Morgunblaðið - 29.03.1979, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Leikrit vikunnar á dagskrá kl. 20.50
STILL-LONGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN
OG FULLORÐNA
SOKKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
SOKKAHLÍFAR
KULDAFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
KLOSSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
VINNUHANZKAR
OLIUOFNAR
MEÐ RAFKVEIKJU
MÚR-VERKFÆRI
• Múrskeiöar
• Múrfílt
• Múrbretti
• Stálsteinar
• Múrhamrar
• Réttskeiðar
ÞJALIR
Mikið úrval
TENGUR
Fjölbreytt úrval
SKIFTILYKLAR
RÖRTENGUR
BOLT AKLIPPUR
VÍRKLIPPUR
BLIKKKLIPPUR
SKRÚFJÁRN
SPORJÁRN
SKRÚFÞVINGUR
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
JÁRNSAGIR
TRÉSAGIR
KLAUFHAMRAR
HALLAMÁL
JÁRN- OG TRÉBORAR
BORSVEIFAR
SKARAXIR
SMURNINGSKÖNNUR
ÁHELLISKÖNNUR
VÉLATVISTUR
í 25 KG BÖLLUM
HVÍTUR OG MISLITUR
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 9—12.
Ekki dauður úröllum æðum
Tónlist
gerð
góð skil
Er litið er yfir dagskrá út-
varps í dag kemur í ljós að
tónlist eru gerð mjög góð skil.
Kl. 11.15 eru „morgun-
tónleikar" þar sem flutt verða
verk fyrir píanó og selló eftir
Mauriee Ravel og Dmitri
Sjosktakovitsj.
Kl. 15.00 eru „Miðdegistón-
leikar". Hljómsveitin
Þessi mynd er tekin í Háskólabíói 1976 hljómleikum hljómsveitar
og söngsveitarinnar Filharmónía. ásamt Iláskólakórnum.
Harmonien í Björgvin,
Strengjasveit Philharmoniu og
Fílharmoníusveitin í Vín leika
verk nokkurra meistara.
Kl. 19.40 er þátturinn
„Islenzkir einsöngvarar og kórar
syngja". Að sögn Ragnars Jóns-
sonar í tónlistardeild útvarpsins
verður eftirfarandi á dagskrá:
Þorsteinn Hannesson syngur
með undirleik Fritz Weishappel.
Geysiskvartettinn á Akureyri
syngur nokkur lög, undirleik á
píanó annast Jakob Tryggvason.
Elsa Sigfús syngur tvö lög við
undirleik Valborgar Einars-
dóttur. Karlakór Reykjavíkur
syngur, stjórnandi Sigurður
Þórðarson. I lokin syngur Árni
Jónsson tvö lög, Gunnar Sigur-
geirsson leikur á píanó.
Kl. 20.30 er „Samleikur í
útvarpssal". Anna Rögnvalds-
dóttir og Agnes Löve leika
saman á fiðlu og píanó.
Kl. 22.20 „Einsöngur í út-
varpssal": Benedikt Benedikts-
son syngur, Ólafur Vignir
Albertsson leikur á píanó.
í lok dagskrár, eða kl. 23.10 er
síðan þátturinn „Áfangar" í
umsjá Ásmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar.
Útvarp Reykjavfk
FIM41TUDKGUR
29. marz
MORGUNIMINN_________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Dag-
skrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ým-
is lög að eigin vali. 9.00
fréttir.
9.00 Morgunstund barnanna:
Guðrún Guðlaugsdóttir held-
ur áfram að .esa söguna
„Góðan daginn. gúrkukóng-
ur“ eftir Christine
Nöstlinger (3).
9.20 Leikfimi
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ým-
is lög; frh.
11.00 Verzlun og viðskipti
Umsjón: Ingvi flrafn Jóns-
son. Komið við á útimarkað-
inum á Lækjartorgi.
11.15 Morguntónleikar:
Werner Haas leikur píanó-
verk eftir Maurice Ravel,
Harvey Shapiro og Jacsha
Zayde leika Sónötu í F-dúr
op. 40 fyrir selló og píanó
eftir Dmitri Sjostakovitsj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍÐDEGIÐ____________________
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Námsgreinar í grunn-
skóla; — þriðji þáttur
Birna Bjarnleifsdóttir tekur
til umfjöllunar mynd- og
handmennt, svo og tón-
menntir. Rætt við námsstjór-
ana Þóri Sigurðsson og Njál
Sigurðsson.
