Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Yfirburðir
Churchills
HamborK. 26. marz — AP.
í GREIN eftir Albert
Speer, fyrrum hervæð-
ingarráðherra Hitlers, sem
birtist í vikublaðinu Welt
am Sonntag í gær, segir
hann að sir Winston
Churchill fyrrum forsætis-
ráðherra Bretlands hafi
jafnan átt auðvelt með að
snúa á Hitler.
Speer, sem sat tuttugu ár í
fangelsi að síðari heimsstyrjöld-
Winston Churchill.
inni lokinni fyrir aðild sína að
hervæðingu Hitlers, segir að um
margt hafi brezki forsætisráð-
herrann og nazista-einvaldurinn
verið líkir. „En það er áberandi að
Churchill kunni alltaf að velja sér
aðstoðarmenn, sem héldu sjálf-
stæði sínu. Ekki Hitler, sem í æ
ríkari mæli leitaði samstarfs-
manna meðal þeirra sem fúsastir
voru að láta að vilja hans,“ segir
Speer.
Joseph Göbbels áróðursstjóri
Moskva:
Aðvent-
istar
dæmdir
Moskvu, 28. marz — AP.
SOVÉZKUR dómstóll dæmdi á
laugardag yfirmann Aðventista-
kirkjunnar f Sovétrfkjunum til
fimm ára þrælkunarvinnu fyrir
að bera út óhróður um Sovétrfkin
og brjóta gegn almennum mann-
réttindum. Fjórir starfsmenn
hans hlutu einnig dóma.
Yfirmaður Aðventistakirkjunn-
ar er Vladimir Sholkov, 83 ára að
aldri. Hann hefur gegnt embætt-
inu í 30 ár, en setið í samtals 23 ár
í fangelsum, vinnubúðum eða út-
legð innanlands. Auk þrælkunar-
dómsins var úrskurðað að allar
einkaeignir Sholkovs skyldu gerð-
ar upptækar. Annar aðventisti,
Ilya Lepshin, hlaut sama dóm og
Sholkov, en þau Varnold Spalin,
Sofia Furlet og Sergei Maslov
vægari dóma.
nazista öfundaði Churchill af
tvennu, segir Speer: „Hve fús hann
var sjálfur að birtast og kanna
tjón það sem varð í loftárásum
Þjóðverja á brezkar borgir, og hve
auðvelt honum reyndist að leiða
þjóð sína í allan sannleika varð-
andi aðsteðjandi hættu.
Heimsóknir Churchills hljóta að
hafa talið kjark í alla, sem hlut
áttu að máli, segir Speer. „En
þrátt fyrir allar tilraunir Göbbels
hélt Hitler sig jafnan víðs fjarri
þeim þýzku borgum, sem urðu
fyrir loftárásum."
Hitler tókst aldrei að líkja eftir
„blóðs, svita og tára“ ræðu
Churchills eftir ófarir Breta við
Dunkirk, segir Speer. „Hitler
reyndi að afsaka, kveikja vonir
þegar ástandið var vonlaust.
Hernaðarsagan hefur sýnt að
það var Hitler sjálfur sem gerði
afdrifaríkustu mistökin. Þetta
vissi Churchill að sögn Speers, og
sagði þegar fréttist að Hitler hefði
komizt lífs af úr sprengjutilræðinu
gegn honum 20. júní 1944: „Guði sé
lof að bezti bandamaður okkar
skuli enn vera lifandi."
Framkvæmdastjóri norræna félagsins f Danmörku, Torben Staubo,
sýnir líkan af Nordsat. Hann er hræddur um að Þjóðverjar verði fyrri
til að koma sér upp sjónvarpshnetti en Skandinavar.
V-Þjóðverjar veita
Nordsat samkeppni
GREINILEGT kapphlaup er í uppsiglingu milli Vest-
ur-Þjóðverja og Norðurlanda um að verða fyrri til að
skjóta á braut gervihnetti fyrir sjónvarp- og FM-útvarps-
sendingar að því er fram kom við opnun Nordsat-sýning-
ar á vegum norræna félagsins í Danmörku í
Kaupmannahöfn.
