Morgunblaðið - 29.03.1979, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Sá stóri í kvöld
EINS og komið hefur fram, verð-
ur háður í LauRardalshölIinni
úrslitaleikur úrvalsdeildarinnar f
körfuholta. Valur og KR eru jöfn
að stigum ok er því ekki um
annað að ræða. Valsmenn eru þó
ekki á sömu skoðun og hefur
nokkur umræða verið um kæru-
mál Vals varðandi leikinn við ÍR
rétt fyrir lok mótsins. Ef menn
muna. vann ÍR leikinn með einu
stitíi. eftir að farið hafði verið
yfir leikskýrsluna. A veggtöfl-
unni stóð hins vegar. að Valur
hefði unnið leikinn og því töfðu
þeir leikinn síðustu 49
sekúndurnar án þess að reyna að
skora.
Valur kærði og var þá leitað til
alþjóðakörfuboltasambandsins.
Skeytið sem FIBA sendi KKÍ
fylgir hér með, þannig að lesendur
geta sjálfir túlkað réttmæti þess
úrskurðar KKI að láta úrslit
leiksins standa óbreytt. I þessu
sambandi er rétt að benda á, að
ÍR-ingar lýstu sig fúsa til að leika
leikinn á nýjan leik, enda skipti
leikurinn engu máli til eða frá
fyrir þá, ekkert var í húfi.
Á blaðamannafundi með KR,
Val og KKÍ í gær komu fram
sjónarmið félaganna gagnvart úr-
skurðinum. Helgi Ágústsson, KR,
kvað það liggja í augum uppi, að
hér yrði að dæma eftir lögum, en
ekki hvað fólki kynni að þykja
réttlátt. I stuttu máli væri hér um
að ræða hvort leikskýrsla gilti eða
ekki. Helgi kvað KR-inga skilja
Valsmenn vel, það væri að sjálf-
sögðu erfitt að tapa leik á þennan
hátt, hins vegar væri engin leið að
vita hver úrslit hefðu orðið, ef rétt
stigaskor hefði komið á töfluna,
ekkert væri spáð í slíka hluti.
Halldór Einarsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Vals, sagði
það eðlilegt að KR-ingar túlkuðu
innihald skeytisins sér í hag. Hann
og Valsmenn allir teldu hins vegar
eðlilegt að leika leik Vals »g ÍR á
ný vegna þess að bæði liðin hefðu
lýst sig fús til þess og vegna þess
að sá möguleiki væri opinn í
skeytinu. Halldór kvaðst vera þess
fullviss, að ef skeyti þetta hefði
borist mánuði fyrr, hefði leikurinn
verið endurleikinn.
Það vildu ýmsir ekki samþykkja
og skaut Einar Bollason því inn, að
þó hann hefði mikið álit á ÍR, væri
hann í engum vafa um að þeir
hefðu harðneitað að leika aftur ef
eitthvað mikið hefði verið í húfi
fyrir þá.
Leikurinn hefst klukkan 20.30 í
kvöld sem fyrr segir. Það kom
fram á fundinum í gær, að lög-
gæsla á leiknum verður tvöfölduð,
þ.e.a.s. tveimur lögreglumönnum
bætt við. Heiðursgestur kvöldsins
verður Bogi Þorsteinsson, fyrsti
formaður KKÍ og nokkurs konar
afi íslensks körfubolta. Þá má geta
þess, að annað kvöld fer fram i
Sigtúni lokahóf körfuboltamanna.
Klukkan 23.30 verða veitt ein-
staklingsverðlaun fyrir hið
nýlokna mót. Verðlaun þessi eru
hvatning til íslenskra leikmanna
og verða útlendingarnir því ekki
með. Hér er um að ræða verðlaun-
in „besti leikmaður mótsins",
„besta vítaskyttan", stigahæsti
leikmaðurinn" og „prúðasti leik-
maðurinn". Einnig verður veitt
viðurkenning þeim Bandaríkja-
manni sem best hefur staðið sig í
vetur. Síðast en ekki síst verður
kosinn besti dómari mótsins.
Skrifstofa KKÍ hefur forsölu á
aðgöngumiðum á skemmtun þessa.
