Morgunblaðið - 29.03.1979, Page 48
AIGLYSINGASIMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
jn«rðunbI«biÖ
FIMMTUDAGUR 29. MARZ 1979
Tryggingaeftirlitið um bifreiðatryggingarnar:
Hækkunarþörf trygginga-
félaganna 44,4-51,6%
Höfðu farið fram á 79% hækkun
TRYGGINGAEFTIRLITIÐ heíur sent Magnúsi Magnúsyni
trvKKÍnKaráðherra álitsgerð um hækkunarþörf tryggingafélag-
anna vegna bifreiðatrygginga. Þar er hækkunarþörf trygginga-
félaganna talin vera á bilinu 44,4% til 51,6% og er þá reiknað með
mismunandi verðforsendum á tjónakostnaði. Tryggingafélögin
höfðu óskað eftir 79% hækkun bifreiðatrygginga.
Erlendur Lárusson forstjóri
Tryggingaeftirlitsins veitti Mbl.
þær upplýsingar í gær að út-
reikningar stofnunarinnar væru
miðaðar við 35—40% hækkun
tjónakostnaðar milli áranna
1978 og 1979. Miðað væri við
þrjár verðforsendur á þessu bili
Rlkissjóður
lánastofnun
móralskra
meistara?
„EINS og kunnugt er þá sitja
móralskir meistarar í hátt-
virtri núverandi ríkisstjórn.“
Þannig hóf Vilmundur Gylfa-
son mál sitt er hann kvaddi sér
hljóðs í neðri deild Alþingis í
gær. Ræddi Vilmundur um
samþykkt rfkisstjórnarinnar
um bifreiðamál ráðherra og
var Vilmundur stórhöggur í
ræðu sinni. Talaði hann um
Ragnar Arnalds menntamála-
ráðherra sem fjórða ráðherra
Framsóknarflokksins.
Vilmundur gerði m.a. a"ð um-
talsefni í ræðu sinni það
ákvæði samþykktar ríkis-
stjórnarinnar að ráðherrar
gætu fengið þriggja milljóna
króna lán til bílakaupa og
sagði: „Og ef ríkissjóður er
lánastofnun, hvernig gengur
það fyrir sig? Er einhver maður
sem stendur bak við disk upp í
fjármálaráðuneyti og lánar
mönnum ... Hér er ekki verið
að tala um sjóði. Hér er ekki
verið að tala um að ráðherra fái
lán úr Lánasjóði íslenzkra
námsmanna eða úr Fiskveiða-
sjóði. Nei, hér er verið að tala
um ríkissjóð sjálfan ...“
Sjá blaðsíðu 26 frá umræðun-
um um bílamáli’'. á Alþingi og
samþykkt Alþýðuflokksins.
og samkvæmt þeim væri
hækkunarþörfin talin 44,4%,
48% og 51,6%. Miðað er við
óbreytta sjalfsábyrgð.
Tryggingaráðuneytið og ríkis-
stjórnin munu kanna tillögur
Tryggingaeftirlitsins og taka
síðan ákvörðun um hve mikil
hækkun verður heimiluð. Sú
ákvörðun er orðin aðkallandi því
að nýtt iðgjaldatímabil bifreiða-
trygginga hófst 1. marz s.l.
Safamýrarmálið:
Ákært fyrir líkams-
meiðingar og marai-
dráp af gáleysi
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur piltinum, sem
setið hefur í gæzluvarðhaldi vegna
rannsóknarinnar á láti Sunnu Hild-
ar Svavarsdóttur 27. janúar s.l.
Pilturinn, sem er 17 ára gamall,
var ákærður fyrir meiriháttar lík-
amsmeiðingar og manndráp af gá-
leysi. Er brot hans heimfært undir
215. og 218. grein almennra hegning-
arlaga en ekki 211. grein sömu laga,
en undir þá grein er manndráp af
ásetningi jafnan heimfært.
