Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979 .
5
íslandsklukkan hjá Ung-
mannafélagi Biskupstungna
íslandsklukkan eftir Haildór
Laxness verður frumsýnd hjá
Ungmennafélagi Biskupstungna
í félagsheimilinu Aratungu ann-
að kvöld, föstudaginn 30. marz.
Æfingar á leikritinu hófust laust
eftir áramót, og hafa þær staðið
síðan, linnulítið. Aðstæður hafa
þó verið nokkuð erfiðar. enda
hefur veturinn verið harður og
löngum torfært um sveitina.
Leikstjóri er Sunna Borg, en hún
leikstýrði einnig hjá leikflokknum
síðastliðinn vetur. Steingrímur
Vigfússon í Laugarási gerði leik-
tjöldin, leikmynd er eftir Gunnar
Bjarnason en hita og þunga undir-
búningsins í heild hefur formaður
leiknefndar, Halla Bjarnadóttir í
Vatnsleysu, borið.
Helstu hlutverkin leika: Bragi
Þorsteinsson, Vatnsleysu, leikur
Jón Hreggviðsson, Ragnar Lýðs-
son, Gýgjarhóli, leikur Arnas
Arnæus, og Jóhanna Róbertsdótt-
ir, Neðra-Dal, Snæfríði íslandssól.
Formaður Ungmennafélagsins
er Sveinn Sæland, Espiflöt.
Hvað gerðist 30. marz 1949?
Nýlokið er seinna námskeiði
af tveim námsskeiðum í Stjórn-
málaskóla Sjálfstæðisflokksins,
sem haldin hafa verið á þessum
vetri.
í framhaldi af því hefur
Nemendasamband Stjórnmála-
skóla Sjálfstæðisflokksins
ákveðið að gangast fyrir fundi í
Valhöll, í kvöld fimmtudag 29.
marz 1979 kl. 20.30.
Umræðuefni fundarins verður
„Hvað gerðist 30. marz 1949“
Framsöguræður flytja Ragn-
hildur Helgadóttir, alþingis-
maður og Geir R. Andersen,
fulltrúi.
Að framsöguræðum loknum
verða frjálsar umræður um efn-
ið.
Auk þess verða kaffiveitingar.
Stjórn Nemendasambands
Stjórnmálaskóla Sjálfstæðis-
flokksins hvetur fyrrverandi
nemendur Stjórnmálaskóla
Sjálfstæðisflokksins til að mæta
og efla tengslin.
(Fréttatilkynning frá
nemendasambandi
Adalfundur VR. um kjaramál:
Jóhanna Róbertsdóttir og Sigurður Þorsteinsson í hlutverkum
sinum, Snæíríði íslandssól og lögmaður Eydalín.
Gísli Jónsson
talar á Sæluviku
Sauðárkrókur 28. marz.
GÍSLI Jónsson menntaskólakenn-
ari flytur erindi í Safnahúsi
Skagfirðinga á Sauðárkróki n.k.
laugardag 31. marz klukkan 15.
I safnahúsinu stendur nú yfir á
Sæluvikunni málverkasýning. Þar
sýna 12 félagar úr „myndhópnum"
á Akureyri og sýna þeir rúmlega
50 verk.
Hér er bezta veður og góð
aðsókn hefur verið að öllum sam-
komum Sæluvikunnar.
Við höfum til þessa ekki orðið
varir við hafísinn en þegar menn
Garðabær:
Bingó til
fjáröflunar
fyrir utanferð
NEMENDUR Fjölbrautaskóla
Garðabæjar halda bingó í gagn-
fræðaskólanum vð Lyngás
klukkan 20.30 í kvöld. Bingóið er
haldið til fjáröflunar fyrir
Lundúnarferð nemenda í næstu
viku. Meðal vinninga er grafík-
mynd eftir Ragnheiði Jónsdóttur,
útsýnisflug yfir Reykjavík og
margt fleira. A eftir verður
diskótek fyrir þá sem vilja.
vöknuðu í morgun sáust nokkrir
stakir jakar, sem voru orðnir
landfastir í fjörum.
- Kári.
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Útsölustaðir viða um land.
SENDUM
BÆKLINGA
Stefnir í mikla skerðmgu
kaupmáttar launaf ólks
Aðalfundur V.R. haldinn að Hótel
Esju, 26. marz 1979 áréttar fyrri
mótmæli félagsins við því að stjórn-
völd í skjóli löggjafarvaldsins grípi
með einhliða lagasetningu inn í
kaupgjaldsákvæði kjarasamninga
og ógildi verðbótarákvæði þeirra,
svo sem átt hefur sér stað með
ítrekuðum hætti undanfarin miss-
eri. Af hálfu opinberra aðila hafa
þetta verið taldar nauðsynlegar
viðnámsaðgerðir gegn óðaverð-
bólgu.
Fundurinn telur að baráttan gegn
verðbólgunni vinnist ekki með lög-
boðinni kjaraskerðingu hjá lág- og
millitekjufólki. í þeirri baráttu er
nauðsynlegt að til komi skynsamlegt
mat á raunverulegum orsökum verð-
bólgunnar. Aðgerðum til að minnka
verðbólguna verði síðan hagað sam-
kvæmt því.
Við óbreyttar aðstæður stefnir í
mikla skerðingu kaupmáttar hjá
almennu launafólki, samtímis því
sem tekjumunur milli láglaunafólks
annars vegar og hátekjufólks hins
vegar eykst hröðum skrefum. Er
fyrirsjáanlegt, að með áframhaldi
þessarar þróunar er stefnt í mikið
óefni fyrir mikinn fjölda launafólks.
Þá mun staða lífeyrisþega versna til
muna frá því sem nú er.
Aðalfundur V.R. mótmælir ein-
dregið stefnumörkum og aðgerðum
er framkalla það þjóðfélagslega
ranglæti er að framan greinir. Hvet-
ur fundurinn launafólk til að vera
vel á verði um hagsmuni sína og láta
einskis ófreistað til að afstýra þeim
voða er við kann að blasa í þessum
efnum.
LÚÐRASVEIT Hafnarfjarðar heldur sína árlegu hljómleika fyrir
Styrktarfélaga og velunnara. næstkomandi laugardag 31. mars kl. 4. í
íþróttahúsi Hafnafjarðar. Þar mun einnig koma fram Skólahljómsveit
Hafnarfjarðar, undir stjórn Reynis Guðnasonar. Þetta er 29. starfsár
Lúðrasveitar Hafnafjarðar og eru nú 45 hljóðfæraleikarar. Stjórnandi
sveitarinnar er Hans Ploder Fransson.
H
Wi
Úrvalstæki, búið öllum þeim tækninýjungum
sem góð litsjónvörp þurfa að hafa, svo sem línulampa,
viðgerðareiningum og fleiru.
Tækið sem sameinar myndgæði og fallegt útlit.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum. Hagstætt verð.