Morgunblaðið - 29.03.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
mistakist þetta vegna lélegra
vinnubragða, þá verður langt í
næsta tækifæri.
Það verður líka að taka ein-
dregna afstöðu gegn allri spill-
ingu, ef það á að ná atkvæðunum
undan Vilmundi. Fyrsta skrefið er,
að rétt verð fáist fyrir afnot af
sparifé, sjóðafé og ríkisfé. Þá
hverfur mikil spilling og mikið af
möndlköllum. Þegar bankastjór-
arnir hringja jafnoft í þig til þess
að bjóða þér lán og þú hringir í þá
til þess að biðja um lán, þá eru
vextirnir réttir. Við vitum öll að
t.d. vaxtaaukalánin hafa breytt
afstöðu manna til lána. Sumir
missa lystina þegár þeim er boðið
upp á vaxtaaúkalán í stað víxils.
Enda hefur sérhver skoðun á því á
hvaða kjörum hann vill fá milljón
lánaða. Viltu hana með mínus 20%
vöxtum? Með 0% vöxtum? Með
20%, 40%, 50% vöxtum? Hvar eru
mörkin? Sama gildir um það hve-
nær þú vilt lána mér milljón af
þínum peningum.
Sé hætt við möndlið og aðeins
lánað gegn raunvöxtum, þ.e. verð-
trygging plús kannski 3%, þá
verða nógir peningar til. Hús-
næðismálastjórn getur þá lánað
90—100% af íbúðarverði. Þá fyrst
er hægt að lækka byggingarkostn-
aðinn, kannski 30% á einu bretti,
sem leiddi af því að hægt væri að
framleiða íbúðir gegn staðgreiðslu.
Þá fer fólkið að hugsa sig um
hvort það á að eyða eða spara. Þá
hjaðnar verðbólgan og spillingin.
Vonandi hverfur Vilmundur þó
ekki með!
Verðbólgukallarnir og möndlar-
arnir vilja þetta ekki. En vill
kjósandinn þetta?
9.3.1979
Halldór Jónsson verkfr.
Skagafjörður:
Söngskemmtanir
um næstu helgi
B*. Höfðaströnd, 28. marz
MIKIL söngva- og skemmtanahátíð
er nú í Skagafirði, auk sæluviku á
Sauðárkróki hafa Karlakórinn
Heimir og söngfélagið Harpa
ákveðið að halda sameiginlegt
skemmtikvöld í þessari viku í
Höfðaborg á Hofsósi föstudag kl.
21 og á sama ti'ma f Miðgarði á
laugardag.
Á þessum skemmtunum verða
mjög fjölbreytt skemmtiatriði og þá
sérstaklega söngur hjá báðum
kórunum undir stjórn Ingimars
Pálssonar. Undirleik annast Einar,
norskur tónlistarkennari í Varma-
hlíð, og Kristján Snorrason,
einsöngvarar eru Þórunn Ólafs-
dóttir, Reykjavík, Inga Rúna Pálma-
dóttir, Kristján Snorrason og
Þorvaldur Óskarsson. Auk þessara
skemmtiatriða skemmtir Jörundur
með eftirhermum, dansarar frá
Heiðari Astvaldssyni sýna nýjustu
dansana og vitanlega verður svo
dansað á báðum stöðum, en hljóm-
sveitin Upplyfting heldur þar uppi
fjöri. Karladórinn Heimir fer svo í
söngferð til Suðurlands 6. apríl.
Þessi skemmtun kóranna er nú
orðin árviss liður í skemmtanahaldi
á hverju ári og yfirleittágætlega
sótt.
Is var farinn úr sjónmáli á Skaga-
firði, en er nú aftur eftir hríðarjag-
anda kominn meiri en áður og langt
inn á fjörð. Togarar eru nú allir
farnir til veiða, en ís mun þó
eitthvað hafa tafið veiðarnar og
hrognkelsaveiði er ekki stunduð
nema að mjög litlu leyti vegna íss.
Björn í Bæ.
Byggingalóóir í Reykjavík:
Nýjar úthlutunar-
reglur í smíðum
AUGLÝSTAR hafa verið lóðir í
Mjóumýri í Breiðholtshverfum í
Reykjavík. Er þar um að ræða lóðir
fyrir 75—80 íbúðir í fjölbýlis-eða
sérbýlishúsum á því svæði í Breið-
holti II sem er vestan Kleifarsels.
