Morgunblaðið - 29.03.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
13
Sinfóníu-
tónleikar
Samtíminn er orðinn svo „tema-
tískur", veitingahús bjóða upþ á
spænsk eða búlgörsk kvöld, og nú
bauð Sinfóníuhljómsveitin upp á
franskt kvöld. Jean-Pierre
Jacquillat stjórnaði af eldmóði,
leiddi hljómsveitina gegnum sér-
kennileg litbrigði og hlj óðfalls-
vafninga í „Hymne au Saint
Sacrement" eftir Messiaen frá
árinu 1945. Messiaen hefur vissu-
lega mótað persónulegan hljóð-
heim, í skýrum formum og næst-
um „sjálfviljugum" hljóðfalls-
mynstrum og hljómastraumum.
Sumir meta list hans meir en aðra
samtímatónlist, aðrir telja hana
óþolandi væmni. Áður en öldin er
öll, mætti vel flytja einhver meiri
háttar verk hans hér...
Manuela Wiesler lék einleik í
flautukonsert Francai frá 1968.
Francaix hefur lengi verið víð-
frægur fyrir lipran penna, og hér
brást hann ekki vana sínum. En
fjarskalega hefði tónarápið orðið
léttvægt, ef ekki hefði notið svo
frábærs einleiks. Þegar Manuela
var búin að ná sér á strik, leiftraði
leiksnilldin af hverri hendingu.
Allt lék hún utanað, sem er ekki
Tónllst
eftir ÞORKEL
SIGURBJÖRNSSON
aðeins óvenjulegt af flautuleikara,
heldur og sérstaklega, þegar um
samtímaverk er að ræða.
Lokaverkið var 2. sinfónían eftir
Rossel, samin 1921. í þessu verki
hóf hann markvisst þá viðleitni að
samræma impressjónistískan arf
•klassískum hugsjónum. Sú var
tíðin, á 3. og 4. áratug, að Roussel
hafði mikil áhrif, ekki síst á
Norðurlöndum, þótt nú hafi eitt-
hvað fennt í þær slóðir. Enn er þó
hlustað af fullri virðingu, þegar
Roussel hefur raustina, Sú tilfinn-
ing var og undirstrikuð af stjórn-
andanum, öll tempi yfirleitt í
hægra lagi, yfirveguð, og natni við
smáatriði skyggði engan veginn á
breiðari útlínur verksins.
Áheyrendabekkir voru nokkuð
þunnskipaðir, svo að hér misstu
margir af mjög góðum tónleikum.
Þorkeli Sigurbjörnsson
Ekki er það ætlun mín að rekja
frásögnina til enda. En það er vert
að vekja sérstaka athygli á því
hverju fjölskyldukærleikurinn
kom til leiðar í lífi Dags. Og þótt
meginhluti bókarinnar sé frásögn
af hörmulegum mistökum kerfis-
ins og þeirra sem með „fræðum"
einum taka að sér að skilgreina
sálarlíf einstaklingsins og meta
þarfir hans í samræmi við það —
segja síðan til um meðferð sem
byggð er á kenningum einum — er
samt bjart yfir bókinni um Dag.
Fyrir skilning og óbilandi
atorku ástríkra foreldra hefur
Dagur þó orðið éins hamingju-
samur og hægt eh miðað við hans
aðstæður. Það er mitt álit að
enginn hugsandi maður í
samfélagi okkar ætti að láta þessa
bók ólesna. Hún er raunverulega
til okkar allra og um okkur öll.
Hún er opinberun þess sannleiks
að grundvallaratriði í mannlegum
samskiptum er það, að þjóðfélagið
veiti hverjum einstaklingi eftir
þörfum hans, án þess að betlað sé,
beðið um eða rekin góðgerðar-
starfsemi vegna hans, ef hann
einhverra hluta vegna er ekki fær
um að taka þátt í lífsgöngunni á
sama hátt og þeir sem heilir eru.
Þjóðfélag sem neitar að skilja
þessi lífssannindi og vanrækir
þau, má í raun og veru skammast
sín og hefur ekki af miklu að státa.
„Hvenær er Dagur öruggur?
