Morgunblaðið - 29.03.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Ríkissjóður á ekki að vera prívatbanki ráðherra:
Horfi ekki upp á minn flokk
verða að framsóknarflokki
— sagði Vilmundur Gylfason i harðri gagnrýni á
nýjar bílareglur vinstri stjórnar ráðherranna
Lúðvík Jósepsson (Abl) mælti í gær fyrir nefndaráliti til stuðnings stjórnarfrumvarpi, sem felur í sér, að
ráðherrar njóti ekki sérstakra tollfríðinda varðandi bifreiðakaup. Þcss í stað munu ráðherrar annað
tveggja fá til umráða ríkisbifreið. er ríkið leggur þeim til, eða að þeir leggi ráðuneyti til bifreið, eins og það
er kallað. sem ráðuneytið borgar allan rekstrarkostnað af, auk 10% fyrningar af kostnaðarverði. Auk þess
fá ráðherrar. ef hinn síðari kostur er valinn, kr. 3.000.000 - lán úr ríkissjóði til bifreiðakaupanna á
venjulegum vöxtum. Þetta síðara fyrirkomulag deildi Vilmundur Gylfason mjög hart á í ræðu, sem hér á
eftir verður efnislega rakin.
Hin siðvilltu
forréttindi
Vilmundur Gylfason (A) sagði
m.a., að þegar núv. ríkisstjórn
kunngjörði markmið sín hefði verið
hátíðlega lofað að afnema siðvillt
forréttindi eins og sérstök hiunn:
indi ráðherra í bifreiðakaupum. — I
framhaldi af þeim yfirlýsingum
hefði verið kynnt frumvarp, sem
mælst hefði vel fyrir, og hér væri til
umræðu. Þar hefði verið lagt til að
felid yrðu niður tollfríðindi ráð-
herra í bifreiðakaupum. Þetta hefði
verið sú hliðin á málinu, sem ætlað
hefði verið að snúa út í þjóðfélagið,
að almenningi.
Fyrir sérstaka tilviljun hefði
borizt á borð nefndarmanna í fjár-
hags- og viðskiptanefnd stjórnar-
plagg, sem embættismaður hefði
kynnt. Þetta plagg virtist hafa verið
samþykkt í ríkisstjórn 9. marz sl.
Þar væri gert ráð fyrir tvíþættri
leið í bílamálum ráðherra. Annars
vegar þeirri leið, sem almenningi
hefði verið kunngerð með umræddu
frumvarpi. Hins vegar annarri leið.
Þeirri, að ríkið semdi við ráðherra
um einkaafnot af bifreiðum þeirra,
greiddi allan rekstrarkostnað og að
auki „fyrningarfé", 10% á ári, er
reiknaðist af endurkaupsverði við-
komandi bifreiðar. En ekki væri þar
rpeð allt talið. Ráðherra, sem kaupir
bifreið, á kost á láni úr sameiginleg-
um sjóði landsmanna, ríkissjóði,
allt að 3 m. kr. með eðlilegum
viðskiptakjörum, eins og það er
orðað.
Ilinir mórölsku
meistarar
Nú vil ég spyrja: eru þetta hin
almennu kjör, sem almenningur í
landinu býr við á verðbólgutímum,
að fá milljóna lán úr ríkissjóði til
bifreiðakaupa? Ef ríkissjóður er
slík lánastofnun, hverjar eru þá
lánareglur? Þetta er ein hlið á því
gALÞINGIl
Mm i— ■ n ■ 11
sukki, sem við í mínum flokki
vórum kjörnir til að berjast gegn.
Halda menn að 9 ráðherrar, sem að
þessu standa, leiðrétti bílasukkið í
bönkunum? Er það eðlilegt að ráð-
herrar með innanhússamþykkt
hæstv. ríkisstjórnar láni sér fé úr
ríkissjóði til bifreiðakaupa? Það er
engin furða þó að þeir vilji hafa
vextina lága og verðbólguna mikla.
Ég held, ef þeir vilja slíkar
prívatreglugerðir, að þeir geti geng-
Vilmundur Gylfason
Vilmundur Gylfason:
Skoöa má ályktunina
sem viðvörun til ráð-
herra Alþýðuflokks
Tómas Árnason, fjármálaráð-
herra, svaraði gagnrýni
Vilmundar Gylfasonar (A) á
nýjar bflareglur ráðherra, efnis-
lcga á þessa leið: Allir ráðherrar
vóru með fullri meðvitund, er frá
reglum þessum var gengið.
Enginn einn ráðherra hafði
frumkvæði öðrum fremur að
reglugerðinni. Hún var síður en
svo sett að frumkvæði Fram-
sóknarflokksins og ég tók sér-
staklega fram, að ég vildi ekki
hafa afskipti af henni. Reglu-
gerðin hvorki var né er
launungarmál, enda sá ég svo
um, að hún var send viðkomandi
þingnefnd.