Pilturinn hefur setið í gæzluvarð-
haldi síðan hann var handtekinn eða
í rétta tvo mánuði. Saksóknari
krafðist ekki framlengingar gæzlu-
varðhalds og var piltinum sleppt úr
haldi í gær.
Jónatan Sveinsson saksóknari
tjáði Mbl. í gær að afgreiðsla þessa
máls hefði gengið óvenju fljótt og vel
fyrir sig og væri það vafalaust
einsdæmi að ákæra væri komin í
máli sem þessu aðeins tveimur mán-
uðum eftir að atburðurinn verður.
Væri þetta ekki sízt að þakka vönd-
uðum vinnubrögðum Rannsóknar-
lögreglu ríkisins, sem m.a. hefði sett
atburðinn á svið með myndaröð og á
allan hátt unnið málið þannig að það
auðveldaði mönnum að gera sér
grein fyrir því hvað gerst hefði.
Oliuhækkun OPEC-ríkja:
Ekki vitað
enn um far-
gjaldahækkun
— segir Örn Ó Johnson
UM ÞESSAR mundir stendur
yfir fundur IATA, alþjóðasam-
taka flugfélaga og er aðalmál
fundarins að ræða hvernig
bregðast skuli við tilkynningu
OPEC-ríkja um hækkað olíu-
verð. Mbl. spurðist fyrir um
það hjá Erni ó. Johnson for-
stjóra Flugleiða hvort ákveðin
hefði verið fjargjaldahækkun
vegna hækkaðs olíuverðs á
næstunni.
— Það hefur ekkert verið
ákveðið um fargjaldahækkun
og þessi IATA fundur nú er
fyrst og fremst til að marka
heildarstefnu og samræma og
kanna möguíeika á samstöðu
flugfélaga, sagði Örn, en e.t.v.
má búast við að einhver hækk-
un fylgi í kjölfarið. Þá sagði
Örn að ekki hefðu Flugleiðir
orðið fyrir neinum olíuskorti,
en mörg olíufélög hafa tilkynnt
flugfélögum að ekki verði af-
greitt meira eldsneyti til þeirra
en sem svaraði notkun þeirra á
sama tíma í fyrra.
Magnús H. Magnússon um flugdeiluna:
Vonast eftir bráða-
birgðasamkomulagi
SÍÐASTA sáttatillaga sáttanefndar í flugdeilunni kom illa út eins og
greint hefur verið frá, þar sem annar aðilinn samþykkti hana með mikium
meirihluta atkvæða, en hinn kolfelldi og því var ég að láta mér detta í hug
að hægt yrði að ná einhverju bráðabirgða- eða áfangasamkomulagi fyrst í
stað, sagði Magnús H. Magnússon aðspurður um stöðuna í deilu flugmanna
F.Í.A. og Flugleiða.
Kvaðst Magnús hafa í huga að
hægt yrði að ná samkomulagi er gilt
gæti t.d. til 1. desember þar sem yrði
t.d. frestað kauphækkunum og
tryggt ^að vinnufriður héldist yfir
sumarmánuðina og yrði e.t.v. reynt
að vinna eftir þessum leiðum næstu
daga.
Hallgrímur Jónasson varaformað-
ur F.I.A . kvaðst ekki bjartsýnn á að
lausn fengist á deilunni fyrir helg-
ina, ekki hefðu verið fundir síðan á
mánudag og kæmu þá væntanlega til
framkvæmda verkfallsaðgerðir eins
og ráð var fyrir gert aðfaranótt n.k.
laugardags. Verður þá ekkert innan-
lands- eða millilandaflug frá því á
föstudagskvöldi til kl. 8 á mánudags-
morgun. Hallgrímur kvað flugmenn
hafa veitt frest alls 6 sinnum og yrði
nú farið að sýna klærnar eins og
hann orðaði það.
Búast við 150 þús. manns
á kvikmyndina Grease
KVIKMYNDIN Grease hefur nú verið sýnd samfleytt í 10 vikur í
Háskólabíói og í gær höfðu 82 þúsund manns séð myndina. Myndin hefur
slegið öll sýningarmet kvikmynda hér á landi eins og fram hefur komið en
gamla metið átti Sound of Music, sem rúmlega 50 þúsund manns sáu f
Reykjavík þegar myndin var fyrst sýnd.