Þegar við elskum hann eins og
hann er.“
Þýðingin er ágæt.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Nú hafa verið spilaðar 8
umferðir af 23 í barometer B.IL
Skiptast þar á skin og skúrir
eins og oft vill verða.
Þeir sem voru hæstir eftir
fyrsta kvöldið lentu í lægðar-
miðju og misstu flugið. Tveir af
yngstu spilurunum, Einar og
Jón, blökuðu vængjunum hins
vegar ótæpilega og hækkuðu um
94 stig. Annars lítur háþrýsti-
svæðið þannig út:
1. Halldór Bjarnason/
Hörður Þórarinsson 99
2. Bjarni Jóhannsson/
Þorgeir Eyjólfsson 93
3. Jón Stefánsson/
Þorsteinn Laufdal 86
4. Einar Kristleifsson/
Jón Þorkelsson 85
5. Björn Eysteinsson/
Magnús Jóhannsson 66
6. Friðþjófur og
Halldór Einarssynir 65
7. Guðni Þo'rsteinsson/
Kristófer Magnússon 63
8. Ólafur Valgeirsson/
Þorst. Þorsteinsson 55
9. Ásgeir Ásbjörnsson/
Gísli Arason 32
10. Árni Þorvaldsson/
Sævar Magnússon 16
11. Kristján Ólafsson/
Runólfur Sigurðsson 16
Laugardaginn 31. mars er
meiningin að fara til Akraness
og taka í lurginn á Skagamönn-
um. Eftir er þó að sjá hvor
skjöldinn ber. Viku síðar eru
Selfyssingar svo væntanlegir í
heimsókn, svo að menn ættu
ekki að stirðna í puttunum á
næstunni.
Bridgefélag
kvenna
Að þremur umferðum lokn-
um í hraðsveitakeppninni hefir
sveit Öldu Hansen tekið góða
forystu. Sveitin fékk 620 stig í
þriðju umferðinni en sveit
Kristínar Kristjánsdóttur varð
næsthæst með 618 stig.
Röð efstu sveita:
Alda Hansen 1805
Aldís Schram 1762
Gunnþórunn Erlingsd. 1735
Gróa Eiðsd. 1704
Brldge
Umsjóns ARNÓR
RAGNARSSON
Guðrún Einarsd. 1696
Sigriður Ingibergsd. 1681
Kristín Kristjánsd. 1623
Meðalskor 1620.
Nk. mánudag fellur niður
spilamennska vegna firma-
keppni BSÍ. Fjórða umferð verð-
ur spiluð mánudaginn 9. apríl og
síðasta umferðin verður spiluð
eftir páska.
Að hraðsveitakeppninni lok-
inni verður hin geysivinsæla
parakeppni félagsins á dagskrá.
Bridgefélag
Reyðarfjarðar
og Eskif jarðar
Sveitakeppni BRE lauk þ. 20/3.
Sigurvegarar urðu sveit
Kristjáns Kristjánssonar með
162 stig, en auk hans eru í
sveitinni þeir Hallgrímur Hall-
grímsson, Ásgeir Metúsalems-
son ög Þorsteinn Ólafsson.
í 2. sæti var sv. Aðalsteins
Jónssonar 124 stig.
3. s. Ólafíu Þórðardóttur 115
stig.
4. s. Friðjóns Vigfússonar 100
stig.
5. s. Búa Birgissonar 99 stig.
6 s. Guðna Óskarssonar 87 stig.
Alls tóku 10 sveitir þátt í
keppninni.
í BRE eru nú 56 félagar.
Þetta eru
TOTO.
I hljómsveitinni Toto eru samankomnir sex af
virtustu stúdíómönnum Los Angeles-borgar.
Toto er því skipuð afburða tónlistarmönnum sem
vinna saman sem eining.
Með sinni fyrstu plötu hefur Toto skotist upp á
stjörnuhimininn og sæmir sér þar hið bezta. Lögin
Hold the Life og I’ll Supply the Love njóta gífurlegra
vinsælda meðal rokkara um heim allan.
itoifMfhí
Sími 19930 — 28155.