Fyrri reglur um ráðherrabíla
vóru settar á áratugnum
1960—1970. Þá var Framsóknar-
flokkurinn ekki í ríkisstjórn.
Núverandi reglur eru tvíþættar: 1)
Ríkið leggur ráðherra til bifreið,
sem það á og rekur, og virðist ekki
ágreiningur um þá reglu. 2) Ráð-
herra leggur með starfi sínu bif-
reið, sem ríkið greiðir rekstrar-
kostnað af, auk 10% fyrningar af
endursöluverði. Ráðherra á kost á
3. m.kr. láni á venjulegum lána-
kjörum.
Ég hefi látið reikna það út fyrir
mig, hvor kosturinn er dýrari
fyrir ríkissjóð og raunin var sú, að
hin síðari leiðin var hagkvæmari.
Gerði ráðherra tölfræðilega grein
fyrir þeirri niðurstöðu, þar sem
miðað var við 6 mþkr. kostnaðar-
verð bifreiðar, eðlilegan rekstrar-
kostnað og afskriftir. Hann vísaði
til fjárlaga og þar samþykktra
fjárveitinga, sem nægilegar
heimildar fyrir þeirri reglugerð,
sem hér um ræddi, og þeim
valkostum, er hún geymdi.
Er ráðherra hafði lokið svari
sínu frestaði forseti umræðu, og
tók fyrir frumvarp um fram-
kvæmdasjóð öryrkja (flm.
Jóhanna Sigurðardóttir.) Nokkrir
þingmenn vóru enn á mælenda-
skrá og var gert ráð fyrir fram-
haldsumræðu í gærkveldi um bíla-
mál ráðherra.
ið lengra og vil ég gefa þeim
nokkrar hugmyndir. Hvernig væri
að lána ráðherrum fé úr ríkissjóði á
viðráðanlegum kjörum til að gera
við hús þeirra? Eða til fatakaupa,
allt auðvitað á eðlilegum viðskipta-
kjörum.
Þessi innanhússsamþykkt hinna
mórölsku meistara er gjörsamlega
óþolandi. Mér kemur að vísu ekki á
óvart þó forystuflokkur ríkisstjórn-
arinnar, Framsóknarflokkurinn, og
framsóknarmennirnir fjórir,
samþykki svonalagað sér í hag. En
ég hélt að Svavar Gestsson og
Hjörleifur Guttormsson og mínir
þrír kratar samþykktu ekki reglu-
gerðir af þessu tagi.
(Hér var gripið fram í: Hver er
þessi fjórði framsóknarmaður?
Svar: Ragnar Arnalds, hæstv. ráð-
herra),
Það er nákvæmlega samþykkt af
þessu tagi, sem hefur á undanförn-
um árum dregið úr siðferðilegum
undirstöðum í ríkisstjórnum. Þetta,
sem verið er að pukra með fyrir
luktum dyrum — á sama tíma og
prentað er með stjórnarfrumvarpi:
„Ríkisstjórnin telur óeðlilegt að
ráðherrar fái bifreiðar er verða
einkaeign með öðrum kjörum en
almennt gilda í landinu."
Valdið spillir
Prívatbanken
Mínir menn í ríkisstjórn vóru
ekki kjörnir til slíkra verka. Svona
mál skipta máske Framsókn ekki
' miklu máli. En ég hélt, satt að
segja, að þriðji stjórnarflokkurinn,
sem hefur verið og verið ekki að
undanförnu, hefði aðra afstöðu. En
það er sagt að valdið spilli og mér
sýnist, að það sé hér að gerast.
Eins og allir vita er hæstv.
ríkisstjórn nú á förum utan. Það
kann að þurfa uppástungu, hvern
veg þeir þýða orðið ríkissjóður í
dönskum plöggum. Hvern veg væri
að nota orðið Privatbanken, því það
er það, sem þessi sjóður virðist
orðinn fyrir þessa menn. Hvar er
lagabókstafur fyrir því, að fara svo
að, að þykjast vera að kynna
þjóðinni umbótalöggjöf en fara svo
bakdyramegin leið, sem bætir
persónukjör. í aðaldyrum þykjast
þeir móralskir meistarar framan í
þjóðina. En í bakdyrum er farin
leið, sem er hálfu ósvífnari heldur
en gamla fyrirkomulagið, sem átti
að leiðrétta. Ef til eru það ekki
stórar upphæðir, sem hér koma við
sögu, er það er gjörðin sem skiptir
máli. Mér er sama þó kommarnir
detti í þennan pytt fyrri stjórnvalda
en ég ætla ekki að horfa upp á mína
menn á eftir þeim. Ég ætla ekki að
horfa upp á minn flokk verða að
Framsóknarflokki. Þingflokkur Al-
þýðufl. samþykkti þegar á mánudag
kröfu um að þessi síðari liður yrði
þurkaður út úr reglugerðinni. Það
er og tímabært að ryðja um reglum
um bílakaup í bönkum.
