Morgunblaðið - 29.03.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
33
Lægri rekstrar
kostnaður
og minna
slit
farartækja
Enn hefi ég undir höndum vand-
aða útreikninga á rekstrarkostn-
aði bifreiða sem ekið er 1.000 km,
og kostnaður borinn saman hvort
heldur ekið er á bundnu slitlagi
eða vondum malarvegi eins og
okkar vegir eru nær allir. Kemur
þá í ljós, að við akstur fólksbifreið-
ar þessa umgetnu vegalengd þarf
19% meira eidsneyti á vonda
malarveginum en olíumalarvegin-
um, slitið á hjólbörðunum er 170%
meira og til viðhalds og varahluta
þarf að verja 45% meira fé. Til að
gera langt mál stutt komast vís-
indamenn að þeirri niðurstöðu, að
meðaltalsslitið á bifreiðinni sé
63% meira við akstur á hinum
vondu vegum samanborið við hina
með bundna slitlaginu.
Það þarf auðvitað ekki að tefla
fram fleiri rökum fyrir ágæti
málefnisins, en með nokkrum orð-
um skal vikið að fjáröflun til
framkvæmdanna.
Fjármögnun
framkvæmdanna
Lagt er til að framkvæmdirnar
verði fjármagnaðar þannig eins og
segir í tillögunni: I fyrsta lagi:
Með happdrættisláni 2.000 millj.
kr. á ári. I öðru lagi: Með framlagi
Byggðasjóðs 1.000 millj. kr. á ári. í
þriðja iagi: Með umframtekjum af
sérsköttun umferðarinnar frá og
með næstu áramótum, þó eigi
lægri fjárhæð en 2.000 millj. kr. á
ári. Að sjálfsögðu er lagt til að
fjármunir þessir haldi fram-
kvæmdaafli sínu frá ári til árs.
Eftir þessum leiðum fengjust því
75 milljarðar króna á 15 árum eða
jafnvirði þeirra á því verðlagi sem
hér um ræðir og miðast við vega-
vísitölu hinn 1. ágúst 1978. Gera
má ráð fyrir að kostnaður við að
byggja þá vegi, sem tillagan tekur
til, muni nema um 100 milljörðum
króna.
Þyrfti því að fást af vegaáætjun
samtals krónur 25 milljarðar eða
um 1.700 m. kr. á ári. Þetta fé yrði
notað til að byggja snjóþunga og
lélega kafla, sem síðar yrðu lagðir
bundnu slitlagi og taldir eru sér-
staklega upp í tillögunni.
Við þekkjum möguleikana á
fjáröflun með sölu happdrættis-
skuldabréfa og höfum góða raun af
þeirri aðferð, eins og sýndi sig,
þegar hringvegurinn var tengdur
með byggingu brúnna framan
lands í Skaftafellssýslum.
Eg minni á lögin sem samþykkt
voru á Alþingi 1975 um happ-
drættislán ríkissjóðs vegna Norð-
urvegar og Austurvegar, og hv.
þingmaður Eyjólfur Konráð Jóns-
son var forvígismaður að. Annað
mál er það, að stjórnvöld hafa
verið drumbs um að framfylgja
þeim lögum, en nú telja flm.
tillögu þessarar mál að hefja
fjáröflun í stórum stíl með þessari
aðferð. Auðvitað þarf að gera kaup
slíkra bréfa girnileg í augum
almennings, bæði með von í góðum
vinningum, öðrum drætti, sæmi-
legum vöxtum og þó umfram allt
frambærilegum verðtryggingum.
Margur ber að vísu þungann niðri
fyrir að við séum með þessu að
binda afkomendum okkar mikla
skuldabagga. Þetta er ekki á rök-
um reist, enda þótt þeir megi nú
eitthvað á sig leggja líka, þannig
að við vinnum ekki allt hagræði
fyrir þá fyrirfram. Hagurinn af
framkvæmdunum er svo mikill að
greiðsla kostnaðarins verður leik-
ur einn.
Þá er lagt til að Byggðasjóður
leggi fé af mörkum í þessu skyni.
Röksemdin fyrir þeirri tillögu er
öllum auðsæ. Ekkert mál er meira
byggðamál en bættar samgöngur.
