Morgunblaðið - 29.03.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
17
En öll þessi taugaviðbrögð eru
visst álag fyrir konuna sem
orsakar í mörgum tilvikum mikla
viðkvæmni — sem aftur krefst
nærgætni og mikillar hlýju frá
þeim sem stunda hana og að henni
standa.
Þegar mjólk er að koma í brjóst
stálma þau stundum, þ.e. verða
hörð og aum.... Á því tímabili
forðumst við að nudda brjóstin eða
snerta nema hið allra minnsta.
Byrjunaörðugleikar við brjóst-
gjöf geta verið margir og mismun-
andi. Brjóstgjöf er þolinmæðis-
verk sem borgar sig ef ekki er
gefist upp. Að konan fái góða hjálp
frá byrjun, til þess að koma barni
sínu vel á brjóst, getur skipt
sköpum og er því aldrei of mikil
áhersla lögð á það. Þegar kona
kemur heim til sín eftir barnsburð
gerist það títt að brjóstamjólkin
minnkar tií muna, oft vegna þess
að heimilishaldið með öllum sínum
skyldum er konunni of þungt ef
hún hefur ekki góða hjálp. Og
vegna óþarfa gestagangs sem ætti
að vera forboðinn fyrstu dagana
eftir heimkomu. I flestum
tilvikum er auðvelt að ná mjólk-
inni upp aftur með því að hvíla sig
vel og gefa brjóst þétt, jafnvel á
2—3 klst fresti og jafnvel bæði
brjóstin í einu ef brjóstvörtur þola
það álag. Síðan má gefa annað
brjóstið í einu með lengra millibili
þegar mjölkurframleiðslan er
aftur komin í eðlilegt horf.
Brjóstin eru mjög viðkvæm fyrir
kulda, þess vegna er nauðsynlegt
að láta sér ekki verða kalt.
Eðlileg hreyfing utan dyra,
fjölbreytt gott fæði og slökun er
mikilvægur þáttur í þeirri
viðleitni að halda brjóstamjólk-
inni. Flestar konur geta haft börn
sín á brjósti, en eigi að síður eru til
konur sem leggja sig mjög fram,
gera allt sem þær geta, án
árangurs. Við því er ekkert að gera
annað en taka því með stökustu ró
og alls ekki dæma sjálfa sig úr
leik. Þá er það góð regla, í þ.m.
fyrsta mánuðinn, að taka barnið
upp úr vöggunni og halda því að
brjósti sér meðan pelinn er gefinn
á sama hátt og verið væri að gefa
brjóstið.
Að lokum
Ég hefi nú í stuttu máli gert
grein fyrir nauðsyn þess að
foreldrar viti deili á því hvers þeir
þurfa að krefjast af sjálfum sér
þegar þeir stofna heimili og eiga
von á barni.
Ég hef lítillaga nefnt nauðsyn
fræðslu- og undirbúningsnám-
skeiða, nefnt gildi heilbrigðis og
rétts mataræðis, nefnt starfsemi
brjóstanna og gildi þess fyrir
kornabarnið að fá móðurmjólkina
ef kostur er, — og þá er komið að
spurningunni sem lögð var fyrir
mig sem spurning barnsins:
„Hvað bíður mín, hvers má ég
vænta?"
Ég veit ekki hvað bíður þín litla
barn — en ég vona að þú sért
velkomið og að hendurnar fyrstu
sem snerta þig séu kærleikans
hendur.
Að umhverfið sem þú fæðist í sé
mjúkt, hlýtt og manneskjulegt og
að öll sú þekking sem menn hafa
yfir að ráða sé nýtt, án þess að
skugga beri á mikilleik þeirrar
stundar er þú fæðist.
Ég vona einnig að þeir sem
annast uppeldi þitt megi vera að
því að sinna þér, noti til þess
hverja stund sem aflögu er í lífsins
önn, vitandi að áður en hendi er
veifað ert þú orðið stórt og ekki
hægt að snúa aftur til þess sem
var. — Tímans straum stöðvar
enginn. — Heimilið er þinn fyrsti
skóli. Ég vona að þú fáir þar þá
undirstöðu sem endist best í lífsins
stormi, þ.e. veganesti sem saman
stendur af Kristinni trú, kærleik,
öryggi og snertingu við sköpunar-
verk Guðs.
