Morgunblaðið - 29.03.1979, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
41
fclk í
fréttum
VERSLUNIN
PFAFF
Skólavörðustig 1-3 Bergstaóastræti 7 Simi 26788
MOKKA
skinnavörur
Jakkar, Kápur, Húfur,
Lúffur.
Ný sending
m.a. í gráum lit.
RAMMAGEPD1NÆ
HAFNARSTRÆTI 19
10 - 20%
AFSLÁTTUR
+ Gegn kópadrápi. — Dýra-
vinir vestur í Ameríku kom-
ust í heimsfréttirnar fyrir
skömmu. Þeir fóru á slóðir
selveiðimanna þar vestra til
að koma í veg fyrir sel-
veiðar þeirra á ísnum með
því að úða kópana litarefni,
sem eyðilagði hvítan skinn-
feld kópanna fyrir veiði-
mönnunum. Á myndinni er
einn þessara manna með
selkóp í fanginu. Hann heit-
ir Amory og er formaður
sjóðs í borginni Cleveland í
Ohio, sem styrkir dýra-
verndarmálefríi. Hann er
hér um borð í skipi kópa-
vina er þeir fóru ístríðið við
selveiðimennina, en það
heitir „Sea Shepherd".
+ í konungsveizlu. — Fyrir
nokkru héldu sænsku konungs-
hjónin kvöldboð. Meðal gesta
voru ABBA-söngvararnir. Þau
höíðu ekki tekið lagið fyrir
nærstadda, en meðal þeirra var
fyrrum forsætisráðherra,
Palme. Þessi mynd er af
ABBA-parinu Agnetu og Björn
Ulvaeus. Þau „mættu til leiks“
eins og ekkert hefði í skorizt
hjá þeim. — Þau hafa annars
undanfarið staðið í skilnaðar-
máli. Á því hafði þó ekki borið í
konungsveizlunni. — Bjössi
kallinn er kominn með nýja
vinkonu upp á arminn, sést
tíðum með henni á nætur-
skemmtistöðum Stokkhólms-
borgar. Er það tungumálahest-
ur, sem auk þess hraðritar á
ensku, frönsku þýzku og
sænsku að sjálfsögðu! Þessi
kærasta söngvarans heitir
Lena Kallersjö, þrítug að aldri.
+ Frelsissvipting! Þessi AP-mynd er tekin fyrir nokkru í
Teheranborg. Það er pólitískur fangi yfirvaldanna sem hér er
leiddur með bundið fyrir augun til fangelsisvistar f Qasr-fangels-
inu. — Þar eru 4000 fangar sagðir vera í haldi um þessar mundir.
+ Þetta er annar tveggja
helztu foringja
Palestínumanna,
marxistinn dr. George
Habash. Hann er hér á
miklum hitafundi með
blaðamönnum í Beirut
(eins og sjá má). Þar
gerði hann harða hríð að
Bandaríkjamönnum.
Hafði það reyndar ekki
komið neinum nærstödd-
um á óvart því hann
fjallaði um stefnu Banda-
ríkjamanna í Austur-
löndum.
Nýjasta rakvélin frá Braun er einhver skemmtilegasta gjöf,
sem hægt er að hugsa sér.
Braun rakvélin hefur fengið bestu meðmæli neytendablaða
um allan heim fyrir gæði, enda er rakvélin framleidd af
sérfræðingum, sem hafa allra nýjustu tækni í þjónustu sinni.
Braun er sannkölluð alvöru rakvél. Örþunn, platínhúðuð
rakblöð, góður bartskeri, falleg hönnun, hleðslubúnaður eða
bein tenging, mjór og þægilegur haus og tæknilega fullkomin
smíði hafa sett Braun rakvélarnar í algjöran sérflokk.
Braun rakvélin fæst í mörgum útgáfum — við allra hæfi.
Fullkomin viðhalds- og varahlutaþjónusta.
Alvörurakvél
fráBRAUN!