Með meðvitund
allan sólarhringinn
Ég vil vona að hér sé um mistök
að ræða. Auðvitað geta menn ekki
lesið alla pappíra, er á borð þeirra
berast. I önnum þeim, sem verið
hafa, og ástæða til að ætla, að
framsóknarmenn hafi platað þess-
ari reglugerð inn á samstarfsflokka.
Menn eru naumast með meðvitund
allan sólarhringinn. Ég get skilið
það, að mönnum verði á mistök, við
erfiðar kringumstæður, en þá á að
leiðrétta þau. Þessi reglugerð,
óbreytt, er lítilfjörleg og lítilmótleg.
Hún er fyrir neðan virðingu hæstv.
ríkisstjórnar.
Ég legg til að við gerum úttekt á
öllu bílasukki í ríkiskerfinu. Það eru
mannasiðir að hreinsa til heima hjá
sér áður en hreinsað er til annars
staðar. Síðan á að fara í Seðlabank-
ann og út í þjóðfélagið og hreinsa
upp þennan spillingarvott, sem
bílafríðindin eru. Ég hef ástæðu til
að ætla að það hafi orðið uppi fótur
og fit í ríkisstjórninni. Þeir hafa
meira og minna hlaupið til og
afpantað bílana, sem þeir vóru
búnir að panta, skv. reglunum. Og
ég hefi ástæðu til að ætla að
ríkisstjórnin skammist sín. Og
ríkisstjórn, sem skammast sín, er
betri en hin, sem ekki kann það.
Ef svo heldur hins vegar fram,
sem horfir, þá verður þingflokkur
Alþýðuflokksins að gera þá sam-
þykkt, að sennilega þurfi að fá
löggæzlumann til eftirlits á ríkis-
stjórnarfundum.
„Fjórði
framsóknar-
ráðherrann”
í SNARPRI ræðu Vilmundar
Gylfasonar á Alþingi í gær, er
hann deildi á nýjar reglur um
ráðherrabíla, sagði hann m.a.,
að það kæmi sér ekki á óvart þó
að fjórir framsóknarráðherrar
samþykktu slíkar sérhags-
munareglur, en hins vegar
kæmi sér á óvart að Hjörleifur
Guttormsson, Svavar Gestsson
og þrír Alþýðuflokksráðherrar
létu hafa sig til slíks.
Var þá kallað fram í: „Hver
er fjórði framsóknar-
maðurinn?"
Og svarið kom um hæl:
„Ragnar Arnalds, hæstvirtur
ráðherra."
Tómar Árnason, fjármálaráðherra:
Um tvo kosti að
velja varðandi
ráðherrabílana
ÁLYKTUNIN sem þingflokkur
Alþýðuflokksins gerði um bfla-
kaup ráðherra á fundi sínum
síðastliðinn mánudag er
svohljóðandi:
„Þingflokkur Alþýðuflokks-
ins fer þess á leit við ráðherra
flokksins, að þeir beiti sér fyrir
því að 2. töluliður reglugerðar
um bifreiðamál ráðherra frá 9.
marz 1979 verði felld niður.
Þingflokkurinn telur að aðal-
reglan eigi að vera sú að ríkið
eigi þær bifreiðar er ráðherrarn-
ir nota vegna starfa síns. — Sé
bifreið í eigu ráðherra notuð í
þágu ríkisins eigi sömu almennu
reglur að gilda fyrir afnot þeirra
og fylgt er við bifreiðar annarra
starfsmanna ríkisins".
Tillögu þessa mun Vilmundur
Gylfason hafa flutt í þingflokkn-
um og fengið samþykkta sem að
framan greinir, og því leitaði
Morgunblaðið til hans og spurði
um tilefni þessarar ályktunar.
Vilmundur sagði:
„Við vorum kosin hér til þess
að útrýma margháttaðri
misnotkun, smárri og stórri, sem
viðgengist hefur hér í kerfinu.
Ég geri ráð fyrir að þingflokk-
um, sem gerði þessa samþykkt,
þyki þessar nýju reglur ganga
þvert á það sem við eigum að
vinna að hér og þess vegna er
þessi samþykkt gerð. Að öðru
leyti vísa ég til ræðu minnar á
Alþingi um þetta mál“.
—Má líta á ályktun þessa sem
viðvörun til ráðherra Alþýðu-
flokksins?
„Já“.