Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
47
r
Fylkir á enn
von eftir
öruggan sigur
gegn Fram
— ÉG ÁTTI ekki von á öðru en sigri í þessum leik. sagði Pétur
Bjarnason þjálfari Fylkis eftir að lið hans hafði borið sigurorð af
Fram 19—15 í 1. deildinni í handknattleik í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi. Með þessum sigri sínum eiga Fylkismenn góða möguleika á
að halda stöðu sinni í deildinni. Næsti leikur þeirra er á laugardaginn
við HK. og sker sá leikur endanlega út um hvort liðið fellur niður í 2.
deild. Sigur Fylkis gegn Fram var sanngjarn þeir börðust af miklum
dugnaði allan tímann. Sérstaklega
Liðið gerði sér fyllilega grein fyrir
gaf þau ekki eftir.
Framan af fyrri hálfleiknum var
jafnræði með liðunum. Um miðjan
hálfleikinn var staðan jöfn 4—4,
varnarleikurinn var góður og svo
markvarslan hjá báðum liðum. í
lok hálfleiksins náðu svo Fylkis-
menn dýrmætu forskoti og leiddu í
hálfleik 9—7.
I byrjun síðari hálfleiksins var
mikill fídonskraftur í leik Fylkis
og sóknarleikur þeirra var beittur
enda tókst þeim að skora hvert
markið af öðru. Eftir 14 mínútna
leik í síðari hálfleiknum höfðu þeir
náð sex marka forystu 16—10, og
var það þessi góði kafli liðsins sem
gerði öðru fremur út um leikinn.
Frammarar áttu aldrei svar við
snörpum leik Fylkis, þó svo að þeir
gerðu sitt besta og gáfust ekki upp.
Sérstaklega gekk Frömurum illa
að finna ieið gegnum þéttan
varnarvegg Fylkis. Það var helst
að reyna línusendingar, en þá var
jafnan tekið svo harkalega á línu-
mönnunum að vítakast var dæmt.
Síðustu 10 mínútur leiksins
var varnarleikur þeirra sterkur.
því hversu dýrmæt stigin voru og
sóttu Framarar í sig veðrið og
náðu að minnka muninn niður í
þrjú mörk. Var Gústaf Björnson
þar að verki með fjögur mörk í röð.
En það dugði ekki, Fylkir átti
lokaorðið og sigraði örugglega
19-15.
Lið Fylkis lék þennan leik allvel.
Fyrst og fremst var það mikill
baráttuvilji sem færði þeim
sigurinn. Varnarleikurinn var
sterkur. Allir unnu vel saman, og
Jón markvörður Gunnarsson varði
eins og berserkur. I sóknarleiknum
var Magnús Sigurðsson mjög
virkur og hrelldi markverði Fram
hvað eftir annað með sann-
kölluðum þrumuskotum. Þá var
Stefán Hjálmarsson sprækur. En
sigurinn var sigur liðsheildar.
Hjá Fram var meðalmennskan
allsráðandi. E.t.v. ekki nema von
þar sem leikurinn hafði ekki mikla
hernarðarlega þýðingu fyrir liðið.
Of mikið var um einstaklingsfram-
tak hjá leikmönnum. Gústaf
Björnsson stendur ávallt fyrir sínu
Framstúlkurnar
eru bestar
FRAMSTÚLKURNAR voru ekki í vandræðum með" að bæta tveimur
stigum í stigasafnið í gærkvöldi er þær mættu KR í 1. deild kvenna í
handboltanum. Höfðu þær forystuna allan leikinn og léku af festu og
öryggi allan tímann og voru mun betri aðilinn í leiknum þrátt fyrir að
margar af bestu leikmönnum liðsins sætu á bekknum langtímum
saman og skiptu við þær sem hafa verið í því hlutverki að verma
bekkinn í vetur.
Eftir 15 mínútna leik í fyrri hálfleiknum var staðan orðin 6—2 fyrir
Fram og eftir það var sigri þeirra aldrei ógnað. Staðan í hálfleik var
8-5.
Leikurinn endaði með fimm marka sigri, 13—8. Var það átakalítill
sigur fyrir Fram. Liðið lék allvel og er áberandi besta kvennalið okkar í
dag sem og undanfarin fjögur ár.
Mörk Fram: Guðríður 6 (4v), Jóhanna 2, Oddný 1, Jenný 1, Þórlaug 1.
Mörk KR: Hansína 5 (2v), Karolína
Léttur sigur
Hollendinga
IIOLLENDINGAR styrktu stöðu
sína verulega á toppi 4-riðils
EJvrópukeppni landsliða. með því
að vinna öruggan stórsigur á
Svisslendingum í Eindhoven í
gærkvöldi. Eftir markalausan
fyrri hálfleik, brustu allar stíflur
hjá Svisslendingum og þrisvar
varð Burgenar markvörður að
sa>kja knöttinn í netið.
