Morgunblaðið - 29.03.1979, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Sovézk herskip
í Cam Ranh-flóa
Washington, 28. marz. AP.
SOVÉZK herskip haía í fyrsta skipti varpað akkerum í Cam Ranhflóa,
hinni miklu flotastöð sem Bandaríkjamenn reistu á strönd Víetnams,
samkvæmt heimildum í' handariska landvarnaráðuneytinu í dag.
Þetta eru eidflaugabeitiskip, eldflaugafreigáta og tundurduflaslæð-
ari og heimsókn þeirra gæti markað upphaf afnota Rússa af þessari
geysistóru og kostnaðarsömu flotastöð þótt heimildirnar segi að enn
bendi ekkert til þess að svo sé.
Þó er haft eftir heimildunum að
afnot af slíkri flotastöð yrði mikill
ávinningur fyrir Rússa vegna
hernaðarlega mikilvægrar legu
hennar við Suður-Kínahaf.
Kyrrahafsfloti Sovétríkjanna
hefur nú aðeins eina meiriháttar
bækistöð, í Vladivostok á strönd
Síberíu.
Ellefu rússnesk herskip, njósna-
skip og aðstoðarskip hafa verið á
siglingu undan ströndum Víet-
nams í margar vikur.
AP og UPI opna í Peking
FVkinií, 28. marx. AP.
BANDARÍSKU fréttastofurnar
AP og UPI tóku til starfa í
Peking í dag en sl. þrjátíu ár hafa
fréttastofurnar ekki starfað þar
samfellt.
Enn skortir á að nauðsynleg
tæki séu komin og frambúðarhús-
næði hefur ekki fengist enn, svo að
til að byrja með eru fréttastofurn-
ar til húsa í gistihúsi við Changan,
eina helstu umferðagötu í Peking.
Tveir fréttamenn verða á hvorri
fréttastofcu til að byrja með.
AP og UPI hættu starfi í Kína
árið 1949 eftir valdatöku kommún-
ista en frá 1971 hafa þær gert skil
á meiri háttar atburðum í Kína en
bó óreglulega.
Nýr forsætisráð-
herra í Afganistan
Islamabad Pakistan 28. marz AF’ — Reuter
AÐSTOÐARFORSÆTISRÁÐHERRA Afganistan og utanríkisráð-
herra landsins nú uní hríð, Hafeezullah Amon, hefur verið skipaður
forsætisráðherra landsins að því er hermdi í Pakistan-útvarpi í kvöld
og var það haft eftir útvarpinu í Kabul. Nur Mohammed Taraki verður
áfram forseti landsins en hann hefur gegnt báðum þessum embættum
síðan herinn hrifsaði völdin í apríl 1978.
Afganistanstjórn nýtur
stuðnings Sovétríkjanna eins og
alkunna er. Sagt er, að hinn nýi
forsætisráðherra sé enn meiri
hollvinur valdamanna í
Sovétríkjunum og hallari undir
hugmyndir þeirra en Tarak.
Fréttaskýrendur telja að þessi
valddreifing sé vísbending um
ókyrrð innan stjórnarinnar og
einnig sýni ýmislegt að ólga í
landinu hafi magnast mjög í nær
helmingi af 28 fylkjum landsins.
Fjórir aðstoða við
Carter-könnunina
Washington. 28. marz. AP.
ÞRÍR lögfræðingar og gjaldkeri
hafa verið ráðnir til starfa við
rannsóknina á hnetufyrirtæki
f jölskyldu Jimmy Carters forseta.
Þrír þeirra fjögurra sem lög-
fræðingurinn Paul J. Curran
valdi til þess að hjálpa honum við
rannsóknina hafa starfað fyrir
hann áður.
„Ég vildi fá fólk sem hefur unnið
fyrir mig áður og ég hef mikið álit
á vegna hæfileika þess“, sagði
hann.
Curran ítrekaði þá skoðun sína
að hann hefði nógu mikil völd til
að stjórna sjálfstæðri rannsókn.
„Ég óttast ekki að verða rekinn",
sagði hann.
Karen
Ann
25ára
Morris PÍains, New Jersey
28. marz AP
KAREN ANN Quinlan verður
25 ára gömul á morgun,
fimmtudag, og verður afmælis-
ins minnzt með því að bæna-
stund verður í sjúkraherbergi
stúlkunnar, en hún hefur legið
í dái í f jögur ár.
Mál stúlkunnar vakti geysi-
lega athygli fyrir fáeinum árum,
þegar úrskurður var kveðinn
upp um að taka skyldi úr sam-
bandi öndunarvél sem talin var
nauðsynleg til að hún héldi lífi.
Hún hafði þá legið í dái í á
annað ár og lífslíkur hennar,
hvað þá batahorfur, voru engar.
Það þótti síðan undravert að
stúlkan lifði áfram eftir að vélin
var aftengd.
Stúlkan fær daglega pensílín-
sprautur og matur er henni
gefinn um slöngu sem leidd er
um nefið.
Eins og fram kom á sínum
tíma í fréttum hafði Karen Ann
neytt lyfja og áfengis og olli það
ástandi hennar.
Vopnaður byltingarmaður á verðl við egypzka sendiráðið i Teheran
sem arabískir stúdentar lögðu undir sig til að mótmæla friðarsamn-
ingi ísraelsmanna og Egypta.
Portúgal:
Stjóm-
insitur
áfram
Lissabon, 28. marz. AP.
