Morgunblaðið - 29.03.1979, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
27
Sýningum
lokið í
New York á
„Herbergi
213”
Leikrit Jökuls Jakobssonar,
Herbergi 213, eða Mandolin-
kokteillinn, eins og það var
nefht í ensku þýðingunni, hef-
ur verið sýnt í New York
undanfarnar vikur og er sýn-
ingum nú nýlokið. Sýningarn-
ar voru á vegum „The Open
Space" tilraunaleikhússins í
Soho í New York, undir stjórn
leikstjórans Lad Brown.
Leikhússtjórinn, Jon Teta,
sagði m.a. um leikritið, að sér
hefði borist það í hendur fyrir
u.þ.b. þrem árum síðan og
hefði hann fengið mikinn
áhuga á að sýna það, þó að
ekki hafi orðið af sýningum
fyrr en nú. Sagði hann leikinn
bjóða upp á mjög frjálslega
meðferð og henta vel tilrauna-
leikhúsum, þó að frekar hefð-
bundin leið hefði verið valin í
þetta sinn. Lét hann í ljós þá
ósk um að fá tækifæri til að
kynnast öðrum verkum Jakobs
Cynthia Neer, Betsy Bell, George Dickerson og Maxine
Taylor-Morris í hlutverkum sínum í uppfærslu á „Herbergi 213“ í
New York.
og kæmi mjög til greina að
sýna fleiri í framtíðinni.
The Open Space leikhúsið er
eitt af u.þ.b. 60 svonefndu
Off-Off-Broadway leikhúsum í
New York, sem eru vel kunn
fyrir fjölbreytta leikstarfsemi.
Það nýtur styrks frá listáráði
New Yorkríkis og þau verk,
sem sýnd eru á þessu leikári
eru m.a. eftir Harold Pinter,
Gertrude Stein, Japanann
Mishima og spánskan höfund
að nafni Alphonso Vallego.
Einnig hefur Open Space leik-
húsið beitt sér fyrir leikhátíð
„Theater Experiments in Soho
Festival" undanfarin ár, sem
er m.a. vettvangur nýrra til-
raunaleikflokka og nýtur vax-
andi vinsælda í New York. Er
þess vænzt að leikflokkar frá
Evrópu komi einnig til hátíð-
arinnar á þessu ári.
313 tóku þátt í skóla-
skákinni á Akureyri
LOKIÐ er keppni grunnskólanna
á Akureyri, um titilinn Skóla-
skákmeistari Akureyrar 1979.
Þátttakendur voru alls 313. þar
af 269 í 1.—6. bekk og 44 í 7,—9.
bekk.
Urlit í einstökum skólum urðu
eftirfarandi:
Gagnfræðaskóli, 7.-9. bekkur:
1. Smári Ólafsson 8 v
2. Pálmi Pálsson 6,5 v
3. -5. Jakop Kristjánss. 6 v
3.-5. Bogi Eymundss. 6 v
3.-5. Stefán Ólafss. 6 v
Þátttakendur voru 12
Oddeyrarskóli, 7.-9. bekkur:
1. Pálmi Pétursson 7 v
2. Hörður Guðmundss. 5 v
3. Guðmundur Geirss. 5 v
Þátttakendur voru 25
1.—6. bekkur:
1. Einar Eiríksson 7 v
2. Páll Gíslason 6 v
3. Rúnar Svan Vögguss. 5,5 v
Þátttakendur voru 56.
Glerárskóli, 7.-9. bekkur:
1. Ragnar Ragnarss. 5,5 v
2. Níels Ragnarsson 5 v
3. Arnar Pétursson 4 v
Þátttakendur voru 7.
1,—6. bekkur:
Þátttakendur voru 26.
1. Eymundur Eymundss. 7.5 v
2. Siguróli Kristjánss. 6,5 v
3. Mikael Traustason 6,5 v
Lundarskóli. 1. —6 hekkiir:
1. Jónas Þór Guðmundss. 6 v
2. Arnljótur Davíðsson 5,5 v
3. Geir Svanbergss. 4,5 v
Barnaskóli Akureyrar.
1.—6. bekkur:
1. Jón Ríkh. Kristjánss. 5 v
2. Eiríkur Jóhannsson 4 v
3 Fjölnir Freyr Guðmundss. 2 v
Þátttakendur voru 90.
Efstu menn skólanna kepptu til
úrslita og varð röðin þessi:
1.—6. bekkur:
1. Einar Eiríksson 2,5 v
2. Jón Kristjánss. 2 v
3 Eymundur Eymundss 1 v
4 Jónas Þór Guðmundss. 0,5 v
7.-9. bekkur:
1. Pálmi Pétursson 3,5 v
2. Ragnar Ragnarsson 1,5 v
3 Smári Ólafsson 0 v
Þeir Pálmi Pétursson og Einar
Eiríksson eru því skólaskákmeist-
arar Akureyrar 1979, hvor í sínum
flokki.
„Súper
markaður
„Súper“-markaöurinn heldur áfram í sýningahöll-
inni (Ársalir) 2. hæö v. Bíldshöföa.
Dömufatnaður
Kjólar frá 4000—14.000.
Dömujakkar frá kr. 8.900.
Dömuúlpur frá kr. 11.900.
Dömupils frá kr. 7.000.
Dömuskyrtur frá kr. 1.900.
Ótrúlegt úrval af frábærum
hijómplötum
rR/ ’nSC. O PtTRARCA; SONtTTt
DiETRtCH i-öCHER-OieSKAU
Herrafatnaður
Herraúlpur frá kr. 10.500.
Herrablússur frá kr. 4.900.
Herragallabuxur frá kr.
6.900.
Herraflauelsbuxur frá kr.
Ódýr og falleg leikföng
500 original málverk.
Verð frá kr. 11.000.-
Opið í dag
frá 1—6.
Opið föstudag
frá 1—10.
Opið laugardag
frá 9—12.
fra
kr.
kr
Barna- og
unglinga-
fatnaður
frá 1-14 ára
T.d. barnaúlpur
kr. 6.900-
Barnabuxur frá
2.900-
Barnapeysur frá
2.900 - o.fl. o.fl.
Gjafavörur
og búsáhöld
allskonar frá Glit keramik
og fleira og fleira af úrvals
vörum sem vert er aö sjá.
Sláið til og gerið „Súper“-kaup á
„Súper“-markaði
Kaffiveitingar á staðnum.
Nýjar vörur teknar upp daglega.
Súpermarkaóurinn,
Sýningahöllinni (Ársalir) v/Bíldshöfða.