Morgunblaðið - 29.03.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
35
Landssamband vörubifreiðastjóra:
Meta ýmsar aðgerðir stjórn-
valda ekki síður en kauphækkanir
STUÐNINGUR launastéttanna
við núverandi ríkisstjórn hlýtur
að byggjast á því að haft verði
samráð við þær. og að stjórnin
verði minnug þess kjörorðs síns,
að hún sé til fyrir launastéttirn-
ar. segir meðal annars í ályktun
sem stjórn Landssambands vöru-
bifreiðarstjóra hefur nýlega sent
frá sér um frumvarp forsætisráð-
herra um efnahagsmál.
í ályktuninni segir einnig, að
ekki verði um það deilt. að brýn-
ast verkefni stjórnvalda sé að
halda uppi fullri atvinnu í land-
inu, og að verkalýðshreyfingin
hafi sýnt að hún sé þess albúin að
takast á við vandamál líðandi
stundar í efnahagsmálum f sam-
vinnu við stjórnvöld, ef þær ráð-
stafanir sem hugsaðar eru miðast
ekki yið skertan kaupmátt. sam-
drátt og í kjölfar þess
atvinnuleysi.
Síðar í ályktuninni segir svo:
„Varðandi kjaramál hefur verk-
lýðshreyfingin marglýst því yfir,
að hún metur, ekki síður en kaup-
hækkanir í krónum, ráðstafanir
sem gerðar eru til styrktar kaup-
mættinum, auk félagslegra um-
bóta sem launafólk metur mikils.
Það hefur með öðrum orðum verið
megintónn í allri kröfugerð verk-
lýðssamtakanna á síðustu árum,
að kaupmátturinn væri ekki skert-
Sérkennarar hafa
ekki hærri laun
ur, hvernig það væri tryggt væri
ekki aðalatriðið.
Eins og áður hefur fram komið
fer það ekki á milli mála að
samtök launafólks þurfa á því að
halda, eins og nú er ástatt í
þjóðfélaginu, og ekki síst þegar
útlitið framundan er skoðað, að við
völd sé ríkisstjórn sem launastétt-
irnar í landinu geta treyst, og er
því það samráð sem lofað var að
komið yrði á milli stjórnvalda og
láunþegasamtakana mjög þýðing-
armikið og algjör forsenda þess, að
til frambúðar geti tekist heilbrigt
og heiðarlegt samstarf.
Stjórn Landssambands vörubif-
reiðastjóra skorar því eindregið á
alþingi og ríkisstjórn að leysa úr
þeim ágreiningi í verðbóta- og
kjaramálum, sem nú ríkir, með því
móti að veita sérstakar launabæt-
ur til láglaunafólks, er verði í senn
raunhæfar og varanlegar."
Finlux
LITSJÓNVARPSTÆKI
20“ -- kr. 415.000,-
i 22“ -- kr. 476.000.-
26“ .. kr. 525.000.-
fJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTUNI 18 REYKJAVIK SÍMI 27099
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá launa- og kjaranefnd
Sérkennarafélags íslands:
Launa- og kjaranefnd Sérkenn-
arafélags Islands vill leiðrétta
þann misskilning, sem fram kom í
sjónvarpsþættinum Gagn og gam-
an sunnudagskvöldið 25. mars s.l.
Þar var staðhæft að starfandi
sérkennarar við sérstofnanir
fengju hærri laun en aðrir kennar-
ar. Þetta eru því miður ekki réttar
upplýsingar, því ' sérkennarar
þiggja sömu laun og almennir
kennarar óháð því hver vinnu-
staðurinn er.
Sérmenntun kennara getur tekið
eitt til tvö ár og sú menntun er
metin í stigum, en stigafjöldinn er
það óverulegur að kennarar hækka
ekki í launum við þetta viðbótar-
nám. Kjör kennara sem afla sér
sérmenntunar eru þessi:
— læra erlendis
— kosta námið sjálf
— afla reynslu sem ekki verður
metin til starfsaldurs hér
heima
— koma heim að námi loknu og
taka við sömu launum og
almennir kennarar þó hægt
sé að fá helmingi betri laun
erlendis
— lifa á hugsjóninni
Til þess að geta sinnt börnum
með sérþarfir þurfa kennarar að
afla sér sérmenntunar. Nokkrum
sinnum hefur verið gefinn kostur á
eins árs menntun hér á landi, en
yfirleitt þurfa kennarar að leita til
útlanda eftir menntun sinni og
ávallt þegar þeir hyggja á lengri
framhaldsmenntun en eitt ár. Og
námsárin eru ekki metin sem
starfsár.