I síðustu áætlunum
Vestur-Þjóðverja er gert ráð fyrir
að skotið verði tilraunagervihnetti
1982—1983 og varanlegum sjón-
varpshnetti um 1985. Stefnt hefur
verið að því að skjóta Nordsat
1984 — 85, en danskir sérfræðingar
segja síðustu rannsóknir sýna að
það sé of mikil bjartsýni að halda
að það takist og líklegra sé að
Nordsat verði ekki skotið fyrr en
1985-87.
Öll norrænu félögin hafa lýst
yfir skilyrðislausum stuðningi við
Nordsat og Nordsat-sýningin er
farandsýning sem á að sýna mögu-
leika Nordsat þegar gervihnöttur-
inn verður fullbyggður. Félögin
vilja að fólk á Norðurlöndum fái
að velja á milli sjö norrænna
sjónvarpsstöðva og 12 örbylgju-
stöðva (FM). Sýningin er liður í
upplýsingaherferð sem á að móta
öflugt almenningsálit áður en
norrænir ráðherrar koma saman
og taka afstöðu til skýrslu sem
þeir munu fá frá sérfræðingum um
rannsóknir sínar 16. júní.
Þetta er í fyrsta sinn sem
norræna félagið í Danmörku tekur
skýra afstöðu í pólitísku máli og
ástæðan er sögð sú að frjálsar
norrænar upplýsingar hafi geysi-
mikla þýðingu.
Torben Staubo, formaður
norræna félagsins í Danmörku,
lýsti þeirri von sinni við opnun
Nordsat-sýningarinnar að áætlun-
in gæti staðizt svo að fyrst yrðu
keypt loftnet sem yrði beint að
norræna sjónvarpshnettinum.
Ib Lönberg,-forstjóri fjarskipta-
deildar pósts og síma í Danmörku
sagði að engin tæknileg vandkvæði
væru á því að horfa á efni bæði frá
Nordsat og þýzkri sjónvarpsstöð.
Til þess þyrfti tvö loftnet og það
þyrfti ekki að kosta mikið.
Sovétmenn efla neytendaþjónustu:
Leyfa örlítinn
einkarekstur
Mofikvu, 26. marz, AP.
SOVÉTMENN hafa að undan-
förnu veitt leyfi til einkarekstrar
í smáum stíl á sviði almennrar
neytendaþjónustu þar sem al-
menn ánægja ríkir með þann
árangur sem náðst hefur af
einkarekstri í landbúnaði.
Ætlun Sovétmanna, sem tóku
ákvörðunina ,að gaumgæfilega
athuguðu máli, er að fullnægja
eftirspurn neytenda sem kvartað
hafa sáran undan lftilli þjónustu
á ýmsum sviðum. Af opinberri
hálfu er litið á þennan einka-
rekstur sem bráðabirgðalausn.
Neytendur hafa einkum kvartað
Fundin ný áhrifamikil vopn
í baráttunni við krabbamein?
Daytona Beach, Kalifornfa, AP-Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR við Sloan-Kettering stofnun-
ina f New York halda að þeir hafi fundið
eggjahvítuefnasamband sem mannslikaminn
framleiðir og orðið getur eigift vörn líkamans við
krabba.
Talið er að hér sé á ferðinni uppgötvun sem
getur átt eftir að valda þáttaskilum f lækningu
krabbameins. Eins að það eigi eftir að valda
byltingu við leit að krabbameini á byrjunarstigi.
Að svo komnu máli eru rannsóknir á eggja-
hvítusambandinu, sem nefnt er „NHG“ á vísinda-
máli, það skammt á veg komnar að ekki verður
hægt að gera rannsóknir á mönnum fyrr en að
nokkrum árum liðnum.
Jafnframt var skýrt frá því að sérfræðingar
við annað sjúkrahús hefðu uppgötvað efnasam-
band sem yki á seiglu og virkni lyfja sem notuð
eru að jafnaði f dag f baráttunni við krabba.
Rannsóknir hefjast á sjúklingum innan skamms
og telja fróðir menn að þetta lyf eigi einnig eftir
að valda þáttaskilum í krabbalækningum.
undan því að ekki sé að fá í
verzlunum nauðsynjar svo sem
tvinna, sokkaleista, nagla, augn-
skugga o.þ.h., og að ekki sé hægt
að fá gert við úr og klukkur, skó,
minniháttar skemmdir í íbúðum
og bifreiðar.