Hollendingarnir gerðu í síðari^
hálfleik það sem ekki tókst í þeim
fyrri, þ.e.a.s. þeir nýttu færin. en
hollensku framherjarnir fengu
urmul tækifæra sem ekki nýttust
áður en Keest Kist skoraði fyrsta
markið með skalla eftir góða
fyrirgjöf Wim Jansen. Kom
markið á 55 mínútu. Á 84 mínútu
bætti Johnny Metgod öðru marki
við og á síðustu mínútunni bætti
þriðji Alkmaar-leikmaðurinn,
Jan Peters, þriðja markinu við
eftir frábæran einleik.
1, Arna 1, Anna 1.
- þr-
Vináttu-
leikir
TVEIR vináttulandsleikir fóru
fram í knattspyrnu í gærkvöldi.
Ungverjar unnú stórsigur á
Austur-Þjóðverjum, 3 — 0.
Toroczic skoraði í fyrri hálfleik
og í þeim síðari bættu Tieber og
Tatar sitt hvoru markinu við.
Sovétmenn unnu Búlgari örugg-
lega 3—1 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 2—1. Blochin og
Shengelia skoruðu fyrir Rússa í
fyrri hálfleik gegn marki Pavel
Panov. Gavrilov innsiglaði sigur-
inn með þriðja marki Rússa rétt
fyrir leikslok.
Birgir Jóhannesson línumaðurinn snjalli úr Fram, hefur sloppið framhjá Magnúsi Sigurðssyni, Fylki og eins
og sjá má á myndinni leggur hann sig allan fram Ljósmynd: Emilía
Stjarnan féll á
skapbræði Harðar
og var einna bestur Framara.
Sigurður Þórarinsson átti góðan
leik í markinu, en var oft ekki
öfundsverður vegna þess að vörn
Framara var oft illa á verði.
I stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild Laugardalshöllinn 28. marz
Fram—Fylkir 15—19 (7—9).
Mörk Fylkis: Magnús
Sigurðsson 6 (2v), Gunnar
Baldursson 5 (3v), Stefán
Hjálmarsson 2, Sigurður
Símonarson 2, Einar Einarsson 2,
Einar Ágústsson 1, Halldór
Sigurðsson 1.
Mörk fram: Gústaf Björnsson 6
(4v), Atli Hilmarsson 3 (lv),
Theodór Guðfinnsson 1, Viðar
Birgisson 1, Hjörtur Þorgilsson 1,
Birgir Jóhannsson 1, Sigurbergur
Sigsteinsson 2.
Brottvísun af leikvelli: Viðar
Birgisson Fram í 2 mín. og Einar
Einarsson Fylki í 2 mín.
Misheppnuð vítaköst voru engin.
______________________- þr.
Forest
skoraði 6
MARTIN 0‘Niel, írski lands-
liðsmaðurinn f liði Nottingham
Forest var í spariskotskónum í
gærkvöldi, þegar Nottingham
Forest lék botnlið Chelsea sundur
og saman. Forest vann 6—0 og
O'Niel skoraði þrennu. Tony
Woodcock skoraði tvö mörk og er
ófyrirsjáanlegt að hann gefi
Trevor Francis möguleika á sæti
sínu í liðinu á næstunni. Wood-
cock hefur skorað 5 mörk í
síðustu 5 leikjum sinum. Garry
Bistles skoraði sjötta mark
Forest, en Chelsea átti varla
markskot í leiknum. Leikir í
ensku knattspyrnunni ba>ði í gær-
kvöldi og fyrr í vikunni voru sem
hér segir:
Mánudagur og þriðjudagur 1.