„Ég ætla að sýna myndina eitt-
hvað fram í næstu viku því enn er
bíóið hálfsetið á öllum sýningum"
sagði Friðfinnur Ólafsson forstjóri
bíósins, þegar Mbl. spjallaði við
hann í gær. „Líklega munu nær 90
þúsund manns sjá myndina hér í
Reykjavík áður en sýningum lýkur
og ég tel ekki ólíklegt að 40—50
þúsund manns sjái myndina, þegar
hún verður sýnd úti á landi".
Myndin verður svo væntanlega
endursýnd í Háskólabíói áður en
eintakið verður eyðilagt eftir tvö ár
og kvað Friðfinnur ekki ósennilegt
að 150 þúsund manns sæju myndina
áður en sýningum lyki fyrir fullt og
allt. Leigutimi myndarinnar er 2 ár
og þá verður kvikmyndahúsið að
eyðileggja eintakið.
Páskamynd Háskólabíós verður
stórmyndin Superman, sem nú fer
sigurför um allan heim og virðist
njóta miklu meiri vinsælda en
Grease, samkvæmt því sem Frið-
finnur tjáði blaðamanni. Ekki kvaðst
Friðfinnur þó telja líklegt að sú
mynd slægi aðsóknarmet Grease hér
á landi.
„Það hefur verið áberandi að
fullorðið fólk hefur komið á Grease
að undanförnu, líklega afarnir og
ömmurnar að sjá hvað það er sem
hefur heltekið barnabörnin á síðustu
vikum," sagði Friðfinnur.
Bankamir ætla að greiða 3%
grunnkaupshækkun 1. apríl
— nema hækkuninni verði frestað með lagaboði
MORGUNBLAÐIÐ hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að bankarnir
hafi tekið þá ákvörðun að greiða starfsmönnum sinum umsanda 3%
grunnkaupshækkun, sem taka á gildi 1. aprfl. svo framarlega sem þessari
hækkun verði ekki frestað með lagaboði.
Ríkisstjórnin átti í síðustu viku
fund með fulltrúum Sambands ís-
lenzkra bankamanna og fór þess á
leit að bankamenn féllust á að 3%
kauphækkuninni yrði frestað um
óákveðinn tíma líkt og hjá BSRB og
BHM. Á þetta vildu bankamenn ekki
fallast.
Stjórnendur bankanna munu hafa
tekið þá ákvörðun að 3% hækkunin
komi til útborgunar 2. apríl n.k.
nema henni verði frestað með laga-
boði. Telja þeir að ekki komi til
greina að brjóta samninga á banka-
mönnum, sem báðir aðilar hafa
staðfest með undirskrift.
Komið hefur fram að ríkisstjórnin
hyggist leggja fyrir Alþingi frum-
varp um frestun 3% kauphækkunar-
innar hjá öllum launþegum, sem
ekki hafa þegar fallist á frestun.
Hins vegar eru aðeins tveir vinnu-
dagar á Alþingi fram til mánaða-
móta og því stuttur tími til stefnu.
Allir fastráðnir starfsmenn bakn-
anna fá laun greidd fyrirfram og fá
því greidd út apríllaun mánudaginn
2. apríl n.k.
Sovétmenn útiloka Kortsnoj frá skákmótum:
Skákmenn skora áFriðrik
Olafsson að taka málið upp
„Mun beita mér í málinu, komi til mín áskorun, ” segir Friðrik
SOVÉZKA skáksamhandið hefur að undanförnu ítrekað reynt að koma
í veg fyrir þátttöku Viktors Kortsnojs í alþjóðlegum skákmótum með
hótunum um að engir sovézkir skákmenn taki þátt í mótum, þar sem
Kortsnoj er meðal keppenda. Hafa af þessum sökum verið dregin til
baka a.m.k. tvö boð til Kortsnojs á undanförnum vikum. Nú stendur
yfir í Lone Pine í Bandaríkjunum mjög fjölmennt skákmót. þar sem 27
stórmeistarar eru meðal þátttakenda og eru þar í gangi undirskrifta-
listar. þar sem skorað er á Friðrik Ólafsson forseta Fide að taka þetta
mál upp og að hann beiti sér fyrir því að Sovétmenn hætti að beita
þessum aðgerðum gegn Kortsnoj. sem er landflótta Sovétmaður eins og
kunnugt er.
