Morgunblaðið - 29.03.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
23
Olíuverðið hækk-
ar flugfargjöldin
l.gbL Jii
n i pi?DDp
Gení. 28. marz. Reuter.
í DAG hófst í Genf tveggja
daga ráðstefna Alþjóða-
samtaka flugfélaga. IATA,
og er aðal umræðuefnið
áhrif olíuhækkunar á
rekstur félaganna. Strax á
fundinum í dag kom í ljós
að allflest félögin eru á því
að fargjalda- og farm-
gjaldahækkun sé nauðsyn-
leg til að mæta þessum
Miðlungsbófar
í Japan með
þingmannslaun
Tókýó 28. marz Reuter
MIÐLUNGSBÓFI í Japan
vinnur sér inn ámóta mikið fé
árlega og þingmaður og þeir
sem slyngari eru nálgast
tvöföld þingmannalaun. að því
er talsmaður japönsku lög-
reglunnar sagði í dag. Kannað
hefur verið hvað bófar hefðu
upp úr krafsinu og er niður-
staðan sú, að þeir, sem fást
einkum við fjárkúgun. hafa
sem svarar um 9.8 milljón jen á
ári eða samsvarandi góðum
fimmtán milljónum ísl. króna.
Er það svipað og þingmenn þar
í landi fá í laun.
Hins vegar geta bófar í undir-
heimum Japans sem fást við
meiriháttar afbrot með góðum
árangri haft allt upp í 20 milljón
jen eða yfir þrjátíu millj. ísl.
króna.
Könnunin gerði ráð fyrir að í
Japan væru um 2500 glæpa- eða
bófasamtök með um 108 þús.
félaga innan vébanda sinna.
Bófasamtökin velta um eitt
þúsund milljörðum jena á ári en
það er um það bil helmingur af
veltu fyrirtækis á borð við
Toyota.
auknu útgjöldum. Hins
vegar er ekki samkomulag
um hve mikil hækkunin
verði, né heldur á hvaða
flugleiðum hækka beri
gjöldin.
Viðræður fara fram á lokuðum
funduln, og er ekki búizt við
neinni yfirlýsingu fyrr en á föstu-
dag, að sögn talsmanns IATA.
Verð á þotu-eldsneyti hefur
hækkað mjög víðast hvar undan-
farna mánuði. I árslok í fyrra var
verðið yfirleitt 48 bandarisk sent
gallonið (3,785 lítrar), en er nú
sums staðar komið upp fyrir einn
dollar. Bandaríska flugfélagið
TWA hefur þegar tilkynnt -7%
aukagjald á flugleiðinni yfir Norð-
ur-Atlantshafið, en ekki er Ijóst
hvað önnur félög gera. Enginn
IATA-samningur hefur verið um
fargjöld á þeirri leið frá árinu
1977.
Wa.shinKton 28. marz. AP.
ANWAR Sadat sagði í dag. að
hann hefði vísað á bug tillögu
sem komið hefði frá Sovétmönn-
um árið 1972 um að hann hitti
þáverandi forsætisráðherra ísra-
els. Goldu Meir. til að ræða um
friðarsamning milli ríkjanna.
Sadat sagði ísraelskum frétta-
mönnum, að lagt hefði verið til að
þau hittust í Tashkent í Sovétríkj-
unum, en vegna þess að friðarskil-
málar Goldu Meir hefðu áreiðan-
lega grundvallast á sigri Israela í
stríðinu 1967, hefði hann engan
tilgang séð með þessum fundi.
Sadat bætti við: „Nú gagnrýna
Sovétmenn mig. En mér þætti
fróðlegt að vita hvort- þeir hefðu
gagnrýnt mig hefði ég fallizt á
tillögu þeirra."
Þetta gerðist
1973 — Síðustu bandarísku
hermennirnir fara frá Víetnam
og beinni hernaðaríhlutun
Bandaríkjamanna lýkur.
1971 — Bandaríski liðsforing-
inn William Calley fundinn sek-
ur um fjöldamorðin í My Lai.
1970 — Um 1.000 farast í jarð-
skjálfta í Tyrklandi.
1967 — Fyrsta franska kjarn-
orkukafbátnum hleypt af
stokkunum.
1961 — Landráðaréttarhöldunur
í Suður-Afríku lýkur.