Þeir sem fá nú að hefja einka-
rekstur í smáum stíl, en til að það
gæti orðið að veruleika breyttu
Sovétmenn örlítið einni grein í
stjórnarskrá sinni, eru tannlækn-
ar, listamenn, tónlistar- og tungu-
málakennarar, bifvélavirkjar og
ýmsar aðrar stéttir iðnaðar-
manna. Þessir nýju atvinnu-
rekendur verða að lúta ströngu
opinberu eftirliti og eru umsvif
þeirra mjög takmörkuð.
Umfangsmikil neðanjarðar-
starfsemi á sviði verzlunar og
viðskipta er í Sovétríkjunum. Boð-
inn er á svörtum markaði alls kyns
glysvarningur svo og nauðsynja-
vörur, en talið er að þeir sem þessi
viðskipti stundi velti sumir hverjir
milljónum rúblna á ári hverju.
Þessi þjónusta, sem er vel þegin,
hrekkur þó hvergi til.
Fyrir nokkrum árum leyfðu
Sovétmenn einkarekstur í smáum
stíl í landbúnaði. Alls framleiða
þessir bændur í einkarekstri um
þriðjung af öllum ávöxtum og
grænmeti sem framleitt er í Sovét-
ríkjunum, en á aðeins um fjórum
af hundraði ræktaðs lands.
Ný tæki
við leit að
brjósta-
krabba
e
Á KAROLINSKA
sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi er nú verið að
gera tilraunir með tæki
sem greinir brjósta-
krabba á algeru
byrjunarstigi, og hafa
unnið að því tveir
prófessorar, Björn
Nordenström og Bertil
Jacobson. Notuð er
röntgentækni og tölvuút-
búnaður og hefur komið í
ljós að tækið greinir
örsmáar krabbameins-
frumur langtum fyrr en
áður hefur tekizt.
Sjúklingur er látinn liggja á
maganum á sérhönnuðu
læknisborði og á því er hola
fyrir brjóstið sem rannsaka á.
Eru teknar röntgenmyndir af
brjóstinu neðan frá. Á röntgen-
myndum sem unnar eru með
þessari tækni getur læklílr
ákvarðað hvar æxlið er í
brjóstinu og er til þess beitt
útreikningum sem tölvan sem
framkvæmir á svipstundu, og
skeikar í mesta lagi um lmm.
Verður vart við ber í brjóstinu
er beitt staðdeyfingu og nál er
stungið í brjóstið á þann stað
þar sem berið fannst og tekur
hún sýni úr berinu, sem er sent
í rannsókn. Tekur þetta allt
ekki nema um tuttugu mínútur.
Tvö hundruð og fimmtíu kon-
ur hafa verið rannsakaðar með
þessari nýju tækni og árangur
mjög merkur. Er nú verið að
endurbæta þennan útbúnað
með það fyrir augum að
einfalda hann og gera kleift að
setja tæki þessi síðan á
markað.
Loftið
í Ósló
mengað
Frá fréttaritara
MorKunbladsins ( Ósló
ANDRÚMSLOFTIÐ í
Ósló er mengaðra eitur-
gasi frá bílaumferð, iðn-
fyrirtækjum og kyndi-
tækjum en nokkur önnur
borg í Norður-Evrópu og
mengunin er fjórum
sinnum meiri en talið er
viðunandi samkvæmt
alþjóðlegum reglum ef
marka má mælingar sem
hafa verið gerðar á göt-
um borgarinnar.
Vísindamenn segja að
andrúmsloftið í Ósló sé jafnvel
eins mengað og í Los Angeles
og það hefur að geyma mikið af
tjöru sem veldur krabbameini
og kolsýru sem hjarta og tauga-
kerfi getur stafað hætta frá.
Það eykur loftmengunina að
Ósló er í nokkurs konar laut
með háum ásum umhverfis
þannig að eðlilegt loftstreymi
myndast ekki. Fótgangandi fólk
í Ósló er í mestri hættu frá
loftmenguninni sem getur vald-
ið þyngslum í höfði og þreytu.