Að sögn Hjörleifs Kvaran hjá
borgarverkfræðingi er ætlunin að
svæði þessu verði úthlutað til 3—4
aðila, t.d. byggingameistara eða
byggingasamvinnufélaga er myndu
taka þátt í mótun og skipulagningu
hverfisins, en umsóknarfrestur er til
10 apríl. Gert er ráð fyrir að byggð
verði ýmist fjölbýlishús, einbýlis-
eða raðhús. Ekki kvað Hjörleifur
unnt að segja til um hvenær hafizt
yrði handa um framkvæmdir, það
væri undir því komið hversu hratt
skipulagningin gengi, en gert er ráð
fyrir að byggingaaðilar sjái einnig
um gatnagerð.
Um aðra lóðaúthlutun á vegum
borgarinnar sagði Hjörleifur að gert
væri ráð fyrir að úthluta um 35
einbýlishúsalóðum og 30 raðhúsalóð-
um við Lækjarsel, Lindarsel og
Jaðarsel svo og 14 raðhúsalóðum á
Eiðsgrandasvæðinu. Væri um þessar
mundir verið að semja úthlutunar-
reglur og lóðirnar auglýstar á næst-
unni.
FERMINGARGJOF
Feröaútvörp
Kassettutæki
Útvarps-
vekjaraklukkur
VANDAÐAR — NYTSAMAR
FERMING ARG JAFIR
'unnai
Suðurlandsbraut 16. Sími 35200.
ehóóon Lf
HEBA heldur '
við heilsunni
Nýtt námskeiö hefst 2. apríl n.k.
Dag- og kvöldtímar tvisvar eöa fjórum
sinnum í viku.
Megrunarkúrar — Nuddkúrar — Létt
leikfimi o.fl.
Leikfimi — Sauna — Ljós — Megrun
— Nudd — Hvíld — Kaffi — o.fl.
Sérstakir dagtímar kl. 2 og 3.
Innritun í síma 42360 — 40935.
Þjálfari Svava.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Þau voru kosin þau klístruðustu af diskónefndinni. Frá vinstri
Guðlaug Sigurðardóttir og Arnar Sigurjónsson.
Klístraður dans-
leikur í Garðinum
Garði, 26. marz.
SL. FÖSTUDAG var haldinn
allsérstæður dansleikur í sam-
komuhúsinu, þ.e.a.s. hann var
klístraður eins og það heitir á
táningamáli í dag. Var ballið
haldið á vegum æskulýðsnefnd-
ar sem hefir fengið til liðs við
sig diskó-nefnd úr efstu bekkj-
um grunnskólans — en fyrir
þann aldursflokk var ballið
haldið.
Spilaðar voru plötur úr kvik-
myndunum „Greace" og „Satur-
day night fever" svo og önnur
diskómúsik. Unglingarnir voru
flestir klæddir eftir „Greace"
tízkunni, piltarnir í ieðurklæðn-
aði og stúikurnar í satin-buxum
eða pilsi og dökkum bolum.
Þótti ballið takast mjög vel og
er markmið unglinganna að
safna sér fyrir hljómflutnings-
tækjum til að nota við tækifæri
sem þetta.
Askulýðsnefnd hefir gengist
fyrir opnu húsi í vetur og er þar
ýmislegt til skemmtunar. Er
spilaður mini-billiard, borðtenn-
is, spelað á spil o. fl. o. fl.
Fréttaritari.
Skjót viðbrögð
Þaö er hvimleitt ad þurfa aö
biöa lengi meö bilaö rafkerfi,
leiöslur eóa tæki.
Eöa ný heimilistæki sem þarf
ad leggja fyrir.
Þess vegna settum viö upp
neytendaþjónustuna - meó
harösnúnu liöi sem bregöur
skjótt viö.
'RAFAFL
Skólavörðustig 19. Reykjavik
Simar 2 1/00 2 80 22
Gerið góð kaup
Opið til kl. 8 föstudag.
Laugardag frá kl. 9—12.
irumarkaöurinntif.
núla 1 A, sími 86111.