Tekjutap kennara í tveggja ára
framhaldsnámi nemur nú á sjöttu
milljón króna.
Til að kosta nám sitt þurfa
kennarar að taka vísitölubundið
námslán, sem nema nokkrum
milljónum króna. Það væri því
raunhæft að telja að kennarar
ættu að fá einhverja frjárhagslega
umbun til þess að greiða námslán
sín aftur.
Staðreyndin er þessi: Öll önnur
menntun í landinu er metin til
hærri launa á meðan sérkennarar
þiggja sömu laun og áður.
Sérkennarar sem læra erlendis
hafa einnig oft aflað sér kennslu-
reynslu þar, að náminu loknu.
Þessi menntun eða reynsla er ekki
metin til starfsaldurs hér á landi
og lenda því þeir kennarar í lægri
launaflokki en þeir sem heima
sátu og stunduðu sína kennslu.
Hverjar eru og verða afleiðingar
þessara kjara. Sérkennurum fækk-
ar stöðugt. Nú er svo komið að
minni hluti kennara á sérstofnun-
um hefúr sérmenntun og mikil
vöntun er á sérmenntuðum kenn-
urum í almennum skólum. Þessi
skortur kemur harðast niður á
börnunum, sem þurfa á sérkennslu
að halda og þau fá ekki mörg hver
æskilega þjónustu. Það er tvennt
ólíkt að skrifa falleg orð í laga-
grein og að reyna að gera eitthvað
til þess að hægt sé að framfylgja
þessum lögum. Við teljum að ekki
sé hægt að gera ráð fyrir því sem
vísu að það fyrirfinnist fólk með
svo heitar hugsjónir að það sé
viljugt að leggja á sig og kosta
sjálft tveggja ára framhaldsnám.
Fyrirsjáanlegt er að veruleg
fækkun verður í sérkennarastétt-
inni verði ekki gerð einhver
bragarbót hér á. Sérkennarar sem
nú eru í námi munu líklega flestir
leita fyrir sér erlendis eftir vinnu,
því þar fá þeir góð laun og mögu-
leika á að endurheimta eitthvað af
útlögðum kostnaði.
Við höfum áður vakið máls á
þessu á opinberum vettvangi og
meðal annars ritað menntamála-
ráðherra bréf í nóvember 1978, en
ekki séð nein viðbrögð né við-
leitnisvott. Það er því orðin æði
áleitin spurning, hversu lengi sér-
kennarar halda þolinmæðinni.
F.h. launa- og kjaranefndar
Sérkennarafélags íslands
Rúnar Björgvinsson.
M YNDAMOT H F.
PRENTMYNOAGERÐ
AÐAISTRÆTI • - SlMAR: 17152-17355
Vandervell
vélalegur
■
a
i
Ford 4-6-8 strokka
benzin og diesel vélar
Austln Mini
Bedford
B.M.W.
Bulck
Chevrolet
4-6-8 strokka
Chrysler
Citroen
Datsun benzin
og díesel
Oodge — Plymouth
Fiat
Lada — Moskvitch
Landrover
benzin og diesel
Mazda
Mercedes Benz
benzin og diesel
Opel
Peugout
Pontiac
Rambler
Range Rover
Renault
Saab
Scania Vabis
Scout
Simca
Sunbeam
Tékkneskar
bifreiðar
Toyota
Vauxhall
Volga
Volkswagen
Volvo benzin
og diesel
I
ép
ódýrt
fyrir vorið
og komið á
Súpermarkaóinn,
í Sýningahöllinni,
Bíldshöfða 20.
Þ JÓNSSON&CO I Lll
Skeilan 1 7 s 84515 — 84516
Lítil og lipur
er Kodak A-1
vasamyndavélin
Það fer ekki mikið fyrir henni,
en þú getur tekið skemmtilegar myndir
á hana til ánægju fyrir sjálfan þig og fjölskylduna.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Lítið inn — við
erum á 3 stöðum
í borginni,
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI — GLÆSIBÆ — AUSTURVERI
VA
WMrSS&rSM