Morgunblaðið - 01.04.1979, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979
19
Veitingahús
Veitingahús
\ viö Óöinstorg, /
viö Oðinstorg
Afmœliskveðja:
Snæbjörn Tryggvi
Olafsson skipstjóri
Snæbjörn Tryggvi Ólafsson er
fæddur að Gesthúsum á Álftanesi
2. apríl 1899. Foreldrar Snæbjarn-
ar voru hjónin Guðfinna Jónsdótt-
ir og Ólafur Bjarnason, útvegs-
bóndi.
Snæbjörn hóf ungur sjósókn
með föður sínum á opnum skipum,
en Ólafur, faðir hans, reri frá
Garði og Leiru á haustin og fram
eftir vetri, áður en fiskur gekk á
grunnmið í Faxaflóa. Þegar
Snæbjörn náði meiri þroska byrj-
aði hann sjómennsku á stærri
skipum, seglskútum, mótorbátum,
togurum og flutningaskipum. Um
tíma var hann í utanlandssigling-
um.
Snæbjörn lauk farmannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1918. Hann var síðan
háseti og stýrimaður á togurum til
1924, er hann tók við skipstjórn á
togaranum Ver, sem hlutafélagið
Víðir í Hafnarfirði keypti þá frá
Bretlandi. Var Snæbjörn upp frá
því skipstjóri samfellt til ársins
1958, er hann hætti sjómennsku og
gerðist eftirlitsmaður með togur-
um Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunnar h.f. í Reykjavík. Gegn-
ir hann störfum hjá því fyrirtæki
enn.
Togarar þeir, sem Snæbjörn var
skipstjóri á voru: Ver, 1924—1934;
Tryggvi gamli, 1934—1946, og
Hvalfell, 1946—1958. Átti Snæ-
björn hlut í síðast nefnda skipinu
á meðan það var í eigu Hvalfells
h.f.
Þegar Snæbjörn tók við skip-
stjórn var hann aðeins tæplega
tuttugu og fimm ára. Þóttu það
tíðindi í þá daga og segir meira en
mörg orð um það traust, sem til
hans var borið.
Alla skipstjórnartíð sína var
Snæbjörn í fremstu röð íslenzkra
togaraskipstjóra, bæði sem afla-
maður og sem öruggur og farsæll
stjórnandi. Var hann löngum afla-
kóngur á togveiðum og síldveiðum.
Lítið var um mannaskipti hjá
Snæbirni, nema þegar menn fóru í
betri stöður, og urðu sumir af
hásetum hans kunnir skipstjórar.
Margir af hásetum hans voru með
honum alla skipstjórnartíð hans.
Eiginmaður minn, Geir Ólafsson,
var loftskeytamaður hjá Snæbirni
allan sinn sjómannsferil, eða tutt-
ugu ár.
Árið 1957 var Snæbirni veitt
viðurkenning fyrir „lofsverða um-
hyggju um öryggi skipverja sinna"
úr Minningarsjóði systkinanna frá
Hrafnabjörgum, en Slysavarnafé-
lag Islands sér um úthlutunina.
Árið 1962 var Snæbjörn sæmdur
heiðursmerki Sjómannadagsins.
Mættu fleiri bera heiðursvott með
jafnmiklum sóma og Snæbjörn.
Snæbjörn kvæntist 1927 Sigríði
Jóakimsdóttur, Pálssonar, út-
ÞU AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
vegsbónda í Hnífsdal. Bjuggu þau
sér rausnarheimili. Þeim varð átta
barna auðið og eru sjö á lífi, fimm
dætur og tveir synir. Afkomeridur
þeirra hjóna eru orðnir fjörutíu,
allt vaskleika fólk, sem hefur
haslað sér völl í margvíslegum
störfum, sjómenn, húsmæður og
listamenn svo eitthvað sé nefnt.
Nú búa þau hjónin að Erluhólum 4
í Reykjavík.
Eg þakka þér Snæbjörn sam-
fylgdina með mér og mínum í
gegnum tíðina og óska þér til
hamingju með afmælið og alls
hins bezta.
Aðalbjörg Jóakimsdóttir.
Mánudaginn 2. apríl n.k. verður
Snæbjörn Tryggvi Ólafsson skip-
stjóri 80 ára. Snæbjörn fæddist að
Gestshúsum á Álftanesi árið 1899,
sonur Ólafs Bjarnasonar útvegs-
bónda og konu hans Guðfinnu
Jónsdóttur. Snæbjörn ólst upp í
foreldrahúsum og fór fljótlega að
stunda sjóróðra með föður sínum,
auk bústarfanna, sem að sjálf-
sögðu tóku mikinn tíma.
Að loknu gagnfræðanámi í
Fiensborgarskólanum í Hafnar-
firði, settist Snæbjörn í Stýri-
mannaskólann og lauk þaðan prófi
árið 1918, aðeins 19 ára gamall.
