möguleika feröamanna a Irlandi
og nyi sumarferöabæklingur Sam-
vinnuferöa kynntur
ÍRSK TÓNLIST:
Þjoðlagahljómsveitm De Danann
bregður fyrir sig betri fætmum og
leikur hressilega ómengaða irska
þjoðlagatóniist
Kynnir: Magnús Axelsson
BINGÓ:
Nokkrar Bingóumferöir teknar um
kvoldiö og spiiað upp á írlands-
feröir i ollum umferöunum. Ómiss-
andi hráefm i IRISH COFFEE i
aukavinntnga
TÍSKUSÝNING:
Karon synir nyjustu tiskulinuna
fyrir domur og herra
ÁSADANS:
Og viö bregöum okkur i asadans.
Hann veröur horkuspennandi og
fjorugur þvi pariö sem siöast
stendur a dansgolfmu hefur
dansaö sig bemt inn i paskaferö til
írlands fyrir tvo
Boróapantanir í síma 23333
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - sími 27077