deild:
WBA - Derby 2-1
Middlesbrough — Man. Utd. 2—2
Birmingham — Norwich 1—0
Wolves — Man. City 1—1
í gærkvöldi, 1. deild:
Aston Villa — Coventry 1—1
Nott. Forest — Chelsea 6—0
Tottenham — Southampton 0—0
2. deild:
Blackburn — Cambridge 1—0
Leicester — Luton 3—0
3. deild:
Chester — Chesterfield 3—0
Oxford — Blackpool 1—0
4. deild:
Bradford — Portsmouth 2—0
Crewe — Huddersfield 3—3
Reading — Grimsby 4—0
Torquay — Doncaster 2—1
Wigan — Hereford 0—0
Skotland, úrvalsdeild:
Celtic — Morton 3—0
Hearts — Hibernian 1—2
Partick Thistle — Dundee
Utd. 1-2
SKAPBRÆÐI og barnaskapur
Harðar Ililmarssonar reyndist
liði hans Stjörnunni í Garðabæ
dýrkeypt. er 2. deildarliðið mætti
bikarmeisturum Víkings í 8-liða
úrslitum bikarkeppni IISÍ í gær-
kvöldi. Staðan var nefnilega jöfn,
20 — 20 þegar 18 mínútur voru til
leiksloka. Stjarnan hafði náð
frába'rum leikkafla og unnið upp
3 marka forystu Víkinga og
meira að segja komist 2 mörkum
yfir, 19 — 17. Vfkingar jöfnuðu
hins vegar og þá gerðist það að
Hörður taldi sig þurfa að
mótmæla dómi gegn sér. Var
honum vísað fyrir það af leikvelli
í 2 mínútur. En Hörður hafði ekki
sagt sitt síðasta orð og áttu góðir
dómarar leiksins ekki annarra
kosta völ en að útiloka Hörð. En
þegar á bekkinn var komið, hélt
pexið í Herði áfram og fyrir vikið
fékk hann algera útiiokun. sem
þýddi það að Stjarnan varð að
leika einum leikmanni færra
síðustu 18 mínúturnar. Staðan
breyttist því úr 2—20 í 32—26, en
í hálfleik stóð 17 — 14 fyrir
Víking.
Fyrri hálfleikur þessa leiks var
leikinn af miklum hraða. Ekki
virtist hinn þröngi salur há
Víkingsliðinu að ráði og leikmenn
liðsins löbbuðu inn og út um
götótta vörn Stjörnunnar og
skoruðu næstum í hverri sókn,
enda markvarslan hjá heimaliðinu
neðar en í núllpunkti. En í vörn
buðu Víkingar upp á það sama og
því skildu sjaldnast nema 1—2
mörk, 3 í hálfleik, 17—14.
•Stjarnan mætti til síðari
hálfleiks í vígamóð og skoraði 5
fyrstu mörkin og komst í 19—17.
Var nú vörn og markvarsla í lagi
og yfirvegun í sókninni. Víkingar
náðu að jafna 20—20, en Stjarnan
virtist þrátt fyrir það síður en svo
vera að guggna. En þá tók Hörður
til sinna ráða eins og fyrr er greint
frá. Þar með var bikardraumur
Stjörnunnar úr sögunni.
Stjarnan á mikið hrós skilið
fyrir frammistöðuna, liðið hélt
fyllilega í við hina frægu gesti sína
allan fyrri hálfleik, lék betur
framan af þeim síðari og meira að
segja eftir að leikmenn liðsins
voru orðnir einum færri, var fjarri
því að um burst væri að ræða
miðað við aðstæður. Birkir Sveins-
son stóð í markinu í síðari hálfleik
og kom Víkingum úr jafnvægi
framan af með góðri markvörslu,
Omar varði varla skot í fyrri
hálfleik. Eyjólfur Bragason átti
stórleik með liði sínu og
Magnúsarnir þrír börðust allir af
krafti, svo og Gunnlaugur Jónsson,
svo að einhverjir séu nefndir.
Víkingarnir geta leikið betur en
þeir gerðu í gærkvöldi, liðið hefur
vafalaust vanmetið Stjörnuna,
enda næstneðsta lið 2. deildar.
Ólafur Jónsson og Viggó í
sprettum sýndu helst sínar
kunnari hliðar, Páll var þokkaleg-
ur, svo og Erlendur. Markvarslan
var varla til.
Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur
Bragason 10 (5 víti), Hörður
Hilmarsson og Magnús Teitsson 4
hvor, Gunnlaugur Jónsson,
Magnús Andrésspn, Magnús
Arnarsson 2 hver, Árni Árnason,
Hilmar Ragnarsson, Eggert ísdal
1 mark hver.
Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson
8 (1 víti), Ólafur Jónsson 7, Sigurð-
ur Gunnarsson 6 (3 víti), Páll
Björgvinsson 4, Erlendur
Hermannsson og Árni Indriðason
3 hvor.
Leikinn dæmdu Gunnlaugur
Hjálmarsson og Karl Jóhannsson
og gerðu það mjög vel.
— KK
Krankl jafnaði
BELGÍA og Austurríki skiidu jöfn í 2-riðli Evrópukeppni landsliða
knattspyrnu í Brussel í gærkveldi. leiknum lauk 1 — 1. eftir að
heimaliðið hafði náð forystu í fyrri hálfleik.
10.000 manns urðu vitni að mjög jöfnum en ekki sérlega vel leiknum
leik. Anderlecht-leikmaðurinn Vandereycken náði forystunni snemma
leiks og þegar Belgíumenn freistuðust til að halda unnum feng. kom
reiðarslagið, Hansi Krankl jafnaði og þar við sat.