Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Magnús L. Sveinsson:
Fækkun lóðaúthlutana er tilræði
yið húsnæðislausar fjölskyldur
Sjálfstæðismenn leggja fram tillögu
um úrbætur í húsnæðismálum
EINS og kunnugt er aí fréttum mun talsverður
samdráttur verða í verklegum framkvæmdum í Reykja-
vík í sumar. í ræðu borgarstjóra við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar kom fram, að unnið verður við
nýbyggingu gatna í Selási, verzlunarhverfinu í Mjódd-
inni, hugsanlega Seljahverfi, 14. áfanga, Elliðavogi,
Bfldshöfða og gatnatenging af Vesturlandsvegi við
iðnaðarhverfið á Ártunshöfða. Borgarstjóri sagði, að
fyrri framkvæmdaáform hefðu verið skorin mjög
tilfinnanlega niður og kæmi það m.a. fram í því, að færri
byggingarlóðir yrðu til úthlutunar en ella.
Magnús L. Sveinsson kvaddi sér
hljóðs af þessu tilefni og flutti
eftirfarandi tillögu borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins:
„Borgarstjórn lýsir áhyggjum
sínum yfir því, að lóðaúthlutanir
munu stórlega dragast saman á
þessu ári og verða minni en
nokkru sinni áður. Er útlit fyrir,
að ekki verði úthlutað fleiri lóðum
en fyrir 100 íbúðir á árinu. Er það
langt undir meðaltali þess íbúða-
fjölda sem talið er nauðsynlegt að
byggja árlega. Borgarstjórn sam-
þykkir því að flýta sem unnt er
undirbúningi væntanlegra bygg-
ingarsvæða og verði að því stefnt,
að úthlutun lóða verði í sem mestu
samræmi við íbúðaþörf.
I þessu sambandi ítrekar borg-
arstjórn fyrri samþykkt frá 4. des.
1975 varðandi undirbúning nýrra
byggingarsvæða og áætlanagerð
varðandi úthlutun lóða. Sérstök
áherzla verði lögð á, að úthlutun
lóða verði sem jöfnust milli ára og
þess gætt að í hverri úthlutun
verði sem flestar gerðir húsa.
Þess verði gætt að hverfa ekki
frá því fyrirkomulagi, sem hér
hefur verið í borginni, að götur
verði fullfrágengnar áður en bygg-
ingarframkvæmdir hefjast. Jafn-
framt fari lóðaúthlutun fram með
góðum fyrirvara eins og verið
hefur, þannig að byggjendum gef-
ist góður tími til undirbúnings og
að þeir geti í framkvæmdum sín-
um hagnýtt sér bezta fram-
kvæmdatíma ársins, þ.e. sumarið.
Byggingarsvæðum verði í meira
mæli en gert hefir verið úthlutað
til byggingaraðila í samvinnú við
heildarsamtök þeirra. Slíkar út-
hlutanir séu gerðar áður en til
deiliskipulags ketnur og fái sam-
tök væntanlegra byggjenda að
vera með i ákvörðun um gerð
skipulagsins. Reykjavíkurborg
taki nánari ákvörðun um lóða-
fjölda til hvers byggingaraðila
þegar skipulag liggur fyrir.
Hraðað verði staðfestingu aðal-
skipulags Reykjavíkur frá 1977 og
hafist verði handa sem fyrst um
deiliskipulag einstakra svæða.
I sambandi við endurnýjun eldri
hverfa:
Stefnt verði að því, að Reykja-
víkurborg leggi fram ákveðna upp-
hæð á ári hverju sem notuð verði
til þess að vinna að betri nýtingu
eldri borgarhverfa, sem vegið gæti
eitthvað á móti lítilli lóðaúthlutun
Magnús L. Sveinsson
á næstu árum. Að þessu verði
unnið á eftirfarandi hátt:
1. Komið verði á samstarfs-
nefnd borgarinnar og samtaka
byggingariðnaðarmanna, sem hafi
það hlutverk að móta stefnu í
þessum málum og gera tillögur um
aðgerðir.
2. Hraðað verði könnun á því
hvar helzt sé hægt að ná fram
betri nýtingu í borginni (í hvaða
borgarhverfum).
3. Komið verði á í samvinnu við
Iðnskólann í Reykjavík og
Rannsóknastofnun byggingariðn-
aðarins námskeiðum sem gerðu
byggingamenn hæfari í að sinna
viðhaldi og endurnýjun eldri húsa.
Oskað væri eftir samvinnu við
Húsnæðismálastofnun ríkisins um
veitingu fjármagns til endurnýj-
unar eldra húsnæðis."
Magnús L. Sveinsson sagði, að
nú horfði mjög alvarlega í bygg-
ingariðnaði í Reykjavík. Sýnt væri
að stórlega yrði dregið úr lóðaút-
hlutunum. Hann sagði, að 100
íbúðir væru langt undir þeirri þörf
sem væri fyrir nýtt íbúðarhúsnæði
í Reykjavík.
F jölmenni í dagvistunar-
göngu og útiskemmtun
UM 1.000 manns tóku
þátt í svonefndri dagvist-
argöngu sem efnt var til í
Reykjavik sl. laugardag.
Gengið var frá Hlemm-
torgi niður Laugaveg og
staðnæmst á Lækjartorgi
þar sem fram fór
útiskemmtun.