Ræðst hann síðan í farmennsku á
flutningaskipinu „Ville Moes“, en
eftir tvö ár hættir hann far-
mennsku og ræðst sem háseti og
síðar stýrimaður á b.v. Jóni for-
seta og síðan stýrimaður á b.v.
Baldri frá Reykjavík. Árið 1924
fær Snæbjörn sitt fyrsta skip, b.v.
Ver frá Hafnarfirði, sem hann var
með þar til árið 1932, er hann
tekur við b.v. Tryggva gamla frá
Reykjavík. Þéss má geta hér, að
Snæbjörn var nýtekinn við skip-
stjórn, þá aðeins 25 ára gamall,
þegar hið nafntogaða Halaveður
gekk yfir. Hann var þá staddur á
Halamiðum, en sigldi með skip sitt
suður fyrir land, er hann sá að
hverju stefndi og sakaði hvorki
skip hans né áhöfn.
Með Tryggva gamla var Snæ-
björn, þar til árið 1947 er hann tók
við nýsköpunartogaranum Hval-
felli. Hafa viðbrigði, hvað allan
aðbúnað snerti vafalaust verið
mikil, miðað við fyrri skip er hann
hafði verið með. Hvalfellið var
Snæbjörn með, þar til hann hætti
sjómennsku árið 1958, eftir nær 35
ár í brúnni.
Síðan hefur Snæbjörn stundað
ýmis störf hjá Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjunni h.f. að Kletti í
Reykjavík, fyrst sem eftirlitsmað-
ur með togurum þeirra, en nú
síðustu ár hefur hann gegnt þar
ýmsum störfum, allt fram á þenn-
an dag. Auk þessa hefur Snæbjörn
fengist við smábátaútgerð með
fleirum, sem tómstundagaman.
Einnig tók hann þátt í brautryðj-
endastarfi við kornrækt á Rangár-
vallamelum.
Ljóst má þó vera, að ekki hafa
gefizt margar stundir til tóm-
stundaiðju, þau ár er Snæbjörn
var til sjós, enda voru stoppin ekki
löng í landi. Aðeins rétt á meðan
aflanum var landað.
Eina tómstundaiðju hefur Snæ-
björn þó haft um dagana og þá
sérstaklega eftir að sjómenrisku
hætti, en það er lax- og silungs-
veiði. Lætur hann sig ekki vanta í
veiðitúrana, en yngist allur upp,
þegar hann arkar með flugustöng-
ina meðfram einhverri af okkar
fallegu veiðiám. Eru þá árin létt á
baki.
Snæbjörn hefur verið sérstak-
lega farsæll í öllu sínu lífi. í starfi
gekk honum allt í haginn. Hann
var fiskinn meira en í meðallagi og
mörg ár reyndar aflakóngur. Kom
honum þá stundum vel að vera
draumspakur maður. Hann var
skipstjórnarmaður góður og hugði
einkar vel bæði að áhöfn og skipi.
Umhyggja hans fyrir áhöfn sinni
varð méðal annars til þess að
honum var veitt sérstök viður-
kenning árið 1957 úr Minningar-
sjóði systkinanna frá Hrafna-
björgum, fyrir sérstaka árvekni
um öryggi og líf skipverja sinna.
Þessi eiginleiki hans varð einnig
til þess að sumir skipverja hans
störfuðu með honum nær alla hans
skipstjórnartíð. Þá hefur hann
verið heiðraður af sjómannadags-
ráði.
Fjölskyldulíf Snæbjörns er mjög
með sama blæ og starfsferill hans.
Eiginkona hans, Sigríður Jóakims-
dóttir frá Hnífsdal, hefur reynst
honum eins góður lífsförunautur
og frekast verður á kosið. Þeim
hjónum varð átta barna auðið og
eru sjö þeirra á lífi. Barnabörnin
eru orðin 24 og barnabarnabörnin
7.
Snæbjörn Tryggvd Ólafsson er
einn af þessum traustu Hrafnistu-
mönnum sem vinna lífsstarf sitt af
einstakri alúð og samviskusemi á
hljóðlátan og farsælan hátt. Hann
er lítið fyrir lífsins glaum og berst
lítið á. Vinnusemi er honum í blóð
borin og hann á því lár.i að fagna
að geta enn stundað þau störf, sem
hugur hans stendur svo mjög til.
Við óskum Snæbirni hjartan-
lega til hamingju með þessi tíma-
mót og erum þess fullvissir að
hamingjudísirnar verði honum
jafn hliðhollar um ókomin ár og
þær hafa verið þau áttatíu sem
hann á nú að baki.
Tengdasynir.
Veizlumatur
heitur & kaldur
Aöeins þaö bezta frá Brauöbæ
símar 20490
og 250901