I annan stað ætti þeim ekki að
ofbjóða þessi útlát Byggðasjóðs,
sem á þessu ári hafa ákveðið að
í stnttu máli
Viðbrögð
við til-
lögu sjálf-
stæðis-
manna um
vegamál
• Gunnlaugur Stefánsson
(A) taldi vegatillögu Sjálf-
stæðisflokksins illa unna,
höndum kastað til áætlunar-
gerðar og nær væri að sér-
hæfðir aðilar fengju slíkt
verkefni til vinnslu. Tillögu-
flutningur nú bæri þess hins
vegar ljósan vottinn, að Sjálf-
stæðisflokkurinn treysti vinstri
stjórn betur en sjálfum sér til
að framkvæma þessa 15 ára
vegaáætlun. (Kallað fram í:
Heldur þú vinstri stjórnin lifi
af þennan tíma?)
• Eggert Haukdal(S) taldi
tillögu þessa raunhæfa, bæði
hvað snerti áætlun og fjár-
magnsöflun. Benti hann á að
stærstu verkefni í vegagerð
hefðu jafnan verið unnin, er
Sjálfstæðisfl. hefði haft með
þau mál að gera, s.s. vegurinn
til Selfoss og milli Reykjavíkur,
Keflavíkur (Reykjanesbraut).
Fór hann nánar út í einstök
atriði áætlunarinnar, sem
nánar verður vikið að síðar.
• Stefán Jónsson ) Abl)
sagði hér fram komið eitt af
merkari þingmálum, sem
stjórnarandstaðan hefði flutt.
Ljóst væri að mikil vinna væri
að baki tillögugerðinni og hann
drægi ekki í efa, að sérfræðileg
aðstoð hefði komið til. Sjálfsagt
þyrfti að gaumgæfa betur
einstök atriði — en hér væri
þannig að málum staðið, að
Alþingi hlyti að fjalla um af
fullri alvöru.
• Halldór E. Sigurðsson
(F), fv. samgönguráðherra,
taldi hér máli hreyft, sem
samstaða ætti að nást um, og
fallið gæti að fyrra tillögu-
flutningi framsóknarmanna.
Ánægjulegt væri að sjálf-
stæðismenn hefðu nú meiri
fúsleika til framkvæmda og
fjármagnsöflunar í því skyni er
upp á teningnum hefði verið
þegar hann sem vegamála-
ráðherra hefði eftir leitað.
• Sverrir Hermannsson (S)
þakkaði Stefáni og Halldóri
jákvæðar undirtektir en sjálf-
gefið væri, að Alþingi athugaði
vel svo viðamikla tillögugerð.
Andstaða Gunnlaugs Stefáns-
sonar væri af sama ungæðis-
hætti og ókunnugleikatal hans
uppmokstur úr siglingaleið til
Hafnar í Hornafirði á dögun-
taka 1.130 mill^ónir af fé sjóðsins
til að borga gamlar óreiðuskuldir í
orkumálum.
I þriðja lagi er svo lagt til að til
vegaframkvæmdanna renni um-
framtekjur af sköttum umferðar-
innar frá og með s.l. áramótum, og
vil ég í þessu sambandi vekja
sérstaka athygli á því að hér er
ekki verið að leggja til að hrófla
við þeim tekjum af umferðinni,
sem hingað til hafa runnið í
Vegasjóð, enda gert ráð fyrir, að
Vegasjóður sinni áfram verkefn-
um sínum. Það er útilokað og
ólíðanlegt að ríkissjóður haldi
áfram að sópa auknu fé í hít sína
af umferðinni meðan stórmikil-
vægar vegaframkvæmdir sitja á
hakanum.
Þá er þess að geta að í tillögunni
er lagt til að tekin verði erlend lán
vegna nokkurra sérverkefna.
Raunar er ég reiðubúinn að lýsa
því yfir að ég er öldungis óhrædd-
ur við að taka erlend lán til
varanlegrar vegagerðar. Það er
leikur einn að láta sparnaðinn sem
verður af akstri á góðvegunum
standa undir slíkum lánum. Um
þetta urðu menn í mínum flokki
ekki á eitt sáttir og varð því að
ráði að leggja ekki stærra undir en
tilgreint er, enda ærin skuldasöfn-
un erlendis um þessar mundir.