Dagskrá útiskemmtunarinnar
var í stórum dráttum þannig, að
Ljóðfélagið flutti barnalög,
söngsveitin Kjarabót og Barna-
lagasönghópurinn sungu nokkur
lög og sýndur var kafli úr
leikriti Herdísar Egilsdóttur,
Gegnum holt og hæðir, sem
Leikfélag Kópavogs sýnir um
þessar mundir. Að þessari dag-
vistargöngu stóðu ýmis félaga-
samtök, t.d. Félag einstæðra
foreldra, Framfarafélag Breið-
holts III, Sjúkraliðafélagið,
Stéttarfélag, félagsráðgjafa, 8.
marz hreyfingin, Ibúasamtök
Vesturbæjar og Þingholts,
Rauðsokkahreyfingin o.fl., alls
12 félög. Að sögn Nönnu Atla-
dóttur sátu fulltrúar félaganna í
undirbúningsnefnd fyrir þessa
göngu og var aðalkrafa hennar:
Næg og góð dagvistarrými fyrir
öll börn. Nanna kvað ráðgert að
annar þáttur þessarar kröfu
yrði undirskriftasöfnun þar sem
stefnt væri að söfnun 15—20
þúsund undirskrifta meðal
Reykvíkinga til að leggja
áherzlu á þessa kröfu.
Myndirnar voru teknar aí göngunni og útiskemmtuninni á
Lækjartorgi um helgina. Ljósm. Þórir Helgason
’fcMl f§£
I Markús örn Antonsson.
Eitt sinn hefði Kristján Bene-
diktsson sagt í ræðu í borgarstjórn
að lóðaúthlutanir fyrir 7—800
nýjar íbúðir árlega væru nauðsyn-
legar í Reykjavík. Augljóst væri
hver munurinn væri á 100 og
þeirri tölu. Byggingariðnaðurinn
væri í raun í stórhættu. Það hefði
keðjuverkanir. Magnús sagði, að
undanfarin ár hefði minnihlutinn
gagnrýnt harðlega, að ekki væri
nægilega stórar lóðaúthlutanir
hverju sinni. Síðast hefði verið
úthlutað lóðum undir 522 íbúðir.
Magnús L. Sveinsson sagði, að
fækkun lóðaúthlutana væri bein-
línis tilræði við húsnæðislausar
fjölskyldur. Að meðaltali hefði
verið byrjað á 621 íbúð árlega sl. 4
ár.
Þá þyrfti að auka úthlutanir
fyrir einbýlishús og raðhús.
Björgvin Guðmundsson (A)
sagði, að í tillögu sjálfstæðis-
manna væri margt sem þeir í
meirihlutanum gætu tekið undir.
En stór galli á tillögunni væri, að
ekki væri getið hvernig afla ætti
tekna til allra framkvæmdanna.
Björgvin sagði, að niðurskurður
nýframkvæmda hefði reynst óhjá-
kvæmilegur. Hann sagði mál-
flutning sjálfstæðismanna vera
tvískinnung. I raun væri ýmislegt
hægt að gera til þess að reyna að
koma byggingarframkvæmdum af
stað og væri ýmislegt í athugun.
Björgvin Guðmundsson.
Mikil vinna yrði í Selási fyrir
byggingarmenn. Um síðari hluta
tillögunnar væri að segja, að það
væri endurtekning á tillögu frá
meirihlutanum. Þá nefndi Björg-
vin, að Byggung hefði látið í ljós
áhuga á gatna- og holræsagerð í
nýju hverfi og hefði félagið boðist
til þess að taka á sig hluta af
kostnaði við gatna- og holræsa-
gerð. Hlyti slíkt tilboð að koma til
sérstakrar athugunar í þeirri fjár-
magnskreppu sem borgin væri nú
í. En engar ákvarðanir hefðu enn
verið teknar um ráðstöfun nýrra
byggi ngarsvæða.
Hugmyndin um endurnýjun og
viðhald á gömlum húsum væri
athyglisverð. A þess konar vinnu
og framkvæmdum væri vissulega
mikil þörf. í tillögu sjálfstæðis-
manna væru mörg atriði sem
þyrftu athugunar við og legði hann
því til, að tillögunni yrði vísað til
borgarráðs.
Markús Örn Antonsson sagði
mjög slæmt, ef borgarbúar ættu
yfir höfði sér lélegri gatnagerð á
valdatíma vinstri manna. Ekki
væri annað fyrirsjáanlegt en tekið
yrði skref aftur á bak í gatnagerð
Reykjavíkurborgar. Hann lagði
áherzlu á, að þetta væru mörg
atriði, sem vissulega væru háska-
leg fyrir fjölda Reykvíkinga.
Magnús L. Sveinsson sagðist
geta fallist á, að tillögunni yrði
vísað til borgarráðs.
Nágrannasveitarfélögin
greiði einnig til Sin-
fóníuhljómsveitarinnar
Við afreiðslu á fjárhagsáætlun bókuðu. að þeir styddu þetta í
borgarinnar lækkaði fjárveiting trausti þess, að nágrannasveitar-
til Sinfóníuhljómsveitarinnar úr félögin myndu svo greiða mis-
90 milljónum í 71. Borgar- muninn eins og rætt hefði verið
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins um.
Leiðrétting
Fyrir nokkru rugluðust nokk-
uð tölur í f járhagsáætlun borgar-
innar en þær eru þannig:
Tekjur: Milljónir
Tekjuskattar 11.600
Fasteignagjöld 3.400
Ýmsir skattar og arður 650
Framl. úr J.sj. 2.300
Aðstöðugjöld 3.900
Gatnagj. og fl. 730
Aðrar tekjur 1.300
Samtals 23.900
Gjöld: Milljónir
Stjórn borgarinnar 800
Brunamál 320
Fræðslumál 2.820
Listir íþr., útiv. 1.550
Heilbrigðismál 2.150
Félagsmál 4.830
Fasteignir 130
Önnur útgjöld 620
Gatnagerð 2.970
Launahækkanir 1.050
Eignabreytingar 6.670
Samtals 23.900
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU