Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ1979 | Reykjavíkurbréf ^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦Laugardagur 19. maí.. hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinason. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aóalstræti 6, sími 10100. Aóalstreeti 6, sími 22480. Sími 83033 Askriftargjald 3000.00 kr. á mánuói innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakió. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla Varanlegt slit- lag á þjódvegi Við íslendingar höfum unnið að mörgum skemmtilegum og heillandi viðfangsefnum á undan- förnum áratugum, ekki sízt eftir að lýöveldi var stofnað og þjóðin hlaut fullt sjálf- stæði. Við höfum háð harð- vítuga baráttu til þess að tryggja yfirráð okkar yfir fiskimiðunum og unnið sigur. Við höfum hafizt handa um að virkja orku fallvatnanna og byggt stór og glæsileg orkuver, sem munu mala gull þjóðinni til heilla, þegar fram í sækir. Við höfum gert margt fleira. En eitt af því, sem við höfum ekki gert er að leggja viðunandi vegi um landið allt. Þegar sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur boðuðu fyrir nær tveimur áratugum, að þeir hygðust leggja varanlegt slitlag á götur Reykjavíkur á 10 árum þótti mörgum það mikil bjartsýni. En það tókst. Síðan hafa kaup- staðir og kauptún fylgt í kjölfarið og mikil breyting hefur orðið til batnaðar í þeim efnum. Varanlegt slitlag hefur verið lagt á götur í þéttbýli víðs vegar um landið. Hins vegar hefur gengið illa að koma varanlegu slit: lagi á þjóðvegi um landið. í samgönguráðherratíð Ingólfs Jónssonar á Viðreisnarárunum var gert stórátak á þessu sviði og verulegur hluti þeirra þjóðvega, sem nú eru lagðir með varanlegu slitlagi, var byggður á þeim árum. Á þessum áratug hefur ótrúlega lítið gerzt. Núver- andi ríkisstjórn hefur að vísu lýst því yfir, að mikið átak eigi að hefjast á næsta ári við varanlega vegagerð en svo illa vill til, að ríkis- stjórnin hefur ekki tryggt fjármagn til þeirra fram- kvæmda og ekki upplýst hvernig fjármögnun þeirra verður háttað. Það stoðar lítt að gefa falleg loforð um varanlega vegagerð ef eng- inn veit, hvernig á að borga fyrir framkvæmdirnar og hvaðan peningarnir eiga að koma. Sjálfstæðisflokkur- inn lagði fram fyrir ári ítarlega áætlun um varan- lega vegagerð um landið allt á 15 árum. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa fylgt þessari áætlun eftir með tillöguflutningi á Alþingi. Hins vegar hefur tillaga þingmanna Sjálf- stæðisflokksins ekki feng- izt afgreidd og liggur í nefnd. Aðrir flokkar hafa einnig sýnt þess merki, að þeir hefðu áhuga á málinu. Þannig hafa framsóknar- menn einnig flutt tillögu í þinginu um varanlega vegagerð og samgöngu- ráðherra núverandi ríkis- stjórnar hefur lýst áhuga sínum þótt hann hafi ekki tryggt fjármagnið til fyrir- hugaðra framkvæmda á næsta ári. Þetta sýnir þó, að frumkvæöi sjáfstæðis- manna fyrir einu ári hefur orðið til þess að kveikja áhuga í öðrum flokkum, þannig að samstaða á að geta orðið um stórátak í þessum efnum. Það er heillandi verkefni að byggja orkuver og friða fiskimiðin. En það er ekki síður skemmtilegt verkefni fyrir þjóðina á næsta ára- tug að leggja varanlegt slitlag á vegi um land allt. Slíkt mundi verða til þess að gjörbreyta landinu og gefa því nýjan svip. Vega- kerfið eins og það er dugir ekki lengur og við getum ekki haldið innreið okkar í 21. öldina á malarvegum. Varanlegt slitlag á þjóðvegakerfi landsins er líka sameiginlegt hags- munamál fólks í þéttbýli og strjálbýli. Það eru ekki síður þeir, sem í þéttbýlinu búa, sem þurfa á viðunandi vegum að halda en dreif- býlisfólkið. Þess vegna þurfa hagsmunaárekstrar milli dreifbýlis og þéttbýlis ekki að koma til sögunnar. Það Alþingi, sem nú situr, og sú ríkisstjórn, sem það hefur kjörið til forystu, hefur ekki sinnt þessu stór- máli, svo nokkru nemi. Eins og nú horfir kemur það vafalaust í hlut nýrrar ríkisstjórnar fyrr en varir að veita þjóðinni forystu. Ný ríkisstjórn þarf um margt að fjalla. Eitt af helztu verkefnum hennar á að vera stórátak í að leggja varanlegt slitlag á þjóðvegi um land allt. Ingólfur Jónsson Ingólfur Jónsson, fyrrum ráð- herra, varð sjötugur á þriðjudag- inn var. í afmælisgrein hér í Morgunblaðinu komst Geir Hall- grímsson m.a. svo að orði um afmælisbarnið: „Ingólfur Jónsson átti ekki kost á langri skólagöngu í æsku, en því betur hefur hann nýtt lífsins skóla. Ungur að árum var honum falin framkvæmda- stjórn kaupfélagsins á Hellu og reisti þau samtök héraðsbúa til vegs og virðingar. Var þó við ramman reip að draga á kreppuár- um og einnig þá og síðar við ofurvald sambandskaupfélaga, sem í krafti skömmtunar, hafta og pólitískrar misnotkunar gengu milli bols og höfuðs á frjálsu framtaki jafnt einstaklinga og félagasamtaka, sem ekki lutu boði þeirra og banni. í þessari baráttu var Ingólfur Jónsson eins og brimbrjótur, sem haggaðist hvergi, en komst jafnframt leiðar sinnar. Sömu hæfileika, einbeitni, þolgæði og dugnað, hefur Ingólfur Jónsson sýnt í stjórnmálabarátt- unni.“ Geir Hallgrímsson nefnir brim- brjót. í huga höfundar þessa Reykjavíkurbréfs hefur Ingólfur Jónsson jafnan verið eins og klett- ur, sem staðið hefur upp úr, óhagganlegur á hverju, sem hefur gengið og þá ekki sízt í ólgusjó stjórnmálabaráttunnar á þessum áratug. Það er dýrmæt reynsla fyrir yngri menn að kynnast mönnum á borð við Ingólf Jóns- son. Þau kynni skilja eftir spor, sem aldrei hverfa. Ingólfur Jónsson hefur komizt til mikilla áhrifa í Sjálfstæðis- flokknum. Frami hans hefði getað orðið enn meiri, ef hann hefði sjálfur ljáð máls á því. Það þarf mikinn þroska og óeigingirni til þess að hafna veraldlegum frama. Það hefur Ingólfur Jónsson gert. Geir Hallgrímsson segir einnig að Ingólfur Jónsson hafi alltaf komizt leiðar sinnar. Samráð- herra hans í Viðreisnarstjórninni, Magnús Jónsson, fyrrverandi fjár- málaráðherra, lýsir því með skemmtilegum hætti í afmælis- grein hér í blaðinu er hann segir: „Þótt Ingólfur sæki mál sín fast, þá ber hann aldrei höfðinu við steininn, en á hins vegar til lagni í málflutningi, sem oft hefur fært honum sigur í torsóttum málum. Get ég ekki stillt mig um að segja frá vinnubrögðum hans í ríkis- stjórninni, er ég oft dáðist að. Þegar samráðherrar brugðust illa við einhverju máli hans, er þeim fannst sýna óbilgirni í kröfugerð, lét Ingólfur aldrei skerast í odda, heldur stakk plöggum í tösku sína og kvað rétt að ræða þá ekki málið frekar. En hafi menn haldið, að þar með væri málið úr sögunni, þá var það mikill misskilningur. Ingólfur beið lags á næstu stjórn- arfundum og dró þá aftur upp plögg sín og þegar svo hafði gengið nokkrum sinnum, urðu úrslitin æði oft þau að samráð- herrar gáfust upp fyrir þessu dæmalausa úthaldi í málflutn- ingi.“ Er grund- völlur fyrir kjarabótum? Ríkisstjórninni hefur vegnað illa í kjaramálum að undanförnu. Opinberir starfsmenn felldu í almennri atkvæðagreiðslu sam- komulag forsvarsmanna þeirra og ríkisstjórnarinnar um afnám 3% kauphækkunar hinn 1. apríl sl. Farmenn og mjólkurfræðingar höfnuðu tilmælum ríkisstjórnar- innar um frestun verkfalla gegn 3% grunnkaupshækkun. Launa- stefna ríkisstjórnarinnar er í mol- um og bersýnilegt er, að þeir hópar launþega, sem nú þegar eru í verkfalli, hyggjast knýja fram verulegar kauphækkanir og ekki er ólíklegt, að fleiri fylgi í kjölfar- ið. Launa„sprenging“ gæti því verið í aðsigi. Þótt til hennar komi ekki, er nú þegar fyrirsjáanlegt, að verðbólgan á þessu ári verður a.m.k. 45%, sumir telja að hún verði mun meiri og fer ekki á milli mála, að vinstri stjórnin hefur tapað verðbólguslagnum, sem hún var mynduð til að vinna. Við þessar aðstæður er orðið tímabært að fjalla um, hvort einhver grundvöllur sé til þess að atvinnuyegirnir taki á sig kjara- bætur. Útlitið er ekki björgulegt í þeim efnum. Útgerðin er nú þegar komin í stórfelldan taprekstur. Allt er í óvissu um, hvernig ríkisstjórnin hyggst leysa þann sérstaka vanda, sem við blasir í útgerðinni vegna gífurlegra hækk- ana á olíu. Jafnvel þótt vandi útgerðarinnar yrði að einhverju leyti leystur með myndarlegri hækkun fiskverðs er þar aðeins um tilfærslu á vanda að ræða. Veruleg fiskverðshækkun ásamt fyrirsjáanlegum launahækkunum um næstu mánaðamót mun leiða til stórfellds tapreksturs í frysti- iðnaðinum. Ekki er annað að sjá en að stöðvun blasi við í frystiiðn- aði, þegar líður á sumarið, ef fram heldur sem horfir. Stóru fyrirtækin í samgöngum búa greinilega við bágan hag. Nýlega kom fram á aðalfundi Flugleiða, að raunverulegt tap á rekstri þess fyrirtækis nam á sl. ári um 3 milljörðum króna. Ljóst er, að félagið hefur ekki efni á að tapa slíkum fjárhæðum ár eftir ár. Horfur í flugrekstri okkar Islendinga eru því vægast sagt ískyggilegar, þótt þess verði ekki vart, að einstakir starfshópar innan Flugleiða geri sér grein fyrir því. Aðalfundur Eimskipa- félags Íslands verður haldinn á næstunni en afkoma þess á síðasta ári mun hafa verið erfið. Eim- skipaféiagið á allt sitt undir ákvörðunum stjórnvalda í verð- lagsmálum og er ekki fyrsta og eina fyrirtækið, sem verður hart úti vegna þess að óhæfilegur dráttur verður á, að leiðrétting fáist á verðlagi miðað við verð- bólgu. Annað stærsta skipafélagið í einkaeign, Hafskip hf. hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að stríða árum saman. I byggingariðnaði stendur yfir stórfelldur samdráttur. Lítið er um lóðaúthlutanir í Reykjavík og nágrannabyggðum á þessu ári og það ásamt nýbyggingargjaldinu veldur verulegum samdrætti i byggingarframkvæmdum. Sú byggingarvinna, sem enn er fyrir hendi er því aðallega til þess að ljúka verkum, sem hafa verið í gangi. Innlendur iðnaður kvartar mjög undan samkeppni erlendis frá, sem bendir til þess, að sam- keppnisstaða hans sé ekki sem skyidi og hefur það auðvitað nei- kvæð áhrif á afkomu iðnfyrir- tækja. Um verzlunina er óþarft að fjölyrða. Afkoma hennar hefur versnað svo mjög, að jafnvel við- skiptaráðherra Alþýðubandalags- ins hefur orðið að viðurkenna það með því að rýmka álagningarregl- ur í smásölu. Slík er staða