Morgunblaðið - 29.03.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
21
.
Myndir: Emilía Björnsdóttir
Rannsóknastofnunin hefur rannsakað margar tegundir byggingar-
efna, svo sem kítti og þéttiefni til glerjunar, og hefur komið í Ijós að
efnin eru mjög misjafnlega hentug fyrir íslenskar aðstæður. Hér er
Jón Sigurðsson deildarstjóri við vegg með sýnishornum og
upplýsingum um þessa hluti.
8. Kostnaðarrannsóknir.
9. Þjónusturannsóknir
á framantöldum sviðum.
10. Upplýsinga- og
fræðslustarfsemi.
11. Stjórnun,
skrifstofa og fleira.
Núna vinna hjá stofnuninni 30
manns, 10 sérfræðingar og 20
starfsmenn aðrir. Fjármögnun til
stofnunarinnar á árinu 1978 var
um 184 milljónir króna, og skiptist
sú upphæð þannig, að um einn
þriðji var framlag af fjárlögum
ríkisins, einn þriðji var eigin
tekjur, og einn þriðji voru lögboðin
gjöld af sementi og fleiru.
A blaðamannafundinum kom
fram, að forsvarsmenn stofnunar-
innar telja sig vera á réttri leið, og
að stofnuninni sé sífellt að vaxa
fiskur um hrygg, og áhrif hennar
að aukast.
„Úttektarverkefni á vegum
Rannsóknastofnunarinnar, eins og
til dæmis ástandskönnun einangr-
unarglers, steypuskemmdir og
þaklekar hafa glögglega leitt í ljós
að erlendar hönnunarforsendur og
útfærslur gilda sjaldnast á íslandi
og því er það mjög brýnt að hlutur
sjálfstæðra rannsókna aukist
verulega og þar með einnig útgáfu-
og upplýsingastarfsemi," sagði
Hákon Olafsson yfirverkfræðing-
ur.
rannsökuð gæði hráefnanna, fylli-
efni og sements, og æskileg blönd-
unarhlutföll ákvörðuð. í öðru lagi
er um að ræða gæðaeftirlit á
byggingarstað. Starfsmaður stofn-
unarinnar mælir þá þjálni og
loftinnihald steypunnar og steypir
sívalninga til styrkleikaákvörðun-
ar. Þriðji þáttur þjónusturann-
sókna á þessu sviði er rannsókn á
steyptum mannvirkjum; oft í sam-
bandi við galla eða skemmdir sem
komið hafa fram.
Að sögn forsvarsmanna stofn-
unarinnar þyrfti því að stórauka
sjálfstæðar rannsóknir á þessu
sviði vegna þeirra gífurlegu verð-
mæta sem í húfi eru.
Húsbyggingartækni
Gott dæmi um þjónusturann-
sóknir á þessu sviði sem nefna má
eru styrkleikamælingar á bygg-
ingaefnum, einkum steinsteypu,
þéttleikamælingar á gluggum,
samskeytum veggja, mælingar á
gildi einangrunarefna ýmiskonar
og margt fleira.
Þá hefur einnig verið unnið að
margvíslegum sjálfstæðum rann-
sóknum, svo sem við ísetningarað-
ferðir einangrunarglers, þakgalla,
mótatækni, endingarþol utanhúss-
málningar og fleira.
Fræðslu- og
útgáfustarfsemi
Um allmikla útgáfu- og fræðslu-
Hér er verið að rannsaka sand af Mýrdalssandi, með hugsanlegan
útfiutning til Þýskalands í huga, en þar yrði hann notaður í
léttsteypu.
Steinsteypu-
rannsóknir
Á blaðamannafundinum kom
fram, að veigamikill þáttur í allri
starfsemi stofnunarinnar eru
rannsóknir á steinsteypu. Fram á
síðari ár hafa margir talið að
steinsteypa væri eitthvert undra-
efni, sem entist endalaust án tillits
til framleiðsluhátta eða meðferð-
ar. Á síðari árum hafa augu
manna þó opnast fyrir því, að
steinsteypan sé í rauninni mjög
viðkvæm framleiðsluvara og að
gæði hennar og ending eru háð
fjölmörgum samverkandi þáttum.
Þjónusturannsóknir Rann-
sóknastofnunarinnar á þessu sviði
eru þríþættar. í fyrsta lagi eru
starfsemi er að ræða á vegum
Rannsóknastofnunarinnar, og eru
hinar ýmsar niðurstöður gefnar út
með tvennskonar hætti, í sérritum
og Rb-blöðum. Síðarnefnda formið
hefur inni að halda gagnlegar
upplýsingar um einstaka þætti, en
sérritin eru með einstaka mála-
flokka sem gerð eru fyllri skil. Öll
útgáfustarfsemi hefur verið að
aukast hin síðari ár.