1951 — Bandaríkjamenn ljúka
við að semja friðarsamning við
Japani.
1946 — Gullströndin fær
stjórnarskrá og meirihluta-
stjórn blökkumanna fær völdin í
brezkri nýlendu í fyrsta sinn.
1939 — Borgarastríðinu á Spáni
lýkur.
1971 - Royal Albert Hall í
London opinberlega opnað.
1867 — Kanada verður sam-
veldisríki. ✓
1864 — Bretar láta íónaeyjar af
hendi við Grikki.
1801 — Hald lagt á brezk skip í
dönskum höfnum — Danskt
herlið tekur Hamborg og reynir
að ná yfirráðum yfir Saxelfi.
Bretar taka danskar og sænskar
eyjar í Vestur-Indíum.
1461 — Orrustan um Towton.
Afmæli: Nicolas Soult,
franskur hermaður (1769—1851)
— John Tyler, bandarískur for-
seti (1790—1862) — Sir Bartle
Frere, enskur nýlenduvaldhafi
(1815—1884) — William Walton,
brezkt tónskáld (1902----) —
Pearl Bailey, bandarískur
skemmtikraftur (1918-----).
Dýrum lógað
í Frakklandi
Paría 28. marz — Reuter
FÁGÆT tegund gin- og klaufa-
veiki hefur skotið upp kollinum í
nautgripum í 10 sveitum nálægt
Bayeux í Calvados-héraði í
Norð-vestur-Frakklandi, en yfir-
völd telja sig hafa náð stjórn á
ástandinu. Um 1150 gripum hefur
verið lógað og svín, fé og geitur á
nærliggjandi svæðum bólusett.
%
^ y
Frá Maine Yankee kjarnorkuverinu í Wiscassett. einu nokkurra
kjarnorkuvera sem var lokað af öryggisástæðum.
N eyðarástand í
kjarnorkuveri
Harrisburg. Pennsylvaníu. 28. marz. Reuter. AP.
NEYÐARÁSTANDI var lýst yfir í dag í kjarnorkuveri vegna leka í
kjarnaofni sem sér borginni Harrisburg. Pennsylvaníu. fyrir orku.
Orkuverið er á Three Mile Island. eyju 16 km suðaustur af Harrisburg.
og flytja varð starfsfólkið burtu vegna geislunar sem stafaði frá lekanum.
Embættismenn segja að lekanum hafi valdið einhver bilun í öðrum af
tveimur kjarnaofnum orkuversins. en lögðu áherzlu á að engum utan
orkuversins stafaði hætta frá þessu og að íbúar nærliggjandi svæða hefðu
ekki verið fluttir burtu.
Bilunin varð í kælikerfinu og
„veruleg“ geislun mun hafa orðið
þegar loki losnaði á vatnsdælu á
gufuaflvél. Enn er ekki vitað hvort
einhvern þeirra, sem Voru í orku-
verinu, sakaði, eða hve margir voru
fluttir burtu.
Hins vegar er sagt að tekizt hafi
að ráða við ástandið. Um 500 manns
vinna í orkuverinu.
Hárrisburg (íb: 68.000) er 160 km
vestur af Fíladelfíu og Three Miles
Island er á ánni Susquehanna. Orku-
verið var tekið í notkun um mitt ár í
fyrra. í Harrisburg starfar
Coldwater Seafood Co, sem er eign
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.
Fyrir hálfum mánuði var fyrir-
skipað að loka skyldi fimm kjarn- •
orkuverum á austurströndinni í
óákveðinn tíma þar sem þau stæðust
ekki jarðskjálfta. Tölva hafði verið
mötuð á röngum upplýsingum setn
voru notaðar við smíði tveggja orku-
vera í Virginíu, eins og í Pennsyl-
vaníu, eins í New York og eins í
Maine.
Rússinn sprengdi
sig í loft upp
Golda Meir og Sadat þegar þau hittust í Jerúsalem í nóvember 1977.
Sadat vildi ekki hitta Goldu
Moskvu. 28. marz. AP.