Megi þetta — í hnotskurn —
verða hlutskipti þitt, litla barn, nú
á ári barnsins og um alla framtíð.
„Mér líður
stórkostlega”
VINIR OG aðstandendur Mickie Gees voru saman
komnir á Óðali til að hyllla kappann þegar hann hætti
plötusnúningi sínum s.l. mánudagsnótt með 1500
klukkustundir að baki og heimsmet í greininni.
„Mér líður stórkostlega," sagði Mickie í spjalli við
Mbl. er hann var í þann veginn að yfirgefa plötuspilar-
ana. Mickie verður á Akureyri um helgina en fer til
Englands eftir viku. Hann sagðist ætla að nota þá viku
til þess að heimsækja stofnanir og fyrirtæki og reyna
að safna meira fé í „Gleymd börn ‘79“. Einnig hyggst
Mickie skoða sig um á Islandi.
Er til Englands kemur mun Mickie leggja plötu-
snúðastarfið á hilluna en taka til við fyrri atvinnu,
starf mjólkurpósts. Með honum fer til Englands
unnusta Mickies, Stella Bragadóttir.
Jón Hjaltason og Mickie Gee fagna 1500 tímunum. Við hlið þeirra
er unnusta Mickies Stella Bragadóttir, en að baki þeirra er hluti
dómaranna.
Mickie
Gee
hylltur
í hófi
á Óðali
Myndir
Emilía.
' >N
\
Mickie sagðist vilja koma á
framfæri þökkum til allra, sem
hefðu stutt sig við heimsmetið,
sérstakléga Þórdísar
Bachmanns, sem séð hefur um
framkvæmdir við söfnunina
„Gleymd börn ‘79“, og Jóns
Hjaltasonar forstjóra Óðals.
„Án hans hjálpar hefði ég ekki
getað sett metið," sagði Mickie.
Einnig sagðist hann vilja þakka
þeim dómurum sem hafa
aðstoðað hann við að halda
öllum settum reglum
Guinnes-bókarinnar en hann
bíður nú eftir að heimsmetið
verði viðurkennt.
I hófinu á Óðali var skálað
fyrir Mickie í Kampavíni og
blöðrur og skrautborðar svifu
um salinn. „Þetta er bara eins
og á gamlárskvöld," varð einum
gestanna að orði.
Mickie og Þórdís fagna árangri söfnunarinnar „Gleymd börn
‘79“ en er hófið var haldið höfðu 6 milljónir komið í söfnunina.
Við hlið þeirra er John Anthony, plötusnúðurinn sem tók við af
Mickie.
Tónleikar
í Borgarnesi
Tónlistarfélagið í Borgarnesi
efnir til tónleika í kirkjunni n.k.
laugardag kl. 3 síðdegis. Tveir
ungir menn, sem á þessu vori ljúka
einleikaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík, leika á fiðlu og
píanó, en það eru þeir Þorsteinn
Gauti Sigurðsson píanóleikari og
Þórhallur Birgisson fiðluleikari.
Báðir hafa þeir leikið einleik með
Sinfóníuhljómsveit Islands í vetur
og var það hluti burtfararprófs
þeirra. Þorsteinn Gauti lauk ein-
leikaraprófi sínu í desember s.l.
með tónleikum í Austurbæjarbíói,
en Þórhallur lýkur einleikaraprófi
sínu með tónleikum á sama stað á
þriðjudaginn kemur, þ. 3. apríl.
Nýlega héldu þeir félagar tón-
leika á ísafirði á vegum mennta-
skólans þar og í janúar s.l. komu
þeir fram á íslenskri viku í Málm-
ey í Svíþjóð. Báðir halda þeir til
Bandaríkjanna til framhaldsnáms.
Á efnisskránni verða verk eftir
Hándel, Mozart, Lizt, Jón Nordal,
Ysýe og Debussy.
nordITIende
LIT AS JON VORPIN
mæla
með sér sjálf
serstök vildarkjör
35% út
og restin á 6 mán.
BUÐIN
-- /
Skipholti 19, simi 2980