Stefnuyfirlýsing
Sjálfstæðis-
flokksins í
vegamálum
Eg vil að lokum leyfa mér, hr.
forseti, að lesa upp stefnuyfirlýs-
ingu flokks míns, sem liggur til
grundvallar tillögugerð þessari, en
hún hljóðar svo m.l. hv. forseta:
„Sjálfstæðisflokkurinn mun
beita sér fyrir því að lögð verði
stóraukin áherzla á vegagerð á
komandi árum. Á næstu 15 árum
verði þannig lagfærðir eða endur-
lagðir vegir til allra byggðarlaga
landsins. Skulu vegirnir vera með
bundnu slitlagi og vel upphækkað-
ir í snjóhéruðum. Þetta markmið
mun nást með um 2.500 km vega-
kerfi, en þar af hafa aðeins 200 km
verið fullgerðir nú þegar.
Hér er um að ræða svipaða
stefnumörkun og Sj álfstæðisflokk-
urinn í Reykjavík beitti sér fyrir í
byrjun síðasta áratugs, er leiddi til
malbikunar meginhluta gatna í
borginni og kom henni í nútíma-
horf. Má segja, að þessi vegagerð
sé álíka stórt verkefni fyrir þjóð-
ina eins og gatnagerðin var fyrir
Reykvíkinga á sínum tíma.
• Fyrsti áfanginn að þessu marki
eru um 800 km vega til viðbótar
núverandi góðvegakerfi og yrði þá
framtíðarvegakerfið orðið um
1.000 km langt. Lágmarksfram-
kvæmdir yrðu 100 km á ári og tæki
þá 8 ár að ná þessum áfanga. Hét
er þó miðað við lagningu 160 km
góðvega að meðaltali á ári og að
hver áfangi náist á 5 árum, enda
verði fjármagns aflað eftir mis-
munandi leiðum, þar á meðal með
sölu happdrættisskuldabréfa, skv.
lögum um Norður- og Austurveg.
Samhliða þessari vegagerð þarf
að vinna að áframhaldandi endur-
bótum og styrkingu vega í öllum
landshlutum til að tryggja sem
öruggastar samgöngur og tengsl
innan hvers byggðarlags.
• Annar áfangi gæti orðið miðað
við 800—900 km. Heildargóðvega-
kerfið væri þar með orðið
1.800-1.900 km langt.
• í þriðja áfanga yrði síðan lokið
við hringveginn, náð fullri teng-
ingu við Vestfirði og önnur byggð-
arlög tengd góðvegakerfinu.
Þessar framkvæmdir verði fjár-
magnaðar af Vegasjóði, tekjum af
umferðinni umfram það sem nú
rennur til ríkissjóðs, sölu happ-
drættisskuldabréfa, framlögum úr
Byggðasjóði og hugsanlega nokkru
erlendu lánsfé.
Hér er um að ræða framkvæmd-
ir, sem hafa niikla þýðingu fyrir
framtíð byggða landsins og er því
raunhæf byggðastefna, sem auk
þess hefur þann kost að um þær
ættu allir landsmenn að geta
sameinast."
Lærið
vélritun
Ný námskeiö hefjast Þriðjudaginn 3. apríl.
Kennsla eingöngu á rafmagnsrítvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.
Vélritunarskólinn
Suðurlandsbraut 20
Einstakt
tækifæri
Mercury Comet GT 1974
Bíll eins og nýr. Aöeins bæjarekinn. Einn
eigandi. Blár. Keyröur 39 þús. km. 250 co. vél.
Sjálfskiptur. Kraftstýri. GT.
1 kg Okkar verð Leyfilegt verð
Svið w 648- 768-
Súpukjöt n 782- 1069-
Lambalifur ii 980- 1394-
Saltkjöt w 950- 1147-
Kálfalifur w 650-
Kindahakk w 980-
Allt dilkakjöt á gamla veröinu.
Allt kaffi á gamla veröinu.
Opiö til 22 föstudaga
og hádegis á lauqardögum
HAGKAUP
SKEIFUNN115