Þá gengst stofnunin einnig fyrir
margvíslegri fræðslustarfsemi,
svo sem almennri ráðgjöf fyrir
ýmsa aðila um tæknileg málefni,
námskeiðum fyrir ýmsa skóla, svo
sem Háskóla Islands, Meistara-
skóla íslands og Tækniskóla ís-
lands.
Þennan bíl má sjá á götum Hafnarfjarðar, en hann er af Corvair-gerð, þ.e. yfirbyggingin. en fróðir
menn telja að grind hans sé af jeppaætt.
Nýr bíll
GM
kynntur
19. apríl
GENERAL Motors mun í næsta
mánuði kynna nýjan bfl og í
frétt frá Véladeild Sambandsins
segir, að hér sé kominn bfll
níunda áratugarins með ýmsum
tækninýiungum og breytingum.
Bjarni Olafsson forstöðumaður
bifreiðadeildar SÍS sagði, að
mikil leynd hefði hvflt yfir
hinum nýja bfl og yrði hann
kynntur samdægurs um allan
heim hinn 19. aprfl n.k.
Bjarni Ólafsson kvað hinn
nýja bíl vera fremur sparneytinn
og eyða væntanlega 8—10 1 á
hundraðið, vera með 4—6
strokka vél, framhjóladrifinn og
sjálfskiptan. Verðið hvað hann
vera milli 4,5 til 5,5 m. kr. eftir
búnaði og mætti fá hann sæmi-
lega vel útbúinn fyrir um 5 m. kr.
í frétt frá Bifreiðadeild Sam-
bandsins segir m.a. svo um hinn
nýja bíl, en hann gengur undir
nafninu „X-bíllinn“ meðal um-
boðsmanna GM:
„X-bílarnir“, eins og General
Toyota Celica GT. nýr á markaðinum.
Toyota dregur
saman seglin
Toyota Motor, risa-
fyrirtækið japanska,
hefur tilkynnt að það
muni á þessu ári draga
nokkuð úr framleiðslu
sinni á Toyoía-bílum
vegna minnkandi
útflutnings.
Fyrirtækið hefur í
hyggju að minnka fram-
leiðsluna um a.m.k. 10%
fyrstu sex mánuði þessa
árs eða um 140 þúsund
bíla.
Það sem helzt hefur
valdið minnkandi útflutn-
ingi bíla fyrirtækisins er
hin slæma staða dollars
gagnvart jeninu. Salan til
Bandaríkjanna minnkaði
á síðasta ári um 25%. Þá
hefur útflutningur fyrir-
tækisins til Irans og
Saudi-Arabíu minnkað
verulega.
Bílar
umsjon
JÓHANNES TÓMAS-
SON og SIGHVAT-
UR BLÖNDAL
Motors kýs að nefna þá í hópi
umboðsmanna sinna, verða af
fjórum gerðum: Chevrolet,
Pontiac, Oldsmobile og Buick.
Þeir verða með nýjum aflbúnaði,
þ. á m- þverlægri V6 eða
4- strokka vél og framhjóladrifi.
X-bílarnir verða með ferns
konar byggingu: 3ja-dyra og
5- dyra „hatchback" með
„notchback", en Chevrolet og
Pontiac bæði með „hatchback“ og
„notchback".
Hjólabil á öllum gerðum verð-
ur 2,66 m. Ef Chevrolet er tekinn
sem dæmi, verður heildarlengd
4,49 m og mesta breidd 1,74 m.
Að utan verður hann sambæri-
legur að stærð við meðalstóra
Evrópubíla, en rýmið verður
meira en í stærri fyrirrennurum
hans.
AM „jeppar” fram-
leiddir í Kína?
Fulltrúar American
Motors (AM), bílafram-
leiðendanna bandarísku.
voru nýverið á ferð í
Kína til að kanna grund-
völl fyrir því að fyrir:
tækið framleiði „jeppa“ í
Kína.
AM hefur aðallega
áhuga á að framleiða hinn
hefðbundna CJ-5 jeppa
(arftaka gamla
Willys-jeppans til
notkunar við landbúnað
og iðnað í Kína, en Kín-
verjar hafa þegar lýst
fullum áhuga á því að
kaupa töluvert af þessum
bílum frá AM í framtíð-
inni.