ANTONIO Ramalho Eanes for-
seti neitaði í gær að fallast á
lausnarbeiðni utanflokkastjórn-
ar Carlos Mota Pintos forsætis-
ráðherra, sem beið ósigur á þingi
í fyrri viku við atkvæðagreiðslu
um ný fjárlög og efnahagsáætlun
hennar. Hefur forsætisráðherr-
ann lýst því yfir að ríkisstjórnin
muni gera smávægilegar breyt-
ingar á fjárlagafrumvarpinu og
efnahagsáætluninni til að freista
þess að ná samstöðu á þingi.
Að loknum fundi með Eanes
forseta í gær skýrði Mota Pinto
frá ákvörðun forsetans, og sagði
að nýja stjórnarfrumvarpið yrði
lagt fyrir þingið innan tilskilinna
þriggja mánaða.
Umdeildast í fjárlagafrumvarpi
stjórnarinnar var tillaga um að
skattleggja eftirlaun og hálfar
samningsbundnar aukagreiðslur
til launþega í jólamánuðinum til
að mæta auknum ríkisútgjöldum
og halda verðbólgu niðri.
Saudi-Arabía held-
ur olíuverðinu niðri
VínarborK, 28. marz. AP.
AHMED Zaki Yamani olíumálaráðherra Saudi-Arabíu lýsti því yfir í Vínarborg í dag að stefna
Saudi-Arabíu væri sú að leggja ekki aukaskatt á útflutta olíu þótt heimild til þess hafi verið samþykkt á
tveggja daga fundi fulltrúa olíu-útflutningsríkja. OPEC. sem lauk í Genf á þriðjudag.
Þrettán aðildarríki OPEC áttu fulltrúa á Genfarfundinum. og þar var samþykkt að hækka olíuverð
aimennt um 9% frá næsta sunnudegi að telja. Auk þess er rikjunum heimilt að leggja aukagjald á olíuna
vegna mikillar eftirspurnar, sem stafar ekki hvað sízt af ástandinu í íran. Vantar nú um tvær milljónir
oliufata á dag til að framleiðslan anni eftirspurn.
Sum OPEC-ríkjanna hafa þegar
ákveðið 1,20 dollara aukagjald í
hvert olíufat, en fast lágmarksverð
var ákveðið 14,54 dollarar. Þrjú
olíuríki í Afríku, sem fá mjög
hreina olíu úr lindum sínum, hafa
í hyggju að hækka verðið um fjóra
dollara á tunnu, og má þar til
dæmis nefna olíu frá Alsír, sem
nefnist „Sahara blanda", en verð á
henni hækkar upp í 18,50 dollara
tunnan.
Við komuna til Vínarborgar, þar
sem hann ræðir við Bruno Kreisky
kanslara og tekur við heiðursdokt-
orsnafnbót, sagði Yamani að fund-
urinn í Genf hafi verið „mjög
erfiður". Við lá að viðræðurnar
sigldu i strand, en á síðustu stundu
tókst að ná samkomulagi. Að-
spurður hvort Saudi-Arabía hafi
átt mikinn þátt í samkomulaginu,
svaraði Yamani: „Þótt ég segi
sjálfur frá þá er ljóst að án áhrifa
Saudi-Arabíu hefði olíuverðið far-
ið upp í 17,50 dollara á tunnu.“
Álitið er að ákvörðun
Saudi-Arabíu um að leggja ekki
aukagjald á olíu sína geti orðið til
þess að halda verðinu niðri annars
staðar. Þá hafa Iranir einnig
ákveðið að auka framleiðslu sína
um 1,5 millj. tunna á dag á
næstunni, og kæmi sú aukning sér
vel til að brúa bilið milli fram-
leiðslu og eftirspurnar.
Enn er barizt í
nordaustur íran
24 milljónir á kjörskrá við kosningarnar á morgun
Teheran. 28. marz. AP. Reuter.
BARDAGAR héldu áfram í Gonbad-e-Qabous í norðaustur íran í dag milli uppreisnarmanna af
Turkomanættflokknum og hermanna sem styðja ríkisstjórnina 1' Teheran, þrátt fyrir að vopnahlé hefði að
nafninu til verið komið á. Götubardagar í borginni stóðu fram í myrkur og óbreyttir borgarar, konur og börn
læstu sig inni í húsum sínum til að forða sér. Fyrr hafði sagt í fréttum að vopnahléið væri haldið því að
samkomulag hefði náðst við Turkomanmenn.
Ekki er vitað hvað varð til þess að
átökin brutust út á ný, en nú er
liðsauki á leiðinni til þorgarinnar.
Vitað er að þrjátíu manns eru látnir
og tugir manna hafa særzt. Sagt er
að Fedayenskæruliðar sem eru all-
öflugir styðji Turkomana. Þeir eru
eins og Kúrdar Sunni-Múhammeðs-
trúarmenn en meirihluti írana ját-
ar hins vegar Shita-Múhammeðstrú
svo sem kunnugt er.
Talsmaður Bazargan-stjórnar-
innar sagði í dag að 24 milljónir
manna væru á kjörskrá í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni, sem fer fram á
morgun, föstudag, um hvort stofna
eigi íslamskt lýðveldi í íran. Er
þetta um 5 millj. fleiri en fyrr hafði
verið vegna þess að nýja stjórnin
ákvað fyrir fáeinum dögum að þeir
sem væru 16 ára og eldri mættu
kjósa. Á valdatíma keisara máttu
þeir sem voru 20 ára og eldri kjósa
til neðri deildar þingsins og 25 ára
og eidri til öldungadeildarinnar.
Nokkur samtök og hópar sem
andsnúin eru Khomeini og hug-
myndum hans hafa hvatt til þess að
fólk hundsi kosningarnar, en frétta-
skýrendur telja að mjög mikið kapp
verði lagt á að sem flestir greiði
atkvæði og kunni að verða gripið til
hefndaraðgerða á hendur þeim sem
ætla a láta það hjá líða.