- gg-
• Allan Simonsen
í v<-.ntio*'» 1 rn] ,iw!ir hasV'oth,-*] | assooiat ior
- "* vour f^lox oP m,irrh 1 * lasf =
r fbr* flror offlrials nff«r
'’’o p*1 rfr>yr* ir tl’O rrrro fv-r
1 ’ r rofr>rrtn = t i-o farf thaf tur
GOOOrrlG tl’ir I irr 1 br-y k*,-*'1
1 Orr/) | ] v J virc ffr.
'hirrr tvrvo c**r*oi rorrorfrd
■irai rosrHs var. •■jnprovoo by
v.t ! ur to,--n fro7.o t v*o bal 1 for
ti’o rntrf is jr^afc-fi o I ^rd jt
fo-.-irh turpi ti-af it i s ojw-’vg doroor-ius to frooro the bál 1
’ • u^h rírrumntanrrs - f* o \v <? v e r , i ‘ hAfb trnms aro ir
, arnpnnpt f or o rnnl hv of th*-* aorr* vo'j’- sf riaf 1 on could doride
' ' o roriny = ir nrrrinlr it v/rulo he unféiir to dorrivo ir-toarr
thoir vfrto-'v horous^ of a r]oar »T'isto>e bv the r.rorer ston
Kunnir Danir
breyta til
Allan litli Simonsen, danski knattspyrnusnillingurinn sem leikur
með Borussia Mönchengladbach, hefur marggefið í skyn að hann hafi
ekki hug á að endurnýja samning sinn við þýska félagið. Nýlega sagði
hann í sjónvarpsviðtali. að hann reiknaði með að stilla sér upp við hlið
Kevin Keegan í liði Hamburger á næsta keppnistímabiii.
Annar kunnur Dani sem hugsar sér til hreyfings, er Henning Jensen
leikmaður með Real Madrid. Hann hefur gert það gott með spænska
stórliðinu. en samningur hans rennur út í vor og hann ætlar ekki að
endurnýja hann. Hann hefur ávallt verið haldinn heimþrá og fer að
öllum líkindum heim til Danmerkur.
Iþróttamót fatlaðra
á Akureyri tókst vel
Á laugardag og sunnudag var
haldið fyrsta íslandsmót fatlaðra
í borðtennis og boccia í íþrótta-
húsi Glerárskóla á Akureyri.
Jafnframt fór fram keppni í
lyftingum og bogfimi.
íþróttafélag fatlaðra á Akur-
eyri annaðist um allan undirbún-
ing og framkvæmd mótsins í
samstarfi við ÍSÍ, borðtennissam-
handið og ennfremur naut félagið
aðstoðar borðtennisdeildar KA.
Mótsstjóri var Þröstur Guðjóns-
son íþróttakennari.
Úrslit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
Borðtennis, einliðaleikur
kvenna:
1. verðlaun Guðný Guðnadóttir,
Reykjavík.
2. Verðlaun Elsa Stefánsdóttir,
Reykjavík.
3. verðlaun Guðbjörg K. Eiríks-
dóttir, Reykjavík.
Borðtennis, einliðaleikur karla:
1. verðlaun, Sævar Guðjónsson,
Reykjavík.
2. verðlaun Björn Kr. Björnsson,
Akureyri.
3. verðlaun Tryggvi Svein-
björnsson, Akureyri.
Borðtennis, tvíliðaleikur:
1. verðlaun Guðbjörg Eiríksdótt-
ir og Sævar Guðjónsson, Reykja-
vík.
2. verðlaun Guðný Guðnadóttir
og Elsa Stefán'sdóttir, Reykjavík.
3. verðlaun Hafdís Gunnarsdótt-
ir og Tryggvi Sveinbjörnsson, Ak-
ureyri. .
Boccia, einliðaleikur:
1. verðlaun Stefán Árnason,
Akureyri.
2. verðlaun Þorfinnur Gunn-
laugsson, Reykjavík.
3. verðlaun Sævar Guðjónsson,
Reykjavík.
Boccia, sveitakeppni:
1. verðlaun A-sveit Reykjavíkur:
Sævar Guðjónsson, Þorfinnur
Gunnlaugsson og Sigurður Jóns-
son.
2. verðlaun A-sveit Akureyrar:
Snæbjörn Þórðarson, Stefán
Árnason og Björn V. Magnússon.
3. verðlaun B-sveit Akureyrar:
Ingibjörg Sveinsdóttir, Sigurrós
Karlsdóttir og Baldur Bragason.
Urslitakeppnin í sveitakeppni
boccia var afar jöfn og tvísýn og
þurfti aukaúrslitaleik milli
A-sveitar Reykjavíkur og A-sveit-
ar Akureyrar sem lauk með sigri
Reykjavíkursveitarinnar með að-
eins einu stigi fram yfir.
*
Lyftingar:
I 52 kg flokki sigraði Björn
Kristinn Björnsson Akureyri lyfti
72,5 kg sem er nýtt íslandsmet.
í 56 kg flokki Jónatan Jónatans-
son Reykjavík lyfti 72,5 kg.