15.00 Miðdegistónleikar:
Hljómsveitin Harmonien í
Björgvin leikur Hátiðarpólo-
nesu op. 12 eftir Johan
Svendsen; Karsten Andersen
stj. / Strengjasveit Philhar-
moniu leikur Holbergsvítu
op. 40 eftir Edvard Grieg;
Anatole Fistoulari stj. / Fíl-
harmoníusveitin í Vín leikur
Sinfóníu nr. 7 í C-dúr eftir
Jean Sibelius; Lorin Maazel
stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Lagið mitt: Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Polli, ég og allir hinir“
eftir Jónas Jónasson
Höfundur les sögulok (8).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál
Árni Böðvarsson flytur þátt-
inn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.00 Við erum öll heimspek-
ingar
Fimmti og síðasti þáttur
Ásgeirs Beinteinssonar um
Iffsskoðanir. Árni Berg-
mann, Gylfi Þ. Gíslason,
Ólafur Björnsson og Sigurð-
ur Gizurarson svara spurn-
ingunni: Hvað ræður skipt-
ingu manna í stjórnmála-
flokka?
20.30 Samleikur í útvarpssal
Anna Rögnvaldsdóttir og
Agnes Löve leika saman á
fiðlu og pianó.
a. Sónötu í G-dúr (K301)
eftir Mozart.
b. Sónötu í D-dúr eftir
Corelli.
21.00 Leikrit: „Zykoff-fólkið“
eftir Maxim Gorki
Aður útvarpað 1959. Þýð-
andi: Ólafur Jónsson.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
Antipa Zykoff/ Þorsteinn Ö.
Stephensen. Sofia Zykoff/
Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
Mikael Zykoff/ Steindór
Hjörleifsson. Pasha/ Helga
Bachmann. Shulgin/ Bald-
vin Halidórsson. Anna
Markovna/ Ilelga Valtýs-
dóttir. Sögumaður/ Helgi
Skúlason.
Aðrir leikendur: Sigríður
Hagalín. Gísli Halldórsson
og Jón Sigurbjörnsson.
22.20 Einsöngur í útvarpssal:
Benedikt Bencdiktsson
syngur lög eftir Friðrik
Bjarnason, Maríu Brynjólfs-
dóttur og Sigvalda Kalda-
lóns. Ólafur Vignir Alberts-
son leikur á pianó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (39)
22.55 Víðsjá:
Friðrik Páll Jónsson sér um
þáttinn.
23.10 Áfangar
Umsjónarmenm: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
30. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Skonrok(k).
Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný dægurlög.
21.00 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmai’lu.i Helgi E.
Helgason.
22.00 Segið þeim af Willie.
(Tell Thcm Willie Boy Is
Here).
Bandarísk bíómynd frá ár-
inu 1969. Aðalhlutverk
Robert Redford, Robert
Blake og Katarine Ross.
Sagan gerist í byrjun aldar-
innar og hefst með því að
indiáninn Willie Boy nemur
unnustu sína á hrott og
heldur meö hana út
óhyggðir.
Þýðandi Kiistmaun Fió
son.
23.3! 1> ’g jkrárlok.
SKRÚFSTYKKI
í kvöld er leikrit vikunnar á dagskrá kl. 20.50. Höfundur
leikritsins er Maxim Gorki og ber það heitið „Zykov-fólkið“.
Fjallar leikritið timburkaupmann, Antipa Zykow, er býr með
Sofíu systur sinni, sem í raun ræður öllu á heimilinu. Mikael, sonur
kaupmannsins, gengur í hjónaband, en karl faðir hans er ekki
dauður úr öllum æðum, þótt aldraður sé.
Maxim Gorki, réttu nafni Alexej Maximovitsj Peskjkov, fæddist í
Nisjni Novgorod ( nú Gorki) árið 1968. Hann var af fátæku fólki
kominn og naut lítillar sem engrar skólagöngu í æsku. Flökkuárum
sínum hefur hann lýst vel í sjálfævisögu sinni, sem kom út í þremur
bindum og hefur verið þýdd á íslenzku. Gorki varð fyrst þekktur
fyrir frásagnir og ritgerðir árið 1898. Af öðrum frægum verkum
hans má nefna „Móðurina" og leikritið „Náttbólið", sem sýnt var hér
í Þjóðleikhúsinu.
Á árunum fyrir heimsstyrjöldina fyrr og eins á þriðja áratug
aldarinnar dvaldist Gorki meira og minna í Vestur-Evrópu, en hann
lézt í Moskvu árið 1936, tæplega sjötugur.
Þýðandi er Ólafur Jónsson og leikstjóri Helgi Skúlason. I stærstu
hlutverkum eru Þorsteinn Ö. Stephensen, Guðbjörg Þorbjarna-
rdóttir, Steindór Hjörleifsson og Helga Bachmann. Leikritinu var
áður útvarpað 1959.
Helgi
Steindór
Guðbjörg
■^ek
Þorstéinn