Morgunblaðið sneri sér í gær-
kvöldi til Friðriks Ólafssonar
vegna þessa máls. Friðrik sagði:
„Ég hef heyrt um þetta á skot-
spónum en hef hef engin áþreifan-
leg dæmi séð. Ef áskorun kemur
til mín frá hópi skákmanna mun
ég að sjálfsögðu taka málið upp og
ef það á við rök að styðjast mun ég
beita mér fyrir því að breyting
verði hér á.“
Margeir Pétursson skákfrétta-
maður Mbl., sem teflir í Lone
Pine, sagði í gær að Kortsnoj hefði
í fyrradag fengið bréf frá móts-
höldurum í Banja Luka í Júgó-
slavíu, þar sem afturkallað væri
boð til hans um þátttöku í skák-
móti þar í borg. Ástæðan væri sú
að Sovétmenn hefðu hótað að
draga keppendur sína, Petrosjan
og Kasparov, út úr mótinu ef
Kortsnoj yrði með og sæju móts-
haldararnir ekki annað ráð en
afturkalla boðið til Kortsnojs. Þá
sagði Margeir að staðið hefði til að
bjóða Kortsnoj á mjög sterkt mót,
sem hefst innan skamms í
Montreal í Kanada. Sovétmenn
hefðu boðist til þess að senda þrjá
mjög sterka keppendur á mótið,
Karpov heimsmeistara, Tal og
Spassky, en jafnframt hefði verið
tekið fram að þeir myndu ekki
verða með ef Kortsnoj væri meðal
keppenda. Loks sagði Margeir að
Sovétmenn hefðu hætt við að
senda sterka keppendur á Lone
Friðrik
w *
Kortsnoj
Pine mótið, þegar þeir fréttu að
Kortsnoj yrði þar með og tefldi
enginn Rússi á mótinu. Sovétmenn
hefðu sent skeyti og spurt hvaða
stórmeistarar yrðu með í Lone
Pine. Mótshaldararnir hefðu þá
svarað að þar tefldu allir stór-
meistarar, sem vildu vera með.
Stuttu síðar kom annað skeyti frá
Sovétmönnum og þá spurðu þeir
umbúðalaust hvort Kortsnoj yrði
með eða ekki.
Margeir sagði að mikil óánægja
væri meðai skákmanna vegna
hegðunar Sovétmanna og væri
almenn þátttaka í undirskrifta-
söfnuninni, sem er í gangi meðal
skákmanna í Lone Pine.
Fundahöld
til stuðn-
ings Ólafi
MIKIL FUNDAHÖLD hafa ver-
ið og eru fyrirhuguð í fram-
sóknarfélögum víðs vegar um
land fram að miðstjórnarfundi
um helgina, samkvæmt því sem
Mbl. hefur fregnað.
Á þessum fundum hafa verið
samþykktar áskoranir á Ólaf
Jóhannesson að gefa áfram kost á
sér sem flokksformaður. Er búist
við því að þrýstingurinn á Ólaf
nái hámarki fyrsta dag mið-
stjórnarfundarins, en hann hefst
á morgun,_____________
Smjörlíki
hækkar
um 18,2%
RÍKISSTJÓRNIN hefur staðfest þá
ákvörðun verðlagsnefndar að heim-
ila hækkun á smjörlíki.
Venjulegt smjörlíki hækkar úr 450
í 532 krónur kg eða um 18.2% og
jurtasmjörlíki hækkar úr 704 í 768
krónur kg eða um 9.1%.