atvinnuveganna og þarf engum að koma á óvart miðað við þá verðbólgu, sem hér hefur geysað og hefur jafnt og þétt dregið máttinn úr atvinnu- rekstri landsmanna. Raunsætt mat á getu atvinnuveganna til þess að tryggja launþegum kjara- bætur hlýtur því að vera, að sú geta sé ekki til staðar. Forsvars- menn launþega munu svara því til, að það sé svo sem ekkert nýtt að því sé haldið fram, að atvinnuveg- irnir geti ekki staðið undir kjara- bótum. Þeir munu halda því fram, að það hafi alltaf verið viðkvæðið, þegar komið hafi að kjarasamn- ingum. Þeir munu ennfremur spyrja, hvort allt sé sem skyldi í stjórnun og rekstri fyrirtækja og hvort ekki geti verið að rangar ákvarðanir stjórnenda valdi lé- legri afkomu fyrirtækja. Loks munu talsmenn launþega halda því fram, að geti íslenzk atvinnu- fyrirtæki ekki borgað sambærileg laun við það, sem tíðkast í öðrum löndum blasi landflótti við. Það er vafalaust rétt, að of oft hefur því verið haldið fram af vinnuveitendum, að ekkert svig- rúm væri til kjarabóta. Á hinn bóginn er það alveg ljóst, að óraunhæfar kauphækkanir kynda undir aukna verðbólgu eins og dæmin sanna. Og það er eiginlega sama hvert litið er nú um stundir, ekki er hægt að sjá nokkur merki þess í nokkurri atvinnugrein, að grundvöllur sé til þess að atvinnu- vegirnir tryggi launþegum kjara- bætur. í þessu sambandi má ekki gleyma því, að þótt engar grunn- kaupshækkanir verði á þessu ári munu atvinnufyrirtækin greiða um 40% hærri kaupgjald, í árslok en í ársbyrjun einungis vegna vísitöluhækkunar kaupgjalds. Ný vinnu- brögö vinnu- veitenda Það hefur áður legið ljóst fyrir, að engar forsendur væru til kjara- bóta, þegar setzt hefur verið að samningaborði en samt hafa vinnuveitendur skrifað undir samninga um verulegar kaup- hækkanir fremur en að standa í löngu verkfalli sem að sjálfsögðu kostar líka mikla fjármuni. Það er því eðlilegt að menn spyrji: hvers vegna skyldi það ekki gerast einu sinni enn! Svarið er, að vinnuveit- endur hafa bersýnilega tekið upp ný vinnubrögð. Viðbrögð vinnuveitenda við verkfalli yfirmanna á farskipum benda eindregið til þess, að vinnu- veitendur hyggist nú láta skerast alvarlega í odda og standa fast á því að skrifa ekki undir óraun- hæfa kjarasamninga. Vinnuveit- endum hefur verið legið mjög á hálsi fyrir það undanfarin ár, að þeir hafi ekki staðið sig sem skyldi við samningsborðið, að ekki ríkti eðlilegt valdajafnvægi milli þeirra og verkalýðshreyfingarinnar og verkalýðssamtökin hafi í raun getað sagt fyrir um hvernig samn- ingar skyldu vera. Hvort sem þessi gagnrýni er réttmæt eða ekki, er hitt ljóst, að vinnuveitendur eru ekki á þeim buxunum nú að skrifa undir kjarasamninga, sem þeir telja sig ekki geta staðið við. Þeir hafa annars vegar sett verkbann á undirmenn og hins vegar hafið árangursríka áróðurssókn, sem hefur valdið því að í fyrsta sinn í manna minnum er verulegur skilningur ríkjandi á aðstöðu vinnuveitenda og viðhorfum. Þessu veldur ekki sízt málflutn- ingur framkvæmdastjóra Vinnu- veitendasambandsins Þorsteins Pálssonar, á opinberum vettvangi, en hann hefur vakið þjóðarathygli og styrkt vinnuveitendur mjög í vinnudeilum nú. Það er áreiðan- lega ríkjandi viðhorf í hópi vinnu- veitenda, að það sé skylda þeirra að standa fast gegn hvers konar kauphækkunum. Ekki sé við því að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.