í 67,5 kg flokki Viðar Jóhanns-
son Siglufirði lyfti 92,5 kg sem er
nýtt íslandsmet.
í 75 kg flokki Sigmar Ó. Maríus-
son Reykjavík lyfti 112,5 kg sem er
nýtt íslandsmet.
í 82,5 kg flokki Gísli Bryngeirs-
son Reykjavík lyfti 95 kg.
í 90 kg flokki Guðmundur Gísla-
son Akureyri lyfti 90 kg sem er
nýtt íslandsmet.
í þungavigt þ.e. yfir 90 kg.
Sigfús Brynjólfsson Reykjavík
lyfti 90 kg. sem er nýtt íslandsmet.
Bogfimi:
1. verðlaun Stefán Árnason Ak-
ureyri.
2. verðlaun Ragnheiður Stefáns-
dóttir Akureyri.
3. verðlaun Jón Eiríksson
Reykjavík.
• John Iludson reynir að öngla knettinum af Tim Dwyer, en virðist
ekki takast að sinni. Talið er líklegt, að úrslit leiksins í kvöld byggist
öðru fremur á því hvernig lykti uppgjöri þessara kappa, en báðir eru
lykilmenn í liðum sínum og sjá hvor um annan í vörn.
„Verður erfiðasti
úrslitaleikurinn"
ÞEIR tveir leikmenn, sem mikið kemur til með að hvfla á í leiknum í
kvöld. eru Bandaríkjamennirnir Hudson og Dwyer. Báðir hafa skorað
grimmt í leikjum sínum með liðunum og taka yfirleitt flest fráköstin.
Mbl. fékk þá til að segja álit sitt á hvernig leikurinn færi í kvöld.
Hudson, KR:
Bæði liðin eru sterk um þessar mundir. En ég held að það ríði
baggamuninn, að við í KR höfum meiri reynslu í svona leikjum. Það sem
kemur til með að ráða úrslitum í leiknum er góður varnarleikur og hvort
liðið tekur fleiri fráköst. Eg spái, að við vinnum leikinn með 6—8 stiga
mun, 86—80. Við erum tilbúnir, það verður ekkert gefið eftir, við ætlum
að sigra. Allávega mun ég gera mitt besta og leggja mig allan fram.
Dwyer, Val:
Við í Val höfum leikið mjög vel síðustu 3 vikurnar, og erum á uppleið.
Leikurinn við KR verður erfiður en við vinnum. Strákarnir bókstaflega
hlakka til að mæta þeim og taka þá í karphúsið. Við erum með betra lið,
á því er er ekki nokkur vafi. Við munum leika okkar leik í kvöld. Og
áhorfendur fá að sjá besta leik ársins. Bæði liðin þekkja vel hvort til
annars, og því er um að gera að koma á óvart með eitthvað nýtt.
-þr.
„Eg er ekki í nokkrum vafa, að leikurinn mun endurspegla þá gremju
sem býr nú í Valsmönnum", sagði Halldór Einarsson um leikinn í kvöld.
„Við munum að sjálfsögðu vinna, ég giska á 78—76. Okkar Bandaríkja-
maður hefur nefnilega góð tök á Bandaríkjamanni KR og þar sem þessir
menn eru lykilmenn liðanna, ræður það úrslitum", sagði Halldór að
lokum.
Eins og vænta mátti var Einar Bollason ekki á sama máli og benti á,
að Valsmenn án Tim Dwyers, væru ekki sterkt lið, t.d. hefði Valsliðið
fyrr í vetur hrunið saman gersamlega eitt sinn er þeir misstu kappann út
af með 5 villur. „En þetta eru tvö langsterkustu liðin í úrvalsdeildinni og
ég er ekki í vafa um að þetta verður langerfiðasti úrslitaleikurinn sem ég
hef tekið þátt í“, bætti Einar við. Einar var beðinn að spá um úrslit, en
vildi það ekki. Helgi Ágústsson greip þá fram í og opinberaði þá ætlun
KR-inga að vinna stórt, „það fer 95—85 fyrir okkur,“ sagði Helgi
gg-
Skagaþjálfarinn
fær aðstoðarmann
IIINN nýi knattspyrnuþjálfari Akraness, Kölnarinn Klaus Jiirgen
Hilpert (ekki MUller eins og hann var titlaður í Mbl. í gær), fær innan
skamms til liðs við sig aðstoðarþjálfara, sem verður með honum í 5
mánuði.
Ililpert auglýsti starfið meðal nemenda sinna við íþróttaháskólann í
Köln og bárust honum 18 umsóknir. Ekki er ljóst hver hreppir
hnossið, en þetta verður Skagamönnum að kostnaðarlausu.