UNGUR rússneskur sjómaður sem
réðst inn í bandaríska sendiráðið í
Moskvu í dag og hótaði að
sprengja sig í loft upp ef hann
fengi ekki hæli þar og yrði sendur
úr landi. gerði alvöru úr hótun
sinni seint í kvöld. Hann sagðist
vera með sprengju bundna um sig
og þegar sovézkir lögreglumenn
réðust inn í herbergi það sem
maðurinn hafði lokað sig inn í.
virðist hann hafa dregið sprengju-
þráðinn. Sendiherra Bandaríkj-
anna sagði að maðurinn hefði
verið ægilega brunninn, en með
iífsmarki cr hann var fluttur á
sjúkrahús.
Bandarískir landgönguliðar eru á
Andlát: Emmanuel Sweden-
borg, vísindamaður, 1772 —
Gústaf III Svíakonungur, 1792
— Jovce Carey, rithöfundur,
1957.
Innient: Heklugos hefst
1947— Jón Eiríksson sviptir sig
lífi 1787 — Reimleikar valda
flótta úr búðum verkamanna á
Stokkseyri 1892 — Dyngjufjalls-
gos magnast 1875 — Fjórir
stúdentar frá MA farast með
Cessna-flugvél á leið til Akur-
eyrar 1958 — d. Einar Arnórs-
son ráðherra 1958.
Orð dagsins: Það þarf enga
smáræðis hæfileika til að vera
hundleiðinlegur — Walter Scott,
skozkur rithöfundur (1771 —
1832).
verði við norðurinnganginn til að
bægja burtu gestum.
Bandarískir embættismenn settu
sig í samband við sovézka utanrík-
isráðuneytið og sovézkir embættis-
menn og lögreglumenn komu á
vettvang til þess að verða til
aðstoðar. Starfsmenn sendiráðsins
könnuðust ekki við Rússann og
þetta mun vera fyrsta heimsókn
hans þangað.
Sendiráðsmaður hitti Rússann
fyrir utan sendiráðið og fylgdi
honum inn á ræðismannsskrifstof-
una, bersýnilega vegna þess að
hann hafði pantað tíma.
Hann bað um að fá að tala við
sendiráðsmann sem gæti útvegað
honum pappíra til þess að komast
til Bandaríkjanna. Eftir nokkurra
mínútna samtal hrópaði hann, að
hann hefði sprengju innan á sér og
mundi setja hana í gang ef hann
fengi ekki vissu fyrir því að hann
fengi að flytjast úr landi.
Hann opnaði vasa og sýndi sendi-
Byltingum
hótað í Súd-
an og Oman
Kuwait, 28. marz. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Sýr
lands. Abdul Halim Khaddam. hót-
aði í dag aðgerðum af hálfu Araba
til að steypa ríkisstjórnum soldáns-
ins í Oman og forsetans í Súdan.
Gaafar Nimeiri. vegna stuðnings
fieirra við sérfrið Egypta og
sraelsmanna.
Ráðherrann sagði i blaðaviðtali
að Arabar mundu ekki gleyma
stuðningi soldánsins og forsetans við
friðarsamning Sadats við ísrael og
kollvarpa þeim. Hann sagði að þeir
yrðu hundeltir og að byltingarof-
beldi af öllu tagi yrði beitt gegn
þeim.
ráðsmönnunum gráan pakka sem
hann sagði að sprengjan væri í.
Sendiráðsmenn minnast þess
ekki að nokkuð þessu líkt hafi gerzt
í sögu sendiráðsins. „Þetta er ein-
stætt," sagði einn þeirra.
Veður
víða
um heim
Akureyri -4 léttskj.
Amsterdam 6 rigning
Apena 21 skýjaó
Berlín 16 skýjaó
BrUssel 8 rigning
Chicago 2 rigning
Frankfurt 10 rigning
Genf 4 rigning
Helsinki 2 skýjað
Hong Kong 21 skýjað
Jerúsalem 16 sól
Jóhannesarb. 26 bjart
Kaupm.höfn 7 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 16 skýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 16 rigning
Madrid 13 skýjað
Majorka 17 lóttskj.
Malaga 16 skýjað
Miami 22 bjart
Montreal S skýjað
Moskva 5 skýjað
Nýja Delhi 31 bjart
New York 15 bjart
Ósló 3 rigning
París 12 sól
Reykjavík -2 heiðskfrt
Rómaborg 16 skýjað
San Francisco 15 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjaö
Tel Aviv 22 sól
Tókíó 18 bjart
Toronto 0 sól
Vancouver 11 skýjað
Vínarborg 10 skýjað